Morgunblaðið - 26.11.2011, Page 52
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2011
Dagur íslenskar tónlistar verður
haldinn þann 1. des. næstkomandi.
Útvarpsstöðvar landsins munu þá
spila þrjú íslensk lög samtímis kl.
11.15. Hagsmunasamtök íslenskrar
tónlistar hvetja landsmenn til að fara
að viðtækjunum af tilefninu.
Syngjum saman á degi
íslenskrar tónlistar
Kvikmyndin
Órói í leikstjórn
Baldvins Z, fram-
leidd af Ingvari
Þórðarsyni og Júl-
íusi Kemp, var val-
in besta mynd
ársins á Alþjóð-
legu unglinga
kvikmyndahátíð-
inni í Wiesbaden í Þýskalandi núna í
vikunni. Leikstjórinn fékk 2.500 evr-
ur í verðlaunafé. Kvikmyndin kom ný-
lega út á dvd á Íslandi.
Órói valinn besta
myndin í Þýskalandi
Bók Einars Más Guðmundssonar,
Bankastræti núll, hlýtur jákvæða
gagnrýni í dönsku dagblöðunum
Politiken, Berlingske Tidende og In-
formation. Í Berlingske Tidende hlýt-
ur bókin fjórar stjörnur
af sex mögulegum og í
Politiken fær bókin
fimm stjörnur af sex
mögulegum. Í In-
formation segir
m.a. að hann
Einar sé bæði
fært skáld og
athugandi.
Danskir gagnrýn-
endur jákvæðir
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég á minn snaga úti en verð að
koma á mínum vanalega tíma,
snemma á morgnana, til þess að
eiga hann,“ segir Þorbjörn Guð-
mundsson, einn fastagesta Vestur-
bæjarsundlaugar í hálfa öld.
Vesturbæjarsundlaug er þriðja
vinsælasta sundlaug landsins með
um 250 þúsund gesti á ári. Um 80-
90% eru reyndar fastagestir en er-
lendum ferðamönnum fjölgar stöð-
ugt. Atriði í Iceland Airwaves-
tónlistarhátíðinni hafa verið í laug-
inni og segir Hafliði Halldórsson,
forstöðumaður sundlaugarinnar, að
það hafi haft mikið að segja. Í gær
voru 50 ár frá vígslu laugarinnar
og verður afmælishátíð með ýms-
um uppákomum í viku af því tilefni.
Fastheldni
Bárður Ísleifsson teiknaði laug-
ina en Gísli Halldórsson tók við
verkinu og lauk því. Hann var líka
fastagestur í áratugi og átti sinn
skáp í karlaklefanum. „Ég var ekk-
ert að stríða við að fá lágt númer
eins og sumir og fékk mér tveggja
stafa tölu,“ segir Gísli sem hafði
Snorralaug í Reykholti sem fyr-
irmynd að heitu pottunum. Þor-
björn gafst fljótlega upp á því að
nota skápana og skipti um föt í úti-
skýlinu þar til í fyrra að hann byrj-
aði aftur að klæða sig úr og í inni á
veturna. „Það er allt annað að vera
vindþurrkaður,“ segir hann.
Höskuldur Goði Karlsson var
fyrsti forstöðumaður Vesturbæj-
arsundlaugar. Hann segir að úti-
skýlið hafi notið vinsælda frá
byrjun, slegist hafi verið um sól-
bekkina sem hann hafi látið
smíða og pottarnir slegið í
gegn. „Guðmundur Jónsson
söngvari fékk aldrei nógu
heitan pott, en hann hafði
þann góða sið að spígspora
um á handklæðinu eftir köldu
sturtuna og fá sér í nefið á bakk-
anum.“ Sumir geymdu sunddótið á
staðnum. „Við höfðum litla þvotta-
vél og þvoðum af þeim, einkum
Pétri Snæland og félögum sem
komu úr Sundhöllinni.“ Krakka-
skarinn er honum sérlega minnis-
stæður. Vegna mikillar aðsóknar á
sumrin þurfti að takmarka tímann í
lauginni og þegar mest var var
rekið upp úr eftir 45 mínútur.
