Morgunblaðið - 17.05.2012, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Eins og spáðvar á þess-um vett-
vangi, strax eftir
grísku kosning-
arnar, verða Grikk-
ir látnir kjósa aft-
ur. Enda hófst
áróðurinn eins og eftir skot úr
startbyssu eftir að ljóst varð að
undirlægjumenn höfðu ekki
lengur tryggan meirihluta í
gríska þinginu. Undirtónn
áróðursins gekk út á þá eymd
sem blasa myndi við Grikkjum,
ef síðustu kosningaúrslit yrðu
ekki snarlega leiðrétt.
Áróðurstilburðirnir nálg-
uðust lætin í íslenska rík-
isútvarpinu, þegar það ham-
aðist með yfirgengilegan
hræðsluáróður sinn í 24 tíma
þegar forseti hafði vísað Ice-
save í fyrsta sinn til þjóð-
arinnar. Í kjölfar áróð-
ursherferðar sinnar lét RÚV
svo gera skoðanakönnun sem
sýndi að meirihluti þjóðarinnar
ætlaði, þrátt fyrir allt, að sam-
þykkja Icesave. En þjóðin sá í
gegnum hræðsluáróðurinn, fyr-
irleit hlutleysisbrotin og hafn-
aði svikasamningunum með eft-
irminnilegum hætti.
Það er verðugt fordæmi þótt
staðan sé ekki með öllu sam-
bærileg. En hinu má ekki
gleyma, að Grikkir hafa hlotið
slíkar barsmíðar frá „bræðra-
þjóðunum í ESB“ að sjálfs-
traust þeirra er í molum og því
alls ekki útilokað að þeir láti
segjast. Enda blasir við þeim
ekki aðeins auðn og eymd, sam-
kvæmt áróðrinum, ef þeir und-
irgangist ekki allar kvaðir,
heldur muni tilveran, jafn öm-
urleg og hún er þegar orðin,
breytast í hreint helvíti.
Grikkjum er að vísu bannað
að fara úr evrunni samkvæmt
lögum ESB, sem eru öllum bók-
stöfum æðri á svæðinu. En það
yrði leyst með því að þvinga þá
úr sambandinu sjálfu, ef þeir
óhlýðnast áfram. Þá myndu
kjör þeirra versna í einu vet-
fangi um svo sem 50–80 prósent
samkvæmt spunameisturum
áróðursins.
En öfugt við áróðurinn, sem
hafður var uppi hér á landi
vegna Icesave, þá er þessi ekki
alveg innantómur, þótt óhugn-
anlegur sé eins og hinn. Því
varla er um það deilt að Grikk-
land tæki efnahagslega dýfu í
dýpri kantinum við brottför út
af myntsvæðinu. En munurinn
er þó sá, að með nýrri mynt,
sinni eigin, myndi landið losna
úr hálfrar aldar þrældómi og
ánauð við erlenda banka og er-
lent vald eins og núgildandi
samningar skammta þeim.
Þjóðin yrði snarlega sam-
keppnishæf og það myndi til-
tölulega fljótt vega
á móti þrenging-
unum. Grikkir
fengju með öðrum
orðum tækifæri til
að vinna sig úr
vandanum á miklu
skemmri tíma en
ella.
Áróðurinn hefur fram til
þessa haft þau áhrif að meiri-
hluti Grikkja telur enn að land-
ið verði að vera áfram innan
evrusvæðis, eigi það að eiga
einhverja von, ef marka má
fréttaskýrendur. En kannski
eru veðrabrigði núna, því
skyndilega er eins og áróð-
urinn, sem átti að skelfa Grikki,
sé farinn að valda ugg hjá áróð-
ursmeisturunum sjálfum og
ekki síst valdhöfunum í Berlín.
