Morgunblaðið - 11.02.2012, Síða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2012
✝ Pálmi AntonRunólfsson
fæddist á Dýrfinnu-
stöðum í Skagafirði
24. júlí 1920. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Sauðár-
króks 29. janúar
2012.
Foreldrar hans
voru hjónin María
Jóhannesdóttir, f.
16.4. 1892, d. 24.6.
1986 og Runólfur Jónsson, f.
25.3. 1881, d. 23.3. 1937. Systk-
ini Pálma eru Sigurjón, f. 15.8.
1915, d. 27.5. 2000, Guðbjörg Jó-
hannessína, f. 27.7. 1916, Anton
Valgarð, f. 9.7. 1917, d. 1.4.
1993, Björn Þórður, f. 20.3.
1919, d. 2.5. 2007, Jóhannes, f.
6.11. 1923, Sigríður Sólveig, f.
23.11. 1925, d. 1.3. 2005, Stein-
unn, f. 9.11. 1926, Una, f. 7.9.
1928, Kristfríður, f. 23.8. 1929,
Friðfríður Dodda, f. 8.12. 1931,
Hólmfríður Svandís, f. 11.12.
1932, d. 5.8. 1987. Uppeldis-
systkini Pálma eru Björgvin
Eyjólfsson, f. 16.8. 1935, d. 12.2.
1961 og Guðrún Eyjólfsdóttir, f.
4.10. 1936.
Hinn 1. desember 1957
kvæntist Pálmi eftirlifandi eig-
eiga fjögur börn og tvö barna-
börn.
Pálmi ólst upp í stórum syst-
kinahópi á Dýrfinnustöðum í
Akrahreppi í Skagafirði. Elstu
systkinin öxluðu snemma
ábyrgð á æskuheimilinu ásamt
móður sinni og ömmu þegar fað-
ir þeirra missti heilsuna. Pálmi
var einn vetur í Reykjaskóla í
Hrútafirði og á hernámsárunum
vann hann í byggingarvinnu í
Reykjavík. Pálmi festi síðan
kaup á jarðýtu í samvinnu við
Björn bróður sinn og saman
unnu þeir að túnrækt fyrir
bændur í Skagafirði ásamt
vegavinnu víða um Norðurland.
Árið 1955 byggði Pálmi upp,
ásamt eiginkonu sinni Önnu, ný-
býlið Hjarðarhaga í Skagafirði.
Þar var hann bóndi til ársins
1991 er þau hjónin brugðu búi
og fluttu á Sauðárkrók. Pálmi
var virkur í félagsmálum, var
m.a. í hreppsnefnd Akrahrepps,
sýslunefnd Skagafjarðarsýslu
og stjórn Karlakórsins Heimis.
Pálmi hafði mikla ánægju af
hestamennsku, tónlist og kveð-
skap. Hann var vel hagmæltur,
var nær sjálfmenntaður á orgel
og spilaði við Hofsstaðakirkju í
nokkur ár. Hann söng í Karla-
kórnum Feyki og síðan í Karla-
kórnum Heimi og átti í þeim fé-
lagsskap margar gleðistundir.
Útför Pálma verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 11.
febrúar 2012, og hefst athöfnin
kl. 14.
inkonu, Önnu
Steinunni Eiríks-
dóttur, f. 18.3.
1934. Foreldrar
hennar voru Eirík-
ur Jónsson, f. 28.5
1897, d. 31.8. 1959
og Fróðný Ás-
grímsdóttir, f. 28.2.
1897, d. 22.7. 1986.
Börn Pálma og
Önnu eru: 1)
Fróðný, sambýlis-
maður hennar var Baldur Guð-
mundsson, þau eiga eina dóttur
og tvö barnabörn, þau slitu sam-
vistum. Fróðný giftist Herði
Stefánssyni, þau eiga tvær dæt-
ur, þau skildu. Núverandi eigin-
maður Fróðnýjar er Kristján
Pétur Sigurðsson. 2) Sigurjón
Björn kvæntist Hjördísi Gísla-
dóttur, þau eiga tvo syni, þau
skildu. Sigurjón er í sambúð
með Kolbrúnu Reinholdsdóttur.
3) María Guðbjörg, gift Herði
Óskarssyni, þau eiga þrjú börn.
