Morgunblaðið - 14.04.2012, Síða 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Fagridalur
Á þessu ári eru 250 ár frá fæð-
ingu Sveins Pálssonar læknis og
náttúrufræðings. Minning Sveins er
heiðruð með því að dagur umhverf-
isins er haldin ár hvert 25. apríl. Af-
mælisins verður minnst með ýmsum
hætti. 24. apríl verður haldið mál-
þing í Háskóla Íslands þar sem
fræðimenn fara yfir hin margvíslegu
störf Sveins.
Á afmælisdaginn mun síðan
umhverfisráðherra afhjúpa minnis-
varða í Vík sem Mýrdalshreppur
hefur látið reisa og i kjölfarið verður
haldin hátíðardagskrá í Leikskálum
í Vík.
Þó að kalt sé í veðri má sjá
ýmis merki þess að vorið sé í nánd,
fuglarnir streyma til landsins og
grænn litur er kominn á tún og eitt
og eitt lamb er farið að fæðast í
heiminn.
Víkurprjón var nýlega selt nýj-
um aðilum, Drífu í Garðabæ. Ekki
eru áætlaðar neinar meiriháttar
breytingar á fyrirtækinu.
Karlakór Vestur-Skaftfell-
inga er nú að ljúka öðru starfsári
sínu með tónleikum í Vík, Kirkju-
bæjarklaustri og á Hvolsvelli. Efnis-
skráin er fjölbreytt allt frá hefð-
bundnum karlakórslögum til
eurovision-slagara. Félagar í kórn-
um eru úr allri sýslunni og stjórn-
endur þeir Kári Gestsson og Brian
R. Haroldsson.
Félag sauðfjárbænda í Vestur-
Skaftafellssýslu bauð sauðfjárbænd-
um til kynningar og skemmtiferðar
nú í byrjun apríl. Farið var í ullar-
vinnslustöðina hjá Ístex í Mosfells-
bæ og fengu bændur þar fræðslu um
hvað verður um ullina af kindunum
eftir að búið er að þvo hana.
Síðan var skoðuð sauðfjársæð-
ingarstöð Suðurlands og hrútakost-
ur hennar, ásamt stórglæsilegu
hesthúsi sem áður hýsti nautaupp-
eldisstöðina. Að lokum voru svo Jöt-
unvélar á Selfossi skoðaðar en þar
var hópnum boðið til glæsilegs
kvöldverðar. Móttökur allra þessara
aðila sem voru heimsóttir voru til
mikillar fyrirmyndar.
Björgunarsveitin Stjarnan í
Skaftártungu er um þessar mundir
að reisa 172 fermetra stálgrinda-
skemmu sem verður klædd með
yleiningum og mun húsið gjörbreyta
allri aðstöðu sveitarinnar.
Minnast 250 ára afmælis
Sveins Pálssonar læknis
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Nýtt hús Björgunarsveitarmenn í Skaftártungu eru að reisa 172 fer-
metra stálgrindaskemmu sem mun gjörbreyta allri aðstöðu sveitarinnar.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Eimskip Íslands ehf. átti lægsta til-
boðið í rekstur Vestamannaeyjaferju
2012-2014 við seinni opnun tilboða í
gær. Samskip hf. var með næstlægsta
boð og Sæferðir ehf. með þriðja
lægsta boð sem var frávikstilboð.
Þetta er í annað sinn á skömmum
tíma sem opnuð eru tilboð í rekstur
ferjunnar, en ekkert tilboðanna upp-
fyllti kröfur Vegagerðarinnar að fullu
og því var efnt til seinni opnunar og
tilboðsgjöfum gefið færi á að bæta úr
formgöllum tilboðanna og þess vegna
að breyta tilboðsupphæðinni sem þau
og gerðu.
Þrjú fyrirtæki skiluðu inn tilboð-
um: Sæferðir, Samskip og Eimskip. Á
vef Eyjafrétta segir að Eimskip hafi
boðið tæpa 681 milljón króna. Athygli
vekur að tilboð Eimskips nú er 178
milljón krónum lægra en í fyrstu opn-
un tilboða.
Sæferðir ehf. sendi inn tilboð upp á
903 milljón krónur og tvö frávikstil-
boð upp á 855 milljónir og 772 millj-
ónir. Samskip sendi inn tilboð upp á
755 milljón krónur en áætlaður verk-
takakostnaður var tæpar 832 milljón-
ir. Til samanburðar hljóðaði fyrsta til-
boð Samskipa upp á 602 milljónir,
tilboð Eimskips var upp á 859 millj-
ónir og tvö frávikstilboð upp á 839 og
858 milljónir. Sæferðir buðu 903 millj-
ónir í reksturinn, eins og nú, og tvö
frávikstilboð upp á 821 og 876 milljón
króna.
Eimskip hefur séð um rekstur
Herjólfs síðustu ár, en Samskip voru
áður með rekstur ferjunnar.
Eimskip bauð lægst í Herjólf
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Inni í spurningunni sjálfri er undir-
liggjandi staðhæfing sem stenst ekki.
