Morgunblaðið - 09.06.2012, Side 45
aðarins fyrir verkþekkingu.
Þorsteinn var varamaður í stjórn
Stéttarfélags verkfræðinga 1995-99,
var virkur í 4x4 jeppaklúbbnum,
hefur setið í sóknarnefnd Bústaða-
kirkju frá 2005, var formaður
byggingarnefndar Bústaðakirkju
2005-2010, situr í skólaráði Foss-
vogsskóla frá 2008, er varaformaður
Samfoks frá 2010 og sat í Barna- og
unglingaráði Víkings 2010-2011.
Hann er auk þess í verkefnastjórn
um kortlagningu jöklanna hér á
landi.
Óbyggðirnar kalla
Þorsteinn var þriggja ára er hann
fór sína fyrstu hálendisferð og ólst
síðan upp við slíkar ferðir, en for-
eldrar hans hafa alla tíð haft mikið
dálæti á íslenskum óbyggðum og
farið í fjölda ferða yfir þvert og
endilangt landið:
„Ég hef augljóslega erft þennan
áhuga foreldra minna enda hef ég
og fjölskylda mín farið í ótal öræfa-
ferðir um árabil og allan ársins
hring.
Í slíkar ferðir þarf maður að hafa
góðan og vel útbúinn jeppa sem
hefur verið breytt á skynsamlegan
hátt. Þaðan kemur jeppaáhuginn.
Ég hef líka haft gaman af að
ganga á fjöll þó ég telji mig engan
sérfræðing í þeim efnum. Ég hef
þó gengið tvisvar á Hvannadals-
hnúk, á mörg önnur hæstu fjöll
landsins, og í mörg ár gekk ég,
ásamt félögum mínum, Guðlaugi
Jónassyni og Páli Ævari Pálssyni,
á Esjuna á hverjum sunnudags-
morgni kl. 7.00.
Fjölskylduveiðiferðir
Þá förum við alltaf í fjölskyldu-
veiðiferðir og höfum veitt í Fremi-
Laxá á Ásum í mörg ár og við
Hvítá í Borgarfirði. Við hjónin höf-
um alltaf lagt áherslu á að kynna
börnunum okkar landið. Það gerir
maður ekki með því að halda sér
við hringveginn tvo mánuði á ári, fá
sér ís í Hveragerði og pitsu á
Hvolsvelli. Maður þar að koma sér
svolítið úr alfaraleið og ferðast um
landið allan ársins hring.“
Fjölskylda
Eiginkona Þorsteins er Auður
Björg Þorvarðardóttir, f. 3.8. 1964,
hjúkrunarfræðingur við Landspít-
alann í Fossvogi. Hún er dóttir
Þorvarðs Alfonssonar, f. 23.6. 1931,
hagfræðings í Reykjavík, og Almut
Alfonsson, f. 9.7. 1936, d. 29.12.
2004, sérhæfðs aðstoðarmanns
sjúkraþjálfara.
Börn Þorsteins og Auðar eru
Alma Björg Þorsteinsdóttir, f. 2.6.
1998, og Víglundur Ottó Þor-
steinsson, f. 4.6. 2002.
Systkini Þorsteins eru Sigrún
Víglundsdóttir, f. 6.11. 1960, MBA
og verkefnastjóri hjá Advania, bú-
sett í Hafnarfirði; Víglundur Þór
Víglundsson, f. 15.2. 1966, verk-
fræðingur í Reykjavík; Ásgerður
Edda Víglunsdóttir, f. 8.10. 1971,
viðskiptafræðingur og MA í endur-
skoðun, í Reykjavík.
Foreldrar Þorsteins eru Víg-
lundur Þór Þorsteinsson, f. í Vest-
mannaeyjum 24.7. 1934, læknir, og
Fríða Jóhanna Daníelsdóttir, f. á
Ísafirði 15.1. 1935, kennari.
Úr frændgarði Þorsteins Inga Víglundssonar
Jóhannes Þórðarson
landpóstur á Ísafirði
Málfríður Daníelsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Ásgeir Jónsson
b. á Eiði í Hestfirði
Sigríður Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Eiði
Jónína G. Þorsteinsd.
húsfr. á Krossi
Jóhann Marteinsson
b. á Krossi í Mjóaf.
