Morgunblaðið - 26.11.2011, Qupperneq 47
Rapparinn Emmsjé Gauti hefur sent
frá sér myndband við lagið „Ég er
alltof“ sem smíðað er af Basic-B og
finna má á plötu Emmsjé Gauta,
Bara Ég.
Á plötunni leggja ýmsir listamenn
Gauta lið, m.a. Berndsen, Blazroca
og Frikki Dór. Tökur á myndband-
inu fóru fram í febrúar sl. og stóðu
þær nótt sem nýtan dag í tvo sólar-
hringa.
„Myndbandið hefur fengið rosa-
legar undirtektir á skömmum tíma
og virðast skiptar skoðanir á inni-
haldi þess,“ segir í tilkynningu frá
rapparanum og er sjón sögu ríkari.
Myndbandið má sjá á YouTube.
Skiptar
skoðanir
Morgunblaðið/Ernir
Notalegt Rapparinn Emmsjé Gauti
hefur það huggulegt í baði.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Frostrósir hófu árlega jóla-
tónleikaferð sína í gær. Fyrstu tón-
leikarnir verða haldnir í Færeyjum
og síðan verður farið í hringferð um
landið og þá viðameiri hringferð en
hin fyrri ár, í tilefni af því að Frost-
rósir hafa haldið jólatónleika í tíu
ár. Alls verða
haldnir tónleikar
á 15 stöðum víðs
vegar um landið
og mikill fjöldi
tónlistarmanna
kemur að þeim.
Flytjendur í
hringferðinni um
landið verða
söngvararnir
Friðrik Ómar,
Garðar Thór Cortes, Hera Björk,
Margrét Eir og Vala Guðnadóttir
ásamt níu manna hljómsveit og
barna- og unglingakórum. Tónleik-
arnir á Akureyri og í Reykjavík eru
enn stærri í sniðum, karlakórinn
Fóstbræður bætist m.a. við og fjöldi
flytjenda fer í annað hundraðið.
Margrét Eir er orðin býsna sjóuð
í Frostrósum, hefur sungið með
þeim öll árin að undanskildu einu.
Margrét var á Reykjavíkurflugvelli
þegar blaðamaður sló á þráðinn til
hennar í gær en þá var ekki ljóst
hvenær flogið yrði til Færeyja
vegna þess ofsaveðurs sem gekk yf-
ir þær deginum áður sem olli miklu
tjóni.
Tugir tónleika
„Veistu, ég hætti að telja þegar
ég var komin upp í tuttugu,“ svarar
Margrét, spurð að því hvað hún
syngi á mörgum Frostrósatónleik-
um í ár. „Þetta eru yfir tuttugu, í
kringum þrjátíu,“ bætir hún við.
Hver söngvari syngi átta til tíu lög
og þá m.a. í dúettum. Tónleikunum
sé skipt niður í lagasyrpur og nefnir
Margrét sem dæmi að ein heiti „Yl-
urinn frá arninum“. Í þeirri syrpu
séu létt lög á borð við „Hvít jól“.
„Þetta er svolítið hátíðlegt í ár, verð
ég að segja. Ég hef alltaf verið
pínulítið skotin í svona hátíðlegu
prógrammi,“ segir Margrét en efn-
isskrá Frostrósa er breytileg milli
ára. Til dæmis um hátíðleikann
nefnir hún að tvær Ave Maríur
verði sungnar í Færeyjum, „Heyr
himna smiður“ og „Jólafriður“.
„Það eru nokkrar stórar bombur
þarna, mikið af hátíðlegum lögum,“
segir Margrét, aðeins minna af jóla-
poppi fyrir vikið. „Það er nauðsyn-
legt að hafa góða blöndu af hvoru
tveggja,“ segir hún, þ.e. poppuðum
jólalögum og sígildum. Spurð að því
hvort ákveðin lög séu í uppáhaldi
hjá henni nefnir hún „Heyr himna
smiður“ og „Ó, helga nótt“.
Ferðalagið erfiðast
-Þetta er svakaleg törn, ertu ekki
búin á því þegar jólin loksins koma?
