Morgunblaðið - 11.02.2012, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2012
Erla Bolladóttir, framkvæmdastjóri
Alþjóðaseturs, telur að mikið sé
óunnið í að leiðbeina Íslendingum
um hvernig þeir eigi að takast á við
nýtt og marg-
breytilegra sam-
félag en þeir ólust
upp í.
„Nú er nýhafið
verkefni hjá Al-
þjóðasetri sem
styrkt er af
Grundtvig og
snýst um gæði í
þjálfun innflytj-
enda. Á ensku er
orðið „integra-
tion“ notað yfir sameiningu fólks af
ólíkum kynþáttum og með ólíkan
menningarlegan bakgrunn.“
Íslendingar þurfa líka þjálfun
„Sú þjálfun má ekki eingöngu snú-
ast um aðlögun innflytjenda. Þvert á
móti verður þetta að vera gagn-
kvæmt. Íslendingar þurfa líka þjálf-
un í að aðlagast sínu fjölmenning-
arlega samfélagi. Þá áherslu skortir
verulega í dag. Hún er raunar lítt
skrifað blað. Eitt af því sem mætti
gera væri að veita kennurum grunn-
skólanna fjölmenningarfræðslu til
þess að börnin fái að samfléttast.
Hér ber ekki að nota orðið aðlög-
un, þar sem hún er fremur á annan
veginn. Fræðslan sem ég nefni er
hins vegar í báðar áttir. Slíka
fræðslu þyrfti einnig að setja í ein-
hvern farveg fyrir starfsfólk helstu
stofnana þjóðfélagsins.“
„Þrátt fyrir að íslenskt samfélag
hafi tekið miklum breytingum virð-
umst við sem þjóð ekki enn hafa
fyllilega áttað okkur á því að þeirri
hnattvæðingu sem er að eiga sér
stað verður ekki við snúið.“
Í fullum rétti á Íslandi
Erla bendir á lagahliðina.
„Fólk sem hingað kemur til að lifa
og vinna er í fullum rétti til þess
samkvæmt íslenskum lögum. Það er
ekki að gera neitt rangt. Það kemur
hingað til að búa sér og sínum gott
líf. Það er misskilningur að þetta
fólk sé að taka eitthvað frá þeim sem
fyrir eru, þetta eru einfaldlega nýir
Íslendingar sem í langflestum til-
vikum hafa eitthvað fram að færa.“
Erla segir að heimurinn sé að
breytast. Um leið hljóti Íslendingar
að endurskoða sjálfsmynd sína.
„Við höfum haft tilhneigingu til að
upplifa Ísland sem einstakt fyrir-
bæri án hliðstæðu í veröldinni. Það
er skiljanlegt að fólk óttist að sleppa
tökunum á þeirri ímynd og er líklega
erfiðara eftir því sem fólk er eldra.
Hnattvæðing er hins vegar raun-
veruleiki og aukin fjölmenning er
eitt af afkvæmum hennar. Þetta er
eitthvað sem er þó ástæða til að
fagna. Fólk af erlendum uppruna
kemur með ríkan arf úr sínu heima-
landi. Þegar það fær tækifæri til að
tjá þann arf erum við ríkari sem
þjóð,“ segir Erla Bolladóttir.
Íslendingar endurskoði
mynd sína af landi og þjóð
Einsleitni víkur fyrir hnattvæðingu Ekki aftur snúið
Morgunblaðið/Ómar
Í vetrarkyrrð Erla segir hnattvæðingu kalla á nýja sjálfsmynd Íslendinga.
Erla
Bolladóttir
Toshiki Toma er prestur innflytj-
enda á Íslandi og þekkir því vel til
reynslu þeirra af íslensku sam-
félagi. Hann er sannfærður um að
efla þurfi íslenskukennslu.
„Það tekur langan tíma að til-
einka sér góða færni í íslensku.
Tvö til þrjú ár eru ekki nægur tími.
Svo getur það tafið fyrir náminu ef
fólk af erlendum uppruna er fyrst
og fremst með fólki frá sama mál-
svæði. Þetta fólk þarf að styðja.
Við efnahagshrunið dró hins
vegar úr þessum stuðningi. Þörfin
fyrir ráðgjafaþjónustu er mikil.
Hér í Reykjavík skortir miðstöð
fyrir innflytjendur. Hér er engin
miðstöð eftir að Alþjóðahúsinu var
lokað. Miðstöðin fyrir innflytj-
endur á Ísafirði er of langt í burtu
frá höfuð-
borgarsvæðinu.
Þá er ég ekki að
tala um miðstöð
fyrir íslensku-
kennslu heldur
stað þar sem
hægt er að nálg-
ast upplýsingar
eða fá leiðbein-
ingar um hvar sé hægt að sækja
ýmsa þjónustu á Íslandi.
Á slíkum stað yrði hægt að fá
heildarsýn yfir hlutina og hvað eitt
og annað kostar sem fólk af er-
lendum uppruna þarf að nálgast.
Margir innflytjendur hafa sagt
mér að þeir óski þess að slík mið-
stöð sé starfrækt í borginni. Ég
skil það vel enda er þörfin mikil.“
Erfitt að fá leiðbeiningar
FÓLK AF ERLENDUM UPPRUNA ÞARF MEIRI AÐSTOÐ
Toshiki Toma
Íbúar með erlent ríkisfang
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
Heimild: Hagstofa Íslands
Miðað við 1. janúar ár hvert
1996: Notast við tölur frá 1. desember 1995. 1997: Notast við tölur frá 1. desember 1996.
25.000
20.000
15.000
10.000
5000
0
4.
18
1
4.
52
3
5.
0
13
5.
93
2
6.
72
6
8.
27
1
9.
33
0
9.
69
6
9.
68
2
10
.2
32 1
3.
39
6
18
.2
21
23
.0
74
24
.0
14
21
.3
34
20
.7
90
HÓTEL HVOLSVÖLLUR
HÖLDUM UPPÁ VALENTINUS
OG KONUDAGINN
Laugardaginn 18. febrúar
Sími: 487 48050 | www.hotelhvolsvollur.is | info@hotelhvolsvollur.is
Glæsileg og rómantísk helgi
Þú býður makanum og við bjóðum þér.
Gisting, 3 rétta kvöldverður,
dinnertónlist, dans og morgunverður.
Kr. 15.900.- fyrir ykkur bæði.
HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU
FREKARI UPPLÝSINGAR
BÓ
S
-774
1408
Ráðstefnur | fundir
Veisluþjónusta
Árshátíðir | Brúðkaup
Leitið tilboða.