Katrín Gísladóttir
húfr. á Krossi
Þorsteinn Ingi
Víglundsson
Víglundur Þ. Þorsteinsson
læknir
Fríða Jóhanna Daníelsd.
kennari
Karitas Ásgeirsd.
húsfr. á Ísafirði
Daníel Hörðdal Jóhannesson
málaram. á Ísafirði
Ingigerður Jóhannsdóttir
húsfr. í Eyjum
Þorsteinn Þ. Víglundsson
skólastj og bæjarfulltr. í Eyjum
Víglundur Þorgrímsson
b. á Krossi í Mjóaf.
Guðmundur Ásgeirsson
b. á Kleifum í Hestf.
Gísli Jóhann
Jóhannsson
frá Krossi
Páll Ólafs-
son, vkm. í
Eyjum
Gísli
Pálsson
prófessor
Lilja Víglundsd.
húsfr. í Neskaupst.
Inga Jóhanna Halldórsd.
húsf. í Eyjum
Guðjón
Hjörleifsson
fyrrv. alþm.
og bæjarstj.
í Eyjum
Kristín S. Þorsteinsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Þorsteinn I.
Sigfússon
forstj. NMÍ
Árni Sigfússon
bæjarstj. í
Reykjanesbæ
Þór Sigfússon
framkvæmda-
stj. Ísl.
sjávarklasa
UppáklæddAuður Björg og Þor-
steinn, Alma Björg og Víglundur Ottó.
ÍSLENDINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012
90 ára
Anna Guðjónsdóttir
Vilborg Magnea
Þórðardóttir
85 ára
Árni Pálsson
Guðlaugur Árnason
Stefán Ólafur Gíslason
Svava Þuríður Árnadóttir
80 ára
Jensína Rósa Jónasdóttir
Lilja Guðjónsdóttir
75 ára
Baldur Sigurðsson
Eyjólfur Eyjólfsson
Guðrún Sigurfinnsdóttir
Haukur Magnússon
Helga Friðbjarnardóttir
70 ára
Eiríkur Sigurjónsson
Ingibjörg M. Ragnarsdóttir
Magnús Sigurður
Ríkarðsson
Sveinbjörn Björnsson
Viðar Sigurgeirsson
Örn Sigurðsson
60 ára
Ástbjörg Kornelíusdóttir
Guðni Már Henningsson
Helgi Gunnarsson
Hilmar Baldursson
Jóhann I. Halldórsson
Klara Sigríður Árnadóttir
Kolbrún Gísladóttir
Marek Czeslaw Mulas
Margrét Gunnarsdóttir
María Erla Másdóttir
María Sally Jónsdóttir
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Svava Björnsdóttir
Þórarinn Baldursson
50 ára
Anna Dóra Jóhannsdóttir
Dóra Ósk Halldórsdóttir
Guðrún Agnes
Kristjánsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Halldór Örn Árnason
Harpa Hallgrímsdóttir
Heiðdís Hulda Andradóttir
Hrefna Birna Björnsdóttir
Jóhannes Svavar
Rúnarsson
Rósa Kristín Gísladóttir
Viðar Garðarsson
Vilhjálmur Harðarson
40 ára
Auðunn Baldvinsson
Björgvin Theodór Arnarson
Daníel Sigurðsson
Davíð Ottó Harrysson
Einar Gunnar
Guðmundsson
Ingibjörg S. Sigurðardóttir
Jón Sölvi Ólafsson
Margrét Ósk Reynisdóttir
Sigríður Sól Björnsdóttir
30 ára
Berglind Rut Magnúsdóttir
Dariusz Piotr Jaworski
Egill Jóhannsson
Grétar Már Grímsson
Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir
Jóhannes Björn Arelakis
Selma Gunnarsdóttir
Sigurgeir Ágúst Helgason
Til hamingju með daginn
30 ára Hrefna ólst upp á
Selfossi og er búsett þar í
dag. Hún starfar sem
stuðningsfulltrúi í Sunnu-
lækjarskóla á Selfossi.
Maki Bergur Sverrisson,
f. 1979, kjötiðnaðarmaður
og starfar í fiskbúð.
