Morgunblaðið - 17.05.2012, Side 29
Tengslin við Hrefnu styrkt-
ust svo enn frekar þegar hún
giftist frænda mínum, Hendrik
Rasmus, en móðir mín, Líney
Bentsdóttir, og Henni voru
systkinabörn.
Svo skemmtilega vildi til að
Hrefna og Henni bjuggu næst-
um alla sína hjúskapartíð í
næsta húsi við fjölskyldu mína í
Kópavogi. Tíðar heimsóknir
Hrefnu til foreldra minna voru
alltaf uppfræðandi og skemmti-
legar. Hrefna sem hafði alist
upp á Reykhólum var mjög fróð
um lífið í sveitinni og þær
mamma skemmtu sér við að
rifja upp mögnuð ævintýri lang-
afa míns Bjarna Þórðarsonar,
fyrrverandi stórbónda á Reyk-
hólum.
Seinna þegar móðir mín var
komin á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð reyndist
Hrefna henni einstaklega vel.
Hún heimsótti hana reglulega
þó að hún væri sjálf farin að
finna fyrir ýmsum líkamlegum
kvillum. Iðulega var hún
fótgangandi því strætó tók
hún helst ekki nema í mjög
slæmri færð.
Hrefna var ávallt boðin og
búin að aðstoða foreldra mína í
hvívetna á ævikvöldi þeirra.
Fyrir þá nærveru og hlýju vin-
áttu sem hún sýndi þeim er
fjölskylda mín afar þakklát.
Ég votta börnum Hrefnu,
þeim Steinunni, Hugo og Tóm-
asi, og fjölskyldum þeirra inni-
lega samúð.
Gísli Gestsson.
Í dag kveð ég hinsta sinni
vinkonu mína Hrefnu Þórarins-
dóttur Rasmus. Hrefna var
merkileg kona sem kenndi mér
margt. Það sem lýsti hennar
persónu einna best var heið-
arleiki, trúmennska og endalaus
dugnaður, en það var líka ávallt
stutt í húmorinn og hjartahlýrri
manneskja var vandfundin.
Allt sem Hrefna gerði var vel
gert. Hún steikti bestu kleinur í
heimi, bjó til bestu rabarbar-
asultu í heimi og rifsberja-
hlaupið sem hún gaukaði að
móður minni var eiginlega það
eina í ísskápnum sem alls ekki
mátti snerta nema á hátíðisdög-
um. Það gat nefnilega enginn
annar en Hrefna búið til hlaup
sem var „almennilegt hlaup“.
Hrefna var líka mikil sauma-
kona en í mínum huga var að-
alsmerki hennar þó vettlingarn-
ir sem hún heklaði svo listilega.
Alla okkar barnæsku sá Hrefna
okkur systkinunum – og fjölda-
mörgum öðrum börnum – fyrir
vettlingum. Reyndar var það
svo að í Kópavoginum í gamla
daga var hægt að sjá það á
vettlingunum hvort barn hefði
einhver tengsl við Hrefnu eður
ei, því öll börn sem Hrefna
þekkti fengu vettlinga sem voru
engu öðru líkir, og handbragðið
var einstakt.
Ávallt var gaman að koma til
Hrefnu í Barmahlíðina. Hin
seinni ár skapaðist sú venja að
ég heimsótti hana um hádeg-
isbilið á aðfangadag og þá var
mikið spjallað. Hún sagði mér
frá gamalli tíð en einnig af
börnunum sínum og barnabörn-
um sem hún var afar stolt af.
Um leið og ég þakka Hrefnu
fyrir allt vil ég votta börnum
hennar þeim Steinunni, Tómasi
og Húgó, mökum þeirra og
barnabörnum mína dýpstu sam-
úð.
Blessuð sé minning einstakr-
ar konu.
Ragnheiður Gísladóttir.
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
✝ Svandís Jóns-dóttir Witch
fæddist í Breið-
holti 5. júní 1932.
Hún lést 4. maí sl.
Hún var dóttir
hjónanna Katrínar
Eyjólfsdóttur, f.
18. janúar 1891,
og Jóns Ingimars-
sonar, f. 16. apríl
1894. Hún var
yngst af 7 börnum
þeirra. Systkini hennar voru:
Eyjólfur, f. 1920, látinn, Rann-
veig, f. 1922, látin, Guðrún, f.
