Sveitarstjórnarmál - 01.12.1999, Qupperneq 50
MÁLEFNI ALDRAÐRA
Samstarf unglinga og eldri borgara
Margrét Erlendsdóttir, framkvœmdastjóri framkvœmdanefirdar um ár aldraðra,
og Hildur Björg Hafstein, verkefnisstjóri Islands án eiturlyfja
Þjóðfélag fyrir fólk á öllum aldri
er yfirskrift Sameinuðu þjóðanna á
ári aldraðra 1999. í grundvallarat-
riðum rúmast helstu markmið ársins
í þessum orðum. Áhersla er lögð á
að stuðla að samstöðu kynslóða,
auka þátttöku aldraðra á sem flest-
um sviðum þjóðlífsins, auka mennt-
un á efri árum og vinna gegn félags-
legri einangrun aldraðra.
Framkvæmdanefnd árs aldraðra
hefur í starfí sínu lagt áherslu á að
efna til verkefna sem eru líkleg til
að vaxa og styrkjast eftir þvi sem
fram líða stundir. Þótt ár aldraðra
liði undir lok er mikilvægt að verk-
efni ársins lifí og dafni þannig að
áfram verði byggt á því sem vel hef-
ur verið gert.
Samstarf framkvæmda-
nefndar árs aldraöra og
íslands án eiturlyfja
Snemma á þessu ári höfðu for-
svarsmenn áætlunarinnar Island án
eiturlyfja samband við fram-
kvæmdastjóm árs aldraðra og ósk-
uðu eftir samstarfí við útgáfu vegg-
spjalds sem fékk yfirskriftina
Byggjum brýr. Tilgangurinn með
útgáfu þess var að benda öldruðum
á hve veigamiklu hlutverki þeir geta
gegnt í lífi bama og unglinga með
því að vinna traust þeirra og trúnað.
Þótt markmið íslands án eiturlyíja
og framkvæmdanefndar árs aldraðra
virðist eiga fátt sameiginlegt við
fyrstu sýn hefúr annað komið á dag-
inn. Til að stuðla að samstöðu kyn-
slóðanna, sem er eitt af grundvallar-
markmiðunum á ári aldraðra, er
nauðsynlegt að efla og bæta sam-
skipti ungra og aldraðra. Með sam-
vinnu og samráði gefast tækifæri til
að auka þekkingu ungra og aldraðra
á lífi og menningu hvors hóps um
sig. Ef vel tekst til að brúa kyn-
slóðabilið er það mikilvægur áfangi
í vímuvarnastarfi. Hér er því um
sameiginlega hagsmuni að ræða.
Góð samvinna tókst milli Islands
án eiturlyfja og framkvæmdanefnd-
ar árs aldraðra við útgáfu vegg-
spjaldsins. Því var dreift um allt
land og fékk rnjög góðar viðtökur.
Þetta varð til þess að ákveðið var að
standa að fleiri sameiginlegum
verkefnum sem hefðu það markmið
að færa unga og aldraða nær hvor
öðrum, báðum hópum til gagns og
ánægju.
Trjárækt - mannrækt
Annað verkefnið í þessum anda
var að koma á tengslum félagsmið-
stöðva unglinga og eldri borgara.
Þar sem um tilraunaverkefhi var að
ræða var leitað til félagsmiðstöðva í
tveim hverfúm í Reykjavík, annars
vegar í Vesturbænum og hins vegar
i Heima- og Vogahverfi. Þegar farið
var að huga að sameiginlegum verk-
efnum félagsmiðstöðva ungra og
aldraðra kom fljótlega upp sú hug-
mynd að þeir tæku sameiginlega að
sér landskika til trjáræktar. Vinnu-
heiti þess verkefnis er „Trjárækt -
mannrækt". Stofnaður var undir-
búningshópur þeirra sem stóðu að
verkefninu og jafnframt var leitað
til Skógræktarfélags Reykjavíkur
um land til afnota. Niðurstaðan varð
sú að taka á leigu land til ræktunar-
starfa i Hvammsvík í Hvalfirði. 100
manna hópur unglinga og eldri
borgara fór upp í Hvammsvík í
byrjun júlí í blíðskaparveðri og
gróðursetti 1000 trjáplöntur sem
Skógræktarfélag íslands hafði gefið
til verkefnisins. Ferðin tókst í alla
staði vel og var ýmislegt gert sér til
skemmtunar þegar hvíld var tekin
frá gróðursetningunni. Meðal ann-
ars var efnt til samkeppni um nafn á
skikann og varð Álfamörk fyrir val-
inu. Þetta er framtíðarverkefni og er
miðað við að ferðir í Álfamörk
verði fastur liður í sumarstarfí fé-
lagsmiðstöðvanna.
Samvinna og tengsl milli félags-
miðstöðvanna eru þó ekki eingöngu
bundin við Hvammsvíkurverkefnið,
því verið er að undirbúa ýmis sam-
eiginleg verkefni sem verða liður í
vetrarstarfí þeirra. Það er sérlega
ánægjulegt hve vel unglingar og
eldri borgarar hafa tekið þessari ný-
breytni og það er greinilegt að fólk
þarf ekki að vera á sama aldri til að
eiga saman skemmtilegar stundir.
Einum kennt, öðrum bent
- skóli fyrir fólk á öllum
aldri
Undanfarin ár hefúr Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur staðið fyrir gerð
kynningar- og fræðsluefnis undir
heitinu Skóli atvinnulífsins þar sem
verkefnin miðast við vettvangsferðir
nemenda og starfsfræðslu. Á ári
304