Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 4. M A Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  104. tölublað  100. árgangur  KOLAGRILLIÐ ER TRÚARBRÖGÐ HJÁ SUMUM MIKIL EFTIRVÆNTING OG TILHLÖKKUN Í FÓTBOLTANUM 40 SÍÐNA SÉRBLAÐ UM PEPSÍ-DEILDINA 12 SÍÐNA SÉRBLAÐ UM GRILL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Áhrifin verða að mínu mati skelfileg, ef þetta fer í gegn. Það er verið að setja upp peningadælu til að dæla peningum, mest af landsbyggðinni,“ segir Halldór Halldórsson, fyrrver- andi bæjarstjóri á Ísafirði, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, um áhrif stjórnarfrumvarpa um fisk- veiðistjórn og veiðigjöld. Sérfræðihópur sem atvinnuvega- nefnd Alþingis fékk til að meta áhrif sjávarútvegsfrumvarpanna telur að samþykkt þeirra, einkum álagning veiðigjalds, myndi hafa mikil áhrif á byggðaþróun. Halldóri hafði í gær ekki gefist kostur á að kynna sér álit sérfræðinganna en fréttir af skýrsl- unni komu honum ekki á óvart. Mótvægisaðgerðir skiluðu litlu „Ég reiknaði sjálfur út áhrif veiði- gjaldsins, út frá upplýsingum sem liggja fyrir um afkomu sjávarútvegs- fyrirtækja á Vestfjörðum 2009, og fann út að það myndu fara 1,4 millj- arðar út af Vest- fjörðum, frá fyrir- tækjum sem rekin voru með 800 milljóna króna tapi,“ segir Hall- dór. Mótvægisað- gerðir gætu kannski skilað 100 milljónum til baka sem hann sagði hlægilega lítið í ljósi umræðunnar. Halldór sagði að til þess að greiða há veiðigjöld yrðu fyrirtækin að hag- ræða enn frekar í rekstri. Þau yrðu að skera allt niður sem hægt væri og það myndi bitna á launahlutanum, eins og öðru. „Fjármagnið á landsbyggðinni mun minnka enn frekar og störfum fækka meira en orðið er,“ segir Hall- dór. Hann óttast einnig að þetta myndi bitna á nýsköpunarstarfi sem rekið er í tengslum við sjávarútveginn og þróunarstarfi, svo sem fiskeldi. MVeiðigjöld á röngum grunni »12 Peningum dælt af landsbyggð  Halldór Halldórsson segir að hækkun veiðigjalda myndi hafa skelfileg áhrif á sjávarbyggðir  Fyrirtækin þyrftu að skera niður laun og annan kostnað Halldór Halldórsson Morgunblaðið/ÞÖK Álbræðsla Umsvif myndu aukast mjög í Reyðarfirði ef ákveðið yrði að stækka álver Fjarðaáls. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Alcoa á Íslandi er að kanna möguleika á stækkun álvers Fjarðaáls í Reyðar- firði. Málið er á frumstigi en forsvars- menn fyrirtækisins buðu fulltrúum líf- eyrissjóðanna til fundar í gærmorgun til að kynna þeim hugmyndirnar og kanna áhuga á þátttöku í fjármögnun verkefnisins. Alcoa er að undirbúa straumhækk- un í álverinu sem myndi auka fram- leiðslugetu þess úr 350 í 370 þúsund tonn á ári. Breyta þarf kerskálum og er áætlað að framkvæmdin kosti yfir 12-13 milljarða króna. Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir að Alcoa sé tilbú- ið að hefjast handa við stækkun álvers- ins um 180 þúsund tonn til viðbótar, ef samningar náist um fjármögnun og raforkukaup. Álverið gæti þá framleitt alls um 550 þúsund tonn á ári. Unnt á að vera að hefjast handa á næsta ári, að skilyrðum uppfylltum, og gangsetja viðbótina á árinu 2018. Magnús segir verkefnið áhugavert. „Fjarðaál hefur gengið vel og áhugi er á að auka hagkvæmni þess enn frek- ar,“ segir Magnús. 