1923, látin, Ingimar Guð-
mundur, f. 1925, Aðalsteinn
Valdimar, f. 1927, látinn, Tóm-
as, f. 1929.
Foreldrar hennar voru
bændur í Breiðholti 1925 til
1936. Hún gekk í Miðbæj-
arskólann. Fór síðan í Kvenna-
skólann og þaðan í Mennta-
skólann í Reykjavík. Eftir
stúdentspróf vann hún við
upp leikritið Belinda í Hafn-
arfirði. Hún þýddi leikritið og
lék aðalhlutverkið og fékk
góða dóma. Þau unnu hér um
tíma og gengu í hjónaband
hinn 1. júní 1963.
Skömmu síðar fluttu þau til
London og bjuggu þar síðan.
Hún var skrifstofustjóri hjá
flutningafyrirtæki þar til hún
komst á eftirlaun.
Raymond Herbert Witch
fæddist í Hampton Court 6.
október 1927.
Hann lærði leiklist í
R.A.D.A. og starfaði við leik-
list alla ævi.
Hann lék í fjölmörgum leik-
ritum, kvikmyndum og í yfir
50 sjónvarpsþáttum. Hann lést
8. desember 2009. Þau voru
barnlaus.
Minningarathöfn um þau fer
fram í dag, 17. maí 2012, í
Kópavogskirkju kl. 11. Á sama
tíma fer útför Svandísar fram í
London.
skrifstofustörf hjá Verslun O.
Ellingsen um tíma.
Síðan fór hún í leiklistarnám
í Leiklistarskóla Þjóðleikhúss-
ins og útskrifaðist þaðan. Þá
tóku hún og félagar hennar sig
saman og ferðuðust um landið
og sýndu leikrit víða um land.
Síðan fór hún til London og
stundaði nám við R.A.D.A. um
tíma. Þar kynntist hún Ray-
mond Herbert Witch og kom
með honum heim. Hann setti
Svandís Jónsdóttir föðursystir
mín er látin.
Hún var með Alzheimer í 15
ár. Þakka má fyrir að hún hafi nú
fengið hvíldina. Ég man eftir
Svönu, eins og hún var alltaf köll-
uð sem barn, á Spítalastíg hjá
ömmu og afa. Þegar hún fór í
leiklistarskólann komu félagar
hennar mjög oft með henni heim.
Það var mjög gaman fyrir smá-
skjátu að fá að hitta og kynnast
leikurum framtíðarinnar.
Hún fór til London í fram-
haldsnám og kom heim með til-
vonandi manninn sinn Raymond
Witch. Hún þýddi leikritið Bel-
inda sem er um mállausa og
heyrnarlausa stúlku, hún lék
sjálf Belindu og Ray, eins og
hann var alltaf kallaður, var leik-
stjóri. Ég fékk að fara og sjá
leikritið með ömmu og afa þá að-
eins 12 ára gömul og var það
mikil upplifun að fara í leikhús að
kvöldi.
Þau giftu sig 1. júní 1963 og
fluttu fljótlega út til London þar
sem hún vann skrifstofustörf hjá
flutningsfyrirtæki. Ray lék í
kvikmyndum, á leiksviði og í
ýmsum sjónvarpsþáttum, þar á
meðal var Onedin-skipafélagið
sem var sýnt hér á sínum tíma.
Árið 1972 fór ég fyrst til Lond-
on og bjó hjá þeim í viku og þá
kynntist ég þeim báðum aftur.
Nú gat ég talað við Ray sem ég
hafði ekki getað hér heima. Ég
fór nokkrar ferðir út og bjó hjá
þeim og það var mjög gaman að
vera með þeim. Alltaf var maður
velkominn og leið vel hjá þeim.
Ég man að fyrst þegar ég var
hjá þeim var Svana farin í vinnu
þegar ég vaknaði, hún fór af stað
kl. 6 á morgnana. Þá hafði Ray til
morgunmat, síðan fór ég í versl-
anir. Þegar heim kom vildi hann
sjá allt sem var í pokum. Ég tíndi
upp á borð og voru viðbrögðin
hjá honum „oj bara“ mér brá og
hélt að þetta væri bara drasl og
pakkaði saman. Þegar Svana
kom sagði ég henni frá þessu, þá
hló hún og sagði þetta þýðir flott
og vandað, þar með var því lokið.
Við hjónin fórum nær árlega
til London og alltaf til þeirra,
borðuðum hjá þeim eða við fór-
um saman út að borða. Eftir að
Svana fór á hjúkrunarheimili
héldum við áfram að fara til Ray
og svo með honum til Svönu.
