Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar Á Íslandi Leif nýtur þess að heimsækja landið sitt og fólkið sitt á Íslandi og fer þá til sjós að veiða og gengur á fjöll. starfaði fyrst í nokkra mánuði á stof- unni hjá pabba sínum. „En svo fékk ég vinnu hjá fyrirtækinu Gustafson Porter sem hin bandaríska Kathryn Gustafson á og rekur, en fyrirtækið er vel þekkt um allan heim fyrir landslagsarkitektúr og hefur meðal annars gert Princess Diana Memori- al Fountain í Hyde Park í London. Ég gekk í hönnunarliðið hjá Gustaf- son Porter til að taka þátt í að þróa landslag og arkitektúr í verkefninu „Mezyad Desert Park & Visitor Centre“ í Abu Dhabi. Í framhaldi af því fékk ég vinnu hjá fyrirtækinu BDP í London, sem er stærsta arki- tektastofa í Evrópu, en á þeirra veg- um starfa 1.200 arkitektar um víða veröld. BDP hannaði og teiknaði Smáralindina hér á Íslandi og sá sem stjórnaði verkinu var heilmikið hér á landi og starfaði með íslenskum arki- tektum. Hann var mjög ánægður með vinnu íslensku arkitektanna og hann kunni líka sérstaklega vel við sig á Íslandi.“ Var einn af fjórum sem komust inn Leif segir samkeppnina í arki- tektaheiminum mjög harða og dæmi þar um sé sú staðreynd að þegar hann sótti um vinnu hjá BDP sóttu tvö hundruð arkitektar um. „Við vor- um ekki nema fjögur sem fengum ráðningu. Ég held að verkefna- mappan mín hafi komið mér inn, því þeim leist svo vel á lokaverkefnið mitt í skólanum, sem byggðist á landslagi og arkitektúr kerfisins, en það kallast „Organismo Multi- funcional í Menorca“, sem er marg- þætt svæði þar sem byggingar og umhverfi er hannað með ferðamenn í huga, þar á meðal voru safn, leikhús, íbúðir og ýmsar ólíkar byggingar fyrir margskonar starfsemi. Þeir hjá BDP voru hrifnir að því hvernig lausnir ég fann og hvernig ég tengdi náttúruna og byggingarnar saman.“ BDP vinnur mikið við að hanna og teikna opinberar stofnanir, sjúkrahús, bókasöfn og skóla og einnig er tónleikahöllin Royal Albert Hall í London eitt af stórum verk- efnum þeirra. Á meðan Leif starfaði hjá BDP vann hann meðal annars við að hanna og teikna hátæknispítala í Brighton sem verður sá stærsti í Bretlandi, en það mun taka mörg ár að ljúka því verki. Eftir að hafa unnið í eitt og hálft ár hjá BDP hóf Leif störf hjá arkitektafyrirtækinu 3DReid sem er til húsa í Oxford Cir- cus í London. Þar hefur hann verið undanfarið hálft ár. „Það er mjög stórt fyrirtæki, við erum 200 arki- tektar sem vinnum hjá þeim í Lond- on og við fáum mjög skemmtileg verkefni úti í Asíu, meðal annars við að hanna skýjakljúfa, flugvelli og annað slíkt. Núna er ég að vinna við að hanna og teikna þrjátíu og tveggja hæða íbúðarbyggingu með litlum lúxuseiningum í Malasíu. Í kringum þá byggingu þarf líka að hanna og skipuleggja nánasta umhverfi þar sem verður sundlaug, íþróttamiðstöð og fleiri byggingar. Það besta við þetta verkefni er að við fáum frjálsar hendur, sem er frábært. Okkur eru ekki lagðar fyrirfram ákveðnar línur eins og þegar teikna þarf opinberar byggingar.“ Langar að vinna á Íslandi Leif segir að uppgangurinn sé í Asíu í arkitektúr og að það sé gaman að vinna hjá 3DReid því viðskipta- vinirnir komi alls staðar að úr heim- inum. Hann segir að það sé mjög góð reynsla fyrir sig að vinna hjá þessum virtu fyrirtækjum í London og það muni greiða honum leið seinna. „En draumurinn er að geta í framtíðinni unnið við eitthvert arkitektaverkefni á Íslandi, helst eitthvað sem tengist sjónum, útsýni eða einhverju sem hefur annars konar tengingu við náttúruna,“ segir Leif og bætir við að spænska kærastan hans, Maria Mari Murga, sé mjög hrifin af Íslandi og hana langi til að halda sýningu hér á landi en hún er portrettteiknari. „Hún teiknar ítalska klassík og hefur verið að sýna í London. Ég hanna bæklinga og fleira fyrir hana. Við gerum allt saman og vinnum bæði við að teikna. Það má segja að við séum einhvers konar teiknara-par.“ Síða Mariu: www.mariamari.es DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012 www.kemi.is • kemi@kemi.is • Sími: 544 5466 Fax: 544 5467 • Tunguhálsi 10 , 110 Reykjavík Verslun okkar er opin: Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 8.00 - 17.30. Föstudaga frá 8.00 - 17.00. BYLTINGARKENNT OG UMHVERFISVÆNT BÆTIEFNI FYRIR ELDSNEYTI ALLT AÐ 20% ELDSNEYTISSPARNAÐUR - YFIR 50% MINNI MENGUN BYLTING! UMSÖGN: Fögrusteinar ehf. gera m.a. út beltagröfu og jarðýtu. „Við höfum, síðan um miðjan febrúar, verið að prófa PD-5 Fuel Boost frá Kemi ehf. Beltagrafan hefur heldur betur sýnt eld- sneytissparnað eða ekki minna en 13%. Jarðýtan hefur einnig sýnt svipaðan sparnað. PD-5 Fuel Boost er því efni sem ég mæli hiklaust með og ég mun nota efnið áfram á öll okkar tæki“. Sigurður Ágústsson framkvæmdastjóri. Fögrusteinar ehf. E LD SNEY TISK OS TN A Е S PARAR • PD-5 Boost-efnin eru byltingarkennd bætiefni fyrir eldsneyti. Hægt er að nota efnin með öllum tegundum fljótandi jarðeldsneytis. Í tilefni af lokadegi vorsýningar Listaháskóla Íslands hinn 6. maí efna útskriftarnemendur og kennarar myndlistardeildar til Málhófs í Hafn- arhúsinu. Þar verða margar spurn- ingar viðraðar og ræddar eins og Hvers konar fagumhverfi blasir við myndlistarfólki að loknu bakkalár- náminu? Hvað hefur námið skilið eft- ir sig hjá þeim? Hvað tekur við? og Er fýsilegast að finna sér aðkomu að starfsumhverfinu eins og það er, bæði á innlendum og erlendum vett- vangi, eða frekar að leita nýrra leiða og bæta við þá möguleika sem þegar eru fyrir hendi? Fjórir fulltrúar nemenda og fjórir fulltrúar starfandi myndlistarmanna, nýútskrifaðra sem reynslumeiri, og fólks af vettvangi íslenskrar sam- tímamyndlistar flytja örstutt erindi og lýsa eigin sýn á stöðu mála. Í framhaldinu verða opnar umræður. Málhófið hefst klukkan 13.30 í fjöl- notasal Hafnarhúss Listasafns Reykjavíkur og eru allir velkomnir. Málhóf myndlistardeildar LHÍ í Listasafni Reykjavíkur Vorsýning Þar eru verk af ýmsu tagi. Opnar umræður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.