Morgunblaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Fataskápar í miklu „Óskandi væri að Ís- lendingar færu að sjá að það er aumt líf og vesælt að sitja í hverju horni og hugsa um ekkert nema sjálfan sig og slíta svo sundur félag sitt og skipta sundur afli sínu í svo marga parta sem orðið getur í stað þess að halda saman og draga allir einn taum og hugsa fyrst og fremst um heiður og velgengni landsins, sem öllum góðum Íslendingum ætti þó að vera í fyrirrúmi.“ Þessi fleygu orð Jónasar Hall- grímssonar frá árinu 1835 hafa oft komið upp í hugann frá því að sitj- andi ríkisstjórn tók til starfa eftir nánast algert kerfishrun þjóðarinnar með öllum þeim hörmungum sem því fylgdu. Sitjandi ríkisstjórn hefur gert mörg afdrifarík mistök m.a. vegna innbyrðis sundurlyndis í mik- ilvægum málum sem varða heill þessarar þjóðar. Frá því að rík- isstjórnin tók til starfa fyrir rétt þremur árum með kjörorðinu „Skjaldborg um hag heimilanna“. Fjöldi heimila stendur enn ber- skjaldaður fyrir innheimtumönnum þrátt fyrir að dómar hafi fallið þeim í vil. Atvinnustig hefur lítið lagast. Ósamkomulag innan ríkisstjórnar um framtíðarsýn í atvinnuuppbygg- ingu og orkunýtingu hefur kostað seinkun framkvæmda. Vegna þessa eru í dag stórar atvinnuskapandi framkvæmdir í uppnámi. Skoðanir ráðherra um umhverfisvernd byggj- ast frekar á öfgafullri hentistefnu en málefnalegri umræðu. Glundroði og vígaferli leika lausum hala bæði við ríkisstjórnarborðið og í þingflokkum stjórnarflokkanna. Forsætisráðherrann skortir þjóð- félagslegan metnað og stjórnvisku til að taka á agavandamálum innan rík- isstjórnar. Allt er þetta vafalaust hið besta fólk heim að sækja. Það situr í ríkisstjórn og í þingflokkum stjórn- arflokkanna en vandamálið er að það veldur ekki því starfi sem það sóttist eftir og fékk í alþingiskosningum fyr- ir þremur árum. Það skortir fé- lagslegan þroska og hefur ekki þann slagkraft, áræðni eða pólitísku lausn- ir til að eiga samstarf við helstu hags- munasamtök á sýnu svið. Samstarf er allt sem þarf við lausn vandamála. Nú eru enn ein mistök ríkisstjórn- arinnar komin fram og sennilega þau afdrifaríkustu fyrir þjóðina, ef ekki verður breyting á. Fyrir alþingi liggja frumvörp sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða og veiðigjöld sem rík- isstjórn og þingflokkar stjórnarflokkanna eru búnir að samþykkja. Það geta allir séð sem hafa kynnt sér innihald frumvarpanna að þau hafa mikla hættu í för með sér fyrir þjóð- arhag. Frumvörpin óbreytt munu kollvarpa efnahags- legum stöðuleika í mikilvægustu grunnstoð atvinnulífs landsins. Fjöldi fólks mun missa viðurværi sitt ef af verður. Öll stærstu útgerðarfyr- irtæki landsins munu þurfa að draga saman seglin og mörg önnur smærri. Fyrirtæki í tengdum greinum munu fljótlega stefna í gjaldþrot. Íslenskur sjávarútvegur mun hreinlega hætta að geta endurnýjað sig reglulega til að vera samkeppnishæfur á hörðum sölumarkaði með sjávarfang um all- an heim. Sá viðskiptalegi skaði verð- ur ekki byggður upp á einum degi. Farsæl aflaskip landsmanna til margra ára munu væntanlega verða bundin við bryggjupolla um óákveð- inn tíma. Það sorglegasta í öllu þessu mik- ilvæga máli er að sjávarútvegs- ráðherra landsins skuli láta hafa eftir sér í viðtali eða í rökræðu manna á milli að útgerðamenn stundi hræðsluáróður. Hann sé viss um að mörg fyrirtæki geti hæglega borgað það háa veiðigjald sem frumvarpið boðar. Hvernig dirfist ráðherrann að tala svona til útgerðamanna og þeirra þúsunda manna sem starfa við grein- ina. Með svona tali liggur ekkert annað að baki en málefnalegt rök- þrot sjávarútvegsráðherra sem hefur áttað sig á að hann hafi gert mistök