Morgunblaðið - 31.05.2012, Síða 1
FISKAGERÐ OG
SEGLSKIPA-
SMIÐJA
VIÐSKIPTI
Bakkabræður í milljarða
skuldabréfaútgáfu
FINNUR.IS
Blúshátíð og bleikjuveiði
hjá Óttari Felix
TÍU MENGUÐ-
USTU STAÐIR
JARÐAR
LJÓSMYNDASÝNING 39HÁTÍÐ HAFSINS 10
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Bankaútibúum og afgreiðslum hefur
fækkað úr 174 í 107 frá árinu 2005,
eða um 39% og eru áhrifin einna
mest í Reykjavík eða 57%. Þegar
mest var mátti finna 44 bankaaf-
greiðslur í borginni, en nú eru þær
19 talsins.
Landsbankinn mun á morgun
loka sjö útibúum á landsbyggðinni
og útibúið í Árbæ verður afgreiðsla.
Í tilkynningu frá bankanum kemur
fram að útibúum bankans hafi
fækkað úr 64 í 38 frá árinu 1998. Er
breytingin skýrð meðal annars með
því að um 80% samskipta við banka
séu nú orðin rafræn og að fækkun á
heimsóknum í útibú sé hröð.
Samkvæmt upplýsingum frá Ar-
ion banka mun hafa ráðið mestu við
ákvörðun um lokun útibúa hjá bank-
anum hversu stóra hlutdeild bank-
inn hafði í viðskiptum á umræddum
svæðum.
Árið 2005 rak Landsbankinn 43
útibú víðsvegar á landinu. Í dag
rekur hann 38 útibú. SpKef samein-
aðist bankanum árið 2011. Arion
banki rak árið 2005 39 útibú á land-
inu en í dag eru þau 24. SPRON
sameinaðist bankanum árið 2009.
Íslandsbanki rak 28 útibú á landinu
árið 2005 og hefur þeim fækkað
minnst af stóru viðskiptabönkunum,
en í dag rekur bankinn 22 útibú.
Sparisjóðurinn Byr sameinaðist
bankanum árið 2011. Sparisjóða-
útibúum hefur fækkað úr 64 í 23, en
mestu munar um ofangreindan sam-
runa og tilheyrandi fækkanir úti-
búa.
Heildarfækkun bankaútibúa á
höfuðborgarsvæðinu er 54% til sam-
anburðar við 21% á landsbyggðinni.
Sparisjóðirnir á undanhaldi
Enginn sparisjóður er lengur á
Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu og
á Vesturlandi. Sparisjóðsútibúið á
Sauðárkróki er eina útibú sparisjóðs
á NV-landi. Sviptingar urðu á spari-
sjóðastarfsemi þegar SPRON, Byr
og SpKef runnu inn í stóru við-
skiptabankana árin 2009 og 2011.
Útibúum hríðfækkar
Bankaútibúum fækkað úr 174 í 107 frá 2005 Fækkað um 57% í Reykjavík
Fækkun um 21% á landsbyggðinni allri Sparisjóðakerfið látið mest á sjá
Bankaleysi Arion banki lokaði
útibúi sínu á Hofsósi árið 2009.
MBankaútibúum hefur fækkað »16
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Heiðskírt var yfir landinu í gær og hlýtt á Vesturlandi en
kalt austur á fjörðum. Maímánuður var að sögn Trausta
Jónssonar, sérfræðings í veðurfarsrannsóknum, ansi tví-
skiptur en þótt engin hita- eða kuldamet hafi fallið fyrir
mánuðinn né landið í heild féllu einhver staðarmet, s.s. í
Stafholtsey í Borgarfirði á þriðjudag, þegar hiti mældist
21,6 stig. Þá er óvenjuhlýtt víða á Grænlandi en í gær
mældist hiti í Narsarsuaq 24,8 stig og hefur samkvæmt
dönsku veðurstofunni ekki mælst hærri á þeim slóðum í
maímánuði. „Það er óvenjuhlýtt þar núna og hiti hefur
farið yfir 20 stig á fleiri stöðum,“ segir Trausti um veðr-
ið á Grænlandi. „Það er nú mjög hlýtt loft í háloftunum,
sem er upphaflega komið sunnan að, en ýmsar hreyf-
ingar hafa valdið því að það er dálítið niðurstreymi í
þessu, þannig að það hlýnar ennþá meira,“ segir Trausti.
