Morgunblaðið - 17.05.2012, Page 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Listahátíð í Reykjavík verður sett í
Hörpu á föstudag og stendur til 3.
júní. Á hátíðinni eru allar listgreinar
undir, tónlist er áberandi, en líka
sviðslistir og myndlist. Að sögn
Steinunnar Þórhallsdóttur, mark-
aðs- og kynningarstjóra Listahátíð-
ar, hefur miðasala gengið mjög vel á
viðburði hátíðarinnar og svo komið
að uppselt eða nánast uppselt er á
nokkra viðburði. Steinunn segir að
þannig sé uppselt á fyrstu sýningu
verksins Á vit …, sem Íslenski dans-
flokkurinn og GusGus vinna saman.
„Það seldist strax upp á sýninguna á
föstudagskvöldið og hefur líka selst
svo vel á sýninguna á laugardags-
kvöld kl. 21 að við ákváðum að bæta
við sýningu kl. 23 þá um kvöldið. Við
finnum líka fyrir mikilli tilhlökkun
fyrir tónleika spænsku söngkon-
unnar Buiku í byrjun júní og við
fjölguðum því sætum á tónleikana og
þar verður því fullt upp í rjáfur. Það
gleður okkur einnig mikið að uppselt
er að verða á einleikstónleika Arcadi
Volodos á sunndaginn, því þar er tví-
mælalaust stórviðburður í íslensku
tónlistarlífi. Það verður án efa frá-
bær stemmning líka á tónleikum
Yanns Tiersens 31. maí í Norður-
ljósasal Hörpu og er að verða upp-
selt. Tónleikar Sinfóníunnar þar sem
Rómeó og Júlía eftir Berlioz verður
frumflutt á Íslandi verða einnig vel
sóttir.“
Hvað leiklistina varðar segir
Steinunn að mikill áhugi sé á upp-
færslu Luzerner Theater á Pétri
Gaut í leikstjórn Þorleifs Arnar Arn-
arssonar, en það verk verður aðeins
sýnt 30. maí, og eins hefur gengið vel
að selja á leikritið Bræður sem sýnt
verður 1. og 2. júní, en heldur síðan
upp í ferðalag um hin Norðurlöndin.
Það má líka nefna Gamla manninn
og hafið, brúðusýningu Bernds
Ogrodnik, sem frumsýnd verður á
sunnudag.
Miðasala á aðra viðburði hefur
líka verið með ágætum, að sögn
Steinunnar, lítilræði er til af miðum
á aukatónleika Bryans Ferry og eins
er nánast uppselt á húslestrar ís-
lenskra rithöfunda og lítið eftir af
miðum á leiklestra splunkunýrra
leikrita á óvenjulegum sýningar-
stöðum. Bach- og barrokkunnendur
séu einnig að flykkjast á tónleika
Kammersveitar Reykjavíkur undir
stjórn Richard Egarr á sunnudag.
„Það hefur komið okkur skemmti-
lega á óvart hvað fólk hefur farið
snemma af stað til að tryggja sér
miða,“ segir Steinunn.
Eins og getið er í upphafi þá er
myndlist líka áberandi á Listahátíð
að þessu sinni og um opnunarhelgi
hátíðarinnar verður viðamiklu
myndlistarverkefni, (I)ndependent
People / „Sjálfstætt fólk“ hleypt af
stokkunum. Í tengslum við sýning-
aropnanir verða ýmsir viðburðir og
Steinunn nefnir skrúðgöngu, The
Passerine Project, á morgun kl. 12-
13, en þá mun hópur fólks í nokkurs
konar skrúðgöngu þræða beina línu
sem dregin hefur verið í gegnum
miðborg Reykjavíkur. „Leitað verð-
ur allra leiða til að komast yfir, undir
eða í gegnum þær byggingar og
hindranir sem verða á leiðinni og
notaðir verða stigar og það sem
þarf,“ segir Steinunn og bætir við að
almenningur sé boðinn velkominn í
skrúðgönguna. Liður í undirbúningi
fyrir gönguna er origami-vinnustofa
fyrir höfuðskraut þátttakenda í Önd-
inni í Ráðhúsinu kl. 17 í dag, en
gengið verður frá Hörpu klukkan 12
á hádegi á föstudag og stefnan tekin
á Ráðhúsið.
Mikill áhugi á Listahátíð
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Áhugi Steinunn Þórhallsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar,
segir að miðasala hafi gengið mjög vel á viðburði hátíðarinnar.
Uppselt eða
nánast uppselt á
nokkra viðburði
Á laugar-
dag verða
viðburðir
tengdir (I)
ndepend-
ent People
/ „Sjálf-
stæðu
fólki“ frá
morgni til
kvölds og
Steinunn
nefnir sem dæmi að á laug-
ardag kl. 10 verði uppákoma í
Litlu kaffistofunni á Suður-
landsvegi.
