Morgunblaðið - 04.05.2012, Page 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
GJÖRIÐ
SVO VEL!HÁDEGISMATUR
TIL FYRIRTÆKJA
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu
heimsendingu á hollum og kjarngóðum hádegismat.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinnan er þér leikur einn og þú nýt-
ur hverrar stundar svo að það hefur hvetj-
andi áhrif á vinnufélagana. Núna er ekki
góður tími til að taka ákvarðanir sem krefj-
ast fórna af einhverju tagi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur ferðast með einhverjum und-
anfarið og þroskinn er sýnilegur. Nú eru
skilyrði hagstæð til að framkvæma ýmsa
hluti sem þú hefur lengi ætlað þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að skoða langanir þínar
og þrár. Láttu ekki aðra fara í taugarnar á
þér. Hugsaðu málið með hjartanu og fylgdu
því svo eftir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar
náttúrunnar með þínum nánustu. Gakktu
hratt og ákveðið til verks. Þú færð tilboð
fljótlega sem þú ættir að íhuga.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú skiptir öllu máli að bregðast rétt
við aðstæðum. Nýttu þér heppni þína og
haltu fast við áætlanir þínar. Þú sérð fram á
notalega helgi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt eftir að lenda í mikilvægum
samningaviðræðum við aðra um hlutdeild í
eignum og ábyrgð. Af hverju ekki að prófa
eitthvað nýtt?
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu hugann reika um víðan völl. Und-
irbúðu meira en verðskulduð verðlaun
handa þér. Ættingjar koma á óvart.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það má mikið vera, ef þú ert
ekki búin/n að koma málum þannig fyrir, að
sigurinn sé í höfn. Þér er sama þó að þú
þurfir að fara eftir rútínu þessa dagana.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þú kunnir að meta ein-
hvern mikils, þá er það ekki það sama og
að elska. Vinur lumar á hugmynd, sem þeg-
ar hefur verið mótuð og pakkað fallega inn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er sama til hvers er ætlast
af þér, þú gefur alltaf meira af þér en þú
ættir að gera. Hættu að hugsa um efnisleg
gæði. Gefðu þér tíma til að hitta vini og fé-
laga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú telur að einhver í fjölskyld-
unni leyni þig hlutum sem snúa að fjárhags-
málum. Hlustaðu á innsæi þitt og gefðu þér
nægan tíma til að finna bestu lausnina.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú leggur þig alla/n fram í starfi og
það vekur almenna hrifningu. Ekki hlusta á
þann sem reynir að draga úr þér vegna
dagdrauma þinna.
Gunnlaugur A. Jónsson varð sex-tugur 28. apríl og fékk kveðju
frá gömlum skólafélaga og vini, séra
Hjálmari Jónssyni. „Tilefnið var lík-
lega það að ég greindi frá því að ég
hefði byrjað daginn á því að lesa
Prédikarann í gegn,“ segir Gunn-
laugur í færslu á fésbókinni, en yfir-
skrift bragsins frá Hjálmari er „Pre-
dikarinn 1. kafli“:
Í lífinu lánið er valt …
og löngum of heitt eða kalt.
Í erfiði og striti
er ekkert af viti,
það er aumasti hégómi allt.
Þegar allt leikur í lyndi
og lífið er fegurð og yndi
vita þú skalt
að verkið þitt allt
er eftirsókn eftir vindi.
Viskan er góð eins og gull,
Gunnlaugs því drekkum við full.
Hann vil ég mæra
og heillaósk færa
þó allt sé það aumasta bull.
Gunnlaugur skrifar að lokum:
„Þessu verður vandlega haldið til
haga í áhrifasögusafni Prédikarans
(Kohelet) ásamt með öðrum „hé-
góma“.“
Davíð Hjálmar Haraldsson hittir
oft naglann á höfuðið. Hann skrifar
skemmtilega hugleiðingu um leit
Skáksambandsins að taflborði og
fleiri munum frá „Skákeinvígi aldar-
innar“ í Reykjavík árið 1972: „Vitað
er að eftir einvígið var árangurs-
laust reynt að bjóða Íranskeisara og
fleiri stórmennum í suðri og austri
munina.
Hvar taflið er – ég tel mig vita svar,
svo tárhreint allt og nýtt og hvergi slitið,
af góðsemi það gefið páfa var
því gamla settið hans var máð og skitið.“
Jón Gissurarson ræður sér varla
fyrir kæti vegna sæluviku Skagfirð-
inga, en þá er mikið um dýrðir í
Skagafirði. „Og enn er leiksýningin
og ballið eftir,“ skrifar hann.
Sæluvikan sýnist okkur síst til vansa.
Fljóðin öll af fegurð glansa,
fönguleg við seggi dansa.
