Morgunblaðið - 11.02.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Þegar ég var kynnt fyrir henni og henni var sagt
að ég væri frá Íslandi þá sagði hún: „Ísland, móðir
Alþingis!“ segir Sóley Ómarsdóttir um Aung San
Suu Kyi, leiðtoga lýðræðissinna í Búrma. Sóley
starfar sem hagfræðingur fyrir rannsóknar-
miðstöðina CARI sem er á vegum CIMB-bankans í
Malasíu og hitti Suu Kyi þegar hún fór með nefnd
fjárfesta til Búrma á mánudag.
„Hún er ótrúlega auðmjúk í samskiptum og
gaf öllum tíma sinn til að láta taka myndir af sér
með henni og slíkt. Hún er mjög viðkunnanleg og
ró yfir henni. Það var greinilegt að hún var búin að
hugsa vel í gegn allt sem hún sagði,“ segir Sóley.
Miklar breytingar hafa orðið í Búrma á undan-
förnum árum en landið hefur um áratugi verið und-
ir herforingjastjórn. Suu Kyi sat í tuttugu ár í fang-
elsi eða stofufangelsi en henni var sleppt í fyrra. Þá
hefur öðrum pólitískum föngum einnig verið sleppt
úr haldi og ný ríkisstjórn mynduð árið 2010. Suu
Kyi er nú í framboði í aukakosningum til þings
landsins sem fara fram 1. apríl.
Sóley segir að nánast öruggt sé að Suu Kyi
komist inn á þing í kosningunum og vonast til þess
að hún sé framtíðarleiðtogi landsins. Rannsóknar-
miðstöðin sem Sóley vinnur fyrir hefur það mark-
mið að rannsaka og stuðla að samvinnu í Suð-
austur-Asíu. Búrma er nú að opnast fyrir erlendum
fjárfestum þrátt fyrir að bandarísk stjórnvöld og
Evrópusambandið beiti það enn refsiaðgerðum.
Sóley segir að Suu Kyi hafi mikil völd í Búrma,
sérstaklega í utanríkismálum þar sem Bandaríkin
og ESB horfi til hennar um hvenær sé rétt að af-
létta höftunum á landið. Ef hún hafi trú á þeim
breytingum sem hafi verið gerðar í Búrma hafi
Vesturlönd það líka.
„Hún var spurð hvort hún héldi að breyting-
arnar sem hefðu verið gerðar væru varanlegar.
Hún hefur trú á breytingunum en sagði að ekkert í
þessum heimi væri varanlegt. Hún ráðlagði fjár-
festum að fara sér ekki of geyst því að lagaum-
hverfið væri ekki tilbúið. Þeir ættu því ekki að
koma of snemma inn,“ segir Sóley um hvernig Suu
Kyi litist á breytingarnar.
Að sögn Sóleyjar bíða Bandaríkin og ESB nú
eftir úrslitum aukakosninganna í apríl og ákveði þá
hvort þau aflétti refsiaðgerðum gegn landinu. Þeg-
ar það gerist geti Búrma ef til vill farið af stað af al-
vöru.
Hefur trú á breytingum í Búrma
en segir að ekkert sé varanlegt
Íslendingur hittir frelsishetju í Búrma
Íslenskur hagfræðingur hittir lýðræðissinnann Aung San Suu Kyi í Búrma
Erlendir fjárfestar fari hægt af stað þrátt fyrir breytingar í frelsisátt í landinu
Fundur Sóley hitti Aung San Suu Kyi eftir blaðamannafund á mánudaginn. Með á myndinni eru samstarfsmenn Sóleyjar hjá CARI-rannsóknarmiðstöðinni.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þegar Jóhanna Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra, kemur aftur til
landsins síðdegis í dag hafa þrír
ráðherrar gegnt starfi forsætisráð-
herra á einum sólarhring.
Jóhanna hélt utan til Stokkhólms
á mánudag til að taka þátt í leið-
togafundi forsætisráðherra níu
ríkja norðanverðrar Evrópu,
Northern Future Forum. Hún er
væntanleg aftur til landsins síðdeg-
is í dag.
Í fjarveru hennar gegndi Stein-
grímur J. Sigfússon, ráðherra efna-
hags, viðskipta, landbúnaðar og
sjávarútvegs, starfi forsætisráð-
herra. Hann fór hins vegar sjálfur
til Bretlands síðdegis á miðvikudag
þar sem hann hefur heimsótt ís-
lensk sjávarútvegsfyrirtæki og hitti
meðal annars breska sjávar-
útvegsráðherrann Richard Benyon
í gær. Því tók Össur Skarphéð-
insson, utanríkisráðherra, við
skyldum for-
sætisráðherra
þegar Stein-
grímur fór af
landinu og þar til
í gærkvöldi þeg-
ar hann kom aft-
ur heim frá Bret-
landi. Þá tók
Steingrímur aft-
ur að sér að
leysa forsætis-
ráðherra af og
gegnir hann þeim störfum þar til
síðdegis í dag þegar Jóhanna kem-
ur heim frá Stokkhólmi.