Því að þótt hið dekkaða borð
væri hugsað til þess að Grikkir
misstu lystina við að horfa á
það sem þeim yrði boðið upp á
þumbist þeir við að reyna að
stjórna sér sjálfir, þá er farið að
renna upp fyrir ráðamönnum
Evrópu að kræsingarnar gætu
einnig og ekki síður staðið í
þeim, sem bjóða upp á þær, en
fulltrúum hinnar hrjáðu þjóðar.
Það er vegna þess sem gert hef-
ur verið þegar af hálfu neyð-
arsjóða, seðlabanka evrunnar
og einstakra ríkja hennar upp á
síðkastið í viðleitni við að forð-
ast hrun evrunnar.
Reiknimeistarar hafa sem
sagt komist að þeirri nið-
urstöðu að brottrekstur
Grikkja út af evrusvæðinu
myndi kosta evruþjóðirnar
óhemju fé. Og skellurinn yrði
fyrst og fremst Þjóðverja og
Frakka og það eru einu löndin
sem hafa raunverulegan at-
kvæðisrétt á evrusvæðinu. Tal-
andi jakkaföt og gráar dragtir á
vegum hinna þjóðanna greiða
atkvæði til málamynda og upp á
punt. Forrétturinn, það sem
fellur til eftir fyrsta skellinn,
við fréttirnar um að Grikkir
væru farnir fyrir borð, myndi
kosta 155 milljarða evra sam-
kvæmt útreikningunum. En
þegar kemur að aðalréttinum
eru tölurnar komnar í billjónir
evra, að mati reiknimeist-
aranna. Því augljóst má vera að
eftir þann atburð muni efna-
hagur Belgíu, Frakklands, Ír-
lands, Ítalíu, Portúgals og
Spánar ekki kemba hærurnar.
Og hvar stendur Þýskaland
sjálft þá? Kannski rennur upp
fyrir Grikkjum í tæka tíð að
jafnvel þeir sem glaðbeittastir
hóta öðrum hrakförum og
skelfingu eru ekki líklegir að
standa við slíkar hótanir ef þær
munu á endanum hitta þá sjálfa
verst fyrir. Og enn sannast að í
upphafi skyldu menn endinn
skoða.
Nú segja sérfróðir
að hræðsluáróður
brusselmanna
sé sennilega
bjúgverpill}
Skamma stund verður
hönd höggi fegin
H
ér áður fyrr voru börn fædd til að
létta undir með fjölskyldunni.
Störf biðu þeirra og skyldur til
að leggja sitt að mörkum til fjöl-
skyldunnar. Að vera góður við
börnin var ekkert sérstakt atriði. Það sem
skipti máli var að ala upp vel vinnuhæfan ein-
stakling sem myndi verða til gagns í lífsbarátt-
unni. Í umræðum með sálfræðingi í skóla átta
ára fósturbarns míns orðaði hún það þannig að
í dag væru börn meira eins og gæluverkefni.
