Morgunblaðið - 31.05.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Taki Reykjavíkurborg og velferð-
arráðuneytið ekki á fjárhagsvanda
Fríðuhúss við Austurbrún blasir
ekkert annað við en lokun, en í
húsinu hefur Félag áhugafólks og
aðstandenda alzheimersjúklinga og
annarra skyldra sjúkdóma, FAAS,
rekið dagvist fyrir 15 einstaklinga
síðan í febrúar 2001. „Það þýðir
ekki að sigla sofandi að feigðarósi,“
segir Svava Aradóttir, fram-
kvæmdastjóri FAAS, og áréttar að
ríkjandi fyrirkomulag gangi ekki
upp.
Beiðni ekki svarað
Svava segir að sex milljóna
króna tap hafi verið á rekstri
Fríðuhúss í fyrra, en FAAS á hús-
næðið og ber allan kostnað af því.
„Við fáum enga aðstoð við þann
rekstur, hvorki frá ríki né Reykja-
víkurborg,“ segir Svava og bætir
við að auk þess hafi verið mikill
niðurskurður á daggjöldum frá rík-
inu frá 2008.
Óskað hafi verið eftir fundi um
ástandið með fulltrúum velferðar-
ráðuneytisins í mars sl. en beiðn-
inni hafi ekki verið svarað fyrr en í
gær eftir að Morgunblaðið talaði
við hana. „Þessum málaflokki er
ekki nægilega vel sinnt,“ segir hún.
„Það er ekkert sem réttlætir það
að líknarfélag eins og FAAS er,
sem hefur lítið annað fjármagn en
minningargjafir og félagsgjöld auk
minnkandi styrks frá ríkinu, beri
kostnað af rekstri dagþjálfunar
fyrir fólk með heilabilun.“
Reykjavíkurborg sér um hús-
næðið fyrir Maríuhús og Hafnar-
fjarðarbær leggur til húsnæði fyrir
Drafnarhús.
„Rekstrarvandi Fríðuhúss er
verulegur og eykst með hverjum
mánuði sem líður,“ segir Svava og
bendir á að um mitt ár í fyrra hafi
verið ljóst hvert stefndi og í kjöl-
farið hafi stjórn og framkvæmda-
stjóri FAAS fundað með fulltrúum
borgarinnar og ráðuneytisins. „Það
hefur ekkert komið út úr þeim
fundum,“ segir hún og leggur
áherslu á að hátt í 100 manns séu á
biðlista eftir vistun í sérhæfðri
dagvist.
Hún segir að dagvist eins og í
Fríðuhúsi sé mjög ódýrt úrræði og
leysi margþættan vanda, bæði hjá
viðkomandi fólki og aðstandendum
þess. Því sé forgangsröðun hins op-
inbera óskiljanleg.
Allt skorið niður
Svava segir að búið sé að skera
allt niður sem hægt er og ekki
verði lengra gengið í því efni án
þess að það komi alvarlega niður á
umönnuninni.
„Eitthvað verður að koma til því
það dekkar enginn þennan halla
fyrir okkur,“ segir hún.
Heimili fyrir alzheimer-
sjúklinga í uppnámi
Dagvist fyrir alzheimersjúklinga rekin með sex milljóna króna halla í fyrra
„Eitthvað verður að koma til því það dekkar enginn þennan halla fyrir okkur“
Morgunblaðið/Ómar
Fríðuhús Mikið er sungið í Fríðuhúsi og létt var yfir heimilisfólki og starfsmönnum þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um í gær.
Sakborningarnir
Grzegorz Marcin
Nowak og Pawel
Jerzy Podburac-
zynski játuðu að-
ild sína að úra-
ráninu
svokallaða í
verslun Franks
Michelsens á
Laugavegi í
október sl. Þeir
neita þó að hafa komið að skipulagn-
ingu ránsins en mál gegn þeim var
þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gærmorgun.
Mennirnir tveir eru ákærðir fyrir
rán og nytjastuld ásamt samverka-
mönnunum Marcin Tomasz Lech og
Pawel Artur Tyminski. Eru þeir
sakaðir um að hafa ráðist með of-
beldi og hótunum um ofbeldi á
starfsfólk verslunarinnar í því skyni
að komast yfir verðmæti og tekið
þaðan ófrjálsri hendi 49 armbands-
úr. Úrin sem um ræðir eru af gerð-
unum Rolex, Tudor og Michelsen en
samanlagt verðmæti þeirra nemur
rúmlega 50 milljónum króna.
