Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
ÆTLAR ÞÚ
AÐ BREYTA
UM LÍFSSTÍL?
HEILSULAUSNIR - Hentar einstaklingum sem
glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki.
• Mán., mið. og fös. kl. 6:20 og 10:00.
• Hefst mánudaginn 14. maí
• Kynningarfundur 10. maí kl. 17:30 - Allir velkomnir.
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn tíma og var búin
að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég er búin með
grunnnámskeið í Heilsulausnum og er núna á framhaldsnámskeiðinu. Ég hef náð góðum
árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari og með miklu meiri
orku. Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra
sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“
Helga
Einarsdóttir
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég heimsæki Ísland áhverju ári og nýt þess aðfara á sjóinn með afa áHúsavík og ganga á ís-
lensk fjöll, það er svo frábærlega
ólíkt lífinu úti í London,“ sagði ungur
margverðlaunaður arkitekt, Leif
Miguel Martinez, sem um þessar
mundir er í sinni árlegu Íslands-
heimsókn ásamt fjölskyldu. Hann á
íslenska móður og spænskan föður
og er fæddur og uppalinn á Spáni.
Hann fetaði í fótspor föður síns og
lagði stund á nám í arkitektúr í Uni-
versidad San Pablo CEU í Madrid.
„Ég valdi arkitektúr af því að mig
langði til að starfa við eitthvað skap-
andi. Teikning, sköpun og virkni
sameinast einmitt í arkitektúr sem er
í raun ákveðin tegund af list. Ég var
alltaf að teikna þegar ég var lítill og
mér finnst mjög gaman að sjá hug-
myndir sem ég fæ verða að veruleika
á blaði og síðan að byggingu. Hver
eining í arkitektúr á upphaf sitt í
skissu sem byggð er á hugmynd.“
Fór um víða veröld
með skólanum
Leif segir að námið í háskólan-
um Universidad San Pablo CEU hafi
verið mjög skemmtilegt. „Við fórum
á hverju ári á námskeið úti í heimi, til
Chicago og New York í Bandaríkj-
unum, til Tókýó og Sjanghai til að
læra um skýjakljúfana, til Rómar og
Grikklands til að læra allt um fornar
byggingar, til Hong Kong, Kuala
Lumpur, Toronto, Montreal, Sydney
og flestra höfuðborga í Evrópu,“ seg-
ir Leif sem lauk námi árið 2009 og
Gaman á sjónum
með afa á Húsavík
Leif Miguel Martinez hefur vegnað vel á ferli sínum sem arkitekt frá því hann út-
skrifaðist á Spáni árið 2009. Hann hefur starfað hjá risum eins og Gustafson Por-
ter og BDP og núna vinnur hann hjá 3DReid. Hann langar að starfa við verkefni
á Íslandi enda á hann fjölskyldu hér, móðir hans er íslensk en faðirinn spænskur.
Háhýsi Leif var einn þeirra sem tók þátt í að hanna og teikna þessar bygg-
ingar fyrir 3DReid,en það er fyrirtækið sem hann starfar hjá núna.
Í vinnunni Hér er Leif á vinnustofu sinni hjá fyrirtækinu BDP í London sem
hann starfaði hjá og umhverfið ekki amalegt, líkt og gömul verksmiðja.
Mikilvægt er að yngri kynslóðin
temji sér góða siði að því er varðar
tannheilsu og umhirðu tanna. Lét
nóbelsskáldið ófá orð falla um tann-
hirðu Íslendinga og misfögur í Al-
þýðubókinni er gefin var út árið
1929. Viðbrögðin voru misjöfn en
skáldið hafði rétt fyrir sér. Það er
t.d. mun auðveldara og skemmti-
legra að brosa ef tennurnar eru fal-
legar.
Lýðheilsustöð hefur gefið út ráð-
leggingar um tannvernd sem vert
getur verið fyrir foreldra að skoða,
en á vefsíðu Lýðheilsustöðvar má
sjá myndbönd um tannburstun,
notkun tannþráðar og upplýsingar
um tannskemmdir, tannholdsbólgur
og glerungseyðingu. Í myndbönd-
unum eru sýnd réttu handtökin við
tannhirðu barna á aldrinum sex
mánaða til 12 ára. Námsefnið er
unnið í samstarfi Lýðheilsustöðvar,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
og barnatannlækna á Íslandi.
