Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Yndislegur drengur er fallinn
frá, langt um aldur fram. Ótal
minningar streyma fram, allar
hlýjar, notalegar og góðar, ná-
kvæmlega eins og Einar Þór var.
Allir okkar fundir hófust á faðm-
lagi og kossi á kinn. Þannig per-
sóna var Einar. Það var algerlega
útilokað að finna eitthvað nei-
kvætt í fari Einars. Hann var allt-
af jákvæður, ráðagóður, traustur
og hrókur alls fagnaðar þar sem
hann kom. Allt varð að gulli í
höndunum á Einari. Hann byggði
upp heilu fyrirtækin af ósérhlífni
og dugnaði og allt starfsfólkið
elskaði hann. Seldi þau síðan allt-
af með góðum hagnaði og lék
sama leikinn aftur og aftur. Snill-
ingur í viðskiptum. Margar veiði-
ferðir höfum við farið í saman í
gegnum tíðina og þá vorum við
Einar alltaf saman á stöng og
deildum herbergi, en sváfum ekki
saman, heldur myndi betri lýsing
vera hlógum saman, því það var
alltaf gleði í kringum Einar Þór.
Aðrar minningar eru úr utan-
landsferðum okkar sem voru ófá-
ar og eins vorum við duglegir að
hittast í hádegis- eða kvöldverði á
veitingastöðum. Einar var síðan
algjör höfðingi heim að sækja en
hann hefur ásamt Andreu konu
sinni haldið ófá boðin fyrir vina-
hópinn. Alltaf stuð og stemning
heima hjá þeim hvar sem þau
bjuggu. Nýverið höfðum við sest
saman í stjórn fyrirtækja og urðu
því samskipti okkar enn meiri en
áður höfðu verið. Hlakkaði ég
mikið til að starfa með Einari á
þessum nýja vettvangi en því mið-
ur verður ekki meira úr því. Einar
var mikill fjölskyldumaður og bar
hag eiginkonu og barna sinna
ávallt fremst í brjósti. Mjög stórt
skarð hefur myndast í vinahópinn
við fráfall Einars. Skarð sem aldr-
ei verður fyllt. Þessi drengur var
engum líkur og það mun aldrei
neinn koma í hans stað. Það hefur
verið algjör heiður fyrir okkur
hjónin að hafa verið samferðafólk
Einars öll þessi ár. Og fyrir þau
þökkum við kærlega. Andreu og
Sunnu og Stefáni sendum við okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur og
einnig systkinum Einars sem eiga
nú öll um sárt að binda. Blessuð
sé minning einstaks drengs, hans
verður ævinlega sárt saknað.
Elvar og Guðrún Lilja.
Bugast mátt ei Björgin blíð
björt öll ljós þín loga
þú veist þín bíður betri tíð
við enda regnsins boga.
(Björgin 1964)
Elsku hjartans Einar. Þín
verður sárt saknað og ekki er
hægt að trúa því að þú sért fallinn
frá. Hvíldu í friði og ró og megi
englarnir vaka þér hjá. Sendi
mínar dýpstu samúðarkveðjur til
Andreu, Sunnu og Stefáns.
Ástarkveðja,
Andrea Þorbjörg
Sigurðardóttir,
Kaupmannahöfn.
Mig langar að minnast vinar
míns Einars Þórs Þórhallssonar
sem kvaddi samferðamenn sína
allt of snemma, óvænt og fyrir-
varalaust, þegar hann veiktist al-
varlega erlendis og náði ekki að
landa sigri í þeirri baráttu.
Einari kynntist ég á mennta-
skólaárunum fyrir um 35 árum.
Þau kynni reyndust mér farsæl
og gefandi. Einar var í senn
skemmtilegur í viðmóti, mikill
húmoristi, maður gleðistundanna,
hjálplegur, seigur íþróttamaður,
ólseigur í viðskiptum og einstakur
eiginmaður og faðir. Ég held að
það sé ekki ofsögum sagt að líf
Einars með samferðafólki sínu
hafi verið sannkölluð veisla sem
lauk allt of fljótt.
Aldrei bar skugga á vináttu
okkar Einars. Ég hef enda aldrei
hitt nokkurn mann sem gengið
hefur ósáttur frá kynnum sínum
af þessum einstaka dreng sem
Einar var.
Við hjónin færum innilegar
samúðarkveðjur til Andreu, eig-
inkonu Einars, sem sér nú á eftir
eiginmanni og félaga til fjölda ára,
og til barna þeirra sem hafa misst
svo mikið.
Einars Þórs verður sárt sakn-
að af fjölda fólks sem var svo
heppið að fá að kynnast hinum
einstæða persónuleika sem Einar
Þór hafði að geyma.
