Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Þann 22. apríl kvaddi sorgin
dyra þegar pabbi minn, Jón í
Skógum, yfirgaf þetta jarðlíf og
flutti til æðri heima. Það er svo
tómlegt að sjá hann ekki sitja í
stólnum sínum þegar ég kem fyr-
ir hornið. Margs er að minnast og
seint gleymist sá eldmóður,
þrautseigja og bjartsýni sem ein-
kenndu hann eða ást hans á öllu
því fagra í lífinu.
Undir Dalanna sól, við minn einfalda óð
hef ég unað við kyrrláta för.
Undir Dalanna sól, hef ég lifað mín ljóð,
ég hef leitað og fundið mín svör.
Undir Dalanna sól, hef ég gæfuna gist,
stundum grátið en oftar í fögnuði kysst.
Undir Dalanna sól, á ég bú mitt og ból
og minn bikar, minn arinn, minn svefn-
stað og skjól.
Jón Þorgeirsson
✝ Jón Þorgeirs-son fæddist í
Skógum í Vopna-
firði 2. júní 1926.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Sundabúð 22. apríl
2012.
Útför Jóns fór
fram frá Vopna-
fjarðarkirkju 28.
apríl 2012.
Undir Dalanna sól, man
ég dalverjans lönd
eins og draumsýn um
átthagans rós.
Undir Dalanna sól, fann
ég heitfenga hönd
eins og heillandi,
vermandi ljós.
Undir Dalanna sól,
geymir döggin mín
spor
eins og duldir er blessa
hið náttlausa vor.
Undir Dalanna sól, hugsjá hjartans ég
vann
og ég hlustaði, skynjaði, leitaði og
fann.
(Hallgrímur Jónsson.)
Ég finn sorgina í hjarta mínu
en einnig gleði þegar ég hugsa
um þig lausan úr viðjum líkam-
ans, án allra þrauta þar sem þú
getur farið um hindrunarlaust.
Ég sé þig fyrir mér dansandi með
bros í stóru fallegu augunum þín-
um.
Elsku pabbi minn. Innilegar
þakkir fyrir allt sem þú hefur
gefið mér, fyrir að gera líf mitt
auðugt og gleðiríkt. Allar ljúfar
minningar geymi ég í hjarta
mínu.
Þín dóttir,
Kristín.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bókasafn til sölu
Bókasafn til sölu; ritsöfn, ævi-
minningar, skáldsögur, ljóðabækur
og ýmislegt fleira. Áhugasamir hafi
samband í síma 865 2312, Ólöf.
Garðar
Garðsláttur - trjáklippingar -
mosaeyðing - beðahreinsanir
og öll almenn garðverk.
Uppl. í síma 777 9543.
Garðaþjónusta Hlyns.
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Orlofshús við
Akureyri með heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir hópa og
fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið. Sími 486-1500,
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Húsnæði óskast
Óska eftir íbúð
Langtímaleiga. Stúdíó eða 2ja
herb. Verðbil 80 - 130 þús.
ÓSKAST STRAX.
Skilvísum greiðslum og góðri
umgengni heitið. Upp. í síma
845 7090 og oskgpet@gmail.com
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Nú er rétti tíminn fyrir
trjáklippingar og fellingar
Látið fagmenn okkar nostra við
garðinn þinn. Öll almenn
garðþjónusta á einum stað.
577 4444
www.gardalfar.is
Bílastæðamálun
malbiksviðgerðir og vélsópun,
551 4000 & 690 8000
www.verktak.is
Bílar
Mercury Turnpike cruiser 1957
Til sölu er þessi flotti og merkilegi bíll
frá Ford, Mercury Turnpike cruiser
1957. Allar upplýsingar um bílinn eru
veittar í síma 820 1974, Guðmundur.
Toyota Corolla 1600
sjálfskiptur, til sölu. Nýskráður
01/2002. Ekinn 182.900. Toppeintak,
nýskoðaður og með góð heilsársdekk.
Nýjar bremsur. Verð 900.000 kr.
Ævar, sími 669 1470.
Chevrolet Silver Rado 2500 LTZ
Crew Cab árg. 2007
Ek. 112 þús. km. Vél 6,6 cc duramax.
20” dekk. Trailer-krókur og profile-
krókur. Einn eig. upp að 100 þús. km.
Bíll með öllu. Verð 5,6 millj.
Uppl. í síma 893 0564.
Bílar óskast
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílavarahlutir
VW og Skoda varahlutir 534-1045
Eigum til notaða varahluti í VW,
Skoda, Audi og Pajero frá '02.
Eigum einnig til nýja gorma í VW
og Skoda á lager. Kaupum bíla til
niðurrifs og uppgerðar.
Bílabúið, Kaplahrauni 11,
s. 534 1045.
Hjólbarðar
Rýmingarsala á vörubíladekkjum
13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk.
425/65 R 22.5 kr. 49.900 + vsk.