Þau eru böðuð í ást og umhyggju og upplifa sig
sem miðpunkt alheimsins enda eru þau mið-
punktur athygli og ástar foreldra sinna. Svo
þegar á að koma öllum þessum fallegustu,
bestu og bráðgáfuðustu börnum saman í einn
bekk og þau átta sig á því að þau eru ekki mið-
punktur athyglinnar alls staðar, alltaf, getur
það verið ákveðið sjokk. Mér varð hugsað til foreldra
minna og afa míns og baráttunnar sem þau þurftu að
ganga í gegnum. Faðir minn fór að heiman tólf ára en um
þann aldur var ég enn að leika mér að tindátum. Hann var
kominn í fullt starf sem sjómaður fjórtán ára en um þann
aldur hafði ég mjög óljósa hugmynd um hvað vinna væri,
hvað þá fullt starf. Nálægð okkar við barnadauða, hung-
urdauða, gríðarlega fátækt auk skorts á tækifærum er svo
mikil að flest okkar getum þreifað á henni í gegnum lífs-
sögur foreldranna eða afa og ömmu. En við getum ekki
þreifað á henni í samtíma okkar. Þrátt fyrir hrunið og
harmsögur fólks í samtímanum þá ná þær aldrei að verða
almennar enda þjóðfélag okkar bæði ríkt og fullt af tæki-
færum. Þótt fólk lendi alltaf í hremmingum og
fátækt verði alltaf til þá er hún hvorki almenn
né svo svakaleg að vofa hungurdauðans ráfi
hér um götur. Samt er ekkert minna um kvart
og kvein í dag en var, sumir vilja meina að það
sé meira. Sársaukaþröskuldurinn hefur hækk-
að verulega sem er kannski eðlilegt þegar
meirihluti barna er alinn upp við það að vera
miðpunktur alheimsins. Hvert þeirra hefur
þær skyldur helst í hávegum að láta drauma
sína rætast. Við búum í barngóðu velmeg-
unarþjóðfélagi og það er vel. Augljóst er að
fórnfýsi og þörf fyrir að leggja sitt af mörkum
fyrir samfélagið hefur minnkað, en hugsanlega
fylgja þessu líka kostir. Í greiningu á Vest-
urlöndum er oft bent á að flest þeirra eru kom-
in með mjög takmarkaða getu til stríðsrekst-
urs. Ástæðan er sú að foreldrar eiga orðið ekki
fleiri en eitt til þrjú börn og það er ekkert foreldri sem á
bara eitt barn tilbúið til að senda það á vígvöllinn. Þolmörk
þjóða fyrir mannfalli er orðið mjög lítið. Það var áhugavert
að vera í Írak og finna það á fréttamönnum frá Bandaríkj-
unum að stríð sem hafði kostað þá nokkur þúsund her-
menn, svipað og féll á nokkrum dögum í seinni heimsstyrj-
öldinni, var komið að þolmörkum bandarísku þjóðarinnar.
En þetta er kostur, enda er minna um stríð í heiminum í
dag en var, þótt það sé meira fjallað um þau. Mannréttindi
eru meira í hávegum höfð á Vesturlöndum þótt þau spili
litla rullu utan þeirra og nú er það algengara að fólk fæðir
börn í heiminn til að láta þeirra drauma rætast en ekki til
að láta sína drauma rætast. borkur@mbl.is
Börkur
Gunnarsson
Pistill
Stórbreytt samfélag
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
V
erðbólguhorfur til
skamms tíma hafa
versnað og útlit er fyrir
að verðbólga verði rúm-
lega 6% á öðrum árs-
fjórðungi og haldist fyrir ofan 5½% út
árið. Spáð er að meðalverðbólga á
þessu ári verði 6%, sem er tæplega
1½ prósentu meira en í síðustu spá,“
segir í Peningamálum Seðlabankans,
sem birt voru í gær.
Þar birtist dekkri verðbólguspá en
sett var fram í byrjun ársins og segja
sérfræðingar bankans ennfremur að
einföld tölfræðilíkön bendi til enn
þrálátari verðbólgu og að hún haldist
um og yfir 6% út árið. Ársverðbólga
hefur haldist fyrir ofan 5% síðan sum-
arið 2011 og verðbólguhorfur hafa
versnað frá því sem var í upphafi
þessa árs, ekki síst vegna veikingar
krónunnar.
Seðlabankinn gerir ekki ráð fyrir
því að verðbólga verði komin niður í
2,5% markmið Seðlabankans fyrr en í
lok árs 2014. Verðbólguspá Seðla-
bankans fyrir næstu mánuði og miss-
eri er svartsýnni en fram kom hjá
ASÍ í fyrradag en ASÍ gerir ráð fyrir
5,1% verðbólgu á þessu ári í nýbirtri
spá sinni.
Nú telja sérfræðingar Seðlabank-
ans að á öðrum ársfjórðungi verði
verðbólgan um 6%, sem er ríflega
prósentu meira en spáð var í febrúar.
