Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Ísafjörður Saga Nótt fæddist kl. 16.17
hinn 26. janúar sl. Hún vó 3.560 g og
var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru
Heiður Embla Elfarsdóttir og Friðrik
Valur Hákonarson.
Nýir borgarar
Akureyri Þórður Bragi fæddist 10.
janúar kl. 14.36. Hann vó 2936 g og
var 48 cm langur. Foreldrar hans eru
Sigurlína Erla Magnúsdóttir og Sig-
urður Heiðar Birgisson.
„Ég verð bara með smáveislu fyrir fjölskylduna og nánustu vini,“
segir Guðbjörg Lilja Guðmundsdóttir, matreiðslukona í Grindavík.
Og ekki boðið upp á annað en hollan og góðan mat, súpu og fleira.
Guðbjörg er nýhætt að vinna á heimili fyrir aldraða í bænum, „en ég
á von á öðru starfi“ segir hún. Ástandið sé gott í Grindavík, þar sé
nóg að gera. Og allir auðvitað himinlifandi yfir árangrinum í körfu-
boltanum og Útsvarinu.
Guðrún segir mikið félagslíf vera í bænum, auk íþróttalífsins eru
þar hjónaklúbbar og nokkrir skemmtistaðir. Ferðamönnum hafi
fjölgað mjög, margir vilji aka nýja Suðurstrandarveginn. Sjálf er
hún virk í kvennadeild Slysavarnafélagsins. Hún gekk í Hótel- og
veitingaskólann í Reykjavík þar sem hún bjó í 15 ár. „Ég lærði á
Aski við Suðurlandsbraut 14, þar komu margir til að fá sér kjúkling
og lambalæri bearnaise. Skólinn var á miðhæðinni á Esju.
Maðurinn minn, Einar Einarsson, er matreiðslumaður að mennt
en hann lærði líka vélstjórn og starfar nú hjá metanólverksmiðjunni
á Svartsengi. Hann er hreinræktaður KR-ingur úr Vesturbænum en
ég fékk hann hingað og hann gæti ekki hugsað sér að fara!“ Þau
eiga alls fjögur börn og barnabörnin eru tvö. Börnin búa öll í
Grindavík, einnig þau fjögur systkini Guðbjargar sem eru á lífi.
kjon@mbl.is
Guðbjörg L. Guðmundsdóttir 50 ára í dag
Stolt amma Guðbjörg með annað barnabarnið sitt, Berg Ísak Helga-
son, sem er tæplega fjögurra ára gamall.
Ánægð á heima-
slóðum í Grindavík
M
óeiður fæddist í
Reykjavík og ólst
þar upp til ellefu
ára aldurs en síðan í
Kópavoginum. Hún
lauk stúdentsprófi frá MR 1992,
stundaði nám í píanóleik við Tónlist-
arskóla Kópavogs og söngnám m.a.
við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Stundar doktorsnám í guðfræði
Móeiður hóf nám í guðfræði við
HÍ 2004, lauk þaðan embættisprófi í
guðfræði 2010, lauk auk þess námi
til kennsluréttinda við HÍ sama ár
og stundar nú doktorsnám í guð-
fræði við HÍ auk þess sem hún er
fæðingarorlofi.
Doktorsritgerð Móeiðar fjallar
um trúarlíf Vestur-Íslendinga og
langtíma guðfræðileg og kirkjuleg
tengsl milli Íslands og íslensku land-
nemabyggðanna í Vesturheimi.
Samhliða guðfræðináminu hefur
Móeiður sinnt ýmsu starfi á vegum
Þjóðkirkjunnar.
Jazzbandið og Bong í Bretlandi
Móeiður komst á skömmum tíma í
hóp þekktustu söngkvenna hér á
landi á sviði jazz- og popptónlistar.
Hún tók þátt í fyrstu Söngvakeppni
framhaldsskólanna árið 1990 þegar
Lárus Ingi Magnússon sigraði fyrir
hönd FS, Móeiður varð í öðru sæti
fyrir hönd MR en Páll Óskar Hjálm-
týsson varð í þriðja sæti fyrir hönd
MH.
Í kjölfarið stofnuðu þau Móeiður
og Páll Óskar hljómsveitina Jazz-
band Reykjavíkur sem reyndar varð
Móeiður Júníusdóttir guðfræðingur 40 ára
Opinber guðfræðingur Móa með móður sinni, Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Mynd tekin í tilefni af embættisgengi Móu.
Úr jazzi í guðfræðina
Á tónlistarárunum Hljómsveitin Móa & The Vinylistics. Móa, ásamt bræðr-
um sínum Kristni og Guðlaugi , Arnari Guðjónssyni og Þórhalli Bergman.
Morgunblaðið/Þorkell
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is