Morgunblaðið - 17.05.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Upplifun Slökun Endurhæfing
LSX 700
214 x 214 x 92 cm
4 - 5 manna
EXETER
214 x 214 x 92 cm
5 - 6 manna
VIÐ FUNDUM EKKI UPP
HUGMYNDINA, EN VIÐ
FULLKOMNUÐUM HANA
Fáðu meira fyrir
minna með Master
Spas nuddpottum, þar
sem gæði, ending og
vandaður frágangur
er til fyrirmyndar.
SOMERSET
168 x 214 x 82 cm
2 - 3 manna
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Hretið síðustu daga hefur verið
magnað. Vetur, sumar, vor og
haust, segir í kvæðinu, og þetta
hefur allt átt við í höfuðstað Norð-
urlands síðustu daga. Stundum var
meira að segja vetur fyrir hádegi
og sumar eftir mat.
Einn daginn var reyndar vetur
frá morgni til kvölds, en hásumar
daginn eftir. Svo smá haust, aftur
vetur og loks vor.
Sem betur fer var einhvers kon-
ar vor í gær, barna og unglinga
bæjarins vegna. Þau fjölmenntu
nefnilega í miðbæinn og skemmtu
þar gestum og gangandi með
margvíslegum hætti.
Ástæða barnafjöldans var
uppskeruhátíð leik- og grunnskóla
Akureyrar, sem skipulögð er í til-
efni 150 ára afmælis bæjarins.
Nemendur og kennarar leik- og
grunnskóla hafa lengi undirbúið há-
tíðina og listaverk, sem skreyta
bæinn.
Hjartavernd Norðurlands af-
henti í vikunni Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri (FSA) fullkomið ómtæki,
sem verður á svæfinga- og gjör-
gæsludeild.
Hjartalæknar sjúkrahússins
ákváðu að endurnýja ómtæki,
Hjartavernd Norðurlands gaf sjö
milljónir til kaupanna, en það sem
upp á vantaði kom frá gjafasjóði
hjartalækninga sem hefur verið til í
nokkur ár. Tækið, sem er frá Gene-
ral Electric, kostaði í heild 11 millj-
ónir.
Hannes Sigurðsson, for-
stöðumaður Sjónlistamiðstöðv-
arinnar á Akureyri, segir að
„markaðsfróðir menn með vit á nú-
tímalegum auglýsingaaðferðum“
telji að umfjöllun um kaup mið-
stöðvarinnar á plastmáli með vara-
lit forsætisráðherra jafngildi 35
milljóna króna auglýsingaherferð
fyrir hina nýju miðstöð. Þetta kem-
ur fram á heimasíðu miðstöðv-
arinnar.
Hannes er auðvitað ánægður
með þetta. „Það verður að teljast
harla góð ávöxtun á 105 þúsund
krónum, sem runnu allar til lang-
veikra barna (þótt mörgum sé
greinilega alveg sama um það).“
Sýningin Syntagma hefst í
Sjónlistamiðstöðinni á laugardag og
Hannes getur þess að í tvo daga,
laugardag og sunnudag, verði hið
fræga mál með varalit Jóhönnu
Sigurðardóttur til sýnis.
Hægt verður að kaupa „einstök
plaköt af tvöfalda plastmálinu í
tengslum við Syntagma, sem prent-
uð verða að hámarki í 333 tölusett-
um og „árituðum“ eintökum. Lítur
sjónlistastjóri svo á að um fjölföld-
un sé að ræða á upprunalega lista-
verkinu með varalitafari forsætis-
ráðherrans og efast ekki eitt
andartak um að þetta sé bæði
höggheld og afskaplega eiguleg
fjárfesting. Þessu máli er langt frá
því að vera lokið. Það er ekki
dautt, heldur sprelllifandi,“ segir
Hannes.
Árleg Vorsýning Myndlistaskól-
ans á Akureyri hefst í dag í hús-
næði skólans við Kaupvangsstræti.
Sýnd verða verk nemenda forn-
ámsdeildar, listhönnunar- og fag-
urlistadeildar. Þar gefur að líta
sýnishorn af því helsta sem nem-
endur í frjálsri myndlist og graf-
ískri hönnun hafa verið að fást við
á þessu skólaári.
Háskólinn á Akureyri, Rann-
sókna- og þróunarmiðstöð skólans
og Byggðastofnun halda næsta
mánudag málþing þar sem kynntar
verða ESPON-rannsóknir á sviði
svæða- og byggðamála.
ESPON er ein af svæða- eða
byggðatengdu aðgerðaráætlunum
Evrópusambandsins.
Auk Íslendinga eru fræðimenn
frá Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Pól-
landi og Austurríki meðal fram-
sögumanna. Málþingið fer fram á
ensku. Það er öllum opið og er
þátttökugjald ekkert. Tilkynna þarf
þátttöku í síðasta lagi á morgun.
Kiriyama Family leikur á
Græna hattinum annað kvöld
ásamt Boogie Trouble.
Hátíðarútgáfa af skjaldar-
merki Akureyrar, prjónað og hekl-
að úr 3.107 bútum, var meðal verka
á árlegri handverkssýningu Fé-
lagsstarfs eldri borgara í þjónustu-
og félagsmiðstöðinni í Víðilundi,
sem staðið hefur yfir upp á síðkast-
ið. Verkið var gert í tilefni af 150
ára afmæli Akureyrar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman á Ráðhústorgi Börn úr Lundarskóla syngja á Ráðhústorgi í gærmorgun á uppskeruhátíðinni. Sumir höfðu
annað að gera en taka undir í söngnum, til dæmis að leika sér undir sviðinu og skemmtu sér ekki síður en aðrir!
Hannes ánægður
með ávöxtunina