Sú undirliggjandi staðhæfing er í þá
veru að þáttagerðarmenn á RÚV séu
að gefa út yfirlýsingar eða lýsa skoð-
unum sínum í pólítískum deilumálum
á opinberum vettvangi og síðan að
stjórna þáttum sem að fjalla um þessi
sömu deilumál,“ segir Páll Magnús-
son, útvarpsstjóri, spurður út í nið-
urstöður könnunar sem greint var frá
í grein Bergþórs Ólasonar í Morgun-
blaðinu sl. miðvikudag.
Að sögn Páls er umrædd staðhæf-
ing gefin í könnuninni og síðan spurt
hvort þetta sé eðlilegt. „Sjálfur myndi
ég svara spurningunni eins og meiri-
hluti þáttakenda hennar gerir, þ.e.
„Nei, þetta væri óeðlilegt,““ segir Páll
og bætir við: „Staðhæfingin sem ligg-
ur inni í spurningunni er hinsvegar
röng. Þáttargerðarmenn á RÚV
ástunda það ekki að lýsa yfir skoð-
unum sínum á opinberum vettvangi í
deilumálum og fjalla síðan um sömu
mál í þáttum sínum.“ Páll segir að þó
svo að það komi hvergi berum orðum
fram í grein Bergþórs þá virðist vera
undirliggjandi að Bergþór hafi verið
að tiltaka Egil Helgason og blogg sem
hann heldur úti á vefsíðunni Eyjan.is.
„Nú þyrfti þá að benda mér á þá staði
í þessu bloggi þar sem Egill tekur af-
stöðu með eða á móti einstökum deilu-
málum í landinu,“ segir Páll og bendir
á að yfirleitt sé Egill að vega á báða
bóga í pólitískum deilumálum. Hins-
vegar segir Páll að það megi leiða að
því gild rök að það sé ekki við hæfi að
þáttastjórnendur haldi úti bloggsíð-
um af þessu tagi yfir höfuð, það séu
bæði sjónarmið sem vegi með og á
móti slíku.
Gagnrýni skýtur skökku við
Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu
í fyrradag kom fram að þingmennirn-
ir Birgir Ármannsson og Gunnar
Bragi Sveinsson gagnrýndu RÚV fyr-
ir það að skoðanir starfsmanna þess
hefðu stundum haft áhrif á umfjöllun.
Að eigin sögn finnst Páli þessi gagn-
rýni þeirra skjóta svolítið skökku við.
„Aldrei hefur álit fólks á Alþingi og al-
þingismönnum risið lægra heldur en í
dag,“ segir Páll og bætir við að nú sé
kastað steinum að RÚV sem njóti yf-
irburðartrausts á meðal landsmanna.
Gunnar Bragi sagði við Morgunblaðið
sl. fimmtudag að hann teldi að RÚV
hefði brugðist sem sjálfstæður, eða
hlutlaus, fjölmiðill í mörgum stórum
málefnum á Íslandi. Spurður út í þessi
ummæli Gunnars segir Páll að ef
þetta væri rétt þá ætti það að sjást á
reglulegum mælingum á trúverðug-
leika fjölmiðla. „Þetta kann að vera
upplifun þingflokksformanns fram-
sóknarmanna, ég dreg það ekki í efa,
þetta er hinsvegar ekki upplifun al-
mennings á Íslandi,“ segir Páll.
Páll hafnar gagnrýni
á starfsmenn RÚV
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Traust Páll Magnússon segir RÚV
njóta trauts á meðal landsmanna.
Í tilefni 100 ára afmælis
framhjágöngunnar,
sem Þórbergur lýsir svo skemmtilega í Íslenskum aðli,
býður Endurmenntun Háskóla Íslands upp á spennandi
námskeið um þessa merkustu göngu íslenskra bókmennta.
Nánari upplýsingar og skráning á endurmenntun.is
eða í síma 525 4444.
FJÖRUGAR
FRÁSAGNIR
ÞÓRBERGS
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er
undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í
prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.
Heimaey VE 1, nýtt og fullkomið
fiskiskip Ísfélags Vestmannaeyja,
verður formlega afhent á þriðju-
daginn kemur, 17. apríl. Skipið var
smíðað í ASMAR-skipasmíðastöð-
inni í Síle.
Stefán Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Ísfélags Vest-
mannaeyja, gerir ráð fyrir því að
skipið leggi af stað í siglinguna
heim til Íslands í næstu viku. Áætl-
að er að siglingin taki um þrjár vik-
ur. Þegar skipið kemur heim verð-
ur farið að búa það veiðarfærum og
stilla ýmsan búnað. „Það er heil-
mikið sem þarf að gera til að koma
skipinu í stand,“ sagði Stefán. Hann
sagði að ef enn verður kolmunna-
veiði þegar skipið kemur til lands-
ins gæti vel verið að það yrði farinn
einn túr á kolmunna til prufu.
Skipstjóri verður Ólafur Ein-
arsson og mun hann sigla skipinu
heim ásamt áhöfn. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Eyþór Harðarson
Ný Heimaey VE 1 verður
afhent á þriðjudaginn