Höskuldur Goði innleiddi gul, rauð,
græn og blá litabönd og sagði lit-
urinn til um hvenær viðkomandi
þurfti að fara upp úr. „En sumir
strákarnir voru fljótir að átta sig á
því að skila ekki böndunum, áttu
alla liti og sýndu aldrei þann lit
sem við átti hverju sinni,“ segir
hann.
Sundfataþvottur og svindl
Afmælishátíð í
Vesturbæjarlaug
vegna 50 ára sögu
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Vesturbæjarsundlaug Á meðal nýjunga voru sólbekkir, heitir pottar og útiskýli þar sem fólk gat skipt um föt.
Hörður Felixson vann í steypu-
vinnu við Vesturbæjarsundlaug
sumarið 1958. Hörður var stór
og sterkur og keyrði steypu-
börur frá klukkan 20 mín-
útur yfir sjö á morgnana til
um klukkan sjö á kvöldin.
Hann lék handbolta og fót-
bolta með KR og var einn
besti miðvörður landsins.
Þetta sumar lék Hörður
fyrsta landsleik sinn í
fótbolta þegar Ís-
land tók á móti Írlandi á Laug-
ardalsvelli. „Ég vann minn vinnu-
dag eins og venjulega en síðdegis
kom verkstjórinn til mín þar sem
ég var á ferðinni með börurnar
fullar af steypu og sagðist ætla
að gefa mér frí það sem eftir væri
dagsins,“ segir Hörður. „Ég hætti
því snemma, um fimmleytið, en
það dugði ekki til, við töpuðum
3:2. En þetta var góður verkstjóri
og ég á góðar minningar frá laug-
inni.“
Fékk að fara um fimmleytið
HÖRÐUR FELIXSON RÉTT NÁÐI Í FYRSTA LANDSLEIKINN
Hörður Felixson
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Andlát: Fjölnir Stefánsson
2. Valdi HM frekar en starfið
3. Beiðni Huangs synjað
4. Ekki búinn að tapa aleigunni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 5-10 m/s við SV-ströndina en annars hæg suðlæg eða
breytileg átt. Él á S- og V-landi. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.
Á sunnudag Suðvestan 3-8 m/s með éljum SV-til, en björtu veðri á NA- og A-landi. Frost
0 til 10 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Á mánudag Sunnan 8-15 m/s með slyddu eða rigningu. Austlægari á N-verðu landinu og
snjókoma eða slydda. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands, annars um og undir frostmarki.
Kornungt lið Njarðvíkur gerði sér lítið
fyrir og lagði Stjörnuna að velli í úr-
valsdeild karla í körfubolta í gær-
kvöld. Sextán ára strákur var þar í
þýðingarmiklu hlutverki. Charles
Parker tryggði Keflavík annan sig-
urinn í röð með „flautukörfu“, nú
gegn Snæfelli í framlengdum leik í
Stykkishólmi, og Þór úr Þorlákshöfn
vann Fjölni örugglega. »4
Njarðvíkurstrákar
skelltu Stjörnunni
Ísland sigraði Tékkland,
31:24, í vináttulandsleik
kvenna í handknattleik á Hlíð-
arenda í gærkvöld. Frammi-
staða liðsins, eins og þegar
það spilaði vel í gær, ætti að
koma því í 16 liða úrslitin á
HM eins og markmiðið hlýtur
að vera. Vörn og markvarsla
verða hinsvegar að standast
áhlaup sterkari sóknarmanna
en þeirra sem þær áttu við í
gær. »2
Fín frammistaða
gegn Tékkum
Gylfi Gylfason, hornamaður úr Hauk-
um, er leikmaður níundu umferð-
arinnar í handboltanum hjá Morg-
unblaðinu. Hafnarfjarðarliðið er á
toppi deildarinnar. „Við erum ekki
með stórstjörnur en með ágæta liðs-
heild og jafnt og flott lið,“ segir Gylfi
um frammistöðu Haukanna. »2-3
„Ekki með stórstjörnur
en ágæta liðsheild“