„Samkvæmt spánni mun hún lítið
hjaðna það sem eftir lifir ársins, ólíkt
því sem gert var ráð fyrir í febrúar,
og verða töluvert meiri en áður var
spáð fram á árið 2014. Spila þar sam-
an nokkru veikara gengi krónunnar,
heldur minni slaki í þjóðarbúinu,
hækkandi verðbólguvæntingar og
mikil innbyggð tregða í verðbólg-
unni,“ segir í Peningamálum.
Mikil óvissa er um þróun gengis
krónunnar á næstu misserum og
óvissan fer vaxandi um hvað verður
þegar forsendur kjarasamninga
koma til endurskoðunar í byrjun
næsta árs. Seðlabankinn bendir á að
verði samningum sagt upp og/eða
samið um meiri launahækkanir sé
hætta á að verðbólguþrýstingur verði
enn meiri en reiknað er með í
grunnspá bankans.
Verði samið um meiri launahækk-
anir sé hætt við að kostnaðarhækk-
unum verði velt út í verðlagið og ef
framleiðniaukning verður ekki undir-
staða meiri launahækkana munu þær
svo auka þrýsting á gengi krónunnar
til lækkunar.
Fjárfestingar ná sér ekki á skrið
Seðlabankinn spáir nú 2,6% hag-
vexti á þessu ári og megi rekja það
bæði til aukinnar einkaneyslu og fjár-
munamyndunar. Nýjar hagspár bæði
Seðlabankans og ASÍ bera með sér
að áfram muni landsmenn búa við litl-
ar fjárfestingar. Seðlabankinn segir
að fjárfestingarstigið hafi verið 14,1%
yfir seinasta ár. Þetta er afar lágt
hlutfall samanborið við það sem eðli-
legt hefur talist á umliðnum árum.
Þrjátíu ára meðaltal hlutfallsins er
20,8%.
„Í spánni er áætlað að fjárfesting í
heild aukist um 12,4% í ár og um 5,7%
á því næsta. Í lok spátímans er reikn-
að með að hlutur fjárfestingar í lands-
framleiðslunni nálgist langtímameð-
altal sitt og verði um 18% um mitt ár
2015,“ segir í nýrri spá bankans.
Fjárfesting hins opinbera, ríkis og
sveitarfélaga, dregst enn saman í ár
skv. spá bankans og nær sögulegu
lágmarki. ,,Sé litið til þriggja ára fjár-
hagsáætlana stærstu sveitarfélag-
anna virðist sem fjárfesting þeirra
muni áfram dragast saman í ár þrátt
fyrir mikinn samdrátt á síðasta ári.“
Hraðastillir verðbólg-
unnar fastur í 5-6%?
Morgunblaðið/Kristinn
Framkvæmdir Fjárfestingar ríkis og sveitarfélaga halda áfram að dragast
saman í ár og ná sögulegu lágmarki, samkvæmt spá Seðlabankans.
Seðlabankinn er farinn að gera
reglubundnar kannanir á verð-
bólguvæntingum aðila á mark-
aði. Fram kemur í Peninga-
málum bankans að ef miðað er
við miðgildi svara í könnun
sem gerð var í byrjun maí sýna
niðurstöðurnar að markaðs-
aðilar vænta þess að árs-
verðbólga verði 5½% eftir eitt
ár og einnig um 5½% eftir tvö
ár. „Jafnframt gera þeir ráð
fyrir að verðbólga verði 5,8% á
fjórða ársfjórðungi þessa árs.
Niðurstöður voru svipaðar ef
horft var lengra fram í tímann
þar sem markaðsaðilar gera
ráð fyrir að verðbólga verði að
meðaltali u.þ.b. 5% bæði á
næstu fimm árum og á næstu
tíu árum. Verðbólguvæntingar
þeirra eru nokkru hærri en í
síðustu könnun í febrúar,“ seg-
ir í umfjöllun um niðurstöð-
urnar.
Föst yfir 5%
næstu árin?
KÖNNUN SEÐLABANKANS