Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012 Sólardagur Fólk fagnaði sólinni og blíðunni í gær með ýmsum hætti og þessar blómarósir í höfuðborginni leyfðu geislunum að skína á sitt hold þar sem þær sátu upp við vegg í miðbænum. Ómar Eftir að ég tók sæti á Alþingi hef ég verið óþreytandi við að benda á mikilvægi auðlinda okkar í landi, láði og í lofti. Má fullyrða að fá ríki séu jafn rík að auð- lindum eins og Ísland. Auðlindir okkar eru óvarðar samkv. lögum gagnvart aðlögunarferli því sem nú er í gangi gagnvart Evrópusambandinu að und- anskilinni sjávarútvegsauðlindinni. Ég lít málið alvarlegum augum því að skylda stjórnvalda er að standa vörð um þessar auðlindir fyrir þjóðarhag í stað þess að semja um nýtingu þeirra við ESB. Ríki Evrópusambandsins eru auðlindasnauð og mjög orkuþurfi. Hef ég verið hugsi undanfarin misseri yfir framgöngu forstjóra Landsvirkjunar varðandi málefni ríkisfyrirtækisins. Hefur hann farið mikinn í umræðum um hugsanlega raforkusölu um sæ- streng til Evrópu. Á ársfundi Landsvirkjunar 13. apríl sl. kom fram að fyrirtækið sé talsvert skuldsettara en sambærileg fyrirtæki í nágrannalöndunum og gæti það haml- að félaginu að leita eftir frekara lánsfé, og ef erlendir fjármálamarkaðir lokist, þá þurfi Íslenska ríkið að leggja Landsvirkjun til eigið fé. Þar kom einnig fram að handbært fé frá rekstri „ætti“ að standa undir endurgreiðslum lána svo fremi að ekki verði ráðist í um- fangsmiklar fjárfestingar. Getur verið að fjárhagsvandræði Landsvirkjunar eigi að leysa með lánsfé/inngöngufé frá Evrópusambandinu? Hvað er verið að semja um á bak við tjöldin? Í Lissabon-sáttmálanum sem er nokkurs konar stjórnarskrá Evrópu- sambandsins og aðildarríkin þurfa að undirgangast segir um orkumál: Orku- mál koma fyrir í I. bálki sem fjallar um flokka og svið valdheimilda Evrópu- sambandsins sem það deilir með aðild- arríkjunum. Í 170 gr. XVI. bálki er fjallað um samevrópskt netkerfi. Þar segir að Evrópusambandið skuli stuðla að uppbyggingu og þróun grunnvirkja fyrir samevrópsk flutninga-, fjar- skipta- og orkunet. Í 2. tölul. þeirrar greinar segir orðrétt: „Aðgerðir Sam- bandsins skulu miða að því, innan ramma opinna samkeppnismarkaða, að ýta undir samtengingu og rekstr- arsamhæfi netkerfa aðildarríkjanna, svo og aðgang að slíkum netkerfum. Þær skulu einkum taka mið af nauðsyn þess að tengja eyjar, landlukt svæði og jaðarsvæði við miðlæg landsvæði Sam- bandsins.“ Síðan kemur eftirtektarvert heimildarákvæði í 3. mgr. í 171. gr. en þar er Evrópusambandinu veitt heim- ild til að styðja verkefni sem þjóna sameiginlegum hags- munum aðildarríkjanna með lánatryggingum, vaxtaniðurgreiðslum eða fjármögnun. Sambandið skal þó taka mið af því hvort verkefnin séu arð- bær. Ákvæði þessi í Lissabon-sáttmálanum eru einkar eftirtekt- arverð miðað við þróun framtíðarsýnar Lands- virkjunar, sér í lagi þeg- ar litið er til þess að Ís- land er í aðlögunarferli að ESB og þegar XXI. bálkur sáttmálans sem fjallar um orkumál er skoðaður. Í 194. gr. þess bálks kemur fram stefna og markmið ESB í orkumálum sem byggjast á innri markaði sambandsins. Þar segir að tryggja skuli starfsemi orkumarkaðarins og öryggi orkuaf- hendingar í ESB. Að auka orkunýtni og orkusparnað og stuðla að þróun nýrra og endurnýjanlegra orkugjafa og stuðla að samtengingu orkuneta. Í 2. staflið 194. gr. er kveðið á um að Evrópuþingið skuli ákveða nauðsyn- legar ráðstafanir til að ná þessu mark- miði – þó með fyrirvara um rétt aðild- arríkis til að ákvarða með hvaða skilyrðum orkulindir þess eru nýttar, hvaða orkugjafa það velur og almenna tilhögun orkuafhendingar. Það þarf ekki að hafa fleiri orð um þessi mál. Staðreyndirnar blasa við og augljóst er hvaða