Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
KROM 53x80 cm
• Aluminum / Ál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Sannkölluð sumarstemning mun
ríkja í Perlunni í Reykjavík um
helgina en 5.-6. maí verður þar sér-
stök sumarsýning.
Margvíslegar vörur og þjónusta,
sem létta mönnum lífið á sumrin,
verða kynntar á sýningunni. Boðið
verður upp á mörg tilboð og tæki-
færi gefst til þess að fræðast um
ýmsa þætti.
Aðgangur er ókeypis en sýningin
verður opin frá 12-18 báða dagana.
Ókeypis sumar-
sýning í Perlunni
Umfangsmikil flugslysaæfing verð-
ur haldin á Keflavíkurflugvelli á
laugardag. Lögreglustjórinn á Suð-
urnesjum, almannavarnadeild rík-
islögreglustjóra og Isavia ohf. efna
til æfingarinnar.
Flugslysaáætlun Keflavíkur-
flugvallar segir fyrir um skipulag
og stjórnun aðgerða í kjölfar flug-
slyss á eða við Keflavíkurflugvöll.
Æfingin er almannavarnaæfing þar
sem allir viðbragðsþættir vegna
flugslyss eru prófaðir, þ.m.t. rann-
sókn og úrvinnsla. Líkt er eftir
flugslysi við lendingu á Keflavíkur-
flugvelli og æfð samvinna við-
bragðsaðila með áherslu á samhæf-
ingu og virkni áætlunarinnar.
Æfingin er umfangsmesta við-
bragðsæfing vegna flugsamgangna
sem haldin er í landinu með reglu-
bundnum hætti. Slík æfing var síð-
ast haldin árið 2009.
Þátttakendur í æfingunni eru all-
ir viðbragðsaðilar á Suðurnesjum
auk viðbragðsaðila á höfuðborgar-
svæðinu, alls um 350 manns.
Morgunblaðið/Kristján
Æfing Umfangsmikil flugslysaæfing verður á Keflavíkurflugvelli á laugardag.
Umfangsmikil flugslysaæf-
ing á Keflavíkurflugvelli
Halldór Guðmundsson hefur verið
ráðinn forstjóri tónlistar- og ráð-
stefnuhússins Hörpu.
Halldór er fæddur í Reykjavík
1956. Hann lauk BA-prófi í al-
mennri bókmenntafræði með ís-
lensku sem aukagrein 1979 og mag.
art.-prófi í almennri bókmennta-
fræði frá Kaupmannahafnar-
háskóla 1984.
Halldór var frá vori 2008 til
skamms tíma framkvæmdastjóri
verkefnisins Sögueyjunnar Íslands
á bókasýningunni í Frankfurt.
Hann var útgáfustjóri Máls og
menningar frá 1984, fram-
kvæmdastjóri og forstjóri og síðar
útgefandi hjá Eddu – útgáfu hf.
2000-2003. Hann hefur verið
stundakennari við Háskóla Íslands
og Háskólann á Bifröst, haldið fyr-
irlestra víða og gert útvarps- og
sjónvarpsþætti um bókmenntir og
bókmenntasögu.
Halldór hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin árið 2004 fyrir
bók sína Halldór Laxness – ævi-
saga.
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Guðmundsson.
Halldór ráðinn
forstjóri Hörpu
Á Evrópufrímerkjum, sem Íslandspóstur gaf út í
gær, er landslag byggt inn í svonefndan QR-kóða.
QR-kóðar eru svokallaðir tvívíddarkóðar og frá-
brugðnir öðrum hefðbundnum strikamerkjum sem
eru í einni vídd. Þetta þýðir að hægt er að koma
mun meiri upplýsingum fyrir í QR-kóðum en hefð-
bundnum strikamerkjum. Hægt er að vista margs-
konar upplýsingar í QR-kóðum, allt frá vefslóðum
til textaskráa. QR-kóðar hafa breiðst mjög hratt út
með tilkomu svokallaðra snjallsíma og viðeigandi
hugbúnaðar.
