Morgunblaðið - 17.05.2012, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
Hjólaðu í vinnuna
16“ 16“
CUBE AIM
Verð: 89.990 kr.
Maí tilboð hjólað í vinnuna
75.990 kr.
14“-16“-18“-20“-22“
Álhjól, Shimano gírbúnaður,
24 gíra, V-bremsur,
þyngd 13,5 kg.
CUBE ANALOG
Verð: 109.990 kr.
Maí tilboð hjólað í vinnuna
93.990 kr.
14“-16“-18“-20“-22“
Álhjól, Shimano gírbúnaður,
27 gíra, V-bremsur,
þyngd 13,3 kg.
CUBE Hybrid LTD CLS
Verð: 113.990 kr.
Maí tilboð hjólað í vinnuna
96.990 kr.
46, 50, 54, 58 og 62cm
Álstell lite trekking Cross,
Shimano gírbúnaður, 24 gíra,
V-bremsur, þyngd 13,1 kg. Hluti af Team Cube liðinueftir síðasta CUBE prolouge
Minnum einnig á önnur tilboð á heimasíðu TRI
Arabískir fjöl-
miðlar áttu í
nokkrum vand-
ræðum með að
flytja fréttir af út-
nefningu nýs for-
sætisráðherra
Frakklands,
Jean-Marc Ay-
rault, en þegar
eftirnafn hans er
umritað yfir á ar-
abísku verður úr heiti yfir kynfæri
karlmanna á þó nokkrum arabískum
mállýskum.
Vandræðin stóðu yfir í nokkrar
klukkustundir eftir útnefninguna og
gripu blaðamenn m.a. til þess ráðs
að kalla hann einfaldlega „Aro“. Það
var síðan franska utanríkisráðu-
neytið sem kom til bjargar og gaf út
tilskipun sem leyfir að nafnið sé um-
ritað eins og það er skrifað.
Dónalegur
ráðherra
Jean-Marc
Ayrault
Frakkland
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Ratko Mladic, fyrrum yfirmaður her-
afla Bosníu-Serba, klappaði saman
höndum í kaldhæðni þegar dómarar
Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag
gengu inn í dómsal í gær, þar sem
réttað verður yfir Mladic sem hefur
verið ákærður fyrir stríðsglæpi,
þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyn-
inu. Mladic, sem hefur lýst sig sak-
lausan af ákærunum, sýndi enga iðr-
un við upphaf réttarhaldanna en
ögraði þvert á móti fórnarlömbum
Bosníustríðsins og ættingjum þeirra
sem viðstaddir voru í salnum og fyrir
utan dómshúsið. Lék hann það að
skera á háls með því að draga hönd
sína þvert yfir háls sinn á meðan
hann horfði í átt að áhorfendabekkj-
unum, samkvæmt fréttum CNN.
Skipulagði þjóðarmorð
Ákæran yfir Mladic, sem er 70 ára
gamall, er í 11 liðum og snýr að glæp-
um sem hann er sagður hafa framið
eða staðið fyrir í stríðinu sem stóð yf-
ir frá 1992 til 1995 og lagði um 100
þúsund manns í valinn og gerði 2,2
milljónir heimilislausar. Mladic er
meðal annars gefið að sök að hafa
borið ábyrgð á dauða um 8 þúsund
múslimskra manna og drengja sem
voru myrtir af hersveitum Bosníu-
Serba í Srebrenica í júlí 1995, sem þá
var griðasvæði undir stjórn Samein-
uðu þjóðanna. Þá er hann sagður
ábyrgur fyrir 44 mánaða löngu um-
sátri um Sarajevo, þar sem spreng-
ingar og árásir úr launsátri urðu um
10 þúsund manns að bana.
„Reif úr okkur hjörtun“
Saksóknari SÞ í málinu, Dermot
Groome, sagði við réttarhöldin í gær
að þjóðernishreinsanirnar hefðu ekki
verið „hliðarafurð“ stríðsins heldur
hefði Mladic haft þær að markmiði.
Hóf hann málflutning sinn með því
að sýna kort sem sýndu hvernig
dreifing þjóðarbrota í landinu hefði
breyst í stríðinu. Sagði hann að
fyrsta markmiðið hefði verið að að-
greina Serba frá Bosníumönnum og
Króötum. „Þúsundir fjölskyldna
voru neyddar af landi sínu,“ sagði
Groome m.a. og lýsti því hvernig aðr-
ir íbúar landsins en Serbar hefðu
verið teknir af lífi og t.d. neyddir af
hersveitum Mladic til að kasta sér
fram af brú.
