Morgunblaðið - 17.05.2012, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
–– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið
gefur út sérblað
Ferðasumar 2012
ferðablað
innanlands
föstudaginn
25. maí.
Ferðablaðið mun veita
upplýsingar um hvern
landshluta fyrir sig og verður
aðgengilegt á mbl.is.
Því verður einnig dreift á
upplýsingamiðstöðvar
um land allt.
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 21. maí.
SÉ
RB
LA
Ð
Ferðasumar 2012
ferðablað innanlands
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Innanríkisráðuneytið, sem fer með
málefni sveitarfélaganna, hefur enn
til meðferðar kæru sem barst ráðu-
neytinu í júní í fyrra vegna samein-
inga leik- og grunnskóla í Reykjavík.
Sigríður Jónsdóttir, sem átti sæti í
foreldraráði leikskólans Fálkaborg-
ar í Breiðholti, sendi kæruna, að
fenginni leiðbeiningu frá umboðs-
manni Alþingis en þangað leitaði
hún fyrst í kjölfar þess að borgar-
stjórn samþykkt í apríl 2011 að ráð-
ast í fjölmargar sameiningar á leik-
og grunnskólum víða í borginni.
Sigríður kærði ákvörðun borgar-
innar í heild sinni. Hún telur að
borgin noti sameiningar til að ganga
framhjá lögum og ákvæðum þeirra
um skólastjórnendur, í þeim eina til-
gangi að ná niður launakostnaði.
„Ég er ósátt við hvað þetta mál
hefur tekið langan tíma. Kæran fór
inn í júní í fyrra og það átti fyrst að
koma úrskurður í janúar. Síðan þá
hefur alltaf verið að fresta þessu frá
mánuði til mánaðar og síðustu svör
voru þau að þetta myndi koma núna
í maí eða júní,“ segir Sigríður.
Hún telur að borgin fari framhjá
lögum með því að sameina nokkra
skóla undir einn skólastjóra. Sam-
kvæmt lögum skuli vera skólastjóri
við hvern leikskóla en borgin sé að
búa til einhvers konar klasaskóla
þar sem nokkrir skólar eru settir
undir eina stjórn. Ekki sé hins vegar
um neinn samrekstur að ræða, eins
og borgin hafi lagt málið fram, held-
ur hreina og klára sameiningu.
„Ef svo auðvelt var að sameina
skólastofnanir, hvers vegna var þá
verið að setja ákvæði um samrekst-
ur í lög árið 2008? Ákvæði um sam-
rekstur var sett inn sem undantekn-
ingarákvæði og neyðarúrræði en
núna eru klasaskólar orðnir norm-
ið.“
Sigríður er jafnframt ósátt við að
menntamálaráðuneytið hafi á sínum
tíma gefið grænt ljós á þessar sam-
einingar, án þess í raun að skilja inn-
tak þeirra og áður en foreldrar
fengu ráðrúm til að segja álit sitt,
sem sé þeirra lögbundni réttur
gegnum skóla- og foreldraráð.
Ekki hlustað á foreldra
„Mér finnst ámælisvert ef stjórn-
valdi er leyft að ganga framhjá gild-
andi lögum og af hverju lögin vernda
ekki skólastofnanir og nærsamfélög
þeirra. Það er ekkert hlustað á radd-
ir foreldra og við erum að sjá brott-
fall menntaðra leikskólakennara,“
segir Sigríður og telur sameining-
armálin í borginni vekja upp stórar
spurningar um hvaða opinberu
menntastefnu stjórnvöld vilja fylgja.
Í Reykjavík sé kominn langur ferill
niðurskurðar í leikskólanum, með
yfirvinnubanni, ráðningarbanni,
sameiningum og nú síðast hafi
neysluhlé kennara verið tekið af.
„Það er bara kraftaverk að enn
skuli vera einhverjir leikskólakenn-
arar starfandi í Reykjavík. Niður-
skurðurinn hefur til dæmis gert for-
eldrastarf nær ómögulegt þar sem
kennarar fá ekki að funda með for-
eldrum utan vinnutíma eða halda
námskeið,“ segir hún og fagnar
óvæntum stuðningi Samtaka at-
vinnulífsins, sem nýverið gerðu at-
hugasemdir við fjölda starfsdaga í
leikskólunum. Starfsdagarnir séu af-
leiðing niðurskurðarins þar sem
skólaundirbúningur megi ekki fara
fram utan skólatíma. Sigríður telur
þetta ekki það fyrirkomulag sem
leikskólakennarar og -stjórnendur
sjálfir vilja en eru nauðbeygðir til.
Enn beðið eftir úr-
skurði ráðuneytis
Foreldri leikskólabarna ósátt við seinagang í stjórnkerfinu
Morgunblaðið/Kristinn
Leikskólar Reykjavíkurborg hefur sameinað nokkra leik- og grunnskóla, yfirleitt í mikilli andstöðu við foreldra.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samband sveitarfélaga á Suð-
urnesjum hefur ekki óskað eftir lög-
banni á akstur Allrahanda á milli
Leifsstöðvar og Reykjavíkur.
Stjórnin vinnur að útboði almenn-
ingssamgangna en núverandi samn-
ingur, við Kynnisferðir, rennur út í
haust.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum
tóku við sérleyfisakstri á Suður-
nesjum, með samningum við ríkið,
og samþættu almenningssam-
göngum á vegum sveitarfélaganna.
Samið var við Kynnisferðir um
verkefnið en fyrirtækið hafði áður
annast flugrútuna. Voru þetta
fyrstu samningar landshluta-
samtaka við ríkið um almennings-
samgöngur.