Vefsíðan www2.lydheilsustod.is/utgafa/lifandi-efni/tannvernd/
Morgunblaðið/Kristinn
Tannhirða Mikilvægt er að hugsa vel um tennurnar og fara til tannlæknis.
Góð ráð um tannhirðu
Kiwaninshreyfingin og Eimskip gefa
öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1.
bekk grunnskóla í vor reiðhjóla-
hjálma. Verkefnið er árviss viðburður
félaganna til að stuðla að umferðar-
öryggi yngstu hjólreiðamanna lands-
ins, en þetta er í níunda skipti sem
félögin standa fyrir hjálmagjöfum.
Verkefnið ber nafnið „Óskabörn þjóð-
arinnar“, en samtals munu um 4.300
börn fá reiðhjólahjálma að gjöf að
þessu sinni. Meðalfjöldi barna í 1.
bekk á þessum níu árum hefur verið
um 4.200 börn hvert ár, sem þýðir að
um 38.000 börn eða um 12% af þjóð-
inni hafa notið góðs af verkefninu.
Endilega…
Örugg Með hjálm á reiðhjóli.
…verum örugg, notum hjálm
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Nú þegar við kaffiþambandiháskólanemanir drúpumþreyttir höfði yfir bóka-flóðinu sem okkur er ætl-
að að lesa fyrir próf, sem gefur okkur
lítið í aðra hönd, hafa aðrar bækur
fangað minn hug. Ég álpaðist til þess
að byrja að lesa bækurnar um Hung-
urleikana í miðjum próflestri og hef
lítið annað lesið á þessu tímabili.
Strax í byrjun fangar frásögnin les-
andann enda er Norður-Ameríku lýst
eftir gífurlegar hamfarir þar sem al-
gert einræði ríkir og meirihluti íbúa
er neyddur til þess að halda uppi fá-
ránlegum lifnaðarháttum fárra þús-
unda útvalinna í höfuðborginni eða
The Capitol. Ég ætla nú ekki að fara
dýpra í söguna en þessi partur sög-
unnar heillaði mig strax enda hef ég
alltaf heillast af einræði og óréttlæti.
Margar hafa fjallað um að í bók-
unum sé að finna ádeilu höfundar á
núverandi heimsskipan þar sem harð-
duglegt og bláfátækt fólk framleiðir
vörur fyrir okkur í velmegunarlönd-
unum sem við kaupum án
þess að hugsa mikið um
hver upprunni þeirra er.
Fyrir mér er það alls ekki
aðalpunktur sögunar þrátt
fyrir að hann sé fyrir hendi.
Fyrir mér er þessi saga
einfaldlega lýsing á
hatri og fyrirlitningu
fólks. Venjulegs fólks
sem vill ekkert nema
brauðfæða sig og sína
nánustu, gagnvart
gegnsýktu valdakerfi og
forréttindastéttum.
Aðstæðurnar sem lýst er í bókunum
leiða huga manns óneitanlega til landa
eins og Norður-Kóreu, Kína, Kúbu,
Írans, Sýrlands, landa innan Evrópu
og jafnvel vestur um haf til Bandaríkj-
anna. Við lesturinn fylltist ég baráttu-
hug, fann löngunina til þess að leysa
valdakerfið og forréttindapésana upp
í frumeindir, sem gerði lesturinn enn
áhrifameiri og eftirminnilegri.
En burtséð frá því öllu var Hungur-
leika-þríleikurinn frábær skemmtun
og virkilega heillandi. Eins og á við
um góða bók sogaðist hugur manns
inn í þann veruleika sem var settur
fram í bókinni og maður tengdist
hverjum og einum karakter á sinn
hátt og fann til með þeim á öllum til-
finningaskalanum. Því er alltaf leiðin-
legt að fletta síðustu blaðsíðunni því
það markar ákveðin endalok í lífi
manns og tómleikatilfinning lætur á
sér kræla. En rétt eins og karakter-
arnir úr Harry Potter og fleiri bókum
munu þau Katniss Everdeen, Peeta
Mellark, Gale Hawthorne o.fl. ávallt
fylgja manni, og já, vera áttavitar
hver á sinn hátt þegar maður fer
að vissu leyti í gegnum sína eig-
in Hungurleika en þó sem
betur fer í mun mildari út-
gáfu.
»En burtséð frá því ölluvar Hungurleika-
þríleikurinn frábær skemmt-
un og virkilega heillandi.
HeimurSævars
Sævar Már Gústavsson
saevar@mbl.is