Morgunblaðið - 31.05.2012, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
„Það mætti eiginlega segja að ég
væri í skítamálum,“ segir Páll Stef-
ánsson ljósmyndari sem er að vinna
að verkefni þessa dagana um tíu
menguðustu staði heims. „Verkefnið
er ákaflega einfalt. Sem ljósmyndari
á maður alltaf að reyna að hafa áhrif
til góðs og fyrir rúmum tveimur ár-
um rakst ég á lista yfir tíu staði í
heiminum þar sem manneskjan hef-
ur farið hvað lengst fram úr sér, tíu
menguðustu staði jarðar. Mér fannst
þetta voðalega spennandi verkefni
og hef nú þegar farið á fimm þessara
staða, meðal annars til Aserbaíd-
sjan, Perú og Indlands, og tekið
myndir sem sýna staðina í réttu
ljósi,“ segir Páll og bætir við að upp-
lifun sín af stöðunum hafi verið alveg
svakalega ógeðsleg.
„Konan mín fór með mér til Ind-
lands enda er hún afskaplega hrifin
af landinu og hefur komið þangað
oft. Hún heimsótti mig á staðinn sem
ég var að mynda í hálfan dag og flúði
strax. Hún lýsti
viðbjóðnum
þannig að tenn-
urnar yrðu loðnar
eftir að hafa verið
þarna í korter,“
segir hann en vill
koma því á fram-
færi að hann sé
ekki að taka
myndir af rusla-
haugum. „Þetta
er ekki svona umhverfisklám þótt
það væri vissulega auðvelt fyrir mig
að taka bara myndir af skorsteinum
og rusli. Ég vil frekar búa til mann-
eskjulegar myndir af stöðum sem
eru alveg hræðilegir,“ útskýrir Páll.
Hvergi velkominn
„Þetta er dýrt, þetta er erfitt og
ég er ekki velkominn á neinn af
þessum stöðum. Ég tek myndirnar á
risastóra myndavél með þrífæti svo
ég er ekki að reyna að fela mig. Auð-
vitað væri léttara að taka þær á
smærri myndavél og vera í leyni en
þá finnst mér myndirnar ekki verða
sannar,“ segir Páll, sem var hand-
tekinn og rekinn úr landi er hann
tók myndir í bænum Sumgayit í
Aserbaídsjan árið 2010.
„Fólk er mjög undrandi yfir því
hversu vel ég hef sloppið því landið
er að miklu leyti lokað fyrir erlend-
um fjölmiðlum,“ segir hann um
reynslu sína en sl. laugardag opnaði
Páll einmitt sýningu í Crymogeu,
Barónstíg 27, á þeim myndum sem
hann tók í Aserbaídsjan til að vekja
athygli á þessari hlið landsins.
„Kristján í Crymogeu, útgefandinn
minn, benti mér á að þetta væri hin
hliðin á Aserbaídsjan, sú sem fólk
hefur ekki séð, og okkur fannst til-
valið að opna sýninguna þegar úr-
slitakvöld Evróvisjón var haldið í
Bakú og glamúrinn væri hvað mest-
ur,“ segir Páll sem hyggst halda
ótrauður áfram að ferðast til þeirra
staða sem hann á eftir.
Að því loknu verður myndunum
frá tíu menguðustu stöðum jarðar
safnað saman í bók í líkingu við ljós-
myndabókina Áfram Afríka! sem
kom út árið 2010.
Ljósmynd/Páll Stefánsson
Mengun Starfsmaður ríkisolíufélags Aserbaídsjan er meðal þeirra sem sjá má á sýningu Páls í Crymogeu.
„Hin hliðin á
Aserbaídsjan“
Ljósmyndarinn Páll Stefánsson er „í skítamálum“
Páll
Stefánsson
Kór Neskirkju
heldur tónleika í
Neskirkju í kvöld
kl. 20:30. Á tón-
leikunum verður
flutt efnisskrá
fyrirhugaðrar
tónleikaferðar til
Skotlands 3.-7.
júní nk. Enginn
aðgangseyrir er á
tónleikana en
þeim sem áhuga hafa gefst kostur á
að styrkja ferðasjóð kórsins, en seld
verða sumarblóm á staðnum.
Á efnisskrá tónleikanna eru kór-
verk eftir ólík tónskáld og frá ýms-
um tímabilum. Einnig verður frum-
flutt verkið Exultate Deo eftir
Steingrím Þórhallsson, stjórnanda
Kórs Neskirkju, sem samið er fyrir
blandaðan kór og flautu. Pamela De
Sensi flautuleikari kemur fram á
tónleikunum og einsöngur er í hönd-
um Ragnhildar D. Þórhallsdóttur.
Söngur og sumar-
blóm í Neskirkju
Steingrímur
Þórhallsson
Bandaríski gítarleikarinn og
lagahöfundurinn Arthel „Doc“
Watson er látinn, 89 ára að
aldri. Watson lést í Norður-
Karólínu nokkrum dögum eftir
að hafa farið í magaskurð-
aðgerð. Watson var blindur,
þekktur fyrir afar hraðan gítar-
leik, nánar tiltekið gítarpikk, og
var mörgum gítarleikaranum
innblástur, eins og segir í frétt á
vef breska ríkisútvarpsins,
BBC. Hann hlaut átta Grammy-
verðlaun á ferlinum og þar af
verðlaun fyrir ævistarfið árið
2004. Watson blandaði saman
þjóðlagatónlist frá Appalasíu-
fjöllum og blágresi, kántrí,
gospel og blús með einstökum
hætti og var kraftmikill söngv-
ari. Watson gaf út um 60 breið-
skífur á ferlinum og af vinsæl-
um lögum eftir hann má nefna
„Rising Sun Blues“.
Allur Tónlistarmaðurinn Arthel „Doc“
Watson er látinn, 89 ára að aldri.
Gítarleikarinn
Doc Watson
látinn
AFP
568 8000 | borgarleikhus.is
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30
Mið 6/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 1/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið)
Fim 7/6 kl. 20:00
Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 1/6 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
IIInnirugnirh-nevohteeB
Tónleikar Fös. 01.06 » 19:30
Aukatónleikar Fös. 08.06 » 19:30
Tónleikar Fim. 07.06 » Uppselt
Fös 01.06 » 18:30
Fim 07.06 » 18:30
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is