Morgunblaðið - 14.04.2012, Side 11
Í hinum alþjóðlega hópi voru Ís-
lendingar sem hittast reglulega
til að hugleiða. Er íslenski hóp-
urinn hluti af svokölluðu Dia-
mond Way Buddhism, alþjóð-
legum samtökum sem halda úti
starfsstöðvum í meira en 600
löndum. Lama samtakanna er
Oly Nydahl sem helgað hefur
sig búddismanum í 40 ár og
kynnt hann þúsundum nemenda
víða um heim.
Í yfir 600
löndum
ALÞJÓÐLEG SAMTÖK
Hugleiðsluhópur Í bígerð er að halda fleiri hugleiðslunámskeið hér á landi í framtíðinni.
sem þú hefur. Þú þarft ekki að
snúa baki við því heldur frekar að
gera það besta úr þínu daglega lífi.
Annaðhvort er fólk stressað og
hrætt eða hefur í huga sér hug-
myndafræði um ýmiss konar mögu-
leika í lífinu. Við viljum ýta undir
þetta og aðstoða fólk við að skapa
sér slíka möguleika. Stundum erum
við stressuð yfir því sem þegar hef-
ur gerst og skiptir ekki máli eða
því sem gæti gerst. Við berum
þennan þunga, ótta og byrði með
okkur en hugleiðslan kennir okkur
að vera sjálfstæð og samúðarfull.
Það er að segja að skilja að allir
vilji vera hamingjusamir þó þeir
viti ekki hvernig þeir eigi að fara
að því. Þetta krefst nokkuð mik-
illar þolinmæði,“ segir Zsuzsanna.
Zsuzsanna ferðast til Asíu einu
sinni á ári og heimsækir þá búdd-
ismastaði á Indlandi og víðar. Hún
segir námskeiðið hér hafa gengið
vel og það hafi komið sér ánægju-
lega á óvart hve Íslendingar eru
sjálfstæðir og opnir fyrir hugleiðsu.
Hún segir að í bígerð sé að halda
fleiri slík námskeið hér í framtíð-
inni en í næstu viku mun pólskur
hugleiðslukennari sjá um námskeið.
Má nálgast nánari upplýsingar um
það á vefsíðunni www.buddismi.is.
Frelsi í umferðarteppu
„Það er gott að byrja að hug-
leiða á Íslandi því hér er mikil
kyrrð og falleg náttúra. En á end-
anum þegar þú vinnur með hugann
þá getur þú öðlast nákvæmlega
sama frelsi í New York í miðri um-
ferðarteppu,“ segir Zsuzsanna.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Kammerkór Suðurlands heldur tón-
leika í Reykholti í Borgarfirði í dag,
14. apríl, kl. 16, og í Kristskirkju á
Landakoti 26. apríl, kl. 21. Í apríl
fagna kristnir menn á páskum sigri
lífsins yfir dauðanum og apríl er tími
birtu og gróanda eftir dimmu og
drunga vetrarins. Þá elskar blessuð
sólin allt og allt með kossi vekur. Á
tónleikunum Kossinum hugleiðir
Kammerkór Suðurlands koss dauð-
ans og koss lífsins.
Þungamiðja Kossins er fimmtán
mínútna verk eftir Sir John Tavener:
ÑÂßÒÛÉ - Svyati, fyrir kór og selló.
Sunginn er kirkjuslavneskur texti
sem notaður er við flestar athafnir í
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni og
hljómar við jarðarfarir þegar hinn
látni er kvaddur með kossi. Í tónverk-
inu kallast á kór og selló líkt og í
grískum harmleik. Sellóið gegnir
hlutverki prests sem kyssir líkama
hins framliðna kveðjukossi og und-
irbýr sál hans til burtfarar úr þessum
heimi. Kórinn ákallar Guð við kveðju-
koss safnaðarins, meðan kistunni er
lokað og hún borin úr kirkju í fylgd
syrgjenda með logandi kerti.
Auk Svyati flytur Kammerkór Suð-
urlands þrjú önnur verk eftir Sir John
Tavener á þessum tónleikum.
Þá verða einnig flutt verk úr smiðju
Arvos Pärts,Völu Gestsdóttur og Páls
R. Pálssonar. Hilmar Örn Agnarsson
stofnaði Kammerkór Suðurlands
1997 og hefur laðað marga fram-
úrskarandi listamenn til samstarfs.
Verndari kórsins er Vigdís Finn-
bogadóttir en þess má geta að kórinn
hlaut sérstakan styrk úr tónlistar-
sjóðnum Kraumi nú í mars.
Tónleikar Kammerkórs Suðurlands
Söngur Kammerkór Suðurlands heldur tónleika í Reykholti í Borgarfirði.
Koss dauðans og koss lífsins
Tónskáld Mynd Páls úr Húsafelli.
LAUGAVEGI 32 · SJADU.IS
SÍMI 561 0075
Full búð að nýjum og flottum gleraugum
KOMDU OG SJÁÐU