Á Króknum mest er húllumhæið, hopp
og kæti.
Myndast ann á miðju stræti.
Meyja kysst í aftursæti.
Sýningar við sjáum þar með sóma
góðum,
flutt í tónum, leik og ljóðum,
listaverk frá heimaslóðum.
Einnig munu ylja gestum – öldurhúsin.
Heillar þýða blessuð blúsin,
bjórinn sæll og rauðvínskrúsin.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af „eftirsókn eftir vindi“
og fjöri á sæluviku
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
LÍSA VILL AÐ ÉG
DEILI TILFINNINGUM
MÍNUM MEÐ HENNI
HVAÐ
ÞÝÐIR ÞAÐ
EIGINLEGA?
KANNSKI
FINNURÐU ÞAÐ Í
ORÐABÓKINNI
ÞÚ ERT
MEÐ MJÖG
FALLEGAR
HENDUR
TAKK
FYRIR
ÞAÐ
MÉR FINNST
MIKILVÆGT AÐ VERA
MEÐ FALLEGAR
HENDUR
ÉG ER EKKI ÁNÆGÐ
MEÐ MÍNAR, ÞÆR ERU
ALLTOF GRANNAR
HVAÐ GET ÉG GERT TIL ÞESS
AÐ FITNA Á HÖNDUNUM?
ÉG VAR BARA
EKKI HRIFINN AF ÞVÍ
AÐ VINNA FRÁ NÍU
TIL FIMM
VINNAN ÞÍN
VELDUR ÞVÍ AÐ ÞÚ ERT
KÝLDUR, STUNGINN
OG SKORINN!!
STUNDUM ÞARFTU AÐ
VERA ÁN MATAR OG
SVEFNS SVO DÖGUM
SKIPTIR!!
AF HVERJU Í
ÓSKÖPUNUM
VALDIRÐU ÞÉR
ÞETTA STARF!!
ÉG
SKAL
SVARA!
ÉG SÉ UM
SÍMSVÖRUN FYRIR
FYRIRTÆKI Á
INDLANDI
NAMASTE!
ÉG...HEITI...
DAHANGA GUPTA.
HVAÐ...GET...ÉG...
GERT...FYRIR...ÞIG?
Íbúar við Brautarholt og Klukku-rima í Reykjavík kvörtuðu í vik-
unni við mbl.is vegna götusópunar
og sögðu hreinsunina slæma, þrátt
fyrir að flestir íbúar hafi fjarlægt
ökutæki eins og um hafi verið beðið.
x x x
Málið er ekki eins einfalt og þaðlítur út fyrir að vera enda sendi
hreinsunarfyrirtækið frá sér til-
kynningu í gær og gerði hreint fyrir
sínum dyrum. Víkverji er á því að
ekki sé alfarið við hreinsunarmenn-
ina að sakast heldur borgaryfirvöld
og ekki síst tillitslausa bíleigendur.
x x x
Svo virðist sem götuhreinsun íReykjavík eigi ekki upp á pall-
borðið hjá stjórnendum borgarinnar
og þeir bíði eftir því að skítnum rigni
niður í ræsin eða hann fjúki á haf út
rétt eins og beðið var eftir því að
snjónum rigndi niður. Borgarstjórn
til upplýsingar þá er skíturinn fast-
ari en allt sem fast er og þess vegna
situr hann eftir að lokinni einni um-
ferð hjá hreinsunarbílunum. Það
þarf einfaldlega að hreinsa götur og
gangstéttar oftar en einu sinni á ári.
x x x
Víkverji þekkir ekki til við fyrr-nefndar götur en hann hefur
fulla samúð með þeim sem sjá um
götuhreinsunina vegna þess að hon-
um sýnist að tillitsleysi bílaeigenda
sé nær algjört, þegar kemur að
götuhreinsun. Með nægum fyrirvara
er fólki bent skriflega á að götu-
hreinsun fari fram á tilteknum tíma
á tilteknum degi. Auk þess er skilt-
um komið upp við göturnar sem
árétta hreinsunina. Þetta gerist ekki
nema einu sinni á ári og stingur því í
stúf við allt annað. Engu að síður
kæra margir sig kollótta og Víkverji
hefur séð nánast hvert bílastæði
skipað í götu sem átti að fara að
hreinsa innan nokkurra mínútna.
x x x
Reykjavík er ein skítugasta borgsem Víkverji þekkir og hefur
hann þó komið víða. Ástandið lagast
ekki fyrr en borgaryfirvöld taka sig
á í hreinsunarmálum því eftir höfð-
inu dansa limirnir. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Anda sannleikans, sem
heimurinn getur ekki tekið á móti, því
hann sér hann ekki né þekkir. Þér
þekkið hann, því hann er hjá yður og
verður í yður. (Jh. 14, 17.)