Því munu þrjár manneskjur hafa
gegnt störfum forsætisráðherra á
einum sólarhring frá því síðdegis í
gær þar til síðdegis í dag.
Þrír forsætisráðherrar
á einum sólarhring
Össur forsætisráðherra í fjarveru Jóhönnu og Steingríms
Jóhanna
Sigurðardóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Össur
Skarphéðinsson
Varðskipið Þór kom til Bergen í
Noregi á miðvikudagskvöld til við-
gerðar. Samkvæmt upplýsingum
Landhelgisgæslunnar hefst nú vinna
við skipið og er búist við því að við-
gerðin taki fjórar til fimm vikur.
Áhöfnin er á heimleið en einhverjir
meðlimir hennar munu þó dveljast í
Noregi til skiptis til þess að fylgjast
með gangi mála.
Þegar titringsmælingar á vélum
skipsins voru gerðar í byrjun desem-
ber varð vart við óeðlilega mikinn
titring í annarri af tveimur aðal-
vélum Þórs. Tilraunir starfsmanna
Rolls Royce, sem framleiðir vélar
skipsins, til þess að koma í veg fyrir
vandamálið báru ekki árangur og því
var sú ákvörðun tekin að sigla skip-
inu til Noregs. Siglingin gekk vel
þrátt fyrir brælu alla leiðina út að
sögn Gæslunnar.
Á meðan Þór er fjarri góðu gamni
í Noregi munu varðskipin Ægir og
Týr sinna eftirliti við landið til skipt-
is. kjartan@mbl.is
Þór er
kominn
til Noregs
Viðgerð tekur
fjórar til fimm vikur
Morgunblaðið/Ómar
Viðgerð Leitað er að orsök titrings
í annarri vél varðskipsins Þórs.
Karlmaður hefur verið dæmdur í
tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að greiða 14 ára pilti fyrir kyn-
ferðismök. Maðurinn játaði sök.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Vesturlands í gær.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa haft kynferðismök við piltinn án
þess að gæta nægjanlegrar varúðar
um aldur hans, en einnig fyrir að
greiða fyrir vændi barns með
reiðufé, en maðurinn greiddi pilt-
inum 30 þúsund krónur.
Meðal gagna málsins var læknis-
vottorð geðlæknis, en niðurstaða
hans var að maðurinn væri vel gef-
inn og vel gerður samkynhneigður
maður sem um árabil hefði lifað í fel-
um með kynhneigð sína. Hann hefði
freistast til að leita eftir samskiptum
við aðra karlmenn í netheimum og
hefði þetta orðið til þess að hann
hefði verið afhjúpaður með miklum
afleiðingum fyrir hann og fjölskyldu
hans og hefði hann misst starf sitt.
Maðurinn hefði tekið mjög vel á
þessum málum síðan, hann hefði far-
ið í áfengismeðferð og verið edrú eft-
ir það. Hann hefði einnig stundað vel
SLAA-fundi, svo og AA-fundi og
mætt í viðtöl hjá lækninum. Að mati
læknisins leikur enginn grunur á að
um einhvers konar pedofiliu sé að
ræða hjá manninum eða einhverjar
langanir til afbrigðilegs kynlífs með
öðru hvoru kyninu.
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að skilorðsbinda mætti refs-
inguna, meðal annars vegna þeirra
afleiðinga sem málið hefði haft fyrir
manninn.
Greiddi
barni fyrir
kynmök
Karlmaður dæmd-
ur í árs fangelsi
Borgarlögmaður hefur beint þeim
tilmælum til fjármálaskrifstofu
borgarinnar að hún fresti gjald-
daga fasteignaskatts á hesthús í
Reykjavík meðan beðið er við-
bragða efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis við erindi sem
borgin sendi nefndinni um að
breyta lögum um fasteignaskatt
þannig að fasteignaskattur á hest-
hús lækki. Fasteignaprósenta hest-
húsa fór úr 0,225% í 1,65%. Hesta-
menn mótmæltu þeirri hækkun
harðlega og gagnrýndu að henni
hefði verið skellt á án fyrirvara.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hestar Fresta á innheimtu skattsins.
Fresta innheimtu
hesthúsaskatts