4) Heiður, í sambúð með Roy
Midtbø, þau eiga tvær dætur. 5)
Sigríður, gift Kristjáni Ísak
Kristjánssyni, þau eiga þrjú
börn. Fósturdóttir Pálma og
Önnu er Ester Gunnarsdóttir,
gift Indriða Guðmundssyni, þau
Pálmi faðir okkar lést 29. jan-
úar síðastliðinn. Andlát hans
kom ekki á óvart og líklega hef-
ur hann verið sáttur við að
kveðja þetta jarðlíf því hann var,
eins og níu ára langafabarn hans
komst að orði, búinn að eiga svo
langt og gott líf.
Á kveðjustund koma ýmsar
minningar upp í hugann. Pabbi
við orgelið og við systkinin
standandi við hlið hans að
syngja með. Nú blikar við sól-
arlag, Í birkilaut og Kolbrún
mín einasta, voru lög sem gjarn-
an voru sungin. Messur í Hofs-
staðakirkju, en í okkar barn-
æsku var séra Björn Björnsson,
prófastur á Hólum, prestur í
Hofsstaðasókn. Séra Björn
messaði einu sinni í mánuði og á
háannatímum í sveitinni var oft
fátt um kirkjugesti. Þar sem
faðir okkar var organisti kirkj-
unnar varð hann að mæta og tók
oftast eitthvert okkar með sér
en oft vorum við einu kirkju-
gestirnir. Séra Björn fór með
ritningarlestur og bæn, pabbi
spilaði á orgelið og frú Emma
(kona séra Björns) söng, oftast
var það sálmurinn Ó þá náð að
eiga Jesú. Þessar messur voru
alltaf stuttar en lifa lengur í
minningunni en flestar aðrar
kirkjulegar athafnir sem við höf-
um sótt. Eftir messu var svo
farið í kaffi heim í Hjarðarhaga.
Þegar pabbi kom heim t.d. af
fundum eða úr kórferðalögum
heilsaði hann móður okkar ávallt
með orðunum sæl elskan mín
enda var móðir okkar eina „elsk-
an“ hans. Það orð notaði hann
ekki um neinn annan og þeirra
samfylgd varaði í um 60 ár.
Pabbi fylgdist vel með í póli-
tík og starfaði í sveitarstjórn
Akrahrepps um árabil. Hann
lagði mikla áherslu á að við
mættum á kjörstað og nýttum
kosningarétt okkar, skipti sér
ekki af því hvað við kysum en
kom því þó vel til skila að alltaf
væri Framsókn best.
Pabbi var mikill Skagfirðing-
ur og fannst sín sveit fegurst. Á
85 ára afmælinu sínu var hann
staddur á 4. hæð í Strandgötu
37 á Akureyri, veður var gott og
sólarlag eins og það er fallegast
á Akureyri. Eftir að hafa horft á
sólarlagið í góða stund sagði
hann: „Þetta er nú fallegt en það
er fallegra í Hjarðarhaga.“
Pabbi var glaðsinna rólynd-
ismaður og skipti sjaldan skapi,
tók ávallt vel á móti gestum og
naut samvista við fólk, jafnt
unga sem aldna. Síðustu fjögur
árin dvaldi hann á Heilbrigð-
isstofnuninni Sauðárkróki,
lengst af á deild 3 og naut þar
góðrar umönnunar. Færum við
starfsfólki Heilbrigðisstofnunar-
innar alúðarþakkir fyrir.
Fróðný, Sigurjón,
María, Heiður og Sig-
ríður.
Í örfáum orðum langar mig
að minnast tengdaföður míns
Pálma í Hjarðarhaga. Pálmi var
um margt merkur og minnis-
stæður maður. Það var nokkur
upplifun fyrir mig Eyjapeyjann
að koma í fyrsta skipti í Hjarð-
arhaga að hitta tilvonandi
tengdafjölskyldu. Alla tíð fór
einstaklega vel á með okkur
Pálma og mikið var gaman að
spjalla við hann um alla heima
og geima en Pálmi var vel lesinn
og kvæðamaður mikill. Eftir-
minnilegar voru heimsóknir
mínar með Pálma á nærliggj-
andi sveitabæi þar sem málin
voru rædd af mikilli innlifun og
fljótt fann maður að Pálmi var í
miklum metum hjá sveitungum
sínum. Pálmi var mikill kvæða-
maður og hagmæltur og eftir
hann liggja fjölmargar vísur
sem birst hafa opinberlega.
