Morgunblaðið - 11.02.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Um 68% þeirra kvenna sem eru með PIP-
brjóstapúða og hafa komið til ómskoðunar hjá
Krabbameinsfélaginu hafa greinst með leka
púða. Að sögn Geirs Gunnlaugssonar landlæknis
hafa í heildina 105 konur komið til ómskoðunar í
Reykjavík og á Akureyri og hefur 71 kona
greinst með leka púða, samkvæmt upplýsingum
frá Krabbameinsfélaginu.
Í þessari viku voru 64 konur skoðaðar á
fimmtudag og föstudag og reyndust 37 þeirra
vera með leka brjóstapúða. Þetta þýðir að tæp
58% þeirra voru með leka púða, sem er mun
lægra hlutfall en meðal þeirra kvenna sem komu
í síðustu viku. Í þessari viku voru einnig mun
fleiri konur skoðaðar en í þeirri síðustu.
Leki greindist hjá 80% kvenna
Í síðustu viku, sem er fyrsta vikan sem óm-
skoðunin fór fram, var 41 kona skoðuð. Niður-
staðan þá var að 34 konur greindust með leka
púða, fimm voru með heila púða en tvær
kvennanna þurfa nánari skoðun. Þetta þýðir að
yfir 80% voru þá með leka PIP-brjóstapúða.
Ómskoðun fer fram hjá Krabbameinsfélag-
inu fimmtudaga og föstudaga og panta konur sér
tíma sjálfar. Í lok síðustu viku höfðu rúmlega
200 konur, af um 400, með PIP-púða óskað eftir
skoðun samkvæmt upplýsingum landlæknis.
Lekir púðar hjá 68% kvennanna
Hlutfall þeirra kvenna sem greinast með leka PIP-brjóstapúða lækkar verulega á milli vikna
Í fyrstu viku ómskoðunar greindust um 80% með leka brjóstapúða en 58% í þessari viku
Reuters
Leki Hér sést lekur PIP-sílikon brjóstapúði sem var fjarlægður úr konu í Frakklandi.
PIP-brjóstapúðamálið
» Í byrjun árs kom í ljós að
um 440 konur hér á landi væru
með brjóstapúða að gerð PIP.
» Af þeim eru um áttatíu
konur nú að skoða málsókn
vegna þessa.
» 10. janúar tilkynnti vel-
ferðarráðuneytið að konum
með PIP-púða yrði boðin
ókeypis ómskoðun á brjóstum
og að ríkið greiddi kostnað við
að fjarlægja leka púða.
» 8. febrúar tilkynnti ráðu-
neytið að öllum konum sem
hefðu fengið PIP-púða væri
boðið að láta nema þá burt.
Andri Karl
Helgi Bjarnason
Karlmaður á áttræðisaldri var hand-
tekinn á Suðurnesjum í gær vegna
rannsóknar lögreglu á sprengingu á
Hverfisgötu í lok síðasta mánaðar.
Maðurinn er grunaður um aðild að
málinu. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur einnig lagt hald á ýms-
an búnað sem tengist málinu og bíl
mannsins en ökutækið er sömu gerðar
og lýst var eftir.
Leifar af sprengju fundust neðst á
Hverfisgötu, steinsnar frá stjórnar-
ráðinu, þriðjudaginn 31. janúar. Stað-
fest er að sprengja sprakk fyrir klukk-
an sjö að morgni. Engan sakaði og
ekki urðu spjöll á eignum. Þótt
sprengjan hafi ekki verið öflug var tal-
in hætta á ferðum í næsta nágrenni.
Hluta Hverfisgötunnar var lokað um
tíma. Fjölmennt lið sérsveitarmanna,
lögreglumanna og sprengjusérfræð-
inga Landhelgisgæslunnar var sent á
vettvang og sérútbúið vélmenni notað
til að eyða því sem eftir var af sprengj-
unni.
Lögreglan lýsti í kjölfarið eftir karl-
manni og hvítri sendibifreið, Renault
Kangoo, en maðurinn var talinn hafa
komið með sprengjuna í miðbæinn.
Fjölmargir hafa verið kallaðir til
skýrslutöku undanfarna daga, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu. Tveir
voru handteknir í gær í tengslum við
rannsókn málsins, auk þess sem nú er í
haldi lögreglu, en þeim var báðum
sleppt úr haldi.
Roskinn maður í haldi vegna sprengju
Morgunblaðið/Júlíus
Vettvangur Sprengt var á Hverfisgötunni, steinsnar frá stjórnarráðinu.
Fjölmargir kallaðir til skýrslutöku vegna rannsóknar á sprengjumálinu á Hverfisgötu Þrír hand-
teknir en tveimur sleppt aftur Bíll mannsins sem er í haldi er sömu gerðar og sá sem lýst var eftir
Fjöldi fólks beið í röð í Bessastaðastofu eftir að
skrá heimsókn sína í gestabókina en vel á annað
þúsund manns lagði leið sína á Bessastaði í gær.
Fólk á öllum aldri kynnti sér staðinn og sögu
hans. Mikið var um fjölskyldufólk og ungt fólk
og þótti takast afar vel til samkvæmt upplýs-
ingum frá skrifstofu forseta. Bæði Bessastaða-
stofa og Bessastaðakirkja voru opnar í tilefni
Safnanætur og Vetrarhátíðar í Reykjavík.
Morgunblaðið/Ómar
Gestir staðfesta komu sína á Bessastaði
Opið hús á þjóðarheimilinu Bessastöðum
Sveitarstjórnir
sveitarfélaga á
Norðurlandi
vestra sam-
þykktu í vik-
unni ályktun
þar sem skorað
var á Jóhönnu
Sigurðardóttur
forsætisráð-
herra að funda
með þeim og
gagnrýndu að hafa engin svör
fengið við bréfi frá 21. nóvember
í fyrra.
Jóhann Hauksson, upplýsinga-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, segir
fulltrúa SSVN hafa afþakkað að
koma til fundar í ráðuneytinu
hinn 9. febrúar sl. „Það hefur ver-
ið boðaður fundur 23. febrúar
næstkomandi með fulltrúum allra
landshlutasamtaka. Sérstakur
fundur Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra með Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra
hefur ekki verið ákveðinn. Hún
mun tjá sig um málið þegar hún
kemur aftur til landsins,“ segir
Jóhann. sigrunrosa@mbl.is »14
Ekki búið að
ákveða fund
með Jóhönnu
Segir sveitarstjórn-
ina hafa afþakkað fund
Jóhann
Hauksson
Mikill viðbúnaður var á Hverfis-
götu að morgni þriðjudagsins
31. janúar, eftir að þar fannst
sprengja. Hús við Hverfisgötu
var rýmt og hluti götunnar girt-
ur af.
Stjórnarráðshúsið var ekki
rýmt en þar var haldinn ríkis-
stjórnarfundur þennan morgun.
Hús rýmt
RÍKISSTJÓRNIN FUNDAÐI