Lagaákvæði styrkt
Innanríkisráðuneytið beitti sér
fyrir því að styrkja lagaákvæði,
þannig að hægt væri að semja við
samtök sveitarfélaga um allt land
um einkaleyfi til aksturs í einstökum
landshlutum og samþætta almenn-
ingssamgöngum. Slíkir samningar
hafa verið gerðir í nokkrum lands-
hlutum og hafa sveitarfélög tekið við
akstrinum, til dæmis á Suðurlandi
og Vesturlandi, þar sem Strætó
veitir aðstoð við skipulagningu
leiðakerfa og rekstur.
Tildrög þess að ríkið taldi sig
þurfa að styrkja lagaákvæðin er
akstur sem hópferðafyrirtækið
Allrahanda hóf að bjóða til og frá
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í sam-
keppni við Kynnisferðir. Það var tal-
ið grafa undan samningum um það
sem þá var rætt um sem sérleyfis-
akstur en nú er skilgreindur sem
akstur með einkaleyfi. Mótmæltu
ýmis samtök í ferðaþjónustu breyt-
ingunni. Allrahanda hefur haldið
akstrinum áfram og talið sig í fullum
rétti til þess. Stjórnandi hjá Allra-
handa lét í ljós það álit í grein sem
birtist í Morgunblaðinu í mars að
einkaleyfi til almenningssamgangna
stangaðist á við Evrópureglur um
almenna farþegaflutninga. Þá benti
hann á að fyrirtækið stundaði ekki
reglubundnar áætlunarferðir heldur
veitti ferðamönnum þjónustu sem
tæki mið af áætlunarflugi um Kefla-
víkurflugvöll.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum (SSS) gerði bókun um
miðjan mars þar sem samþykkt var
að óska eftir lögbanni á akstur
Allrahanda, á milli Reykjavíkur og
Leifsstöðvar. Berglind Krist-
insdóttir, framkvæmdastjóri SSS,
segir að ekki sé talið tímabært að
óska eftir lögbanni. Bendir hún á að
samningurinn við Kynnisferðir
renni út í lok október og unnið sé að
undirbúningi útboðs. Öllum gefist
kostur að taka þátt í þeirri sam-
keppni sem felist í útboði. Hún bæt-
ir því við að enginn vafi geti leikið á
um lögmæti samnings sem gerður
verði að afloknu útboði. Hann muni
grundvallast á nýju lögunum sem
kveði á um einkaleyfi til aksturs.
Ekki óskað eftir
lögbanni á flug-
stöðvarakstur
Einkaleyfið boðið út á næstunni
Morgunblaðið/Sverrir
Leifsstöð Sóst er eftir því að aka
farþegum til og frá flugstöðinni.
Eftirsótt verkefni
» Allrahanda heldur uppi sam-
keppni í akstri til og frá Leifs-
stöð.
» Samtök sveitarfélaga á
Suðurnesjum telja aksturinn
óheimilan.
Forsala miða á landsmót hesta-
manna sem fram fer í Víðidal í
Reykjavík í sumar gekk vel. Henni
er nú lokið. Fleiri miðar seldust en
áður hefur þekkst frá því Landsmót
ehf. tók við framkvæmd landsmóta.
Erlendir gestir landsmótsins hafa
ávallt skipulagt sig fram í tímann og
nýtt sér þau afsláttarkjör sem í boði
eru í forsölu. „Íslendingarnir hafa
oft verið lengi að taka við sér og
mikið hefur verið um að fólk sem
alltaf fer á landsmót hafi ekki nýtt
sér forsöluna. Við höfum náð til
þessa fólks núna. Auk þess fengum
við margar fyrirspurnir síðustu dag-
ana frá fólki sem er að koma á sitt
fyrsta landsmót. Það er gleðilegt að
ná til þessa jaðarhóps einnig,“ segir
Anna Lilja Pétursdóttir, verk-
efnastjóri hjá LH. Starfsmenn
landsmótsins leggja ekki í að spá
um gestafjöldann út frá aukinni for-
sölu. Reynslan sýnir að salan róast í
nokkra daga eftir að forsölu lýkur
og tekur síðan aftur við sér og
stendur fram á mót. Einnig er mikið
selt á mótinu sjálfu. Haraldur Örn
Gunnarsson framkvæmdastjóri seg-
ir að erfitt sé að bera forsöluna
saman við mótið í fyrra þar sem því
hafi verið frestað og margir geymt
miðana sem þeir keyptu árinu fyrr.
Unnið er að lokaundirbúningi á
mótssvæðinu. Dagskrá mótsins er
tilbúin og hliðardagskrá smám sam-
an að skýrast. helgi@mbl.is
Líflegri forsala en þekkst
hefur á landsmótum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Setning Fulltrúar hestamanna-
félaga ríða með íslenska fánann.
Unnið að undir-
búningi í Víðidal
Landsmót
» Landsmót hestamanna
verður haldið í Víðidal dagana
25. júní til 1. júlí.
» Verð á vikupassa er nú 18
þúsund kr. en félagsmenn í
hestamanna- og búnaðar-
félögum og viðskiptamenn N1
geta fengið afslætti. Lægsta
verð er 14 þúsund.
Borgarlögmaður hefur svarað
foreldrum í Hamra- og Húsa-
skóla í Grafarvogi, sem hafa
verið mjög ósáttir við samruna
unglingadeilda við Foldaskóla.
Vildu foreldrarnir að borgin
tæki mið af áliti menntamála-
ráðuneytisins um samrunann,
sem taldi undirbúningi við
ákvörðun borgarinnar hafa ver-
ið áfátt. Telur borgarlögmaður
að það álit ráðuneytisins sé
ekki bindandi fyrir borgina, en
vísar til þess að innanríkisráðu-
neytið eigi eftir að úrskurða um
málið.
Borgin svarar
foreldrum
SAMRUNI Í GRAFARVOGI