Pálmi var einnig mikill söng-
maður og söng í Karlakórnum
Heimi í áratugi og eftirminnileg
er heimsókn þeirra Heimis-
manna til Eyja en til að hýsa
svona stóran kór þurfi að fá
gistingu í Herjólfi. En fyrst og
fremst var Pálmi bóndi en í 36
ár rak hann býlið að Hjarðar-
haga sem hann byggði upp í tún-
fætinum á æskuheimili sínu,
Dýrfinnustöðum. Síðustu tvo
áratugina bjó Pálmi síðan á
Sauðárkróki eftir að þau Anna
hættu búskap árið 1991. Pálmi
rak hefðbundin búskap í Hjarð-
arhaga auk þess að stunda
hrossarækt, þjóðaríþrótt Skag-
firðinga. Eyjapeyjanum þótt
sjálfsagt að spyrja tengdapabba
um hversu marga hesta hann
ætti enda vanur tölum, en þá
var fátt um svör, enda komst ég
fljótlega að því að hestamenn
spyr maður ekki um slíkt. Síð-
ustu árin voru Pálma nokkur
erfið eftir að heilsu hans fór að
hraka en þrátt fyrir það var
lundin ávallt létt. Pálmi minn, ég
þakka þér fyrir einstaklega góð
kynni og hversu góður þú varst
börnum okkar Maríu.
Elsku Anna, þér og fjölskyld-
unni allri sendi ég innilegar
samúðarkveðjur. Megi guð
vernda okkur og styrkja í fram-
tíðinni.
Megi minningin um Pálma
Anton Runólfsson lifa um alla
framtíð.
Hörður Óskarsson.
Fallinn er frá ástkær afi
minn, Pálmi Anton Runólfsson
frá Hjarðarhaga. Það eru marg-
ar minningar sem streyma um
hugann þegar ég hugsa til afa.
Ein sú skærasta er þegar afi og
félagar hans í Karlakórnum
Heimi héldu tónleika heima í
Vestmannaeyjum í júní 1995.
Því kvöldi gleymi ég seint, ekki
síst fyrir glæsilegan flutning á
Undir bláhimni, laginu góða sem
tónleikagestir höfðu beðið eftir
með eftirvæntingu. Stoltið yfir
að eiga afa í þessum töfrandi
kór leyndi sér ekki. 75 ára af-
mælið í Héðinsminni kemur
einnig upp í hugann, þar var
glatt á hjalla að Skagfirðinga
hætti. Nú síðast fyrir rétt einu
og hálfu ári þegar við fögnuðum
90 ára afmæli afa um leið og
Anna Soffía var fermd í Hofs-
staðakirkju. Það var góður dag-
ur.
Elsku afi minn. Ég vil þakka
þér fyrir allar dýrmætu stund-
irnar sem við áttum saman í
Hjarðarhaga, á Hólaveginum, í
hesthúsinu og nú síðast á heil-
brigðisstofnuninni þar sem þú
dvaldir síðustu árin eftir að
heilsan tók að bresta.
Blómin falla, fölskva slær
á flestan ljóma. –
Aldrei hverfur
angan sumra blóma.
Þannig varstu vinur, mér
sem vorið bjarta.
Það sem gafstu
geymist mér í hjarta.
Ilma sprotar, anga lauf,
sem aldrei falla.
Drottinn launi
elskuna þína alla.
(Sigurbjörn Einarsson)
Hvíl í friði, elsku afi.
Þinn dóttursonur og nafni,
Pálmi.
Pálmi Anton
Runólfsson
Afi Siggi er dá-
inn, hann er róinn á önnur betri
og gjöfulli mið.
Ég kynntist Sigga í mars 1992
þegar við Linda kynntumst.
„Sæll, ég heiti Steingrímur Hall-
dór Pétursson.“ „Sæll – ég heiti
nú bara Siggi.“ Þetta voru fyrstu
orðin sem við skiptumst á. Þetta
var ekki alveg rétt hjá þér, ég var
ekki búinn að þekkja þig lengi
þegar ég komst að því að þú varst
ekki bara Siggi heldur Afi Siggi,
með stóru A. Í hartnær 20 ár
þekktumst við og vorum góðir
vinir. Við vorum ekki sammála
um allt, en vorum sammála um að
vera ósammála um suma hluti.
