Sveitarstjórnarmál - 01.12.1999, Blaðsíða 11
FRÆÐS LUMÁL
Símenntun hjá Reykjavíkurborg
Bylgja Björnsdóttir, fv. frœðslustjóri Félagsþjónustunnar, ogjóhanna K Gustavs-
dóttir, julltrúi starfsþróunar ogfrœðslu í Ráðhúsinu, þróunar- ogjjölskyldusviði
Símenntun er orðin jafn mikilvæg
og það að kunna að lesa og skrifa
hér áður íyrr. Það er af sem áður var
þegar fólk útskrifaðist úr skóla með
þekkingu og hæfni sem átti að
tryggja viðunandi afkomu ævilangt.
Langt ífam á þessa öld var ekki gert
ráð fyrir að störf og þjóðfélag
breyttust svo hratt sem nú er raunin
vegna aukinnar þekkingar og tækni-
framfara. Nú er öldin önnur og
starfsmenn þurfa sífellt að endur-
nýja þekkingu sína. Með þessari
endumýjun viðhalda þeir fæmi sinni
í starfi og em reiðubúnir að takast á
við breytingar. Símenntun varir allt
lífið, þ.e. einstaklingar ljúka ekki
lengur námi í eitt skipti fyrir öll
heldur má gera ráð fyrir því að
menntun sé ævilangt ferli.
Starfsmannastefna
Reykja víkurborgar
I lok níunda áratugarins og í byrj-
un þess tíunda fóm stjómendur í ís-
lensku atvinnulífi að gera sér betur
grein fyrir mikilvægi símenntunar
starfsmanna fyrirtækja sinna. Farið
var að ráða starfsmenn til að sinna
þessum málum eingöngu. Reykja-
víkurborg tók þátt þessari þróun.
Fyrstu starfsmennirnir þar voru
ráðnir í fúllt starf í símenntunarmál-
um í byrjun tíunda áratugarins.
Áður höfðu starfsmannastjórar og
aðrir stjórnendur séð um fræðslu-
málin með öðmm tímaffekum verk-
efnum og fræðsla starfsmanna var
því ekki markviss. Borgin hefúr þvi
á undanförnum árum lagt aukna
áherslu á símenntun starfsmanna
sinna. Stjómendur em æ meðvitaðri
um að mannauðurinn sem felst í
starfsmönnunum ávaxtast ekki í
starfi nema honum sé sinnt. Með út-
gáfú Starfsmannastefnu Reykjavík-
urborgar i lok árs 1997 var þetta
síðan skjalfest með grein um gerð
áætlana í starfsmannamálum og
ffæðslu og starfsþróun.
í starfsmannastefnu Reykjavíkur-
borgar, 21. grein, segir að:
starfsmannastefna
REYKlAVfKURBORGAR
V
„í upphafi hvers árs ber stofnun-
um og fyrirtækjum borgarinnar að
gera starfsáætlun um framkvæmd
starfsmannastefnu. Þar komi fram
hvemig þau hyggjast vinna á gmnd-
velli starfsmannastefnunnar og
hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar í
þeim tilgangi. í lok árs skal meta
hvemig til hefúr tekist.“
í tíundu grein í starfsmannastefn-
unni kveður á um að „Reykjavíkur-
borg stefnir að því að starfsmenn
eigi kost á símenntun innan sem
utan stofnunarinnar til að auka
þekkingu sína og faglega hæfni sem
nýtist í starfi. Það er jafnt á ábyrgð
starfsmanns sem yfirmanns að við-
halda og bæta fagþekkingu og aðra
sérþekkingu sem nauðsynleg er
starfsins vegna“.
Níunda grein í starfsmannastefn-
unni fjallar um starfsþróun og þar
segir að „Reykjavíkurborg
hyggst fylgja eftir starfsþróun
starfsmanna að þvi marki sem hún
getur orðið bæði starfsmanninum og
Reykjavíkurborg til gagns. Starfs-
þróun er ekki einhliða aðgerð starfs-
manns eða stjórnanda. Hún er á
ábyrgð beggja og er hluti af þátttöku
starfsmanns í starfsmannasamtölum,
símenntun, tilflutningi í starfi og
samvinnu. Starfsþróun og starfsör-
yggi tengjast með beinum hætti.
Starfsþróun á sér stað þegar starfs-
maður tekst á við starf, sem gerir
auknar kröfúr til hans hvort sem það
er ofar eða til hliðar við hann í
skipuritinu“.
Starfsmannastefna Reykjavíkur-
borgar felur því í sér virka stefúu í
símenntun og starfsþróun starfs-
manna. Þátttaka starfsmanna og
stjórnenda er forsenda öflugrar
ffæðslu og starfsþróunar innan fýrir-
tækja og stofnana.
Hvernig förum viö að hjá
Reykjavíkurborg?
Verkefnisstjóri í starfsþróun og
fræðslu er starfandi í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Fræðslustjórar starfa
265