Blessuð sé minning hans.
Jónas Ólafsson.
Sagt er að sannur vinur sé sá
sem veit allt um þig en elskar þig
samt. Eitt mesta lán mitt í lífinu
var að eignast Einar Þór Þór-
hallsson að trúnaðarvini fyrir 35
árum. Síðan hefur líf okkar verið
samofið, gleði- og sorgarstundir
jafnt og hversdagsleiki hins
venjulega dags.
Einar var heiðursmaður; barst
ekki á, hafði enga þörf fyrir slíkt.
Greiðvikinn; eitt símtal, óskin
uppfyllt, aldrei rætt um það
meira, einskis krafist, aldrei.
Íhaldssamur, vinafastur, þraut-
seigur, heiðarlegur og hógvær.
Minningarnar streyma; próf-
alestur í MS, saltfiskur hjá Bubbu
og Þórhallur á píanóinu, Þingvell-
ir og Ollinn, fótbolti og veiði. Golf
og Gautaborg, útilegur og útlönd
og hádegin á Jómfrúnni.
Þegar Andrea birtist fyrst varð
ekki aftur snúið, Einar kolféll.
Hans mikla gæfa í lífinu, Stebbi
og Sunna og einstakt heimilið.
Ég man Einar sigurvegara á
tuttugasta og áttunda golfmótinu
okkar, glæsilegur í græna jakkan-
um skínandi af gleði. Opnaði
faðminn fyrir öllum heiminum, ör-
láti stemningsmaðurinn.
Það var gott að veiða með Ein-
ari. Liggja á árbakkanum og
leysa lífsgátuna, líka gott að þegja
og hlusta á móann þagna.
Nýverið uppgötvuðum við fá-
gæta náttúruperlu á afviknum
stað fyrir vestan. Ætluðum að
veiða þar áfram næstu árin. Sum-
arið var á næsta leiti. Um það
fjallaði okkar síðasta samtal.
Guð blessi þig, kæri vinur.
Hallgrímur Tómas
Ragnarsson.
Elsku Einar, við kveðjum þig
með söknuði um leið og við minn-
umst góðra stunda með þér. Þær
hefðu átt að verða miklu fleiri.
Minning þín mun lifa með okkur.
Sjá, dagarnir líða, í leiðslu vér hlustum
á laufið, sem hrynur um aldanna skóg
og leggst yfir stofnana sterku,
sem stormur og dauði til jarðar sló.
En þó að þeim visni hvert bjarkarblað
þá blómgast oss önnur í þeirra stað.
Því áfram skal haldið og aldrei þagnar
hin eilífa hrynjandi lífsins,
sem ymur um aldanna skóg.
(Tómas Guðmundsson)
Elskan er sterk eins og dauðinn.
(Ljóðaljóð Salómons)
Hinsta kveðja,
Jónína og Guðmundur.
Það er ekki einleikið hve lífið
getur sífellt komið manni á óvart.
Eins og á augnabliki breytist allt
og það sem áður var verður ei
meir. Upp koma atvik sem minna
á að enginn er eilífur. Við fráfall
atorkusams samferðamanns set-
ur mann hljóðan og áleitnar
spurningar um tilverunnar innstu
rök leita á hugann og erfiðlega
getur reynst að koma reglu á
hugsanirnar. Þegar frá líður
rennur upp fyrir manni að lífið er
aðeins að láni og mestu skiptir að
lifa vel. Gleðjast á góðum stund-
um og njóta hvers augnabliks.
Þetta kunni Einar Þórhallsson
vel. Gleðin alltaf skammt undan
þó viðfangsefni hversdagsins
væru sjálfsagt misánægjuleg eins
og hjá öllum. Kynni mín af Einari
hófust fyrir milligöngu konu Ein-
ars, Andreu, fyrir tveimur ára-
tugum eða svo. Við Andrea vorum
samstarfsmenn um árabil og við
ýmis tækifæri hittumst við Einar.
Hann tók mér opnum örmum og
margoft naut ég afburðagestrisni
á heimili þeirra í Garðabæ. Og í
hvert sinn með tilhlökkun í
brjósti. Betri gestgjafar eru vand-
fundnir en þau hjón Andrea og
Einar. Ávallt umhugað um gesti
sína og samferðafólk. Maður fór
alltaf betri maður af þeirra fundi,
Einar ávallt bjartsýnn og með
ráðagerðir á prjónunum. Margar
þeirra sá ég svo verða að veru-
leika. Hann var farsæll í viðskipt-
um. Hann var einnig lánsamur í
sínu einkalífi. Gríðarstór vinahóp-
ur sýnir líka hversu vel hann var
gerður og hversu traustur hann
var. Einar var heldur aldrei einn á
ferð því þau Andrea stóðu þétt
saman og börn þeirra tvö, Stefán
og Sunna, aldrei langt að baki.