Við fórum saman í mörg frábær
ferðalög, hingað og þangað. Þið
Didda voruð frá upphafi nauð-
synlegur hluti af ferðalagi okkar
Lindu, hvort sem var um fram-
andi staði eða í gegnum lífið
sjálft. Það voru mér einstök for-
réttindi að fá að kynnast fólki
eins og ykkur og vera ykkur sam-
Sigurður
Jóhannsson
✝ Sigurður Jó-hannsson skip-
stjóri fæddist í
Hrísey 11. febrúar
1928. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
hinn 28. janúar
2012.
Útför Sigurðar
fór fram í kyrrþey.
ferða í lífinu. Það
eru ekki margir
ungir menn sem
komast í þá stöðu að
afboða sig í partí
með skólafélögun-
um af því að afi kær-
ustunnar vill fara
með manni á pöbb-
arölt. En auðvitað
var það enginn
venjulegur afi, held-
ur afi Siggi sem vildi
fara á Pollinn eða aðra góða staði.
Það tók ekki marga daga að
átta sig á einstöku sambandi ykk-
ar Diddu og Lindu, það var sam-
band sem var hlaðið ást, um-
hyggju og gagnkvæmri virðingu.
Á seinni stigum bættust Þórunn,
Egill og Svanfríður við hópinn og
gengu að sama hlýja, góða og fal-
lega faðminum hans afa Sigga.
Þú hafðir nú ekkert alltaf enda-
lausan tíma til að bíða og varst
frekar óþolinmóður maður. En
fyrir krakkana virtist þú eiga
endalausan tíma.
Nú þegar að leiðir okkar skilur
um stund er mér fyrst og fremst í
huga virðing og þakklæti fyrir
kynni okkar. Það er mannbætir
að kynnum við mann eins og þig.
Ég lofa að hugsa eins vel og ég
get um Diddu fyrir þig og heim-
sækja hana þegar ég á leið um.
Takk fyrir mig elsku afi Siggi.
Steingrímur Halldór
Pétursson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT ÞORLEIFSDÓTTIR
SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtu-
daginn 26. janúar.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fær deild 2-B á Hrafnistu
fyrir einlægan hlýhug og góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Guðbergsdóttir,
Steinþóra Guðbergsdóttir,
Margrét Guðbergsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR JÓSEFSDÓTTUR,
Hjarðarhóli 8,
Húsavík,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 20. janúar.
Útförin fór fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 28. janúar.
Ragna Kristjánsdóttir, Karl Bjarkason,
Sæþór Kristjánsson,
Sigríður Lovísa Kristjánsdóttir, Orri H. Gunnlaugsson,
Guðrún Agnes Kristjánsdóttir,
Ingveldur Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför bróður
okkar, mágs og frænda,
GARÐARS AÐALSTEINS SVEINSSONAR
rafvirkja
frá Vestmannaeyjum,
Blöndubakka 3,
Reykjavík.
Ágústa Sveinsdóttir,
Berent Theodór Sveinsson, Laufey Guðbrandsdóttir,
Tryggvi Sveinsson, Þóra Eiríksdóttir
og frændsystkin.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
KRISTÍN SVAVA SVAVARSDÓTTIR,
lést á heimili sínu laugardaginn 4. febrúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heilaheill.
Viðar Gíslason,
Andrés Viðarsson, Margrét Helga Skúladóttir,
Thelma Svava Andrésdóttir.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
INGVAR MAGNÚSSON,
Nýbýlavegi 60,
sem lést á Droplaugarstöðum laugardaginn
4. febrúar, verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju þriðjudaginn 14. febrúar kl. 15.00.
Jenný Bjarnadóttir,
Bjarni Ingvarsson,
Fríða Björk Ingvarsdóttir, Hans Jóhannsson,
Ingvar Örn Ingvarsson, Hildur Fjóla Svansdóttir,
Baldur Bjarnason, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir,
Elín Hansdóttir, Úlfur Hansson,
Björk Ingvarsdóttir og Ingvar Andri Ingvarsson.
✝
Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og
frænka,
VILHELMÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sléttuvegi 7,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Ottósson, Anna Þóra Sigurþórsdóttir,
Grétar Karlsson, Ólöf Ólafsdóttir
og frændsystkini.