Morgunblaðið - 14.04.2012, Side 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Réttarhöld hófust í Glostrup í Dan-
mörku í gær yfir fjórum karl-
mönnun, sem ákærðir eru fyrir að
hafa undirbúið hryðjuverkaárás í
Danmörku í desember árið 2010.
Mennirnir neituðu allir sök. Þrír
þeirra, Sahbi Ben Mohamed Zalouti,
Munir Awad og Omar Abdalla
Aboelazm, eru allir sænskir rík-
isborgarar en upprunnir í Túnis,
Líbanon og Marokkó. Sá fjórði, Mo-
unir Ben Mohamed Dhahri, er
Túnisi með dvalarleyfi í Svíþjóð.
Saksóknarar segja, að mennirnir
hafi áformað að ráðast inn á rit-
stjórnarskrifstofur blaðsins Jyl-
lands-Posten við Ráðhústorgið í
Kaupmannahöfn og drepa þar eins
marga og þeir gætu, bæði með því
að skjóta þá og skera á háls. Þannig
ætluðu þeir að hefna fyrir, að blaðið
birti skopmyndir af Múhameð spá-
manni haustið 2005.
Þrír mannanna voru handteknir í
íbúð í Herlev, úthverfi Kaup-
mannahafnar, 29. desember 2010 en
þeir höfðu nóttina áður ekið frá Sví-
þjóð. Í fórum þeirra fundust vél-
byssa með hljóðdeyfi, skammbyssa,
108 byssukúlur, plaststrimlar sem
átti að nota til að binda starfsmenn
blaðsins og jafnvirði nærri 2,5 millj-
óna króna í dollaraseðlum. Danska
öryggislögreglan hafði í samvinnu
við þá sænsku fylgst með mönn-
unum í nokkra mánuði og hlerað
samtöl þeirra.
Fjórði maðurinn var handtekinn í
Svíþjóð og síðar framseldur til
Kaupmannahafnar. Hann upplýsti í
réttarsalnum, að hann hefði ekið
með hinum þremur frá Stokkhólmi
áleiðis til Danmerkur en farið úr
bílnum í Jönköping.
Tengsl við Pakistan
Henrik Plæhn, saksóknari, sagði í
réttarsalnum í gær, að líklega hafi
mennirnir ætlað að láta til skarar
skríða í samkvæmi, sem haldið var
til að fagna því að Jyllands-Posten
fékk sérstaka viðurkenningu fyrir
íþróttafréttir. Friðrik krónprins var
meðal gesta í samkvæminu en ekki
er talið að fjórmenningarnir hafi vit-
að það.
Plæhn sagði einnig, að vísbend-
ingar væru um að lagt hefði verið á
ráðin um árásina í Pakistan. Sagðist
hann myndu veita nánari upplýs-
ingar um það síðar í réttarhöld-
unum, sem munu væntanlega
standa yfir fram í júní. gummi-
@mbl.is
Sakborningar neita sök í
dönsku hryðjuverkamáli
Réttað yfir fjórum karlmönnum fyr-
ir að ætla að ráðast á Jyllands-Posten
AFP
Við dómhúsið Lögregla flytur tvo af sakborningunum til dómhússins í
Glostrup þar sem réttarhöldin fara fram. Þau munu standa yfir fram í júní.
Tugir þúsunda manna tóku þátt í
mótmælum á götum borga í Sýrlandi
í gær til að láta reyna á það hvort
einræðisstjórn landsins virti friðar-
áætlun Sameinuðu þjóðanna og
Arababandalagsins og hætti árásum
á óbreytta borgara. Stjórnarand-
stæðingar sögðu að öryggissveitir
hefðu skotið á mótmælendur og
nokkrir þeirra hefðu beðið bana.
Að sögn fréttastofunnar AFP lágu
a.m.k. fimm óbreyttir borgarar í
valnum eftir skotárásir öryggis-
sveita. Daginn áður létu sjö óbreytt-
ir borgarar lífið eftir að vopnahlé
gekk í gildi fyrir tilstilli Kofis Ann-
ans, sérlegs erindreka Sameinuðu
þjóðanna og Arababandalagsins í
málefnum Sýrlands. Mannfallið var
þó miklu minna en síðustu vikurnar
fyrir vopnahléið því árásirnar kost-
uðu þá yfirleitt tugi manna lífið á
dag.
Efast um friðaráætlunina
Efnt var til mótmæla í tveimur
hverfum Damaskus, tveimur nálæg-
um bæjum og í borginni Homs.
Mannréttindasamtök sögðu að tugir
þúsunda manna hefðu tekið þátt í
mótmælunum sem náðu hámarki
eftir föstudagsbænir í moskunum.
Öryggissveitir hleyptu af byssum
upp í loftið til að dreifa mótmæl-
endum, en stjórnarandstæðingar
segja að nokkrir mótmælendur hafi
beðið bana.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakk-
lands, og fleiri vestrænir ráðamenn
létu í ljósi efasemdir um að stjórn
Sýrlands virti friðaráætlunina.
Enn mann-
fall í fjölda-
mótmælum
Fjöldamótmæli Frá mótmæla-
göngu stjórnarandstæðinga í Homs.
Óvissa um vopna-
hlé í Sýrlandi
Verjendur Anders Behrings Brei-
vik ætla að krefjast þess að skjól-
stæðingur þeirra verði sýknaður
þegar réttarhöld yfir Breivik hefj-
ast í Ósló á mánudagsmorgun.
Breivik hefur játað að hafa orðið
77 manns að bana í Noregi 22. júlí
í fyrra. Verjendur Breiviks sögð-
ust í gær ekki eiga annars úrkosti
en að verða við kröfum hans um
sýknudóm.
„Hann mun lýsa því yfir, að
hann hafi talið sig knúinn til að
grípa til neyðarúrræða,“ sagði
Geir Lippestad, verjandi Breiviks,
við fréttamenn í Ósló í gær.
Hann sagði að verjendur yrðu
að uppfylla óskir skjólstæðinga
sinna, einkum ef tryggt væri að
með því myndi staða þeirra ekki
versna.
Breivik hefur sagt, að hryðju-
verkin, sem hann framdi, hafi ver-
ið nauðsynleg til að vernda norska
menningu gegn skaðlegum áhrif-
um fjölmenningar.
AFP
Verjandinn Geir Lippestad talar við fréttamenn í kuldanum í Ósló í gær.
Réttarhöldin yfir Breivik hefjast á mánudag.
Verjendur Breiviks
munu krefjast sýknu
Danska blaðið Jyllands-Posten
kallaði yfir sig mikla reiði
múslima eftir að blaðið birti
tólf skopmyndir af Múhameð
spámanni haustið 2005. En
samkvæmt kenningum íslams
er það guðlast að sýna spá-
manninn á myndum. Mót-
mælaaðgerðir voru víða í
múslimaríkjum og þar var
hvatt til að sniðganga danskar
vörur. Þá varð Jyllands-Posten
skotspónn öfgamanna sem
skipulögðu árásir á blaðið. Þá
hefur verið ráðist á að minnsta
kosti einn teiknaranna.
Skopmyndir vöktu reiði
Poetic Licence: 24.995.-
Bullboxer: 12.995.- Poetic Licence: 24.995.-
Again & Again: 18.995.-
Kringlunni - Smáralind
ntc.is - erum á
s. 512 1760 - s. 512 7700