Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 39
upphafið af ferli þeirra beggja.
Móeiður sendi frá sér plötuna
Lögin við vinnuna, 1993, gekk síðan
til liðs við hljómsveitina Bong sem
gaf út plötu og spilaði m.a. í Bret-
landi um skeið. Þá gaf Móeiður út
sólóplötuna Móa - Universal sem
kom út í Bretlandi 1998 og í Banda-
ríkjunum 1999. Hún starfaði síðan
sjálfstætt sem söngkona um skeið
og gaf út plötu undir nafninu Lace
með bræðrum sínum 2001, en lagði
síðan söngferilinn til hliðar þegar
tóku við barneignir og uppeldi.
Fisk- og grænmetisæta
Móeiður hefur verið grænmet-
isæta frá 1990 en hefur þó borðað
fisk frá árinu 2004.
Hún segist vera blessunarlega
laus við allar dellur þó hún hugsi um
heilsuna, fari reglulega í líkamsrækt
og sund og borði hollan mat.
Hún er enginn sérstakur mat-
gæðingur né matreiðslumaður en
hefur þó gaman af bakstri, ekki síst
sínu uppáhaldi sem hún er sérfræð-
ingur í: Súkkulaði-hindberja-
pavlóva.
Hún fer í göngutúra, en þó ekki á
fjöll, en hefur samt augu sín til
fjallanna og hefur stundum velt því
fyrir sér að hefja fjallgöngur.
Fjölskylda
Maður Móeiðar er Styrmir Gunn-
arsson, f. 18.10. 1982, lögmaður.
Hann er sonur Gunnars Rafns Sig-
urbjörnssonar, f .22.10. 1943, sviðs-
stjóra hjá Hafnarfjarðarbæ, og Ínu
Illugadóttur, f. 5.9. 1945, fulltrúa hjá
Hafnarfjarðarhöfn.
Börn Móeiðar eru Ari Elías Arn-
alds, f. 20.1. 2001, og Guðrún Sigríð-
ur Arnalds, f. 15.10. 2003.
Dóttir Móeiðar og Styrmis er
Þeódís Styrmisdóttir, f. 25.11. 2011.
Systkin Móeiðar eru Ragnheiður
Júníusdóttir, f. 23.9. 1962, aðjúnkt á
menntavísindasviði HÍ; Ásgerður
Júníusdóttir, f. 26.9. 1968, mezzó-
sópransöngkona og háskólanemi;
Kristinn Júníusson, f. 7.6. 1976, tón-
listarmaður og nemi við Keili; Guð-
laugur Júníusson, f. 7.6. 1976, tón-
listarmaður og háskólanemi;
Sigríður Elísabet Benediktsdóttir, f.
26.4. 1986, nemi í tölvunarfræði og
starfsmaður hjá Reiknisstofnun
bankanna.
Foreldrar Móeiðar: Júníus H.
Kristinsson, f. 12.2. 1944, d. 7.1.
1983, sagnfræðingur og skjalavörð-
ur, og Guðrún Guðlaugsdóttir, f.
20.7. 1944, leikona, rithöfundur og
fyrrv. blaðamaður við Morgun-
blaðið.
Úr frændgarði Móeiðar Júníusdóttur
Elías Þ. Magnússon
skipstj. og útg.m. í Bol.vík
Sigríður Jensdóttir
saumakona
Guðrún Guðlaugsdóttir
bæjarfulltr. í Rvík
Einar B. Kristjánsson
húsasmíðam. í Rvík
Jóhanna Jónsdóttir
húsfr. á Rútsstöðum
Guðni Gíslason.