Ég kveð Einar Þórhallsson
með söknuði. Allt of fljótt er hann
farinn. Hann er öllum harmdauði.
Jón Þórisson.
Sannarlegt mikilmenni reisir á
traustum grundvelli og fer ekki eftir
yfirborðsgljáa. Hann hirðir ávöxtinn,
en ekki blómið. Hann fleygir hisminu,
en hirðir kjarnann.
(Lao Tse)
Þessi spakmæli lýsa vel vini
okkar Einari sem nú er fallinn frá
langt um aldur fram. Einar var
farsæll hvort heldur í viðskiptum
sem og einkalífi. Andrea og Einar
voru eitt, traust og samheldin.
Meistarar í að halda skemmtileg-
ar veislur sem voru ófáar og við
svo heppin að fá að njóta.
Við kveðjum í dag ljúfan og
kæran vin sem sárt verður saknað
af öllum þeim sem hann þekktu.
Mestur er þó missirinn hjá And-
reu, Sunnu, Stefáni og systkinum
sem við biðjum blessunar á þess-
um erfiðu tímum.
Hanna Lára og Jónas.
Fallvaltleiki lífsins birtist í allri
sinni mynd fimmtudaginn 26. apr-
íl þegar ég frétti af andláti Einars.
Fréttin var lamandi, hvernig gat
þetta verið?
Hver hefði trúað því þegar við
hittumst fyrir örfáum vikum og
borðuðum saman að eitt okkar
yrði fallið frá innan mánaðar? Allt
vinir á svipuðum aldri sem höfum
fylgst að í yfir þrjá áratugi. Einar
Þór, hrókur alls fagnaðar, var að
segja okkur frá því að hann væri
orðinn ræðismaður Tyrkja á Ís-
landi. Hann lýsti Tyrklandi fyrir
okkur af miklum sannfæringar-
krafti og eldmóði, talaði hratt eins
og hans var von og vísa og hlakk-
aði til að takast á við ný verkefni á
þeim slóðum.
Einar var hreinskiptinn maður,
afar snjall í viðskiptum og sá við-
skiptatækifæri alls staðar. Hann
var alla tíð mikill dugnaðarforkur
og vildi sjá vel fyrir sér og sinni
fjölskyldu og leti og lognmolla
voru ekki til í hans orðabók. Einar
og Andrea lögðu sig fram um að
hafa heimilið sitt fallegt og nota-
legt og voru samtaka í því að hlúa
að gleðigjöfunum sínum þeim
Sunnu og Stefáni, sem auðgað
hafa líf þeirra og tilgang.
Ótal samverustundir höfum við
hjónin átt í gegnum árin með Ein-
ari og Andreu og sérlega minn-
isstæð er stundin með þeim á
Þingvöllum síðasta sumar í sum-
arhúsi foreldra Einars. Umhverf-
ið var ævintýri líkast, himinhá tré
sem pabbi hans og systkini höfðu
gróðursett fyrir yfir 50 árum af
ýmsum tegundum og gerðum.
Maður skynjaði strax að staður-
inn skipaði sérstakan sess í huga
Einars enda æskusporin á hverri
þúfu og margar dýrmætar minn-
ingar hans tengdust staðnum og
naut hann þess að segja okkur frá
því sem fyrir augu bar.
Endurminningin merlar æ
í mánasilfri hvað sem var,
yfir hið liðna bregður blæ
blikandi fjarlægðar,
gleðina jafnar, sefar sorg;
svipþyrping
sækir þing
í sinnis hljóðri borg.
(Grímur Thomsen)
Einar Þór var drengur góður,
vinur vina sinna og maður með
stórt hjarta. Í ástríkum og hlýjum
faðmi æskuástar sinnar og lífs-
förunautar til 36 ára kvaddi Einar
þennan heim á sjúkrahúsi í Ist-
anbúl eftir örstutt og óvægin veik-
indi.
Fráfall Einars hefur nú höggv-
ið skarð í vinahópinn og jafnframt
minnt okkur á að lífið er dýrmæt
gjöf sem ekki varir að eilífu. Ég
bið allar góðar vættir að umfaðma
og styrkja Andreu vinkonu mína,
börnin þeirra Sunnu og Stefán,
systkini Einars, Þorbjörgu
tengdamóður hans og aðra að-
standendur í sorginni. Minningin
um góðan dreng lifir.