Hér heima spáir Veðurstofan heiðskíru veðri og hlý-
indum víðast hvar á landinu fram á sunnudag. Víða er
gert ráð fyrir allt að 20 stiga hita. holmfridur@mbl.is
Ísland í heiðskíru ljósi frá himingeimi
Ljósmynd/NASA
Sex milljóna króna tap var á
rekstri Fríðuhúss við Austurbrún í
fyrra, en þar er rekin dagvist fyrir
15 Alzheimerssjúklinga. Ef Reykja-
víkurborg og velferðarráðuneytið
taka ekki á þeim vanda, blasir ekk-
ert annað við en lokun. Svo segir
Svava Aradóttir, framkvæmda-
stjóri FAAS (félag áhugafólks og
aðstandenda Alzheimerssjúklinga
og annarra með skylda sjúkdóma),
sem sér um reksturinn, á húsnæðið
og ber allan kostnað af því. FAAS
hefur lítið annað fjármagn en minn-
ingargjafir og félagsgjöld auk
minnkandi styrks frá ríkinu. Hátt í
100 manns eru á biðlista eftir vistun
í sérhæfðri dagvist. »4
Verulegur rekstrar-
vandi í Fríðuhúsi
Fríðuhús Starfsemin þar er í hættu.
Morgunblaðið/Ómar
Það er regla fremur en undan-
tekning að sjávarútvegur á heims-
vísu er ekki sérstaklega skatt-
lagður umfram aðrar atvinnu-
greinar, heldur býr hann einungis
við sama skattaumhverfi. Í frétta-
skýringu í Viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í dag kemur m.a. fram að
algengt sé að sjávarútvegur sé rek-
inn á umtalsverðum styrkjum frá
ríkinu. Örfáar undantekningar eru
frá þeirri meginreglu að þjóðir
leggi almennt ekki sérstakan skatt
á sjávarútveg, t.d. í Namibíu, Fær-
eyjum og á Falklandseyjum. Til-
raunir voru gerðar í Rússlandi og
Eistlandi með uppboð á aflaheim-
ildum en því var hætt. »Viðskipti
Skattlagning á út-
gerðir nær óþekkt
70%
fækkun útibúa í Kópavogi frá 2005.
80%
samskipta við Landsbanka rafræn.
50%
fækkun útibúa á Vesturlandi.
‹ FÆKKUN BANKAÚTIBÚA ›
»
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
NÝ SENDING
TIL HÁSKÓLANEMA
SÍÐAST KLÁRAÐIST ALLT Á EINUM DEGI
iPAD-MOGGINN
OG NÝI iPADINN Á AÐEINS
2.990 KR. Á MÁN.
TA K M A R K A Ð M A G N
Gríptu tækifærið og farðu á
www.mbl.is/mogginn/ipad
Forseti Alþing-
is og formenn
þingflokka náðu
samkomulagi í
gærkvöldi um að
setja til hliðar
umræðu um
Vaðlaheiðargöng
og IPA-styrki
ESB til að liðka
fyrir afgreiðslu óumdeildari frum-
varpa í dag. Búist er við að síðari
umræða um veiðigjaldafrumvarpið
hefjist á morgun. Umhverfis- og
samgöngunefnd hyggst afgreiða
samgönguáætlun á fundi árdegis.
Þar hefur verið andstaða við áform
um fjármögnun verkefnisins og bú-
ist við að þingmenn muni láta skoð-
anir sínar í ljósi í bókunum. »2
Tvö umdeild mál
tekin af dagskrá
Stofnað 1913 125. tölublað 100. árgangur
F I M M T U D A G U R 3 1. M A Í 2 0 1 2