Fyrst þegar við fórum til hennar
talaði ég og talaði, hún var þá
hætt að tala, allt í einu tekur hún
í mig og segir „komdu“ þá átti ég
að fara og ganga með henni.
Svana lést hinn 4. maí 2012 og fer
útför hennar fram í dag á sama
tíma og minningarathöfnin hér.
Ray fór til hennar daglega á
meðan heilsa hans leyfði, hann
var veikari en hann gaf manni
upp og fór meira af vilja en
mætti. Hann lést 8. desember
2009 og fór útför hans fram í
London á Þorláksmessu 2009.
Ég verð að þakka séra Sigurði
Arnarsyni, fyrrverandi
sendiráðspresti í London og nú
sóknarpresti í Kópavogskirkju,
sérstaklega fyrir alla hans aðstoð
og hjálp. Hann heimsótti þau og
sat fundi með starfsfólki heim-
ilisins ásamt ýmsu öðru sem
hann gerði enda segir hann nú að
þeir Ray hafi verið vinir, er hægt
að hugsa sér eitthvað fallegra?
Elsku pabbi, Ingimar og Est-
er, innilegar samúðarkveðjur,
blessuð sé minning Svönu og
Ray og megi þau hvíla í friði.
Margrét.
Svandís Jónsdóttir
Witch og Raymond Witch
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Skálalækjarás 15, lnr. 195-687, Skorradal, þingl. eig. Stefán Smári
Lárusson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 22. maí 2012
kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
16. maí 2012.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Eyjabakki 28, 204-7492, Reykjavík, þingl. eig. Katrín Ösp Bjarkadóttir
og Ricardo Jorge Rosario Sousa, gerðarbeiðandi Eyjabakki 18-32,
húsfélag, þriðjudaginn 22. maí 2012 kl. 15:00.
Gyðufell 14, 205-2504, Reykjavík, þingl. eig. Magnús Finnur
Magnússon, gerðarbeiðandi Síminn hf., þriðjudaginn 22. maí 2012
kl. 14:00.
Háholt 7, 208-3152, Mosfellsbæ, þingl. eig. Áslákur ehf.,
gerðarbeiðendur Mosfellsbær og NBI hf., þriðjudaginn 22. maí 2012
kl. 11:30.
Í Miðdalsl. II, 125174, 208-4613, Mosfellsbæ, þingl. eig. Alda Val-
garðsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 22. maí
2012 kl. 10:00.
Kvíslartunga 52, 231-7940, Mosfellsbæ, þingl. eig. K52 ehf.,
gerðarbeiðandi Mosfellsbær, þriðjudaginn 22. maí 2012 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
16. maí 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Bræðraborgarstígur 4a, 200-0884, Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur
R. Mýrdal Jónsson, gerðarbeiðendur Drómi hf., Kreditkort hf.,
Reykjavíkurborg og Vörður tryggingar hf., mánudaginn 21. maí 2012
kl. 15:00.
Jónsgeisli 75, 227-0739, Reykjavík, þingl. eig. Ragna Ársælsdóttir og
Haraldur R. Gunnarsson, gerðarbeiðendur Fjarskipti ehf., Holtavegur
10 ehf. og Reykjavíkurborg, mánudaginn 21. maí 2012 kl. 10:30.
Sólvallagata 45, 200-2341, Reykjavík, þingl. eig. Árni Sigurðsson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Vörður tryggingar hf.,
mánudaginn 21. maí 2012 kl. 14:30.
Úlfarsbraut 18-20, 230-8280, Reykjavík, þingl. eig. Magnús Ver
Magnússon, gerðarbeiðendur BYR hf., Framkvæmda- og eignasvið
Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborg, mánudaginn 21. maí 2012 kl.
10:00.
Þorláksgeisli 49, 226-1296, Reykjavík, þingl. eig. Erna Agnarsdóttir,
gerðarbeiðandi Hekla ehf., mánudaginn 21. maí 2012 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
16. maí 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Baugakór 19-23, 0001, fastanr. 227-9011, þingl. eig. Davíð Hrannar
Hafþórsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 22. maí
2012 kl. 11:00.
Fákahvarf 9, fastanr. 228-4332, þingl. eig. Sigurþór Þórólfsson og Rut
Aðalsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 22. maí
2012 kl. 11:30.
