Morgunblaðið - 17.05.2012, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Kynntu þér málið á www.arionbanki.is/ibudarsparnadur og reiknaðu dæmið
út frá eigin forsendum.
Með reglubundnum sparnaði þar sem lagðar eru fyrir að lágmarki 10 þúsund krónur á mánuði
í tvö ár fá þeir sem taka íbúðalán hjá Arion banka:
Sparaðu fyrir þínum fyrstu
íbúðarkaupum
Anna Guðný og Örn keyptu sína fyrstu
íbúð eftir að hafa lokið háskólanámi
í Danmörku. Þau tóku lán hjá Arion
banka og nutu ráðgjafar frá starfs-
fólki bankans.
• 50% afslátt af lántökugjöldum
• Frítt greiðslumat
• Innflutningsgjöf, í formi gjafakorts
arionbanki.is – 444 7000
Mikið verður um dýrðir í Dómkirkj-
unni í dag, uppstigningardag, sem
einnig er dagur aldraðra og
þjóðhátíðardagur Norðmanna.
Kl. 11 er guðsþjónusta í kirkjunni
í tilefni dags aldraðra. Þar munu sr.
Hjálmar Jónsson og sr. Anna Sig-
ríður Pálsdóttir þjóna en Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, fv. borg-
arstjóri, flytur hugvekju. Dóm-
kórinn syngur og organisti er Kári
Þormar. Á eftir er viðstöddum boð-
ið í kaffi í safnaðarheimilinu.
Klukkan 14 er svo norsk guðs-
þjónusta í tilefni þjóðhátíðardags
Norðmanna, 17. maí. Hjálmar pre-
dikar og þjónar fyrir altari en þessi
messa hefur verið fastur liður í
starfi Dómkirkjunnar nokkur und-
anfarin ár. Norðmenn búsettir á Ís-
landi munu koma til kirkjunnar í
skrúðgöngu, undir dynjandi lúðra-
blæstri, sem fer af stað frá Nor-
ræna húsinu kl. 13.30. Að sögn
Hjálmars hefur þessi athöfn jafnan
tekist vel og verið vel sótt af Norð-
mönnum og frændum þeirra.
Fjölbreytt dagskrá er í Norræna
húsinu og víðar í dag á vegum
norska sendiráðsins og Nord-
mannslaget, félags Norðmanna á
Íslandi, þar sem endað verður í
Heiðmörk í kvöld með kjötsúpu-
veislu og skemmtun.
Annríki í
Dómkirkj-
unni í dag
Dagur aldraðra
og Norðmanna
Morgunblaðið/Rax
Dómkirkjan Skrúðganga verður til
norskrar messu kl. 14 í dag.
Listahátíðin List án landamæra
hlaut í gær mannréttindaverðlaun
Reykjavíkurborgar. Dagur B. Egg-
ertsson, formaður borgarráðs, af-
henti verðlaunin við hátíðlega athöfn
í Höfða í gær á mannréttindadegi
Reykjavíkurborgar.
Mannréttindaverðlaunin eru veitt
þeim einstaklingum, félagasamtök-
um eða stofnunum sem hafa á eft-
irtektarverðan hátt staðið vörð um
mannréttindi tiltekinna hópa. Mark-
miðið með mannréttindadeginum er
að vekja athygli á málefnum sem
varða mannréttindi og á mannrétt-
indastefnu Reykjavíkurborgar.
Listahátíðin List án landamæra
var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra
árið 2003 og hefur verið haldin ár-
lega. Markmið hátíðarinnar er að
bæta aðgengi, fjölbreytni og jafn-
rétti í menningarlífinu, að leita nýrra
tækifæra ekki takmarkana. Þá kem-
ur hátíðin list fólks með fötlun á
framfæri og kemur á samstarfi milli
fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Sýni-
leiki ólíkra einstaklinga er mikilvæg-
ur, bæði í samfélaginu og í sam-
félagsumræðunni.
Dagur B. Eggertsson sagði við af-
hendinguna að List án landamæra
væri vel að viðurkenningunni komin.
Það gætu ekki allir orðið miklir lista-
menn en góðir listamenn gætu kom-
ið hvaðanæva að því listin þekkti
engin landamæri.
Listin er án landamæra
Morgunblaðið/Golli
Í Höfða Margrét M. Norðdal tók við mannréttindaverðlaununum í gær.
Listahátíðin List án landamæra hlaut mannréttindaverð-
laun Reykjavíkurborgar Hefur verið árlega síðan 2003
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur
afgreiddi á fundi sínum í gær styrki
til þróunar- og samstarfsverkefna
fyrir rúmar 25 milljónir króna.
Hæsti styrkurinn til þróunarstarfs,
3,5 milljón króna, rennur til sam-
starfsverkefnisins Skína smástjörn-
ur sem fjórir sameinaðir leikskólar
taka þátt í og miðar að því að þróa
gæðastarf í fagstarfi með yngstu
leikskólabörnunum. Önnur verkefni
fá einnig veglega þróunarstyrki, s.s.
læsisverkefni í Úlfarsárdal, jafnrétt-
isfræðsla í Rimaskóla og forvarnir
gegn veggjakroti í Grafarvogi. Einn-
ig verkefni sem miðar að því að þróa
samhæft námsmat í þremur grunn-
skólum í sunnanverðum Grafarvogi.
Veittu 25
milljónir til
skólastarfs