Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Hrinti manni fram af brú 2. Reynir að skila 10 milljóna lóð 3. Handtekin fyrir að setja ... 4. Ábyrgð eigandans skýr »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í skugga stríðs er yfirskrift þýskrar kvikmyndahátíðar sem hefst í dag í Kamesi Borgarbókasafnsins, Tryggvagötu 15, og lýkur 13. maí. Upplýsingar um dagskrá má finna á borgarbokasafn.is. Þýsk kvikmyndahátíð í Borgarbókasafninu  Reykjavík Live nefnist tónlistar- hátíð sem haldin verður 16.-20. maí í miðbæ Reykja- víkur, á Gamla Gauknum, Glaumbar, Prikinu og Frú Berglaugu. Yfir 50 tónlistar- atriði verða í boði, bæði innlendir og erlendir tónlistarmenn, m.a. Retro Stefson, Legend, Emmsjé Gauti, Reykjavík! og Þórunn Antónía. Yfir 50 atriði á Reykjavík Live  Kvikmyndin Eldfjall, í leikstjórn Rún- ars Rúnarssonar, var valin besta myndin á 18. Bradford International- kvikmyndahátíðinni í Bradford á Eng- landi í síðustu viku. Dóm- nefnd á hátíðinni skipuðu leikstjórinn og handritshöfund- urinn Joanna Hogg og kvikmynda- gagnrýnendurnir Wendy Ide og Tim Robey. Eldfjall valin besta myndin á BIFF Á laugardag Norðan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast við A- ströndina. Él NA-til og einnig syðst á landinu, annars léttskýjað. Á sunnudag og mánudag Norðan 3-8 m/s og dálítil él A-lands, annars hægara og víða bjart veður. Hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-13 við A-ströndina síðdegis og dá- lítil él þar í kvöld. Hiti 2 til 12 stig að deginum, hlýjast SV-til. VEÐUR Fer HK stystu leið að titlinum? Alfreð Gíslason er langt frá því að vera kominn í sumarfrí þótt þýski meistaratitillinn í handbolta sé í höfn hjá lærisveinum hans í Kiel. „Það var enginn tími til að fagna titlinum. Það er mikið framundan hjá okkur og há- tíðahöldin verða að bíða betri tíma,“ segir Alfreð við Morgunblaðið. »4 Hátíðahöldin verða að bíða betri tíma Það hefur stefnt í það undanfarna mánuði að Ragna Ingólfsdóttir, lang- besta badmintonkona landsins, yrði á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í London í sumar. Hún vissi það fyrir víst fyrr í vikunni og í gær fékkst það svo formlega staðfest að Ragna er komin með keppnisréttinn á Ólymp- íuleikunum. Ýtarlega er rætt við Rögnu um leikana. »2 Farseðill Rögnu á Ól formlega staðfestur ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Í kvöld munu átján atriði, sextán val- in af þjóðinni og tvö af dómnefnd, keppa til sigurs í úrslitum Hæfi- leikakeppni Íslands, sem sýnd verða í beinni útsendingu á SkjáEinum. Keppnin er samstarfsverkefni Skjás- Eins og mbl.is og hófst formlega 27. febrúar sl. þegar opnað var fyrir myndbandsumsóknir á mbl.is en alls höfðu hátt í 700 umsóknir borist áður en innsendifrestur rann út. Sigur- vegarar í hæfileikakeppninni hljóta eina milljón króna í verðlaun. „Hugmyndin kviknaði hjá okkur þegar við vorum að skoða hvernig vinna mætti efni til birtingar bæði á neti og í sjónvarpi og þessi tilraun gekk framar vonum; á annað hundr- að þúsund notendur skoðuðu mynd- böndin sem birt voru á mbl.is og um tuttugu þúsund atkvæði bárust í gegnum vefinn eftir að þættirnir fjórir voru sýndir í sjónvarpi,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri mbl.is. Valið á atriðum fór þannig fram að eftir að myndböndin 700 höfðu verið birt á mbl.is valdi almenningur fjög- ur atriði áfram í þættina á SkjáEin- um og dómnefnd, skipuð Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, Þorvaldi Dav- íð Kristjánssyni og Önnu Svövu Knútsdóttur, sjötíu og sex. Eftir hvern þátt völdu áhorfendur síðan fjögur atriði af tuttugu áfram í úrslit- in í netkosningu og undir lokin fleytti dómnefndin tveimur atriðum áfram sem ekki höfðu hlotið náð fyrir aug- um almennings. Gott sjónvarpsefni Í úrslitunum mun dómnefndinni berast liðsauki í formi Bubba Mort- hens tónlistarmanns, sem er reynsl- unni ríkari eftir að hafa setið í dóm- nefnd Idol-stjörnuleitar. Í spjalli var hann fljótur að lýsa því yfir að hann hygðist ekkert tjá sig um einstaka at- riði fyrir úrslitin en fékkst þó til að viðurkenna að það væri vissulega hæfileikafólk að finna meðal kepp- enda. „Þetta leggst vel í mig,“ sagði Bubbi. „Þetta er gott sjónvarpsefni; gott fyrir fjölskyldur, barnafólk. Það vantar meira svona íslenskt efni,“ segir hann og kallar keppnina sak- lausa. „Ég hef aldrei verið sam- þykkur því að farið sé illa með fólk. Einstaklingarnir eru eins misjafnir og þeir eru margir og sumir fá tæki- færi en aðrir ekki. Og þetta er sann- arlega tækifæri, en svo veltur það bara á mönnum sjálfum hvernig þeir spila úr sínu,“ segir Bubbi. Sigurvegari Hæfileikakeppni Ís- lands verður valinn í símakosningu í beinni útsendingu í kvöld sem hefst kl. 21 á SkjáEinum. Þjóðin velur úr hæfileikafólki  Úrslit í Hæfi- leikakeppni Ís- lands í kvöld Hæfileikar „Í raun er þetta skemmtiþáttur þar sem fólk með ólíka hæfileika kemur saman og svo er það dálítill hitt- ingur hvað hrífur dómnefnd og þann sem horfir á,“ segir Bubbi. Kynnir á úrslitunum verður sem áður Sóli Hólm. Morgunblaðið/Styrmir Kári Kaplar Sviðsmyndin í Gamla Bíó gerð klár fyrir keppnina í kvöld. HK virðist á góðri leið með að fara stystu leið að Ís- landsmeistaratitlinum í handknattleik karla eftir góðan sigur á FH í gær, 29:26. Staðan í einvíginu er 2:0 en liðið vann Hauka 3:0 í undanúrslitaeinvíginu. HK á því enn eftir að tapa leik í úrslitakeppninni og ekkert bendir til þess að það breyt- ist á sunnudaginn þegar lið- in mætast í þriðja sinn. »3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.