Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Lufthansa,
stærsta flugfélag
Þýskalands og Evr-
ópu allrar, tilkynnti
í dag að fækkað
yrði um 3.500
stjórnunarstöður,
sem liður í djúp-
tækum niðurskurði
félagsins í kjölfar
hækkandi elds-
neytisverðs og
aukinnar samkeppni.
Þetta eru umfangsmestu aðgerðir í
sögu flugfélagsins. Stjórnunarstöðum
verður fækkað í starfsstöðvum Luft-
hansa um allan heim en ferlið mun taka
nokkur ár. Markmiðið er að draga úr
kostnaði á efri stigum um fjórðung.
Lufthansa fækkar störf-
um um 3500 manns
Lufthansa Stærsta
flugfélag Evrópu.
● Tekjur Isavia ohf. jukust um 16,8% á
síðasta ári og hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði var um 3,6 milljarðar
króna eða um 22% af tekjum. Hagn-
aður eftir skatta nam um 600 millj. kr.
Félagið undirbýr að takast á við aukin
umsvif vegna farþegaaukningar á Kefla-
víkurflugvelli og framundan eru einnig
miklar fjárfestingar í innviðum flug-
vallakerfisins svo tryggja megi þjónustu
við sívaxandi ferðamannastraum.
600 milljóna hagnaður
hjá Isavia
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Opnað er að nýju fyrir þann mögu-
leika að breyta sparisjóði í hluta-
félag, í stað þess að félagsform
sjóðanna sé takmarkað við að vera
aðeins sjálfseignarstofnun, auk
þess sem felldar eru á brott tak-
markanir á arðgreiðslum. Um-
fangsmiklar breytingar á starfsemi
sparisjóðanna eru boðaðar í nýju
stjórnarfrumvarpi sem lagt hefur
verið fyrir Alþingi. Er það skoðun
starfshóps á vegum sparisjóðanna
með aðkomu Bankasýslu ríkisins,
sem hefur á síðustu misserum unn-
ið að mati á hverjar séu rekstr-
arhorfur sparisjóðanna til fram-
búðar, að slíkar breytingar séu til
þess fallnar að greiða götu þeirra
sparisjóða sem þurfa á auknu eigin
fé að halda til að styrkja rekstr-
argrundvöll þeirra.
Í frumvarpinu er einnig lagt til
að starfsheimildir sparisjóða verði
þrengdar frá því sem nú er. Heim-
ildir sjóðanna verða takmarkaðar
við hefðbundna viðskiptabanka-
starfsemi tengda inn- og útlána-
starfsemi og sjóðirnir stundi þann-
ig hvorki fjárfestingarbanka-
starfsemi né verðbréfaviðskipti.
Jafnframt er kynnt til sögunnar sú
breyting að til þess að fjármálafyr-
irtæki geti talist vera sparisjóður
þurfi það að ráðstafa að lágmarki
5% af hagnaði sínum fyrir skatta
til samfélagslegra verkefna á
starfssvæði sínu.
Skerpt á sérstöðunni
Ari Teitsson, stjórnarformaður
Sambands íslenskra sparisjóða,
segist í samtali við Morgunblaðið
vera ánægður frumvarpið. „Það er
verið að skerpa á sérstöðu spari-
sjóðanna og undirstrika að þeir
séu öðruvísi fjármálafyrirtæki sem
hafi samfélagslega hugsun að leið-
arljósi.“
Aðspurður hvort hann telji nauð-
synlegt að opna að nýju á þann
möguleika að rekstur sparisjóðs
geti verið í höndum hlutafélags, en
slík heimild var felld úr gildi með
lögum árið 2009, segir Ari að það
hafi sýnt sig að til þess að „auð-
velda aðkomu“ nýrra fjárfesta sé
mikilvægt að sjóðirnir hafi þann
valkost að geta hlutafélagavæðst.
Í frumvarpinu er sparisjóðum
ennfremur gert auðveldara um vik
að sameinast öðrum fjármálafyr-
irtækjum – hvort sem um er að
ræða viðskiptabanka eða aðra
sparisjóði. „Núverandi lög hafa
verið nokkuð óljós hvað þetta at-
riði varðar,“ segir Ari. „Nú er hins
vegar skýr rammi um hvernig
staðið skuli að slíkum samrunum
og jafnframt undirstrikað að stofn-
fjáreigendur eigi ekki tilkall til
annars en eigin fjár.“
Stefnubreyting stjórnvalda
Í frumvarpinu er kveðið á um að
ef sparisjóður sameinast fjármála-
fyrirtæki sem er hlutafélag, hvort
sem það er sparisjóður eða ekki,
þá getur hlutur stofnfjáreigenda
við yfirtökuna ekki orðið meiri en
sem nemur hlut þeirra í eigin fé
sparisjóðsins. Óráðstafað eigið fé
þess sparisjóðs rennur til sérstakr-
ar sjálfseignarstofnunar sem skal
nýta þá fjármuni til samfélags-
legra verkefna.
