Morgunblaðið - 04.05.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Aðalmeðferð í máli sem þýski bank-
inn Dekabank höfðaði gegn Glitni
hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Bankinn gerir kröfu um bætur
upp á 338 milljónir evra eða um 55
milljarða króna frá íslenska ríkinu.
Þýski bankinn er einn kröfuhafa
gamla Glitnis sem ríkið tók yfir haust-
ið 2008 en þeir áttu í svokölluðum
endurhverfum viðskiptum sín á milli
það ár. Á meðal þess sem bankinn
keypti af Glitni voru skuldabréf sem
Kaupþing og Landsbankinn gáfu út.
Telur þýski bankinn að íslenska
ríkið beri skaðabótaábyrgð vegna að-
gerðaleysis þess í aðdraganda banka-
hrunsins. Fjölmörg mistök hafi verið
gerð og þá sérstaklega af Seðlabank-
anum og Fjármálaeftirlitinu.
Eftir að íslensku bankarnir féllu
telur Dekabank að verulegur skortur
hafi verið á upplýsingagjöf, gagnsæi
og samstarfsvilja af hálfu íslenskra
stjórnvalda og íslenska ríkið hafi ekki
sýnt raunverulegan áhuga á því að ná
sameiginlegri lausn með kröfuhöfum
bankanna. Af þeim sökum hafi bank-
inn séð sig knúinn til þess að höfða
mál sem síðasta úrræði til þess að
gæta hagsmuna sinna.
Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt-
arlögmaður er lögmaður Dekabank í
málinu. Málflutningur í því heldur
áfram í dag.
Dekabank krefst 55
milljarða frá ríkinu
Málaferli hefjast fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
Frávísun
» Héraðsdómur Reykjavíkur
vísaði máli Dekabank frá vorið
2010 þar sem málshöfðunin
væri ótímabær.
» Hæstiréttur sneri frávísun-
inni hins vegar við um sumarið
það ár og sagði að héraðs-
dómur yrði að taka málið til
efnislegrar meðferðar.
Morgunblaðið/Ernir
Réttur Mál Dekabank er tekið fyrir
í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þunnar peysur
Verð 6.900 kr.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
úr eðalstáli skreyttur
Íslenskum steinum
Íslensk hönnun
og handverk
Kökuhnífur 11.800.-
Borðbúnaður
Salattöng
17.800.-
Ostahnífur
5.900.-
Smjörhnífur
5.900.-
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
komdu og kíktu
Efst á Skólavörðustígnum, sími 551 1121
ÚTSALA
Kíktu - það borgar sig
V
e
rð
s
e
m
þ
ú
h
e
fu
r
e
k
k
i
s
é
ð
á
ð
u
r
LOKADAGUR LAGERSÖLU
Nú er hægt að gera ótrúleg
kaup, hvort sem þig vantar buxur,
boli, peysur, jakka, kjól eða skó
OPNUNARTÍMI LAGERSÖLU
föstudag 11:00-18:30
Lokað laugardag
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | sími 568 2870 | www.friendtex.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs sem fram fer
30. júní 2012, hefst við embætti sýslumannsins í Reykjavík þann
5. maí nk. Atkvæða-greiðslan fer í fyrstu fram á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, alla virka daga milli
kl. 8:30 – 15:00. Um helgar er opið frá kl. 12:00 – 14:00. Lokað
verður á uppstigningardag þann 17. maí nk. og hvítasunnudag
þann 27. maí nk. Opið verður annan í hvítasunnu þann 28. maí
nk. frá kl. 12:00 – 14:00.
Frá og með 14. júní nk. fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardals-
höll og þá verður opið alla daga frá kl. 10:00 – 22:00. Lokað
verður sunnudaginn 17. júní nk. Á kjördag laugardaginn 30. júní
nk. verður opið frá kl. 10:00 til kl. 17:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
Hæstiréttur hefur sýknað Viðar Má
Matthíasson hæstaréttardómara af
kröfum Lánasjóðs íslenskra náms-
manna og staðfesti þar með dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur. Málið er
sérstakt fyrir þær sakir að allir
hæstaréttardómarar voru vanhæfir
í því.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna stefndi Viðari fyrir dóm
vegna ábyrgðar á námsláni sem
hann gekkst í árið 1985. Málið sner-
ist um túlkun á lögum um námslán,
en á sínum tíma var þess krafist að
lánþegi þyrfti tvo ábyrgðarmenn
fyrir námsláni og samkvæmt
reglum sem voru í gildi árið 1985,
þegar lánið var tekið, var hámarks-
tími endurgreiðslu lánanna 20 ár.
Viðar Már taldi að skyldur hans
sem ábyrgðarmanns hefðu fallið
niður árið 2005, en þessu var stjórn
Lánasjóðsins ekki sammála. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur féllst á rök
Viðars og sýknaði hann af kröfum
LÍN og staðfesti Hæstiréttur nið-
urstöðuna í gær.
Forseti Hæstaréttar er Markús
Sigurbjörnsson og gerði hann til-
lögu til innanríkisráðherra um að
Símon Sigvaldason, dómari við
Héraðsdóm Reykjavíkur og for-
maður dómstólaráðs, sæti í forsæti.
Símon gerði svo tillögu um að með
honum í málinu skyldu dæma Sig-
urður Tómas Magnússon prófessor
og Skarphéðinn Þórisson, fyrrver-
andi ríkislögmaður. Þetta voru því
dómararnir sem dæmdu í málinu.
Dómari sýknaður
í Hæstarétti
- nýr auglýsingamiðill