1100 R 20 kr. 39.500 + vsk.
1200 R 20 kr. 39.500 + vsk.
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Kebek Blacklion sumardekk
175/65 R 14 kr. 10.700.
195/65 R 15 kr. 12.500.
205/55 R 16 kr. 14.900.
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
(á móti Kosti), Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4333.
Kebek - Nama heilsársdekk
165 R 13 kr. 6.900
175/65 R 14 kr. 11.900
185/65 R 15 kr. 12.990
215/65 R 15 kr. 17.750
205/55 R 16 kr. 16.650
225/55 R 16 XL kr. 19.750
215/65 R 16 XL kr. 18.990
205/50 R 17 kr. 18.900
215/55 R 17 kr. 20.600
235/55 R 17 kr. 24.900
235/45 R 17 kr. 21.390
225/55 R 17 kr. 23.900
225/65 R 17 kr. 24.290
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Pallhýsi
Travel Lite
Húsin eru í mörgum stærðum og
henta á flestar gerðir pallbíla.
Einnig er hægt að hafa hestakerru
eða bátinn með.
Sýningarhús eru á Akureyri og
Oddagötu 8, Reykjavík
Ferðapallhýsi ehf.
s. 663 4646.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur, laga
ryðbletti, hreinsa garða og
tek að mér ýmis smærri
verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hildegard
Þorgeirsson
✝ Hildegard Þor-geirsson (fædd
Reiss) fæddist í El-
bing í Þýskalandi
26. nóvember 1930.
Hún lést á sjúkra-
húsinu á Selfossi
18. apríl 2012.
Útför Hildegard
fór fram í kyrrþey
frá Hveragerð-
iskirkju 26. apríl
2012.
Takk fyrir allt,
elsku mamma mín.
Þinn sonur,
Þorgeir
Hafsteinsson.
Elsku amma mik-
ið svakalega er erf-
itt að kveðja þig, þú
sem hefur verið
mikill partur af lífi
okkar allra.
Allt sem þú hefur gefið mér,
allar okkar stundir saman.
Sem krakki fékk ég oft að gista
hjá ykkur afa um helgar og var
það ógleymanlegur tími. Þá varst
þú að baka á Loftleiðum og fékk
ég stundum að koma með þér í
vinnuna. Það var mikið sport fyr-
ir unga stelpu að vakna eld-
snemma um morgun og fara í
leigubíl og ég man það svo vel að
kokkarnir á hótelinu kölluðu mig
alltaf Hillu litlu, sem mér þótti
mjög skemmtilegt.
Seinna þegar ég var orðin eldri
unnum við saman hjá Sól, sem
var mjög skemmtilegur tími. Þar
varst þú í mötuneytinu að elda og
baka og allir sem unnu þar fengu
matarást á þér. Það var alltaf svo
mikil gleði í kringum þig, mikið
grínast og hlegið.
Alltaf þegar við komum í heim-
sókn til þín var slegið upp veislu,
stundum bakaðar vöfflur, lumm-
ur eða þú smurðir þitt einstaka
„smörrebrauð“ sem allir elskuðu.
Ég man svo vel þegar þú
smurðir handa mér heila öskju af
„smörrebrauði“ og komst með
upp á fæðingardeild þegar ég átti
Guðjón Ernst svo ég fengi nú nóg
að borða, þetta er mér svo minn-
isstætt því þetta lýsir þér svo vel,
alltaf að hugsa um aðra.
Takk fyrir allt sem þú hefur
kennt mér elsku amma mín. Það
mun ég geyma í hjarta mínu
ásamt minningunum um þig.
Elska þig að eilífu.
Þín
Helga Björg.
Minningar leka niður kinnarnar,
eitt tár fyrir hverja.
Án þín hefði ég ekki orðið.
Ég á óteljandi minningar um
hana ömmu mína. Ég var svo
heppin að fá að vera mikið með
henni og afa og fannst mér það
alltaf svo gaman. Hversdagslegir
hlutir eins og ferð í Nóatún í Ár-
bænum og þegar amma klæddi
okkur í höldupoka sem við rennd-
um okkur í í snjónum eru afar
dýrmætir. Við fórum líka saman í
margar útilegur, sumarbústaði
og bíltúra með nesti. Oft vorum
við mörg saman og það þótti
ömmu svo skemmtilegt.
Margar af minningunum um
ömmu tengjast mat og kökum
enda var amma snillingur þegar
kom að bakstri og matargerð.
Hún er okkur afkomendunum
fyrirmynd á þessu sviði og var oft
fylgst náið með hvernig amma
gerði hlutina. Eitt af því sem
stendur upp úr er kartöflusalatið
hennar sem er það allra besta.
Hlýja og glaðværð einkenndi
ömmu og minnist ég hennar með
ást og virðingu. Hún gaf mér
margt sem ég mun alltaf varð-
veita.
Elsku amma mín, takk fyrir
allt.
Þín
Sigríður Erna.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Minningargreinar