Guðrún Ó. Blöndal.
Elskulegur vinur okkar, Einar
Þór Þórhallsson, er fallinn frá
langt fyrir aldur fram. Einar var
einstakur maður, mikill gleðigjafi
og mátti ekkert aumt sjá. Hann
hafði næmt auga fyrir viðskiptum
og var virtur maður og snjall á því
sviði. Einar var hvers manns hug-
ljúfi, var maður sátta og kunni illa
við ósætti og ágreining. Hann var
íþróttamaður frá náttúrunnar
hendi og átti ótrúlega auðvelt með
að tileinka sér og ná árangri í hin-
um ýmsu íþróttum, sem lágu bara
einhvern veginn svo vel fyrir hon-
um. Gestrisni var Einari í blóð
borin og standa jólaboðin, sem
þau hjón stóðu fyrir á hverju ári,
þar upp úr. Í gegnum tíðina höf-
um við hjónin farið í margar utan-
landsferðir með Einari og And-
reu. Fyrst í stað í sumarfrí með
börnunum okkar til ýmissa landa
og síðar í helgarferðir til ýmissa
borga Evrópu. Alltaf var líf og
fjör í þessum ferðum og hafði Ein-
ar gaman af að setja upp keppni í
billjard eða tennis, þar sem spilað
var upp á bjórglas eða tvö, enda
Einar mikill keppnismaður. Við
hjónin eigum yndislegar minning-
ar um óteljandi matarboð og góð-
ar samverustundir með Einari og
Andreu. Við þökkum Einari ynd-
islega vináttu, hans er sárt sakn-
að. Andreu, Sunnu og Stefáni
sendum við hugheilar samúðar-
kveðjur og biðjum góðan Guð að
veita þeim styrk á þessum erfiðu
tímum.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Björn Erlingsson,
Heiða og börn.
Einar Þór Þórhallsson Þú hvarfst inn í nóttina á miðjuvori
Þegar grasið og krókusarnir
gægðust upp úr moldinni
Eins og fuglar vorsins varstu
gleðigjafi
Sál þín var hrein sem spegill
vatnsins
Drengskapur þinn tær sem lindin
í skógarjaðrinum
Og nú hefur haustað að vori
Og hrollkalt hretið umlykur okkur
Meðan fuglarnir drúpa höfði við
hreiðurgerðina
Stjörnurnar á næturhvelfingunni
fella glitrandi tár sem falla
hljóðlaust í vatnið
sem þú unnir heitast
Og gjálfur vatnsins verður í
eyrum okkar
eilíft saknaðarljóð um þig.
Þorsteinn Ólafsson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HRAFNHILDAR GRÍMU THORODDSEN.
Þökkum starfsfólki Skjóls góða umönnun.
Tryggvi Viggósson, Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir,
Guðmundur Viggósson, Líney Þórðardóttir,
Regína Viggósdóttir,
Gunndóra Viggósdóttir, Ásgeir Arnoldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
SÆVAR ÞÓR KRISTÞÓRSSON,
Krókamýri 54,
Garðabæ,
lést á Landspítala Fossvogi laugardaginn
28. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðviku-
daginn 9. maí kl. 13.00.
Erna Þórðardóttir, Kristþór Sveinsson,
Sigríður Guðbjörnsdóttir,
Guðmann Kristþórsson.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RÖGNU JÓNSDÓTTUR,
Hlöðufelli,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Ljósheima
Selfossi.
Jóhann Jóhannsson,
Unnur Jóhannsdóttir, Guðmundur Stefánsson,
Ingibjörg Jóhannsdóttir, Jón Guðmundsson,
Sólrún Jóhannsdóttir, Jóhannes Þorgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi.
Haukur Högnason,
Hildur Högnadóttir,
Hildigunnur Davíðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ELÍN ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR
húsfreyja frá Ófeigsfirði,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 7. maí kl. 13.00.
Bára Guðmundsdóttir,
Ragnar I. Jakobsson,
Pétur Guðmundsson, Margrét Ó. Eggertsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Torfi Þorkell Guðmundsson, Helga V. Rósantsdóttir,
Ásgeir Guðmundsson, Inga A. Waage,
Böðvar Guðmundsson, Hrönn Valdimarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Goðdölum,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, sunnu-
daginn 29. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Ríkissal Votta Jehóva
Sjafnarstíg 1, Akureyri, mánudaginn 7. maí
kl. 14.00.
Ingimar Adólfsson, Lutzy Adolfsson,
Reynir Adólfsson, Halldóra Helgadóttir,
Friðrik Adólfsson, Kolbrún Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.