orkugjafa Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja undir til að liðka fyrir aðlögunarferlinu. Ég minni á ummæli erlendra þingmanna ESB-ríkjanna sem þráspyrja – munu Íslendingar samþykkja inngöngu í sambandið ef full yfirráð yfir sjáv- arútvegsauðlindinni verða varin til framtíðar? Ég hef svarað því til að sjávar- útvegsauðlindin okkar sé aðeins brot af öðrum auðlindum Íslands sem Evr- ópusambandið ásælist. Að fórna öllum okkar auðlindum fyrir fiskinn er galið – við verðum að standa vörð um öll okkar gæði – í landi, láði og lofti. Lát- um ekki Samfylkinguna og ESB villa okkur sýn á framtíðarmöguleika okkar á norðurslóð utan Evrópusambands- ins. Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Getur verið að fjár- hagsvandræði Lands- virkjunar eigi að leysa með lánsfé/inngöngufé frá Evrópusambandinu? Hvað er verið að semja um á bak við tjöldin? Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins. Landsvirkjun og ESB-umsóknin Madrid | Síðasta lota samninga- viðræðna um kjarn- orkuáætlun Írana er nú hafin milli Írans og hins svonefnda „5+1-hóps“ (fasta- ríkjanna fimm í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna – Banda- ríkjanna, Bretlands, Rússlands, Frakk- lands og Kína – auk Þýskalands). Samningaviðræður í janúar 2011 skiluðu engu og síðan hafa þessi mál verið í sjálfheldu og að margra áliti eru þessar nýju viðræður síðasta tækifærið til að finna friðsamlega lausn á deilu sem hefur staðið í nær áratug (deilu sem ég tók mikinn þátt í 2006-2009 sem aðalsamn- ingamaður vesturveldanna gagn- vart Írönum). Markmið þessara nýju við- ræðna, sem stýrt er af Catherine Ashton, yfirmanni utanríkismála hjá Evrópusambandinu, og að- alsamningamanni Írana, Saeed Ja- lili, er sem fyrr að telja Írana á að stöðva auðgun úrans og hlíta sam- þykktum öryggisráðsins og skuld- bindingum sem fylgja aðild rík- isins að samningnum um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna, NPT. En ýmislegt eykur langtímamik- ilvægi þessara viðræðna núna. Í fyrsta lagi hafa efnahagslegar og pólitískar aðstæður í Íran breyst mjög síðan í síðustu við- ræðulotunni. Alþjóðlegur þrýst- ingur hefur aukist eftir að Al- þjóðakjarnorkumálastofnunin staðfesti í nóvember sl. að kjarn- orkuáætlun Írana væri að þróast í átt til framleiðslu kjarnavopna, fremur en framleiðslu rafmagns eða ísótópa til lækninga, gripið hefur verið til nýrra refsiaðgerða gegn olíuútflutningi Írana og al- þjóðaviðskiptum af hálfu íranska seðlabankans. Þótt hækkandi orkuverð á al- þjóðamörkuðum hafi á síðustu mánuðum veitt Írönum nokkurt andrúm hafa refsiaðgerðirnar aldrei komið jafn hart niður á írönskum neytendum og núna. Gengi gjaldmiðilsins, rials, hefur fallið um 40% frá því í október (sem gerir erlendar vörur dýrari) og fjármálaviðskipti hafa orðið mun dýrari og snúnari fyrir bæði ríkisstjórnina, fyrirtækin og heim- ilin. Ennfremur er sundrung í for- ystu Írans og hún er veikburða. Samskipti Mahmouds Ahmad- inejads, forseta og æðsta leiðtog- ans, ajatolla Ali Khamenei, halda áfram að versna og um leið eykst spenna í Lýðveldisverðinum. Enn er ekki komið í ljós hvaða áhrif þessi pólitíska þróun muni hafa á samninga- viðræðurnar. Í öðru lagi hafa áhrif Írans í Mið- Austurlöndum dvínað vegna margra upp- reisna í arabalönd- unum, einkum upp- reisnarinnar í Sýrlandi – afar mik- ilvægu ríki vegna öfl- ugra tengsla þess við bæði Íran og Rússland í öryggismálum. Sýr- land er í reynd helsti bandamaður Írans í Mið-Austurlöndum og er auk þess eina ríkið utan við svæði Sovétríkjanna fyrrverandi þar sem Rússland er með her- bækistöð. Þörf Rússa fyrir að samræma þessa hagsmuni sína í Sýrlandi því hlutverki sem þeir gegna í samningaviðræðunum ger- ir samræðu sem