Á íslensku Evrópufrímerkjunum þetta árið er lands-
lag byggt inn í QR-kóða. Þegar kóðinn er skannaður í snjallsíma opnast
vefsíðan BeIceland.is þar sem hægt er að finna nytsamlegar upplýsingar
um þjónustu fyrir ferðamenn á Íslandi, s.s gistingu, veitingastaði, afþrey-
ingu og margt fleira sem getur nýst þeim sem heimsækja landið.
QR-kóðar á Evrópufrímerkjum
Evrópufrímerki
með QR-kóða.
Nú eru um 820 skip og bátar í fer-
ilvöktun hjá Landhelgisgæslunni.
Vilja varðstjórar í stjórnstöð minna
sjómenn á að hlusta á rás 16, sem er
neyðar- og uppkallsrás, og sem
þeim beri skylda til að hafa opna
þegar þeir eru á sjó.
Að sögn Landhelgisgæslunnar
hafa mörg tilfelli komið upp eftir
að strandveiðitímabilið hófst á mið-
vikudag, þar sem erfitt hafi verið
að ná í þá sem eru á strandveiðum
en rásin sé mjög mikilvæg í örygg-
ismálum sjómanna.
Hafi allnokkur atvik komið upp
þar sem nærstaddir bátar hafi verið
kallaðir til aðstoðar.
Sjómenn hlusti á
neyðarrás 16
STUTT
Tíðarfar í apríl var hagstætt um meg-
inhluta landsins, samkvæmt yfirliti,
sem birt er á vef Veðurstofunnar. Þó
var frekar svalt við austurströndina.
Mjög þurrt var víða um landið
sunnanvert. Apríl var kaldari en
mars á svæðinu frá norðanverðum
Vestfjörðum austur um Norðurland
og suður til Hornafjarðar.
Hiti var undir meðallagi austast á
landinu en annars yfir því. Hlýjast
var vestanlands og á hálendinu vest-
anverðu. Þar var hiti 1,3 til 1,8 stigum
yfir meðallagi. Meðalhiti í Reykjavík
mældist 4,3 stig og er það 1,4 stigum
ofan meðallags. Á Akureyri var með-
alhitinn 2,2 stig sem er 0,5 stigum of-
an meðallags. Á Höfn í Hornafirði var
meðalhitinn 3,1 stig og -1,6 á Hvera-
völlum.
Um austurhluta landsins og víðast
norðanlands var apríl talsvert kald-
ari heldur en mars. Mestu munaði á
Dalatanga, 2,7 stigum. Veðurstofan
segir sjaldgæft, að munur á mán-
uðunum sé svo mikill á þennan veg.
Hlýtt það sem af er árinu
Hlýtt hefur verið það sem af er
árinu. Meðalhitinn í Reykjavík er 2,6
stig og er það 1,8 stigum yfir meðal-
lagi, að sögn Veðurstofunnar.
Fyrstu fjórir mánuðir ársins hafa
aðeins sex sinnum verið hlýrri í
Reykjavík frá upphafi samfelldra
mælinga 1870. Það var 1926, 1972 og
1974, 2003, 1929 og 1964.
Á Akureyri hefur verið enn hlýrra
að tiltölu heldur en í Reykjavík,
meðalhitinn fyrstu fjóra mánuði árs-
ins er 2 stig og er það 2,8 stigum yfir
meðallagi. Frá því að samfelldar
mælingar hófust á Akureyri 1881
hafa fyrstu fjórir mánuðir ársins að-
eins fjórum sinnum orðið hlýrri en
nú. Það var 1929, 1974, 2003 og 1964.
Tíðarfar var víðast
hvar hagstætt í apríl
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Njóta veðursins Menn og málleysingjar nutu góða veðursins á Akureyri í apríl.
Hiti í Reykjavík 1,4 gráðum yfir meðallagi Apríl víða
kaldari en mars Hæsti hiti 18,2 stig, lægsti hiti -25,7°
Hæsti og lægsti hiti
Hæsti meðalhiti mánaðarins
mældist 5,1 stig á Garðskaga-
vita og í Surtsey. Lægstur var
meðalhitinn á Gagnheiði, -5,3
stig. Meðalhiti í byggð var
lægstur í Möðrudal, -1,5 stig.
Hæsti hiti mánaðarins mældist
á Hallormsstað hinn 30., 18,2
stig, en lægstur á Brúarjökli 2.
apríl, -25.7 stig.