Morgunblaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Ég hef ekki skipulagt neitt í kringum afmælið mitt. Ég ætlabara að slaka á og njóta þess að vera í fríi ásamt því að kíkjaí mat til ömmu og afa,“ sagði Arnar Geir Sæmundsson, nem-
andi í Verzlunarskóla Íslands, þegar blaðamaður náði tali af honum
í gær. Hann fagnar 21 árs afmæli sínu í dag.
Arnar Geir útskrifast úr Verzlunarskóla Íslands eftir rúma viku
svo afmælið rennur að vissu leyti saman við stúdentsveisluna sem
haldin verður 26. maí nk. ,,Það verður skrítið að útskrifast, ég er
orðinn svo vanur Verzló-lífinu en það verður líka gott að klára
þetta,“ segir Arnar Geir afmælisbarn sem heldur síðan í útskriftar-
ferð með árgangi sínum til að fagna þessum áfanga. Hann er að fara
í annað sinn í útskriftarferð því hann lagði leið sína til Perú árið
2008 í eitt ár sem skiptinemi. ,,Ég gat ekki gert upp á milli árgang-
anna því ég var í þeim báðum, svo ég ákvað að fara í báðar ferðirnar
enda rosalega skemmtilegar ferðir,“ segir Arnar Geir.
Í sumar vinnur Arnar Geir á bílaþvottastöðinni Splash og hefur
gaman af. „Ég er ennþá svolítið óákveðinn varðandi haustið, en ég
ætla í háskóla, það er bara spurning hvað ég ætla að læra og í hvaða
skóla. Ég er þó mest spenntur í augnablikinu fyrir fjármálaverk-
fræði í Háskóla Reykjavíkur en það gæti verið fljótt að breytast eins
og allt annað,“ segir Arnar Geir að lokum. aslaug@mbl.is
Arnar Geir Sæmundsson er 21 árs í dag
Stúdent Arnar Geir útskrifast úr Verzló eftir rúma viku.
Afmælið og útskrift
renna saman í eitt Þ
orgils Óttar Mathiesen
fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá VÍ
1982, viðskiptafræðiprófi
frá HÍ 1987, hefur stundað MSc-nám
í endurskoðun frá 2010 og var að
ljúka síðasta prófverkefninu í gær.
Þorgils var sérfræðingur á fjár-
málasviði Iðnaðarbanka Íslands hf.
og sérfræðingur í reikningshaldi Ís-
landsbanka hf. 1987-91, deildarstjóri í
reikningshaldi og áætlunargerð þar
1991-92, forstöðumaður rekstr-
ardeildar 1992-94, forstöðumaður
reikningshalds og áætlana þar 1994-
2000 og Íslandsbanka FBA hf. 2000-
2001, framkvæmdastjóri reiknings-
halds og bakvinnslu hjá Íslandsbanka
frá 2001 og rekstrar frá 2002, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs til 2004,
forstjóri Sjóvár 2004-2005 og forstjóri
og síðan stjórnarformaður Klasa –
fasteignafélags 2006-2010.
Í bæjarpólitíkinni til 2002
Þorgils hóf störf hjá KPMG árið
2010, hefur samhliða því stundað
MSc-nám í endurskoðun og stefnir á
löggildingarréttindi í faginu.
Þorgils var varamaður í íþróttaráði
Hafnarfjarðar 1986-90, sat í íþrótta-
og æskulýðsnefnd Sjálfstæðisflokks-
ins 1988-94 og formaður hennar 1993-
94, var bæjarfulltrúi í Hafnarfirði fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn 1990-94 og
1998-2002 og varabæjarfulltrúi 1994-
98, varaformaður bæjarráðs 1998-
Þorgils Óttar Mathiesen 50 ára
Í sól og sumaryl Þorgils Óttar, ásamt börnum sínum, Sigrúnu og Einari Páli, í sumarfríi á eyjunni Kos, sumarið 2010.
Í endurskoðun og golf
Í handboltaham Þorgils Óttar setur eitt af sínum 575 landsliðsmörkum í
leik gegn Dönum á árum áður. Steinar Birgisson fylgist vel með.
Alexander Máni Eirikss-
son og Halla Sól Þor-
björnsdóttir héldu tom-
bólu og söfnuðu 13.312
kr. sem þau gáfu Rauða
krossi Íslands.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
„Íslendingar“ er nýr
efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu.
Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem hjónavígslum,
barnsfæðingum eða öðrum
tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is