„Í fyrsta skipti þegar þetta var
svona törn, held það hafi verið 2007,
17 tónleikar minnir mig, þá var ég
svolítið þreytt. En maður bara set-
ur sig inn á þetta, þetta er bara
vertíð. Það er ekki endilega að tón-
leikarnir séu erfiðastir heldur
ferðalagið,“ svarar Margrét. Þá
skipti miklu að vera í góðum fé-
lagsskap. „Auðvitað tekur þetta
svolítið á, maður er fjarri fjölskyldu
og vinum og svona. Þetta er samt
ekki svona dramatískt sko,“ segir
Margrét og hlær.
-Ertu jólabarn?
„Ég er það í rauninni ekki. Ég er
jólabarn þegar kemur að jólunum
sem mér finnst bara vera á Þorláks-
messu. Ég sit ekki og föndra og allt
það,“ svarar Margrét. Hún geri sör-
ur með vinkonum sínum, skemmti
sér á Þorláksmessu og njóti þess að
elda jólamatinn.
Frostrósir koma við á eftirfar-
andi stöðum á hringferð sinni um
landið: Akranesi, Reykjanesbæ,
Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn,
Egilsstöðum, Eskifirði, Vopnafirði,
Ýdölum, Varmahlíð, Ísafirði,
Tálknafirði, Reykjavík og Akureyri.
Frostrósirnar springa út
Frostrósir halda í árlega jólatónleikaferð sína Færeyjar fyrsti viðkomustaður rósanna
Ljósmynd/Lína Thoroddsen
Jólalegt Frostrósir stilltu sér upp í gær á Reykjavíkurflugvelli, förinni var heitið til Færeyja.
Margrét Eir
Hjartardóttir
frostrosir.is
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
JACK AND JILL Sýnd kl. 6 - 8 - 10
HAPPY FEET 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4 - 6
HAPPY FEET 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 (700kr.)
IMMORTALS 3D Sýnd kl. 8 - 10:15
BORGRÍKI Sýnd kl. 6 - 8
TOWER HEIST Sýnd kl. 10
ÆVINTÝRI TINNA 3D Sýnd kl. 2 (950kr.)
ELÍAS ÍSL TAL Sýnd kl. 4:15
ÞÓR 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA
HHHH
ÞÞ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
KHK. MBL
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
„HAPPY FEET 2 ER JAFNVEL
BETRI EN FYRRI MYNDIN!“
„HIN FULLKOMNA
HELGIDAGASKEMMTUN“
- MARA REINSTEIN / US WEEKLY
HHHHSjáðu Al P
acino fara
á kostum
í sprenghl
ægilegu a
ukahlutver
ki!
HHH
T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu AukakrónumTilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKT R MEÐ RAUÐU
- H.S.S., MBL
HHHHH
B.G. -MBL
HHHH
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
FRÁ FRAMLEIÐENDUM 300 Í 3D
T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ & HEYRT
-Þ.Þ., FT
FORSÝNINGAR
JACK AND JILL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 - 5.50 - 8 - 10.10 L
JACK AND JILL LÚXUS KL. 1 - 3.30 - 5.50 - 8 - 10.10 L
TROPA DE ELITE 2 KL. 10.20 16
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.30 16
TOWER HEIST KL. 5.40 - 8 12
IN TIME KL. 10.20 12
TINNI 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.40 - 8 7
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 - 5.50 L
ÞÓR 2D ÍSLENSKT TAL KL. 1 (TILBOÐ) L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D FORSÝNING KL. 3.30**
*AÐEINS LAUGARDAG - **AÐEINS SUNNUDAG
JACK AND JILL KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 - 8 - 10.10 L
TROPA DE ELITE 2 KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.30 16
IN TIME KL. 8 - 10.30 12
TINNI 3D KL. 3.10 (TILBOÐ)** - 5.40 7
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.20 (TILBOÐ) L
ELDFJALL KL. 3.30 - 5.45 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D FORSÝNING KL. 3.10*
JACK AND JILL KL. 6 - 8 - 10 L
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.10 16
TOWER HEIST KL. 6 12
TINNI 3D KL. 4 (TILBOÐ) 7
ELÍAS OG FJÁRSJÓÐSLEITIN KL. 4 (TILBOÐ) L