Guðlaugur Þór Þórðarson, sem á
sæti í efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
segir í samtali við Morgunblaðið að
með þessu stjórnarfrumvarpi sé
verið að hlutafélagavæða spari-
sjóðina og þar með gefa upp á bát-
Opnað að nýju fyr-
ir hlutafélagavæð-
ingu sparisjóða
Samkvæmt stjórnarfrumvarpi verður heimilað að breyta
sparisjóðum í hlutafélag Auðveldar aðkomu nýrra fjárfesta
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./,
,0+./1
+,/./1
,+.111
,+./2/
+3.--2
+4/.,5
+.5-11
+1,.55
+/4./5
+,-.1,
,0,.+3
+,2.0/
,,.0/4
,+.2-
+3.50+
+4/./4
+.55--
+14.+,
+/-.++
,+4.01+5
+,5.,,
,0,./2
+,2.-4
,,.+,2
,+.30-
+3.555
+42.0+
+.5531
+14./1
+/-.52
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Gríðarlegar breytingar hafa orðið
á starfsumhverfi sparisjóðanna á
síðustu árum og allir stærstu
sparisjóðirnir þurft að hætta
starfsemi: Byr, SPRON, Sparisjóð-
urinn í Keflavík og Sparisjóður
Mýrasýslu. Aðeins tíu sparisjóðir
eru starfræktir um þessar mundir,
en þar af eru fimm sparisjóðir að
stórum hluta í eigu ríkisins.
Á það er bent í umsögn fjár-
málaráðuneytisins um stjórn-
arfrumvarpið að heildareignir
sparisjóða námu ríflega 60 millj-
örðum á síðasta ári, sem er að-
eins um 2% af heildareignum fjár-
málafyrirtækja við síðustu
áramót. Eignir þeirra fimm sjóða
sem ríkið á hlut í nema 30,6 millj-
örðum.
Það er mat ráðuneytisins að
með aðkomu nýrra fjárfesta að
sparisjóðum í eigu ríkissjóðs kann
það að verða til þess að styrkja
eiginfjárgrundvöll þeirra og sömu-
leiðis rekstrarhæfi. „Þannig kunna
áhrifin að verða þau til lengri tíma
litið að virði eignarhluta vaxi og
ríkissjóði gefist þannig færi á að
selja hlutdeild sína síðar.“
Gæti aukið virði eignarhluta
ríkisins í sparisjóðum
SPARISJÓÐUM HEFUR FÆKKAÐ MIKIÐ
Sparisjóðir að hluta til í eigu ríkisins
Sparisjóður Bolungarvíkur
Sparisjóður Vestmannaeyja
Sparisjóður Svarfdæla
Sparisjóður Norðfjarðar
Sparisjóður Þórshafnar
Eignarhlutur (%)
90,95%
55,70%
90,00%
49,50%
75,84%
Heildareignir (milljarðar k
5.167
13.856
3.733
5.223
2.706
30.685
Álnabær veitir alhliðaþjónustu er lýtur að gardínum.
Máltaka, uppsetning og ráðleggingar.
N Ý T T Á Í S L A N D I
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Þú stjórnar birtunni heima hjá þér
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
● Peningastefnunefnd Seðlabanka Evr-
ópu hélt stýrivöxtum bankans óbreytt-
um á vaxtaákvörðunarfundi sínum í
gær. Eru vextirnir 1%.
Hafa vextirnir verið óbreyttir síðan í
desember en fundur peningastefnu-
nefndarinnar var haldinn í Barcelona að
þessu sinni en ekki í höfuðstöðvum
bankans í Frankfurt líkt og venjulega.
Óbreyttir evruvextir
Meira en þriðj-
ungur hluthafa
svissneska bank-
ans UBS hafnaði
launaáformum
bankans, þar á
meðal er um laun
verðandi for-
stjóra að ræða.
Stutt er síðan
hluthafar gripu í
taumana hjá Barclay-bankanum og
Credit Suisse og lækkuðu laun
stjórnenda vegna lélegrar afkomu.
Reiði fólks vegna áhættusækni
stjórnenda og hárra launa banka-
manna þrátt fyrir taprekstur virðist
vera að ná til hluthafa sumra banka.
Talið er að 4% hækkun bréfa bank-
ans á miðvikudag hafi komið í veg
fyrir meira afgerandi afstöðu hlut-
hafa.
Hluthafar
segja stopp
Bankamenn Upp-
reisn í UBS?
Höfnuðu launa-
kröfu bankamanna