Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Bókin varpar spegli á íslenska
ljóðagerð í þúsund ár, þar sem hún
þræðir sögu íslenskrar ljóðlistar allt
frá Völuspá og Höfuðlausn Egils
Skallagrímssonar til höfuðskálda
síðustu alda og til
ungskálda dags-
ins í dag,“ segir
Jóhann Sigurðs-
son, útgefandi hjá
Sögu forlagi, um
úrval enskra þýð-
inga Bernards
Scudders á ís-
lenskum ljóðum
sem komið er út.
Að sögn Jó-
hanns var ráðist í
útgáfuna til að heiðra minningu
Bernards Scudders sem lést haustið
2007 langt um aldur fram, aðeins
rúmlega fimmtugur. „Jafnframt
vildum við veita umheiminum hlut-
deild í stórbrotnu og einstöku ævi-
starfi sem um leið er eitt yfirgrips-
mesta heildarsafn íslenskra ljóða
sem út hefur komið á erlendu máli,“
segir Jóhann og bendir á að bókin sé
rúmar 400 blaðsíður og innihaldi ljóð
eftir 68 skáld.
„Bernard Scudder hreifst
snemma af íslenskri ljóðagerð og
vann þýðingar sínar á síðkvöldum
meðfram vinnu. Fáir menn af er-
lendu bergi brotnir hafa reynst ís-
lenskri menningu þarfari en Bern-
ard Scudder sem var einn mikil-
hæfasti þýðandi af íslensku á ensku
sem fram hefur komið. Það var mik-
ið þjóðarhapp að hann skyldi sinna
ljóðaþýðingum af slíkri ástríðu.
Hann var sjálfur gott ljóðskáld og
ákaflega næmur fyrir tungumálinu
sem kom m.a. fram í því að hann tal-
aði lýtalausa íslensku auk þess sem
hann hafði frábæra ensku á valdi
sínu,“ segir Jóhann og bendir á að
Bernard Scudder hafi þýtt fjölda
skáldsagna, ljóða, leikrita og fræði-
texta auk þess sem hann þýddi
margs konar efni fyrir stjórnvöld,
fyrirtæki og stofnanir, þar á meðal
Seðlabanka Íslands. „Öll verkefni
sín leysti hann af fágætum metnaði
og vandvirkni, alúð og hugkvæmni,“
segir Jóhann og bendir á að einna
hæst beri starf Bernards Scudders
að heildarþýðingu Íslendingasagna
á ensku sem út kom 1997, en hann
þýddi m.a. Egils sögu og Grettis
sögu. Aðspurður segir Jóhann bók-
ina nýútkomnu eiga mikið erindi við
ferðamenn auk þess sem hún sé til-
valin til gjafa fyrir Íslendinga sem
vilja deila með umheiminum ljóða-
kveðskap þjóðar sinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Fögnuður Nokkur þeirra ljóðskálda sem eiga þýdd ljóð í bókinni fögnuðu útgáfu í Þjóðmenningarhúsinu í vikunni.
„Einstakt ævistarf“
Skáldin Vilborg Dagbjartsdóttir, Gyrðir Elíasson og Þorsteinn frá Hamri
ásamt Martin Regal (annar frá hægri) sem las upp í tilefni útgáfunnar.
Úrval enskra þýðinga Bernards Scudders á íslenskum
ljóðum komið út Spannar þúsund ára ljóðagerð og 68 skáld
Bernard
Scudder
Hrafnkell Sigurðsson og Ólöf K.
Sigurðardóttir munu ræða við gesti
um sýningu Hrafnkels, Hafnarborg-
ina, á sunnudaginn, 6. maí kl. 15.
Sýningin var opnuð í aðalsal
Hafnarborgar 21. apríl sl. Á henni
eru ný verk eftir Hrafnkel, ljós-
myndir, myndbandsverk og vegg-
verk. Um verkin á sýningunni segir
í tilkynningu að efnivið þeirra sæki
Hrafnkell í karlmannlegt athafna-
svæði slippsins við Reykjavíkur-
höfn, hann sýni ljósmyndir sem
minni á málverk, áhrifamikla mynd-
bandsinnsetningu, veggverk og
textíl.
Langanir og þrár
Blaðamaður sló á þráðinn til
Hrafnkels í gær og spurði hann
hvers vegna hið karlmannlega
vinnusvæði heillaði svo mjög. „Ég
er með vinnustofu rétt hjá slippnum
og karlmennskan heillar,“ segir
Hrafnkell. „Þetta er einhver þrá
eftir karlmennsku, sennilega. Þetta
eru vinnubrögð, handverk og líkam-
leg vinna sem hefur ákveðið útlit og
andrúmsloft og skilur eftir sig af-
gang og efnivið sem fela í sér sögu.
Það er eins og það verði eitthvað
eftir af þessari karlmennsku, þess-
ari líkamlegu karlmennsku sem sit-
ur eftir í hlutnum. Mér finnst það
sem fyrirbæri mjög heillandi og
dýrmætur og fallegur efniviður.“
Hrafnkell segist hafa unnið í slippn-
um þegar hann var 18 ára, áður en
hann hafi farið í Myndlista- og
handíðaskólann. Hann þekkir því
vel til stemningarinnar sem skapast
á þeim vinnustað.