Í ákæru ríkissaksóknara kemur
fram að mennirnir hafi gagngert
komið hingað til lands í þeim tilgangi
að ræna úra- og skartgripaverslun
Michelsen úrsmiða. Starfsmenn og
eigendur verslunarinnar fara fram á
samtals 26,5 milljónir króna í bætur.
Aðalmeðferð fer fram 13. júní nk.
Úraræn-
ingjar ját-
uðu aðild
Þýfið endurheimt-
ist að lokum.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Vegaframkvæmdir á þessu svæði
eru alfarið háðar styrkveitingasjóði
Vegagerðarinnar. Því getum við
ekki gert meira til að afmarka akst-
urssvæði en fjárframlagið segir til
um,“ segir Björn Ingimarsson, bæj-
arstjóri Fljótsdalshéraðs.
Morgunblaðið greindi frá miklum
skemmdum á hálendinu vegna öku-
manna sem búa til nýjar slóðir þeg-
ar þær eldri eru ófærar. Víða eru
ljót sár í grónum jarðvegi á svæði
norðan við Vatnajökul af þeim sök-
um.
Í aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs
2008-2028 er þemakort þar sem allir
vegslóðar utan þjóðvega og al-
mennra vega eru skilgreindir.
Þemakortið var unnið í samstarfi við
hagsmunaaðila á svæðinu. Óheimilt
er að aka á slóðum sem ekki eru á
því korti en sú var raunin þegar sár-
in norðan við Vatnajökul urðu til.
Umhverfis- og héraðsnefnd á Fljóts-
dalshéraði tók málið fyrir á fundi 22.
maí sl. Ekki kom til umræðu að loka
vegum á hálendinu en Björn segir
að nokkuð hafi borið á misvísandi
upplýsingum til vegfarenda.
„Upplýsingar eru ekki alltaf í
samræmi við aðstæður á hálendinu.
Svo virðist sem vissir aðilar séu að
vísa fólki á slóða uppi á hálendinu án
þess að vera með réttar upplýsingar
um málin. Í umræddu tilviki er um
að ræða slóða sem ekki eru færir
öðrum en sérútbúnum bílum og
ættu ekki að vera merktir á almenn-
um vegvísum,“ segir Björn.
Rangar upplýsingar til
vegfarenda á hálendinu
Skemmdir Utanvegaakstur hefur
valdið stórskemmdum á hálendi
norðan við Vatnajökul.
Framkvæmdir á hálendi háðar framlagi Vegagerðarinnar
FAAS rekur sérhæfða dagvistun
fyrir fólk með heilabilun á
þremur stöðum – í Drafnarhúsi
við Strandgötu í Hafnarfirði, í
Maríuhúsi við Blesugróf í
Reykjavík og í Fríðuhúsi. Drafn-
arhús og Maríuhús hafa rekstr-
arheimild fyrir 20 einstaklinga
hvort hús og þar er reksturinn í
járnum en leyfi er fyrir 15 ein-
staklinga í Fríðuhúsi. 6,2 stöðu-
gildi eru í Drafnarhúsi og Maríu-
húsi en 5,0 stöðugildi í
Fríðuhúsi.
Starfsemin er í gangi alla
virka daga ársins.
Reksturinn
í járnum
FAAS Á ÞREMUR STÖÐUM
www.golfkortid.is
Einstaklingskort
9.000 kr.
Fjölskyldukort
14.000 kr.
golfvöllur
- eitt kort31
Rekstur Íslands-
banka skilaði 5,6
milljarða króna
hagnaði, eftir
skatta, á fyrsta
fjórðungi ársins.
Það er töluvert
meira en á sama
tíma á síðasta ári
þegar bankinn
hagnaðist um 3,6 milljarða. Kemur
þetta fram í fyrsta árshlutauppgjöri
2012.
Nettógjaldfærsla vegna endur-
mats lánasafnsins nam 1,5 millj-
örðum á fjórðungnum, samanborið
við gjaldfærslu upp á 664 milljónir á
sama tímabili í fyrra.
Arðsemi eigin fjár eftir skatta á
tímabilinu var 17,7% á árs-
grundvelli, samanborið við 11,7% á
fyrsta ársfjórðungi 2011.
Um 18.200 einstaklingar og um
3.000 fyrirtæki hafa fengið afskriftir,
eftirgjafir eða leiðréttingar á skuld-
um frá stofnun bankans, samtals
upp á um 370 milljarða króna.
Hagnast um
5,6 milljarða