Sveitarstjórnarmál - 01.12.1999, Síða 31
BARNAVERND
Barnahús — samstarfsvettvangur
vegna kynferðisbrota gegn börnum
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bamavemdarstofu
í byijun árs 1997 lágu fyrir niður-
stöður könnunar Bamavemdarstofii
á umfangi kynferðisbrota gegn
börnum, sem gerð var i tilefni af
fyrirspum á Alþingi.
Niðurstöður hennar komu mörg-
um í opna skjöldu. Þær leiddu í ljós
að á fimm ára tímabili höfðu bama-
verndarnefndir á íslandi mál 560
bama til meðferðar vegna meints
kynferðislegs ofbeldis eða sem
vörðuðu að meðaltali um 110 böm
árlega.
Áætlað var að lögreglurannsókn
hefði einungis farið ffam á helmingi
málanna og innan við 30% var vís-
að til ríkissaksóknara. Saksóknari
ákærði í um 10% málanna og sak-
felling náðist fram í 8 til 9%. Nú er
unnið að frekari rannsókn á þessum
atriðum og má búast við að niður-
stöður liggi fyrir næsta vor.
Ofangreind könnun gaf ekki ein-
ungis vísbendingu um að umfang
kynferðisbrota gegn bömum á Is-
landi væri miklu meira en áður
hafði verið talið heldur jafhffamt að
víða mætti bæta starfshætti við
vinnslu málanna verulega jafhffamt
því sem efla þyrffi stuðning og með-
ferð fyrir fórnarlömb kynferðis-
brota. Segja má að þetta hafi verið
aðdragandinn að stofnun Bamahúss
en tillaga að stofnun þess var lögð
fram i ríkisstjórn strax sumarið
1997. Fyrirmynd þess er sótt vestur
um haf til Bandaríkjanna þar sem
sambærileg úrræði eru orðin ráð-
andi við vinnslu kynferðisbrotamála
gegn bömum.
Gmndvallarhugmyndin sem býr
að baki Bamahúss er sú, að í stað
þess að bamið þurfi að laga sig að
þeim stofnunum samfélagsins sem
hlutverki hafa að gegna við meðferð
þessara mála, sé það þeirra að að-
laga starfshætti sína að þörfum
barnsins. Kynferðisofbeldi gegn
bömum er fjölþætt viðfangselhi, allt
í senn bamavemdarmál, mál réttar-
vörslukerfisins og heilbrigðisþjón-
ustunnar. Að rannsókn og meðferð
slikra mála koma því bamavemdar-
nefndir sveitarfélaganna, lögregla,
læknar, saksóknari, réttargæslu-
menn, verjendur og dómarar. Ef
hver þessara aðila um sig gerir
kröfu til að vinna málið á eigin for-
sendum er hætt við að velferðar
bamsins sé ekki gætt. Rannsóknir
erlendis hafa sýnt ffarn á skelfilegar
afleiðingar þess að börn sem sætt
hafa kynferðisofbeldi þurfi að fara
frá einni stofnun til annarrar og
segja ólíkum viðmælendum frá
sársaukafullri lífsreynslu.
Slíkt getur jafnvel orðið barni
þungbærara en upphaflega ofbeldið.
Þá er jafhframt sú hætta fyrir hendi
að ffásögn bams af atvikum brengl-
ist eftir því sem viðmælendur verða
fleiri og það getur torveldað máls-
meðferð þegar ffam í sækir. Bama-
húsinu er ætlað að ráða bug á þess-
um vanda með því að vera sam-
starfsvettvangur allra þeirra opin-
beru aðila, sem hlutverki hafa að
gegna við vinnslu þessara mála,
undir sama þaki þannig að barnið
þurfí einungis að leita á einn stað og
ræða við einn viðmælanda um það
áfall sem það hefur orðið fyrir.
Mjög var vandað til undirbúnings
að starfrækslu Bamahúss. Að þeim
undirbúningi komu ríkissaksóknari,
ríkislögreglustjóri, lögreglustjórinn í
Reykjavík, Bamaspítali Hringsins,
Bama- og unglingageðdeild Land-
spitalans, Samtök félagsmálastjóra á
íslandi, Félagsþjónustan í Reykjavík
auk Bamaverndarstofu, sem rekur
húsið. Við undirbúninginn voru
m.a. fengnir sérfræðingar frá
Bandaríkjunum sem veittu fræðslu
og ráðgjöf. í byrjun árs 1998 var
Vigdís Erlendsdóttir sálfræðingur
ráðin til að veita Bamahúsi forstöðu
og síðar Ragna Guðbrandsdóttir fé-
lagsráðgjafí. Báðar fengu þær um-
fangsmikla þjálfun í Bandaríkjunum
við framkvæmd rannsóknarviðtala
og meðferð þeirra barna sem sætt
hafa kynferðisofbeldi.
Barnahúsi var valinn staður í
kyrrlátu og grónu íbúðahverfi borg-
arinnar. Leitast var við að gera það
þannig úr garði að það sé vinsam-
legt börnum. Litaval, húsgögn,
myndir og leikfong eiga að stuðla
að vellíðan bamsins. Góð aðstaða er
fyrir foreldra eða aðra aðstandendur
sem fylgja baminu en þeim er veitt
ráðgjöf og áfallahjálp eftir því sem
þarf. Sérstök vinnuherbergi em fyrir
starfsmenn bamavemdamefnda og
lögreglu, ásamt nauðsynlegum bún-
aði, sem ekki síst standa til boða
þeim sem koma utan af landi. Kom-
285