Morgunblaðið - 14.04.2012, Page 22

Morgunblaðið - 14.04.2012, Page 22
„Þetta snýr t.d. að stofnunum á borð við Landspítalann, þar sem unn- ið er á vöktum. Við hins vegar eigum nákvæmar tölur um fjölda farþega og það kom í ljós að á síðasta klukkutím- anum sem við vorum að keyra á Land- spítalasvæðinu þá voru fimm farþegar sem stigu inn og út úr vagninum á þessum klukkutíma. Og þegar það er gerð krafa um hagræðingu þá bitnar hún á þessum tímum,“ segir Guðrún. Hún nefnir annað dæmi: að Strætó hafi borist ábendingar um að ungling- ar gætu ekki nýtt sér strætisvagna til að komast heim úr bíó á kvöldin, þar sem vagnarnir væru hættir að ganga þegar bíósýningum lyki. Stjórnin og stjórnendur Strætó hafi verið sam- mála að úr þessu þyrfti að bæta en til þess hafi vantað fjármagn. Auk þess að lengja þjónustutímann stendur til að lengja svokallaðan vetr- araksturstíma um tvær vikur, eina að vori og aðra að hausti, og fjölga vögn- um á álagstímum í sumar. Guðrún nefnir leið 1 sem dæmi en hún muni ekki taka upp sumartíma heldur keyra áfram eftir vetraráætlun. Þá verður ein breyting gerð á leiðakerf- inu en leið 21, sem sumir kenna við Ikea, verður lengd þannig að vagn- arnir keyra inn í Mjóddina en ekki einvörðungu innan Hafnafjarðar eins og nú er. Guðrún segir að af þeim milljarði, sem ríkið muni greiða til Strætó bs. árlega, muni 900 milljónum verða var- ið í rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. „Síðan hefur verið talað um að 100 milljónir fari í rekstur á áhrifasvæði Strætó bs. á suðvesturhorninu, t.d. tengingarnar upp á Akranes, á Reykjanes og austur á Selfoss,“ segir Guðrún. Strætó til höfuðs bíls númer 2 Guðrún segir ánægjulegt að Strætó bs. sjái sér nú fært að efla þjónustuna við notendur strætisvagnanna en seg- ir þó ljóst að aldrei verði hægt að koma til móts við alla. Þjónusta Strætó sé sérstaklega mikilvæg þeim sem eiga ekki kost á að reka bíl en miði ekki síður að því að gera fjöl- skyldum kleift að komast af með einn slíkan. „Við erum ekki síður að horfa til þess að hver fjölskylda þurfi þá a.m.k. ekki bíl númer tvö, hvað þá númer þrjú; að Strætó sé áreiðanlegur far- kostur sem fjölskyldan getur notfært sér til að komast í leik og starf,“ segir Guðrún. Hún ítrekar að hluti þjónustuaukn- ingarinnar hafi þegar verið ákveðinn af stjórn Strætó bs. en annað sé háð því að samningurinn milli ríkis og sveitarfélaganna verði undirritaður. Strætó gefur í og k  Ríkið leggur til milljarð á ári í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu  Þjónusta Strætó aukin til muna 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012 Fyrirhuguð þjónustuaukning Strætó bs. í sumar og haust Frá og með sumri: Vetraráætlun verður lengd um eina viku að vori og byrjar viku fyrir menningarnótt í ágúst. Leiðir 1, 3 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti á annatíma í sumar og á öðrum leiðum verður aukavögnum bætt við til að mæta auknum farþegafjölda. Frá og með hausti: Tímatöflur verða lagfærðar á leiðum 1, 11, 12, 15 og 18. Allar leiðir munu aka klukkustund lengur á kvöldin en á stofnleið- um 1, 3, 6, 11, 15, 18 og 19 verður ekið til klukkan 01. Allar leiðir munu hefja akstur tveimur tímum fyrr á laugardögum. Leiðir 2 og 5 munu aka eftir kl. 18.30 á kvöldin og aka um helgar en breytingar verða gerðar á leið 5. Leiðir 13, 24 og 28 munu aka á 15 mínútna fresti á annatíma. Komið verður á tengingu eftir Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Leiðir 2, 4, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 24 og 28 munu aka á 30 mínútna tíðni á kvöldin og um helgar. Undirritun fyrirliggjandi samnings milli ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu er forsenda þess að af breytingunum verði. Reynir Jónsson, framkvæmda- stjóri Strætó bs., segir að unnið sé að mótun tíu ára stefnu fyrirtæk- isins en í þeirri vinnu hafa ýmsar spennandi hugmyndir verið til skoðunar, t.d. svokallað sveigj- anlegt leiðakerfi. „Fólk spyr af hverju við keyrum stóra vagna á kvöldin þegar far- þegar eru fáir. Svarið er að við verðum að eiga þá hvort sem er til að aka á háannatíma og það væri ekki hagkvæmt fyrir okkur að fjár- festa í minni bifreiðum. Það sem er mögulegt hins vegar er að sam- nýta ferðir á jaðartímum á jað- arsvæðum,“ segir Reynir. Slíkt kerfi myndi þó kalla á að ýmis ferðaþjónusta, s.s. ferðaþjónusta fatlaðra og aldraðra, yrði færð undir nýja þjónustueiningu sem myndi jafnframt eiga samstarf við leigubílastöðv- arnar. „Við myndum þá aka farþegum þegar þeir þurfa á þjónustunni að halda; þú hringir eftir bíl og þá kemur leigubíll, skólabíll eða bíll frá ferðaþjónustu fatlaðra eða aldraðra að sækja þig. Bíll sem er á svipaðri leið en fer smá-útúrdúr til að sækja þig. Þá nýtast bæði ökutækin og ferðirnar betur,“ seg- ir Reynir en viðurkennir að þjón- ustan myndi kosta meira en strætóferð. Sé pólitískur vilji fyrir hendi væri hægt að taka upp slíkt kerfi eftir um fimm ár. Skoða sveigjanlegt leiðakerfi TÍU ÁRA ÁÆTLUN STRÆTÓ Reynir Jónsson FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Leiðakerfi Strætó hefur oft mátt sæta gagnrýni, nú síðast eftir að Strætó bs. var gert að skera niður rekstrarkostn- að um 25% árið 2009 og hagræða enn frekar árið 2011. Notendur Strætó segja margir að vagnarnir byrji að ganga of seint um helgar og gangi ekki nógu lengi fram eftir á virkum dögum. Stjórnendur fyrirtækisins segja hins vegar von á talsverðri þjónustuaukn- ingu en á næstunni verður undirrit- aður samningur milli ríkisins og sveit- arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, þess efnis að ríkið leggi um milljarð króna á ári til reksturs almennings- samganga næstu tíu árin. Sveitar- félögin skuldbinda sig á móti til þess að draga ekki úr núverandi framlagi til almenningssamgangna. Meginmarkmið samningsins er að tvöfalda hlutdeild almennings- samgangna í ferðum á höfuðborg- arsvæðinu, úr 4-5% í 8-10%, en hann mun einnig fela í sér þá breytingu að 140 milljóna króna endurgreiðsla rík- isins vegna olíugjalda verður afnumin í þrepum á næstu þremur árum. Samn- ingurinn felur einnig í sér að á tíma- bilinu, 2012-2022, verði stærri sam- göngumannvirkjaframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu slegið á frest. Þá verður unnið að eflingu forgangsakst- urs Strætó í samvinnu við Vegagerð- ina og umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi þegar bætt verður við vagnaflota Strætó. Framlag ríkisins til Strætó bs. árið 2012 mun samkvæmt samningnum nema 350 milljónum og verður þeim fjármunum, ásamt auknum fram- lögum frá sveitarfélögunum, m.a. var- ið í að bæta úr þeirri þjónustuskerð- ingu sem varð í kjölfar niðurskurðar 2009 og 2011 og gott betur. Frá og með hausti mun akstur hefjast fyrr á morgnana um helgar og standa lengur fram eftir á virkum dögum, á flestum leiðum til kl. 24 en til kl. 1 eftir mið- nætti á stofnleiðum. Komast ekki heim úr bíó Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs., segir umræðuna um þjónustuskerðinguna ekki hafa farið fram hjá stjórnendum fyrirtækisins og að stytting aksturs- tímans hafi komið sérstaklega illa við þá sem stóli á strætó sem sinn aðal- ferðamáta. ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 23:30 Opið um helgar frá 18:00 - 23:30 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant Nýr soðinn rauðmagi í hádeginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.