„Ratko Mladic reif úr okkur hjört-
un,“ sagði Fatima Mujic, sem missti
alla karlkyns ættingja sína í Srebre-
nica, í Sarajevo í gær. „Ákæruvaldið
verður að segja sögu og sagan er að
sjálfsögðu ljót. Okkar verkefni er að
sýna fram á að það sem þeir segja er
ekki satt,“ sagði hins vegar Branko
Lukic, verjandi Mladic, við lok dags í
gær.
Sýndi enga iðrun
Réttarhöld yfir „slátraranum frá Bosníu“ hafin Ákærður
fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð Ögraði fórnarlömbunum
AFP
Glæpir Saksóknarinn sagðist myndu leggja fram sönnunargögn sem sýndu hvernig Mladic hefði átt þátt í þeim
stríðsglæpum sem framdir voru í Bosníustríðinu. Verði hann fundinn sekur bíður hans lífstíðarfangelsi.
Ratko Mladic
Fyrrum yfir-
maður herafla
Bosníu-Serba
er ákærður fyrir
stríðsglæpi og
þjóðarmorð
Hersveitir Mladic ráðast inn á
griðasvæði undir stjórn Sameinuðu
þjóðanna í Srebrenica og myrða
um 8 þúsund múslima
1995
12. mars 1943
Fæddur í Bosníu
1991
Skipuleggur skæruliðahópa serb-
neskra aðskilnaðarsinna í Króatíu
1992
Gerður að yfirmanni herafla
Bosníu-Serba
1996
Alþjóðaglæpadómstóllinn gefur út
handtökuskipun á hendur Mladic
fyrir glæpi gegn mannkyninu, stríðs-
glæpi og hlutdeild í þjóðarmorði
Maí 2011
Handtekinn í Serbíu
Neitar ásökunum um þjóðarmorð fyrir
dómstóli SÞ og segist alvarlega veikur
Júní 2011
Mannréttindadómstóll Evrópu tók í
gær fyrir mál þýsks ríkisborgara
sem segir bandarísku leyniþjón-
ustuna, CIA, hafa numið sig á brott í
Makedóníu árið 2003 og flogið með
sig til Afganistan þar sem hann hafi
verið pyntaður.
Khaled el-Masri, 48 ára, segist
hafa verið numinn á brott af útsend-
urum CIA þegar hann var í fríi í
Skopje en hann hafi í kjölfarið verið
fluttur í fangelsi í Afganistan þar
sem hann hafi verið yfirheyrður á
hrottafenginn hátt. Masri segist
hafa legið undir grun um að tengjast
al-Kaída en honum hafi að lokum
verið sleppt án ákæru eftir fimm
mánuði og skilað aftur til Þýska-
lands.
Niðurstöður athugana á vegum
Evrópuráðsins renna stoðum undir
frásögn Masri sem telur sig hafa
vera fórnarlamb fangaflutninga-
áætlunar leyniþjónustunnar. Hann
höfðar málið á hendur Makedóníu,
sem hann segir hafa greitt fyrir
brottnámi sínu, en stjórnvöld í bæði
Þýskalandi og Bandaríkjunum hafa
neitað að taka ásakanir hans til um-
fjöllunar.
Brottnuminn og
pyntaður af CIA
Málið hjá Mannréttindadómstólnum
Reuters
Fangi Masri höfðar málið á hendur
stjórnvöldum í Makedóníu.
Forsætisráðherra Úkraínu, My-
kola Azarov, sagði í gær að Júlíu
Tymoshenko, fyrrverandi forsætis-
ráðherra landsins sem nú afplánar
sjö ára fangelsisdóm fyrir valda-
misnotkun, fengi bestu læknisað-
stoð sem völ væri á í Úkraínu.
Dómurinn yfir Tymoshenko og
meðferð hennar í fangelsinu hafa
verið harðlega gagnrýnd en Az-
arov sagði Tymonshenko, fyrrver-
andi leiðtoga appelsínugulu bylt-
ingarinnar, leika píslarvott í
rógsherferð gegn stjórnvöldum í
Kíev.
Málið hefur valdið nokkrum
stirðleika í samskiptum Úkraínu
og Evrópusambandsins en Azarov
sagði það tímabundið vandamál og
ítrekaði að stjórnvöld væru ákveð-
in í því að halda áfram vinnu við að
koma á umbótum í landinu.
AFP
Frestað Stuðningsmenn Tymoshenko fjölmenntu fyrir utan dómshúsið í
Kíev á þriðjudag þar sem fyrirtöku á áfrýjun hennar var frestað til 26. júní.
Tymoshenko fái
bestu læknisaðstoð