Vilborg Sturlaugsdóttir
Móeiður
Júníusdóttir
Júníus Kristinsson
skjalv.og sagnfræðingur
Guðrún S. Guðlaugsd.
leikk. rith. og fyrrv.blaðam
Guðlaugur Maggi Einarsson
bæjarstj. á Akranesi
Þorgerður Nanna Elíasd.
húsfr. í Rvík
Margrét Guðnadóttir
húsfr. á Rútsstöðum
Kristinn Júníusson
b. á Rútsst. í Flóa
Júníus Jónsson
b. á Rútsstöðum
Guðmunda Elíasdóttir
söngkona og söngkennari
Kristján Kristjánsson
tónl.maður
Ellen Kristjánsdóttir
söngkona
Kristján Einarsson
byggingaverkfr.
Móa og Mumma Guðmunda Elías-
dóttir söngkona, ömmusystir Móu,
kenndi henni að syngja og hlustaði
einnig á fyrstu predikun hennar.
Móeiður Júníusdóttir
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383
SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Gjöf sem gleður
Gull 16.500 kr.
Silfur 5.900 kr.
90 ára
Bjarni Jónsson
Kristinn D. Hafliðason
85 ára
Bergljót Ingólfsdóttir
Gyða Guðvarðardóttir
80 ára
Ástbjörg Ögmundsdóttir
Friðrik S. Friðriksson
Hildur Jónína Ingólfsdóttir
Júlíana Hálfdánardóttir
Kristín Ingibjörg
Tómasdóttir
Örn Ásmundsson
75 ára
Bergþóra Árný
Ragnarsdóttir
Björn Einarsson
Edda Hrönn Hannesdóttir
Erlingur Antoníusson
Gerður Sigurbjörnsdóttir
Sigurður Guðmundsson
70 ára
Eiríkur Hans Sigurðsson
60 ára
Amina Gulamo Sulemane
Birna Ingólfsdóttir
Gabriela Kordula Lecka
Guðmunda Hulda
Sigurðardóttir
Hjörtur Björgvin Árnason
Kristján Helgason
Kristmunda Þ. Sigurð-
ardóttir
Sólveig Stolzenwald
Örn Didier Jarosz
50 ára
Anna Hansdóttir
Auður Baldursdóttir
Benedikt R. Kjartansson
Birgir Guðmundsson
Birgir Örn Björnsson
Guðbjörg Lilja
Guðmundsdóttir
Guðbjörg S.
Sveinbjörnsdóttir
Guðni Sigtryggsson
Guðrún Hrönn
Guðbjörnsdóttir
Hörður Helgi Brink
Ingibjörg Jensdóttir
Íris Edda Arnardóttir
Kristján Magnason
Kristján Þorvaldsson
Sigríður Gunnarsdóttir
40 ára
Bára Einarsdóttir
Birna Ósk Eðvarðsdóttir
Guðbjartur Pétur Árnason
Ísól Björk Karlsdóttir
Katrín Anna Eyvindardóttir
Kristján Þórir Hauksson
Margrét Valgeirsdóttir
Sigríður Sigurjónsdóttir
Sumarliði Árnason
Valdimar Gunnar
Kristjánsson
30 ára
Elvar Már Pálsson
Harpa Jónsdóttir
Heiðar Þór Kristinsson
Lyngmo
Helgi Már Veigarsson
Hreinn Elíasson
Jóhann Ingi Einarsson
Jóhann Vívill Magnússon
Karolina Dominika
Skorupka
Paola Delfina Felix Pinto
Rögnvaldur Gauti
Þórarinsson
Sigurjón Þorkell
Sigurjónsson
Þór Óskar Fitzgerald
Til hamingju með daginn
30 ára Bjartey ólst upp í
Reykjavík. Hún lauk próf-
um í tækniteiknun frá Iðn-
skólanum í Reykjavík og
er teiknari hjá Verkís.
Eiginmaður Beniamin A.
Fer, f. 1980, starfsmaður
hjá Íslandspósti.
Sonur þeirra er Adrian E.
Beniaminsson, f. 2009.
Foreldrar Birna Ó. Jóns-
dóttir, f. 1960, kerfisfr. hjá
Reiknist. bankanna, og
Ásmundur J. Þórarinsson,
f. 1959, rafvirki.