120 störf til viðbótar Stækkun álversins er mikil fram- kvæmd. Magnús segir að kostnaður sé áætlaður um 90 milljarðar króna. Við- bótin þarf um 270 megawatta orku. Magnús tekur fram að engar formleg- ar viðræður hafi farið fram um orku- kaup en Landsvirkjun sé kunnugt um áform fyrirtækisins. Hann vísar á Landsvirkjun um öflun orkunnar en telur að meðal annars sé horft til stækkunar á Kárahnjúkasvæðinu. Unnt er að stækka álverið á núverandi lóð fyrirtækisins í Reyðarfirði. Málið hefur verið kynnt óformlega fyrir bæj- aryfirvöldum en Magnús tekur fram að fara þurfi í hefðbundið skipulags- ferli. Fjöldi starfa skapast á byggingar- tíma álversins og 120 framtíðarstörf þegar framleiðsla hefst, auk afleiddra starfa. Bætast þau við þau 480 störf sem nú eru við álverið og 300 störf hjá undirverktökum. Hugmyndir um stækkun álvers Fjarðaáls  Alcoa kannar áhuga lífeyrissjóðanna í þátttöku í fjármögnun 180 þúsund tonna viðbótar Það er mikið að gera á stóru heimili. Það fengu þessi svartþrastarhjón á Blönduósi að reyna á dögunum, þegar fjórir sísvangir ungarnir heimt- uðu sitt og engar refjar. Í ónefndum garði þar í bæ verpa fuglarnir annað árið í röð, urpu meira að segja tvisvar í fyrra, þó ekki í sama trénu. Hér má sjá kvenfuglinn bera ánamaðka í hreiðrið og karlfuglinn, sem staðið hafði vaktina á meðan, leggja í veiðiferð. Stundum fóru þau bæði í einu, fannst ekki vanþörf á. Fyrsta staðfesta varp þessarar fuglategundar á Íslandi var í Reykjavík 1969. Núna er hún á sumrin víða um suðvesturhorn landsins, þar sem hentugan trjágróður er að finna, en er auk- inheldur bersýnilega tekin að færa út kvíarnar. Á Akureyri fannst t.d. hreiður nýverið með tveimur ungum í. Þess utan eru svartþrestir al- gengir haust- og vetrargestir. Vaktaskipti við svartþrastarhreiðrið Morgunblaðið/Sigurður Ægisson  Hrossaslátrun hefur verið með meira móti í vetur hjá öllum slátur- leyfishöfum. Enn vantar þó hross til slátrunar til að þeir nái að standa við gerða samninga við erlenda kaupendur. Hjá kjötafurðastöð KS vantar að fylla tvo gáma af hrossa- kjöti sem eiga að fara til Rússlands, þangað eru þegar farnir sex gámar í vetur. Sömu sögu er að segja hjá Sláturfélagi Suðurlands þar sem fer að vanta hross til slátrunar. »6 Enn vantar slátur- hross, mikið flutt út Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Oft og tíðum fáum við góðar tillögur frá umsagnaraðilum. Það á við sjáv- arútvegsfrumvörpin eins og hver önnur frumvörp. Við þiggjum allar þær ábendingar sem koma fram og lögum okkur auðvitað að þeim,“ segir Kristján Möller, þingmaður Sam- fylkingar og for- maður atvinnu- veganefndar, en hann útilokar ekki endurskoðun á frumvörpunum á næstu vikum. Mikill fjöldi umsagna hefur borist nefndinni og segir Kristján að til þeirra verði „að sjálfsögðu“ horft þegar farið verður yfir frumvörpin. „Ég leyfi mér að halda því fram að ég hafi aldrei samþykkt frumvarp og gert það að lögum sem ekki tók breytingum í meðförum Alþingis. Til þess er þessi ferill allur. Hér á við það fornkveðna: Betur sjá augu en auga,“ segir Kristján sem kveðst munu taka gagnrýni í nýrri greinar- gerð sem unnin var fyrir nefndina sem vinsamlegri ábendingu um það sem betur megi fara í málinu. Kvóta- frumvörp í endurmat  Gagnrýni verð- ur tekin til greina Kristján Möller

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.