þegar eru flókin enn flóknari. Stefnan gagnvart konungs- ríkjum súnní-múslíma við Persa- flóa hefur einnig breyst. Þessi ríki eru nú andvígari bæði Íran og Sýrlandi en þau hafa verið í ára- tugi. Með Katar og Sádi-Arabíu í forystuhlutverkinu hafa þessi ríki opinberlega viðurkennt að til greina komi að vopna sýrlenska uppreisnarmenn til að velta Bas- har al-Assad forseta úr sessi. Ol- íubirgðir Sádi-Araba gera þeim auk þess kleift að veita afdrifa- ríkan stuðning við bannið gegn ol- íukaupum frá Íran vegna þess að Sádi-Arabar geta bætt upp olíu- skortinn á alþjóðamörkuðum í kjölfarið. Kínverjar eru í vaxandi mæli háðir olíu frá Persaflóalöndunum og munu þurfa að vega og meta þann þátt vandlega við samninga- borðið. Kínverjar hafa ásamt Rússum stutt Sýrlendinga í ör- yggisráðinu og nýlega kom í ljós að Íranar höfðu aðstoðað Sýrlend- inga við að hunsa alþjóðlegar refsiaðgerðir með því að útvega þeim skip sem flutti olíu frá Sýr- landi til fyrirtækis í ríkiseigu í Kína. Í þriðja lagi eru Ísraelar þegar ósáttir við niðurstöður fyrri samn- ingaviðræðna og í röðum þeirra fer uggurinn nú vaxandi. Íranar halda áfram með kjarnorkuáætlun sína og aukin pólitísk óvissa vofir yfir heimshlutanum. Ísrael styður því hernaðaraðgerðir gegn Íran á þessu ári áður en, svo að notað sé orðalag Ehuds Baraks, varnar- málaráðherra Ísraels, Íranar hafa komið sér fyrir „í verndar- hjúpnum“ sem gerir hernaðar- inngrip gagnslaust. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, flutti í nýliðnum mánuði ræðu á fundi félagsins AI- PAC, öflugustu samtökum hags- munavarða er starfa fyrir Ísrael í Bandaríkjunum og lagði hann þar áherslu á það hve brýnt væri að finna lausn. En viðræðurnar munu taka langan tíma, stundum ganga vel, stundum illa, og til þess að flækja málin enn munu þær fara fram á kosningaári í Bandaríkj- unum þar sem stjórnarandstöðu- flokkurinn, repúblikanar, er hall- ari en stjórnarflokkurinn undir málstað Netanyahus. Og að lokum, Barack Obama Bandaríkjaforseti veit að mögu- leikar hans á endurkjöri velta á því hvort honum tekst að forðast mistök í þessu máli. En hvernig er hægt að standa fyrir langvar- andi viðræðum án þess að þær virðist gagnast þeim aðilanum sem vill vinna sér tíma? Pólitískar fegrunaraðgerðir – það er að segja tilraunir til að hafa áhrif á álit almennings á málinu – munu verða mjög mikilvægur hluti þess- ara samningaviðræðna. Sem stendur halda Bandaríkja- menn opnum möguleikanum á beinum viðræðum við Írana (eins og bandaríski varnarmálaráðherr- ann, Leon Panetta, sagði Barak fyrir mörgum mánuðum að þeir myndu gera). Á fyrsta degi við- ræðulotunnar í Istanbúl sam- þykkti Jalili ósk Bandaríkjamanna um tvíhliða fund í tengslum við viðræðurnar og allir þátttakendur í þeim álitu að árangurinn fram til þessa væri skref í rétta átt. Ef við viljum tryggja að Íranar komi sér aldrei upp kjarnavopnum er eina tryggingin fyrir því að breyta ákefð þeirra í að eignast þau. Og besta leiðin til þess er enn sem fyrr að semja fremur en að beita valdi. Engum hefur tekist að reikna út afleiðingar stríðs. Það er hentugast fyrir alla að setjast niður og ræða saman. Eftir Javier Solana » Þótt hækkandi orku- verð á alþjóðamörk- uðum hafi á síðustu mánuðum veitt Írönum nokkurt andrúm hafa refsiaðgerðirnar aldrei komið jafn hart niður á írönskum neytendum og núna. Javier Solana Höfundur er fyrrverandi yfirmaður utanríkis- og öryggismála hjá Evr- ópusambandinu og þar áður fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags- ins. Hann er nú yfirmaður ESADE, alþjóðlegrar miðstöðvar um efna- hags- og alþjóðamál og einnig fræði- maður hjá Brookings-stofnuninni. Síðasta tækifæri Írana?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.