Morgunblaðið - 31.05.2012, Side 19
FRÉTTIR 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Nemendur 3. bekkjar Mennta-
skólans á Akureyri fengu óvenju-
lega, verklega fræðslu í tíma í vik-
unni. Margrét Ösp Stefánsdóttir
líffræðikennari krufði þá lamb sem
fæðst hafði mjög vanskapað.
Það bar svo við fyrr í mánuðinum
að ær ein í Grýtubakkahreppi bar
síamslambhrúti, eins og segir í frétt
á vef MA. „Greyið var mjög van-
skapað og lifði ekki,“ segir þar.
Margrét Ösp kom með lambið í
skólann „og krufði það í tíma hjá 3.
bekk. Þetta var í meginatriðum
sýnikennsla og jafnframt því rann-
sókn á ástandi lambsins.“
Lambið hafði eitt höfuð en átta
fætur. „Í ljós kom við krufninguna
að það hafði eitt hjarta og einn
maga. Þarmarnir voru tvískiptir og
nýrun voru alls fjögur,“ segir á MA-
síðunni. „Margir nemendur gerðu
sér ferð í líffræðistofuna og varð
ekki öllum um sel, en eins og Mar-
grét sagði létu flestir sér nægja að
horfa á, sumir snertu lungun og
komust að því að þau voru lunga-
mjúk.“
Áhugasömum er bent á að
myndir úr líffræðitímanum má sjá á
heimasíðu skólans, www.ma.is.
Hvernig fagna söfn afmælum?
er spurt í frétt frá Minjasafninu á
Akureyri. Og svarið er auðvitað ein-
falt: „Jú, með sýningum og afmælis-
hátíð.“ Og 50 ára afmæli safnsins
verður einmitt fagnað um helgina.
Andi 1962 verður allsráðandi á
Minjasafninu á laugardaginn, þegar
haldið verður upp á afmælið. „Hinn
aldagamli garður safnsins fyllist
tónum og fiðringur færist í fæt-
urna.“ Dansað verður um allan garð
og mér skilst að boðið verði upp á
Valash, Conga og Bragakaffi …
Til að mörk nútíðar og fortíðar
verði enn óskýrari verða bílar frá
Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyr-
ar til sýnis á flötinni fyrir neðan
safnið auk þess sem starfsfólk og
þátttakendur í afmælinu verða
klædd í samræmi við tískuna 1962.
Afmælið heldur áfram á sunnu-
daginn; þá verður sannkallað af-
mælisboð með tilheyrandi köku-
hlaðborði, sem 100 ára
afmælisbarnið Kristjánsbakarí býð-
ur upp á. Ýmislegt verður til
skemmtunar, bæði fyrir börn og
fullorðna.
Í kvöld verða á Græna hattinum
styrktartónleikar fyrir Kisukot,
sem er nýstofnað afdrep fyrir týnda
ketti á Akureyri, en Ragnheiður
Gunnarsdóttir hefur rekið það í
heimahúsi. Fram koma Ingó Han-
sen, Aron Óskarsson og Hans Frið-
rik, Valmar Väljaots, hljómsveitin
Berklarnir og Inga Dagný Eydal.
Þar að auki mun Anna Dóra
Gunnarsdóttir segja frá köttunum
sínum í gegnum tíðina á gaman-
saman hátt. Tónleikarnir hefjast kl.
21.00, aðgangseyrir er 1.500 kr. og
rennur óskiptur í Kisukot.
KK Band verður með tónleika á
Græna hattinum annað kvöld, en
sveitin heldur um þessar mundir
upp á 20 ár afmælið. Beggi Smári og
hljómsveitin hans, Mood, verða svo
með tónleika á hattinum á laugar-
dagskvöldið.
Sjómannadagurinn verður
vitaskuld haldinn hátíðlegur á
Akureyri um helgina og verður dag-
skráin fjölbreytt; í Sandgerðisbót,
við Pollinn, í Hofi og á útivistar-
svæðinu að Hömrum frá föstudegi
til sunnudags. Yfirlit yfir dagskrána
má sjá á www.visitakureyri.is.
Fólk er sérstaklega hvatt til þess
að taka þátt í róðrarkeppni; jafnvel
að stofna lið með vinum og vanda-
mönnum. Rúnar Þór Björnsson hjá
siglingaklúbbnum Nökkva tekur við
skráningum, bæði í síma 864 5799
og á netfanginu siglingaklubbur-
inn@gmail.com.
Nýtt akstursíþróttasvæði Bíla-
klúbbs Akureyrar (BA) við Hlíðar-
fjallsveg var formlega vígt á sunnu-
daginn, og félagsheimili klúbbsins
einnig opnað. Félagar í klúbbnum
fullyrða að svæðið sé það besta sinn-
ar tegundar hér á landi.
Bílaklúbbur Akureyrar var
stofnaður 27. maí 1974, nákvæmlega
38 árum áður en nýja svæðið var
tekið í notkun. Hann hefur alla tíð
stefnt að því að fá til afnota öruggt
svæði til að stunda keppnisíþróttir
og unnið skv. kjörorðinu hraðakstur
af götum bæjarins, að sögn Krist-
jáns Þ. Kristinssonar formanns.
Þó að Hjalteyri teljist ekki til
Akureyrar er stutt að skjótast
þangað! Þess vegna er full ástæða
til að hvetja bæjarbúa til að koma
við á kaffihúsinu sem kennt er við
eyrina; ungt par hefur tekið rekst-
urinn á leigu í sumar og býður upp á
girnilegt heimabakað brauð og mat.
Þar er ekki í kot vísað …
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sól Ingibjörg Leifsdóttir, starfsmaður Sólskóga í Kjarnaskógi, vökvaði í gær. Nóg hefur verið að gera í blíðunni.
Sögulegt hjá BA
og Minjasafninu