með því að leggja fram gölluð frum- vörp um stjórn fiskveiða og veiði- gjöld. Það er nú svo að jafnvel leik- menn í þessum efnum geta séð hvaða hættur frumvörpin boða. Ég er einn af þeim þó að ég hafi aldrei migið í saltan sjó eða átt hagsmuna að gæta er tengist sjávarútvegi, nema þá þann þátt einan að vera Íslendingur. Kallast það hræðsluáróður að sjá hætturnar og tjá sig um þær með málefnalegri gagnrýni. Stígum ölduna saman með það að leiðarljósi að hámarka hagsæld í undirstöðuatvinnugrein okkar Ís- lendinga. Stöndum vörð um fyr- irtæki í sjávarbyggðum landsins og um leið með þeim sem þar starfa, okkur öllum til hagsbóta. Aukum at- vinnustigið í landinu með hnitmið- uðum ákvörðunum án öfga. Ég skora á sjávarútvegsráðherra að viðurkenna gallað frumvarp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld með því að draga það til baka fyrir sjó- mannadaginn 3. júní nk. Það er alltaf hægt að komast að samkomulagi um ný réttlát frumvörp um stjórn fisk- veiða og veiðigjöld ef viljinn er fyrir hendi, Steingrímur J. Sigfússon sjáv- arútvegsráðherra. Þetta er miklu stærra mál en það að hægt sé að láta stoltið ráða för. Drögum einn taum og hugsum fyrst og fremst um heiður og vel- gengni landsins eins og Jón Sigurðs- son sagði forðum. Með vinsemd. Kjarklaus ríkisstjórn í brimgarðinum Eftir Einar H. Bridde Einar H. Bridde »Nú eru enn ein mis- stök ríkisstjórn- arinnar komin fram og sennilega þau afdrifa- ríkustu fyrir þjóðina, ef ekki verður breyting á. Höfundur er framkvæmdastjóri. Á Bessastöðum er að finna eina stærstu auðlind Íslendinga. Þjóðin gæti malað gull á þessari nýju auðlind. Það eina sem þarf til er almenn hugarfarsbreyting og að virkja Bessastaði. Umræðan um forsetaembættið hefur löngum lent á villigötum og við hverjar kosningar tala sumir um að leggja embættið niður. Það væri álíka óviturlegt og að leggja nið- ur útgerð og hætta að veiða fiskinn í sjónum. Með því að virkja Bessastaði gæti forseta- embættið lagt hornstein að nýjum atvinnuvegi sem gæti veitt þús- undum Íslendinga góð störf í framtíðinni, aflað milljarðatekna fyrir þjóðarbúið og virkað sem öfl- ug vítamínsprauta í vaxandi ferða- þjónustu landsmanna. Styrmir Gunnarsson, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins, féll í þá gryfju í Silfri Egils á dög- unum að átta sig ekki á verðmæt- unum sem liggja í forsetaembætt- inu. Í þessum helsta pólitíska umræðuþætti RÚV hafa verið dregnir fram hinir ýmsu spek- ingar að fjalla um forsetaembættið og væntanlegar forsetakosningar, en frambjóðendur sjálfir virðast útilokaðir frá þátttöku. Auðvitað er það á skjön við nú- tímalýðræði að á Bessastöðum sitji alræðisvald yfir því hvort ein- stök mál fari í þjóðaratkvæði. Styrmir virðist ekki þekkja hug- myndafræði mína nægjanlega vel til að átta sig á að þetta má leysa með því að virkja Bessastaði. Þannig gætum við einnig komið á móts við tvo veigamikla þætti lýðræðisþróunar í drögum stjórnlagaráðs. Forsetinn gæti orðið hraðvirk leið undir núver- andi stjórnarskrá til að brúa gjána sem nú er komin á milli þings og þjóðar. Um leið skapast svigrúm til að endurskoða stjórnskipun landsins til lengri tíma með víð- tækari samstöðu. Lýðræðispóllinn í hugmynda- fræðinni virkjum Bessastaði færir valdið til fólksins með beinna lýð- ræði. Þjóðaratkvæðagreiðslur verði eðlilegur og sjálfsagður hlut- ur í lýðræðinu og forsetinn nýtir málskotsréttinn með skipulögðum hætti til að leiða þjóðina úr úreltri hugmyndafræði í nútímalegra og beinna lýðræðisform. Þjóð- aratkvæðagreiðslur um stærri deilumál eru virkasta formið til að brúa gjána milli þings og þjóðar til framtíðar og koma á sáttum í samfélaginu. Samhliða regluverki