„Varðandi karlmennskuna þá
mætti halda að þetta væri einhvers
konar „fetishismi“ og ég hef svolítið
gaman af því að það er ýjað að því,
án þess að þetta sé það,“ segir
Hrafnkell um sýninguna. Hrafnkell
segir kveikjuna að sýningunni verk
sem sé að finna á henni, verkið
Klút, en það vann Hrafnkell úr not-
uðum tuskum sem hann dró upp úr
drullunni í slippnum og saumaði
saman þannig að úr varð stór sam-
felldur klútur. „Það var fyrsta verk-
ið sem ákveðið var að yrði sýnt,“ út-
skýrir hann.
Leikur og starf
Myndbandsinnsetning Hrafnkels
á sýningunni er forvitnileg, ber tit-
ilinn Reið og sýnir ferð niður vatns-
rennibraut frá tveimur sjónar-
hornum samtímis. Hver skyldi
sagan vera á bakvið þá innsetningu?
„Ég var í sundi í fyrrahaust í
Laugardalslaug og þá hlupu nokkrir
gaurar á fertugsaldri hlæjandi í
vatnsrennibrautina, voru að leika
sér. Fullorðnir menn að leika sér
saman og það var greinilegt að þeir
voru að koma úr vinnu, komnir í frí
og mér fannst þetta skemmtileg
andstæða við vinnusvæðið,“ segir
Hrafnkell. Hann hafi farið hvorki
meira né minna en 47 ferðir í renni-
brautina með myndavélar.
helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hafnarborg Hrafnkell Sigurðsson á sýningu sinni í Hafnarborg.
Karlmannleg
Hafnarborg
Rætt við gesti um sýningu Hrafnkels
The Raid: Redemption
Í fátækrahverfi í Djakarta dvelja
hættulegustu glæpamenn heims í
byggingu sem virðist ómögulegt að
ráðast inn í. Það gerir hins vegar
sérsveit lögreglunnar, ætlunin er
að handtaka eiturlyfjabarón sem
ræður ríkjum í húsinu. Hann fréttir
hins vegar af fyrirætlunum lögregl-
unnar og sérsveitin er króuð af á
sjöttu hæð. Leikstjóri er Gareth Ev-
ans og í helstu hlutverkum Doni
Alamsyah, Iko Uwais, Joe Taslim,
Ray Sahetapy og Yayan Ruhian.
Metacritic: 73/100
Coriolanus
Leikrit Shakespeares um herfor-
ingjann Kóríólanus flutt til samtím-
ans. Eftir að hafa verið gerður
brottrækur frá Róm ákveður Kórí-
ólanus að mynda bandalag með
erkióvini sínum og leita hefnda.
Myndin er sú fyrsta sem leikarinn
Ralph Fiennes leikstýrir og fer
hann jafnframt með titilhlutverkið.
Í öðrum helstu hlutverkum eru
Gerard Butler og Brian Cox.
Metacritic: 79/100
How I Spent My Summer Vacation
Mel Gibson leikur glæpamann sem
er handtekinn fyrir bankarán í
Mexíkó. Honum er stungið í fang-
elsi en þar vingast hann við níu ára
dreng sem kennir honum margt
sem nauðsynlegt er að kunna í
fangelsinu og hætturnar leynast
víða. Leikstjóri er Adrian Grun-
berg og í öðrum helstu hlutverkum
Roberto Sosa, Dolores Heredia,
Daniel Jiménez Cacho, Peter
Stormare og Peter Gerety.
Rotten Tomatoes: 50%
Bíófrumsýningar
Stórhættulegir glæpamenn
Herforinginn Ralph Fiennes í hlutverki Kóríólanusar herforingja.
Um áramótin varð til Sjónlista-
miðstöð á Akureyri með samruna
Listasafnsins á Akureyri, Ketilhúss
og Deiglu. Tilgangur stofnunarinnar
var meðal annars að auka umræðu
um myndlist og liður í því er sjón-
varpsþættir sem fengið hafa heitið
Sjónpípan. Í fyrsta þætti Sjónpíp-
unnar er fjallað um sýningu Kristins
E. Hrafnssonar, Misvísun, í Lista-
safninu á Akureyri, rætt er við lista-
manninn og sýnt frá sýningunni.
Hugmyndin að Sjónpípunni, sem
heitir The Icelandic Art Tube upp á
ensku, er komin frá Hannesi Sig-
urðssyni sjónlistastjóra. Táknmynd
hennar er sjón-
pípa kafbáts og
þrjú bergmáls-
högg, en hverri
umfjöllun lýkur
svo á því að kaf-
báturinn hverfur
niður um íshellu
til að minna á að
bækistöð Sjón-
listamiðstöðv-
arinnar er í há-
norðri. Þættir Sjónpípunnar eru
sýnilegir á vefsetri Sjónlista-
miðstöðvarinnar, www.sjonlist.is.
arnim@mbl.is
Sjónpípa Sjónlista-
miðstöðvarinnar
Kristinn E.
Hrafnsson
Kynningarþættir um norðlenskt listalíf