Fossahvarf 10, fastanr. 230-2676, þingl. eig. Rut Hallgrímsdóttir,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 22. maí
2012 kl. 13:00.
Hlaðbrekka 11, 0001 (206-1621), þingl. eig. Kristborg Halldórsdóttir,
gerðarbeiðendur Gildi -lífeyrissjóður, Íbúðalánasjóður og
Sýslumaðurinn í Kópavogi, þriðjudaginn 22. maí 2012 kl. 14:30.
Jöklalind 6, fastanr. 222-5969, þingl. eig. Guðmundur Aðalsteinsson,
gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 22. maí 2012 kl. 13:30.
Kórsalir 3, 0604 (225-1939), þingl. eig. Salóme Eiríksdóttir,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 22. maí 2012 kl. 10:30.
Vatnsendablettur 710, fastanr. 228-4188, þingl. eig. Íris Fanney
Friðriksdóttir og Vilhelm Patrick Bernhöft, gerðarbeiðendur Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf. og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 22. maí 2012
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
16. maí 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Böggvisbraut 5, íb. 01-0101, bílsk. 02-0101 (215-4731) Dalvíkurbyggð,
þingl. eig. Brynja Ólafsdóttir og Matthías Matthíasson, gerðarbeið-
endur Dalvíkurbyggð, Íslandsbanki hf. og Sýslumaðurinn á Akureyri,
miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 14:15.
Klettastígur 12, íb. 01-0101 (214-8354) Akureyri, þingl. eig. Erling Þór
Júlínusson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf. 0565
og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 10:00.
Lyngholt 6, íbúð 01-0201, bílskúr 02-0102 (214-8848) Akureyri, þingl.
eig. Aron Freyr Hermannsson og Helena Sigurdórsdóttir, gerðarbeið-
endur Akureyrarkaupstaður og Landsbankinn hf., miðvikudaginn
23. maí 2012 kl. 10:15.
Norðurgata 31, íb. 01-0101 (214-9491) Akureyri, þingl. eig. Leifur Egils-
son, gerðarbeiðandi Valitor hf., miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 10:30.
Smárahlíð 7, íb. L 04-0304 (215-0544) Akureyri, þingl. eig. Jóhanna
Hildiberg Harðardóttir, gerðarbeiðandi Arion Bank Mortgages
Institutio, miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 10:45.
Strandgata 49, veitingahús 01-0101 (215-1008) Akureyri, þingl. eig.
GSB veitingar ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri,
miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 11:00.
Vallartún 6, íb. 01-0102 (228-2742) Akureyri, þingl. eig. Elva Dögg
Hafdísardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
23. maí 2012 kl. 11:20.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
16. maí 2012.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álfhólsvegur 32, 0101, fastanr. 205-8051, þingl. eig. Haffrú ehf.,
gerðarbeiðandi Búseti svf., húsnæðissamvinnufél., miðvikudaginn
23. maí 2012 kl. 10:00.
Álfhólsvegur 81, 0101, fastanr. 205-8194, þingl. eig. Halldór Kristinn
Björnsson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Sýslumaðurinn á
Blönduósi, miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 10:30.
Engihjalli 25, 0602, fastanr. 206-0185, þingl. eig. Einar Sigurður
Einarsson, gerðarbeiðendur Engihjalli 25, húsfélag og Íbúðalána-
sjóður, miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 11:00.
Eskihvammur 2, 0101 (206-0196), þingl. eig. Jóhannes Viggósson,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 23. maí
2012 kl. 11:30.
Hluti Nýbýlalands nr. 8, ca. 2 1/2 hektari, landsnr. 115731, þingl. eig.
Benedikt Kristinsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn
23. maí 2012 kl. 13:00.
Nýbýlavegur 40, 0102, fastanr. 206-4441, þingl. eig. dánarbú Gunnars
Björns Björnssonar, gerðarbeiðandi Nýbýlavegur 40, húsfélag,
miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 13:30.
Túnbrekka 2, 0101, ehl. gþ., fastanr. 206-5715, þingl. eig. Gunnar
Valdimarsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf.,
miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 14:00.
Vogatunga 24, 0101, fastanr. 206-6125, þingl. eig. NatalieT. Narvaéz
Antonsdóttir og Sigurður Óskar Arnarsson, gerðarbeiðandi Lands-
bankinn hf., miðvikudaginn 23. maí 2012 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
16. maí 2012.