forseta um hvernig kjósendur kalla eftir þjóð- aratkvæðagreiðslu má með sama hætti skapa þjóðinni farveg um forsetaembættið að koma laga- frumvörpun til Alþingis. Ég talaði um þetta strax árið 1996 sem mik- ilvægan þátt til aukinnar lýðræð- isþróunar samhliða því að forset- inn skyldi nýta málskotsréttinn. Atvinnupóllinn í hugmyndafræð- inni virkjum Bessastaði er að skil- greina Ísland sem land heims- friðar. Á Íslandi verði í framtíðinni aðsetur alþjóðastofn- anna sem vinna að friðar- og lýð- ræðisþróun. Ísland er einstakt að því leyti að hér hefur ríkt friður í nærri þúsund ár og landsmenn hvorki borið vopn né rekið skipu- lagðan hernað. Það er þessi arf- leifð sem hefur fyllt menn erlendis hrifningu hvar sem ég hef kynnt Ísland sem land friðarins. Við sjáum nú þegar árangur af þessu starfi. Hingað komu heims- þekktir erlendir fræðimenn, m.a. höfundur handbóka Sameinuðu þjóðanna að friðarsamningum, til að tala fyrir hugmyndum mínum um að virkja forsetaembættið en fengu ekki áheyrn fjölmiðla. Einn- ig var Ísland nýlega valið sem heimaland friðarsúlu og minn- ismerkis um John Lennon. Nú er bara að halda áfram og ná al- mennri samstöðu þjóðarinnar um að forseti Íslands virki Bessastaði. Með því að sniðganga frambjóð- endur í helsta umræðuþætti fjöl- miðlanna er verið að viðhalda stöðnun forsetaembættisins og snúa kosningunum upp í hálfgerða fegurðarsamkeppni í stað þess að fjalla um raunverulega innviði embættisins og frambjóðenda. Það er grafalvarlegt mál ef fjölmiðla- fólk kemst upp með að blinda kjósendur með innihaldslausri froðu til að hertaka Bessastaði og byggja þar rólur og sandkassa. Hafi menn sem hafa atvinnu af því að fylgjast með þjóðmála- umræðu ekki meðtekið kjarnann í hugmyndafræðinni virkjum Bessa- staði í gegnum 16 ára baráttu for- setaframbjóðanda er það lýsandi dæmi um hvernig fjölmiðlunin hef- ur brugðist. ÁSTÞÓR MAGNÚSSON WIUM forsetaframbjóðandi. Virkjum þessa auðlind Frá Ástþóri Magnússyni Wium Ástþór Magnússon Senn fara í hönd kosningar, þar sem velja skal forseta til næstu fjögurra ára og því kjörið að bjóða kjósendum upp á að velja um önn- ur veigamikil mál, sem brunnið hafa á þjóðinni um áratugi, enda þessar kosningar ólíkar kosningum til alþingis, því öll atkvæði vega jafnt. Einnig má leiða líkur að því að fleiri muni koma á kjörstað, ef fleiri álitamál eru lögð fyrir þjóð- ina, má þar nefna t.d. eftirfarandi: 1. Aðskilnað trúfélaga og ríkis? 2. Landið verði eitt kjördæmi, sem myndi endanlega útrýma mis- skiptingu vægis atkvæða, enda er það brot á stjórnarskrá að mis- muna fólki eftir búsetu, svo og myndi spilling í kringum kjör- dæmapot heyra sögunni til. 3. Stjórnmálamenn og æðstu embættismenn ásamt forseta myndu einungis geta setið í átta ár (tvö kjörtímabil). 4. Maður kosinn á löggjafarþing geti ekki verið æðsti yfirmaður framkvæmdavalds, enda er það brot á stjórnarskrá og felur í sér völd og þar með spillingu. 5. Banna lausagöngu grasbíta, enda tíðkast það í öllum vestræn- um siðmenntuðum löndum. Nú æðir tæknin áfram og flestir komnir með rafræn gögn, auðkenn- islykla og pin-númer þannig að auðvelt ætti að vera að auka lýð- ræðið í framtíð með því að leyfa fólki að nýta sér þessa tækni til að fá fram vilja þjóðarinnar, enda má benda á að um 93% af skatt- skýrslum eru send inn rafrænt, þannig að þessir eldveggir (raf- rænu gögn) ættu að vera fyllilega öruggir. Vona að ofanritað fái hljómgrunn hjá þeim, sem útbúa kjörseðla, en þetta myndi stórauka lýðræði í landi með elsta alþing á Vest- urlöndum. RAGNA GARÐARSDÓTTIR, húsmóðir. Nýtum betur forsetakosningarnar Frá Rögnu Garðarsdóttur Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.