Morgunblaðið - 04.05.2012, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Ríkisstjórn Úkraínu mótmælti í gær
hótun ráðamanna í nokkrum Evr-
ópuríkjum um að hætta við að
ferðast til landsins í tilefni af Evr-
ópukeppni landsliða í fótbolta sem
haldin verður þar í næsta mánuði.
Ráðamenn Evrópuríkjanna vilja
þannig mótmæla meintri illri með-
ferð á Júlíu Tymoshenko, fyrrver-
andi forsætisráðherra Úkraínu, sem
afplánar nú fangelsisdóm og segist
hafa orðið fyrir barsmíðum fanga-
varða.
Utanríkisráðuneyti Úkraínu sendi
út yfirlýsingu í gær þar sem það
sagði að ef staðið yrði við hótunina
myndi það grafa undan íþróttavið-
burði sem ætti að vera hafinn yfir
pólitískar deilur og hefði gegnt
mikilvægu hlutverki í því að stuðla
að friði og efla vináttutengsl Evrópu-
ríkja.
Hóta að sniðganga EM
Stjórn Úkraínu mótmælir hótun leiðtoga Evrópulanda
Mótmæli Stuðningsmaður Tymos-
henko í tjaldi mótmælenda í Kíev.
Eintak af Ópinu, einu frægasta málverki veraldar eftir
Edvard Munch, var selt á 120 milljónir dollara, sem
svarar 15 milljörðum króna, á uppboði hjá Sotheby’s í
New York í fyrradag.
Ópið telst því nú dýrasta málverk í heimi. Eitt af mál-
verkum Picassos, Nakin, græn lauf og brjóst, var selt á
106 milljónir dollara árið 2010.
Ópið var selt á talsvert hærra verði en reiknað hafði
verið með, en fyrirfram hafði verið búist við að 80 millj-
ónir dollara fengjust fyrir málverkið. Nokkur tilboð
bárust í verkið og það fyrsta var upp á 50 milljónir doll-
ara. Ekki var skýrt frá nafni kaupandans.
Norski kaupsýslumaðurinn Petter Olsen átti eintak-
ið. Faðir hans var vinur og velgjörðarmaður Munchs.
Til eru fjögur eintök af málverkinu og eintak Olsens er
það eina sem er í einkaeigu. Öðrum eintökum af mál-
verkinu hefur í tvígang verið stolið af söfnum en í bæði
skiptin fundust þau aftur.
Reuters
Ópið selt fyrir metverð á uppboði
Öryggisvörður og skipstjóri ferj-
unnar sem sigldi til Úteyjar báru
vitni við réttarhöldin yfir fjölda-
morðingjanum Anders Behring
Breivik í Ósló í gær. Þeir lýstu því
hvernig Breivik blekkti þá til að
leyfa honum að sigla út í eyna hinn
22. júlí í fyrra en þar myrti hann 69
manns.
„Maður klæddur í lögreglubúning
hefur ákveðið vald,“ sagði öryggis-
vörðurinn Simen Bræden Morten-
sen. Það var í hans verkahring hinn
22. júlí að tryggja að ekkert væri
grunsamlegt við þá sem ætluðu að
sigla til Úteyjar, en þar voru sum-
arbúðir ungmennahreyfingar
Verkamannaflokksins. Mortensen
lýsti því hvernig Breivik hefði út-
skýrt fyrir honum að för hans út í
eyna tengdist sprengingunni í
stjórnarráðsbyggingu í Ósló
skömmu áður. Mortensen viður-
kenndi að honum hefði þótt undar-
legt að sjá einkennisklæddan lög-
reglumann stíga úr grárri Fiat--
sendibifreið í stað hefðbundins
lögreglubíls en grunsemdirnar
hurfu fljótt eftir að Breivik sýndi
honum falsað skírteini með merki
norsku öryggislögreglunnar (PST).
„Ég hélt að þetta væri alvöru lög-
regluskírteini.“
Bar skotfærakassa
Eftir að Mortensen hafði hleypt
Breivik í gegn fékk fjöldamorðing-
inn að stíga um borð í ferjuna MS
Thorbjørn. Hún hafði legið við
bryggju í Útey eftir sprengjuárásina
í Ósló en var send sérstaklega eftir
„lögregluþjóninum“ sem sagðist
þurfa að komast út í eyna.
Jon Olsen, skipstjóri ferjunnar,
lýsti því hvernig hann hjálpaði Brei-
vik að bera kassa sem í voru skot-
færi, en Breivik sagði að í kassanum
væri sprengjuleitarútbúnaður. Eftir
að Olsen hjálpaði Breivik að bera
kassann með skotfærunum úr ferj-
unni varð hann vitni að því þegar
Breivik skaut til bana fyrsta fórnar-
lambið, öryggisvörðinn og lög-
regluþjóninn Trond Berntsen.
Olsen lýsti því einnig þegar hann
flúði í ferjunni eftir að Breivik hóf
skothríðina. Þá var Breivik búinn að
myrða sambýliskonu hans, Monicu
Bøsei sem stjórnaði starfseminni á
Útey og var kölluð „mamma Útey“,
og hann vissi ekki um afdrif dóttur
sinnar, sem var stödd á eynni.
Varð vitni að
fyrsta morðinu
Komu Breiviks til Úteyjar lýst
www.s i ggaog t imo . i s
Akvamarín steinn
með demöntum
18K
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993
Minniskort
Minnislyklar
Kortalesarar
Aukahlutir
fyrir farsíma,
snjallsíma,
iPhone
og iPad
Töskur og
símahulstur
í miklu úrvali
Rafhlöður
fyrir alla
farsíma
Minnislykill
4GB
1.990 kr.
Gott úrval
af einföldum
og ódýrum
GSM símum
Skype
heyrnartól
1.290 kr.
12V
bílafjöltengi
með USB
útgangi
2.990 kr.
Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900
Öll GSM
bílhleðslutæki
á 990 kr.