Bjartey
Ásmundsdóttir
30 ára Þráinn fæddist í
Reykjavík, ólst upp í
Hveragerði og á Læk, lauk
mjólkurfræðiprófi í Dan-
mörku 2008, og er sér-
fræðingur hjá Kjörís.
Dætur Thelma Nótt, f.
2004, og Rakel Dalía, f.
2011.
Foreldrar Jón Sigurður
Bjarnason, f. 1964, fyrrv.
sjómaður, nú í Hvera-
gerði, og Berglind Sigurð-
ardóttir, f. 1964, starfar
við umönnun.
Þráinn Ómar
Jónsson
Ingólfur fæddist í Reykjavík 4.maí 1948. Foreldrar hans voruMargeir Sigurjónsson forstjóri
og k.h., Kristín L. Ingólfsdóttir hús-
móðir.
Margeir var sonur Sigurjóns,
söðlasmiðs í Hafnarfirði Jóhanns-
sonar, b. í Ósgröf, bróður Jónasar,
langafa rithöfundanna Guðrúnar,
Svövu og Jökuls Jakobsbarna.
Kristín Laufey var dóttir Ingólfs,
verkstjóra í Reykjavík Daðasonar,
b. á Setbergi, bróður Kristjáns, afa
Sigfúsar Daðasonar skálds.
Meðal systkina Ingólfs er Lilja,
ekkja Flosa Ólafssonar leikara.
Ingólfur var kvæntur Jóhönnu
Jónasdóttur lækni og er sonur
þeirra Jónas Margeir fréttamaður.
Börn Ingólfs og Tone Myklebost
eru Lilja og Daníel, búsett í Noregi.
Stjúpdóttir Ingólfs er Tiril, búsett í
Noregi, en dóttir Jóhönnu er Halla
Björg Lárusdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og ljósmóðir
Ingólfur lauk stúdentsprófi frá
MR 1969, stundaði nám við Háskól-
ann í Stokkhólmi í kvikmyndafræð-
um, leikhúsfræðum og heimspeki
1969–75, lauk BA-prófi í sagnfræði
við HÍ 2003 og stundaði MA-nám í
sagnfræði.
Ingólfur stundaði blaðamennsku í
Noregi 1975–78 og við Þjóðviljanum
1978–80, var ritstjóri Helgarpósts-
ins 1983–87, Alþýðublaðsins 1987–
91, stofnaði Vesturbæjarblaðið 1995
og ritstýrði því til 2001. Hann stund-
aði þáttagerð, s.s. Í sannleika sagt,
með Valgerði Matthíasdóttur, og
samtalsþáttinn Á elleftu stundu,
með Árna Þórarinssyni, gerði fræga
útvarpsþætti um Bítlana sem oft
hafa verið endurfluttir og sendi frá
sér vinsælar og vel skrifaðar ævisög-
ur en meðal þeirra eru Lífsjátning;
Lífróður; Hjá Báru; Sálumessa
syndara; Afmörkuð stund, og Sæmi
rokk, 2008.
Ingólfur var, ásamt Matthíasi Jo-
hannessen ritstjóra, tilnefndur
fulltrúi Íslands vegna Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs 1982.
Ingólfur lést fyrir aldur fram 15.
apríl 2011 og var mörgum harm-
dauði, enda sérstaklega ljúfur mað-
ur, upplífgandi og skemmtilegur í
viðkynningu.
Merkir Íslendingar
Ingólfur
Margeirsson
30 ára Martin fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk embættisprófi í
læknisfræði frá HÍ 2009,
doktorsprófi í erfðafræði
2011 og er á leið í sérnám
við Harvard í Boston.
Kona Anna Björnsdóttir,
f. 1983, læknir.
Foreldrar Sigurður Ingi
Skarphéðinsson, f. 1948,
verkfræðingur hjá Orku-
veitunni, og Emilía Mart-
insdóttir, f. 1949, verk-
fræðingur hjá Matís.
Martin Ingi
Sigurðsson