Morgunblaðið - 06.01.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012
Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðissinna í
Búrma, kvaðst í gær vera vongóð um að sjá
draum sinn um lýðræðislegar kosningar í land-
inu rætast.
Suu Kyi ræddi við William Hague sem varð
fyrsti breski utanríkisráðherrann í rúma hálfa
öld til að heimsækja Búrma. Leiðtogar hersins
stjórnuðu landinu með harðri hendi í áratugi
þar til á liðnu ári þegar þeir skipuðu banda-
menn sína í ríkisstjórn sem er borgaraleg að
nafninu til.
Hague ræddi einnig við Thein Sein, forseta
Búrma, og hvatti ráðamenn landsins til að láta
alla pólitíska fanga lausa, efna til frjálsra og
lýðræðislegra kosninga, heimila hjálpar-
samtökum að aðstoða fólk á átakasvæðum og
gera ráðstafanir til að tryggja sættir í landinu.
„Ég tel að það verði lýðræðislegar kosningar
áður en ævi mín er öll, en auðvitað veit ég samt
ekki hversu lengi ég lifi,“ sagði Suu Kyi fyrir
fundinn með Hague.
Leiðtogar hersins mynduðu ríkisstjórnina
eftir fyrstu þingkosningarnar í Búrma í 20 ár,
eða frá árinu 1990 þegar flokkur Suu Kyi sigr-
aði með miklum yfirburðum en herfor-
ingjastjórnin ógilti síðan kosningarnar til að
hindra að flokkurinn kæmist til valda. Næstu
tuttugu árin var Suu Kyi haldið á bak við lás og
slá eða í stofufangelsi í alls fimmtán ár. Hún
var síðan látin laus eftir kosningarnar í fyrra
og fram hafa komið ýmsar vísbendingar um að
leiðtogar hersins vilji koma á lýðræðislegum
umbótum.
Býður sig fram til þings
Suu Kyi hyggst bjóða sig fram í aukakosn-
ingum sem haldnar verða 1. apríl og nái hún
kjöri verður það í fyrsta skipti sem hún fær
sæti á þinginu. Bandamenn herforingjanna
verða þó áfram með mikinn meirihluta á
þinginu, hvernig sem aukakosningarnar fara.
Suu Kyi virðist ekki hafa mikinn hug á því að
bjóða sig fram í forsetakosningum þegar fram
líða stundir. „Ég er ekki einu sinni viss um að
það sé eitthvað sem ég myndi vilja gera,“ sagði
hún. bogi@mbl.is
Er vongóð um lýðræði í Búrma
Suu Kyi spáir lýðræðislegum kosningum William Hague skorar á ráðamennina að láta alla
pólitíska fanga lausa Fyrsta heimsókn bresks utanríkisráðherra til Búrma í rúma hálfa öld
Reuters
Heimsókn Suu Kyi heilsar William Hague í bústað sendiherra Breta í Yangon.
Að minnsta kosti 68 manns biðu
bana í árásum á sjíta í Írak í gær,
mannskæðustu árásum í landinu í
tæpa fimm mánuði. Blóðsúthelling-
arnar eru raktar til vaxandi tog-
streitu milli súnníta og sjíta í Írak og
deilna sem gætu orðið til þess að
landið liðaðist í sundur.
Að minnsta kosti 45 manns lágu í
valnum eftir sprengjuárás í borginni
Nasiriyah í sunnanverðu landinu
þegar pílagrímar úr röðum sjíta
söfnuðust þar saman til að taka þátt í
árlegum helgiathöfnum.
Fimm sprengjuárásir voru einnig
gerðar í hverfum sjíta í Bagdad og
kostuðu alls 23 borgarbúa lífið.
Togstreitan milli súnníta og sjíta
hefur aukist frá því að síðustu
bandarísku hermennirnir voru flutt-
ir frá Írak í desember. Spennan
magnaðist fyrir hálfum mánuði þeg-
ar yfirvöldin gáfu út handtökutil-
skipun á hendur súnnítanum Tariq
al-Hashemi, varaforseta Íraks. Hon-
um er gefið að sök að hafa skipað líf-
vörðum sínum að myrða pólitíska
andstæðinga en hann neitar því og
flúði til sjálfstjórnarsvæðis Kúrda í
norðanverðu landinu.
„Pólitísku leiðtogarnir berjast sín
á milli um völdin og við gjöldum
þess,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
sjíta í Bagdad um blóðsúthellingarn-
ar í borginni. „Hvers vegna ættum
við að gjalda þess en ekki þeir?“
Blóðugar árásir og illdeilur í Írak
Reuters
Sorg Írakar syrgja ættingja sinn sem beið bana í einni árásanna í Bagdad.
„Verri en Saddam“
» Fulltrúar stærsta flokks
súnníta hafa neitað að sitja
fundi þingsins og þjóðstjórnar
Íraks vegna deilnanna við sjíta
sem þeir saka um að hafa söls-
að undir sig öll völd.
» Súnnítinn Saleh al-Mutlak
aðstoðarforsætisráðherra hef-
ur lýst forsætisráðherranum
og sjítanum Nuri al-Maliki sem
„verri einræðisherra en Sadd-
am Hussein“.
Túnfiskur var seldur á markaði í Tókýó fyrir
56,49 milljónir jena, andvirði 90,5 millj. króna,
og er það hæsta verð sem nokkru sinni hefur
verið greitt fyrir túnfisk, helmingi hærra en
fyrra met sem sett var fyrir ári. Fiskurinn var
269 kíló og kaupandinn var Kiyoshi Kimura, eig-
andi sushi-veitingastaða. Matreiðslumeistari
eins veitingastaðanna heldur hér á haus
túnfisksins eftir að hafa skorið hann í gær.
Reuters
Dýrasti túnfiskur sögunnar
Fjöldi atvinnulausra Suður-
Evrópubúa hefur streymt til Noregs
að undanförnu í leit að gulli og
grænum skógum. Ekki hafa allir
haft erindi sem erfiði og hefur hlut-
skipti sumra orðið að fá engin tæki-
færi á vinnumarkaðnum.
Eftirspurnin kemur fram í tölum
skattayfirvalda. Þannig sóttu á ann-
að þúsund Spánverjar um skráningu
á skattskrá í fyrra og þeim fjölgaði
um 33% frá fyrra ári.
Fjölgunin hjá grískum innflytj-
endum var 82% milli ára en 6% hjá
ítölskum atvinnuleitendum.
Eru margir umsækjendur sagðir
vel menntaðir, jafnvel hámenntaðir.
Atvinnuástand er mjög bágborið í
heimaríkjunum og skýrir það flutn-
inginn um álfuna endilanga.
Spánverjinn Gonzalo Marina er
einn þeirra sem ekki hafa fengið
vinnu. Konan hans og tvö börn urðu
eftir á Spáni en ekki tók betra við í
Noregi. Þar þarf Marina að reiða sig
á ókeypis mat hjálparstofnana.
Straumurinn úr suðri hefur aukið
þrýstinginn á góðgerðarsamtök og
hjálpræðisherinn í Ósló og er eft-
irspurnin í sumum tilfellum orðin
meiri en framboðið.
Áður voru Austur-Evrópubúar
fjölmennir en nú eru margir Spán-
verjar, Portúgalar, Ítalir og Grikkir
að leita aðstoðar. sigrunrosa@mbl.is
Fá ekki
vinnu í
Noregi
Margir S-Evrópu-
búar í atvinnuleit