„Þrír sænskir listamenn frá
Stokkhólmi í hópnum The Artist
Formally Known as Geist, hitta
þá leikarann Hilmar Guðjóns-
son. Þeir völdu hann eftir að
hafa skoðað myndir af öllum
leikurum á Íslandi með aðstoð
Google og halda því fram að ef
þeir myndu setja andlit sín sam-
an í eina mynd myndi útkoman
vera Hilmar.“
Myndin af
Hilmari
LITLA KAFFISTOFAN
Hilmar
Guðjónsson
Sýningu Krist-
ínar Þorkels-
dóttur Í blóma
sem sýnd er í
Herberginu, sýn-
ingarrými versl-
unarinnar Kirsu-
berjatrésins á
Vesturgötu 4,
lýkur nk. mánu-
dag. Sýningin er
opin virka daga
kl. 11-18 og á laugardag kl. 11-16.
Lok sýningarinnar
Í blóma
Kristín
Þorkelsdóttir
Sænsk-íslenski tónlistarmaðurinn
Mikael Lind heldur tónleika í
verslun 12 tóna við Skólavörðu-
stíg á morgun kl. 17:30. Þar mun
hann flytja lög af nýjum geisla-
diski sem nefnist Felines every-
where og er annar sólódiskur
Mikaels.
Síðdegistónleikar
hjá 12 tónum
Vegna mikillar aðsóknar verða
fjórar aukasýningar á Óralandi,
sýningu Nemendaleikhússins. Þær
verða 21., 24. og 25. maí kl. 20 og
svo 26. maí kl. 16. Sýnt er í Smiðj-
unni, Sölvhólsgötu 13. Verkið er
spunaverk og samið af leikaranem-
unum sjálfum í samvinnu við list-
ræna stjórnendur sýningarinnar
þau Jón Atla Jónasson og Unu Þor-
leifsdóttur.
Miðasala fer fram á midi.is, mi-
dasala@lhi.is, og í síma 895 6994.
Aukasýningar
á Óralandi
Lokasýning Enn tækifæri til að sjá.
Morgunblaðið/Golli
Tómas Jónsson heldur burtfarar-
tónleika sína frá Tónlistarskóla
FÍH í hátíðarsal skólans á morgun
kl. 18. Á efnisskránni eru verk eftir
Tómas unnin í samvinnu við Illu
heilli tríó sem og verk eftir Dusty
Millier og Elvar Örn Friðriksson. Á
tónleikunum leikur Tómas á píanó,
rhodes, hammond og synthesizer.
Burtfarartónleikar
Tómasar frá FÍH
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Hluti af tónlist Bítlanna
og Queen er margradda
og því hentar þetta vel
fyrir kóra,“ segir Guð-
mundur Óli Gunnarsson
sem hefur útsett lög
hljómsveitanna fyrir
Karlakór Dalvíkur og
Matthías Matthíasson sem
er betur þekktur sem
Matti Matt. Þeir ætla að
halda tónleika í Menning-
arhúsinu í Miðgarði í
Skagafirði laugardags-
kvöldið 19. maí. Tónleik-
arnir hefjast klukkan
21.00.
Guðmundur Óli mun
McCartney til Julians
Lennon, sonar Johns, þeg-
ar mamma hans og pabbi
voru að skilja. Paul vor-
kenndi stráknum og datt
þetta lagi í hug,“ segir
Guðmundur Óli.
Þetta er í fjórtánda
skipti sem kórinn flytur
þessa dagskrá og alltaf
fyrir fullu húsi enda hafa
yfir 3.000 áheyrendur
komið á tónleikana, sem
haldnir hafa verið í Saln-
um í Kópavogi, Menning-
arhúsinu Hofi á Akureyri
og í Menningarhúsinu
Bergi á Dalvík. Karlakór-
inn mun meðal annars
syngja í Færeyjum á
næstunni.
hljómsveitunum. „Það vita
til dæmis ekki allir að lag-
ið „Hey Jude“ var upp-
haflega samið af Paul
kynna dagskrána þar sem
hann fléttar inn í kynn-
inguna ýmsum fróðleiks-
molum sem tengjast
Rokkað í kór með Matta
Rokk Karlakór Dalvíkur flytur þekkt rokklög.
Andri Ívarsson rafgítarleikari
heldur burtfarartónleika sína frá
Tónlistarskóla FÍH í hátíðarsal
skólans nk. laugardag kl. 20.
Á efnisskránni eru verkin Ten-
der surrender, The crying mach-
ine og For the love of god eftir
Steve Vai, Yankee Rose eftir Dav-
id Lee Roth og Lies, Cold black
night, Alive og Waiting for home
eftir Andra.
Meðleikarar Andra á tónleik-
unum eru Ásmundur Jóhannsson á
bassa, Ingvar Alfreðsson á hljóm-
borð, Kári Árnason á bassa og
Steinþór Guðjónsson á gítar auk
þess sem Dagur Sigurðsson syng-
ur.
Burtfarartónleikar
Andra frá FÍH
STYRKUR TIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu
ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis
á næsta skólaári 2012-2013.
Veittur er styrkur að upphæð kr. 600.000.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform, sendist fyrir 31. maí nk.
til formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 8620,
128 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna
verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.