Börn Sverrir Óli, f. 2004,
og Garðar Freyr, f. 2007,
Bergssynir.
Foreldrar Guðbjörg Har-
aldsdóttir, f. 1951, stuðn-
ingsfulltrúi í Sunnulækj-
arskóla, og Garðar
Gestsson, f. 1946, mjólk-
urbílstjóri.
Hrefna
Garðarsdóttir
30 ára Jóhanna Helga
fæddist í Reykjavík en býr
á Egilsstöðum. Hún vinn-
ur á leikskólanum Skógar-
landi á Egilsstöðum.
Sonur Aron Breki Óttars-
sons, f. 2006.
Systkini Guðmundur
Þór, f. 1970, nuddari, Elín
María, f. 1983 og Arna
Björg, f. 1990.
Foreldrar Lovísa Guð-
mundsdóttir, f. 1951, heil-
brigðisritari á Landspít-
alanum, og Jóhann
Þorvaldsson, f. 1940, d.
1999.
Jóhanna Helga
Jóhannsdóttir
Sigríður Jensdóttir ljósmyndari
fæddist 9. júní í Skógargerði í Norð-
ur-Múlasýslu. Hún var dóttir
hjónanna Jens Halldórssonar gull-
smiðs og Ingibjargar Gísladóttur.
Sigríður giftist Eyjólfi Jónssyni,
klæðskera, ljósmyndara og banka-
stjóra á Seyðisfirði, f. 1869. Hann
nam klæðskeraiðn og ljósmyndun í
Noregi og Kaupmannahöfn. Þau
eignuðust fimm börn.
Sigríður lærði fyrst ljósmyndun
hjá Eyjólfi Jónssyni á Seyðisfirði í
upphafi tuttugustu aldarinnar og
hélt í framhaldsnám í ljósmyndun til
Kaupmannahafnar 1906-1907.
Hún hóf störf um aldamótin við
saumaskap á klæðskeraverkstæði
Eyjólfs Jónssonar, eiginmanns síns.
Þá rak hún ljósmyndastofu Eyjólfs
Jónssonar alla tíð eða frá 1904-1940.
Samhliða ljósmyndastofunni rak
hún verslunina Turninn með manni
sínum frá 1908-1936.
Helsta viðfangsefni ljósmynda
Sigríðar var fólk og tók hún margar
fjölskyldumyndir og myndaði einnig
fólk við störf sín. Með heimkomunni
frá Kaupmannahöfn fylgdi henni
dönsk kona, útlærður ljósmyndari,
sem starfaði um hríð á stofunni.
Á þessum tíma þótti eftirsóknar-
vert að eiga ljósmynd af fjölskyld-
unni á heimilinu, og því var töluvert
að gera á ljósmyndastofunum. Iðn-
greinin ljósmyndun var ekki karla-
starf líkt og margar aðrar iðn-
greinar á þessum tíma.
Ekki hafa margar myndir varð-
veist; vegna bruna ljósmyndastof-
unnar árið 1904 og við lát Eyjólfs
bauð Sigríður Seyðisfjarðarbæ
plötusafnið til eignar með því skil-
yrði að það yrði varðveitt í viðunandi
húsnæði. Tilboðinu var hafnað og
var því nánast öllu safninu hent í sjó-
inn. En Ljósmyndasafn Reykjavíkur
mun þó eiga nokkra tugi af plötum
auk Þjóðminjasafnsins.
Sigríður var jafnan í forystuliði
kvenna í kvenfélagi Seyðisfjarðar,
þær gengust meðal annars fyrir því
að reisa kirkju á Fjarðaröldu á
Seyðisfirði og fegra umhverfið í
kringum garðinn.
Eftir lát eiginmanns síns flutti
hún til Reyjavíkur og bjó þar til dán-
ardags.
Sigríður Jensdóttir dó 4. ágúst
1956.
Merkir Íslendingar
Sigríður
Jensdóttir
30 ára Úlfar Freyr er í
meistaranámi í lögfræði í
HR og vinnur hjá Mat-
vælastofnun.
Maki Anna Lilja Hall-
grímsdóttir, f. 1986, lög-
fræðingur hjá Lögmanna-
félagi Íslands.
Foreldrar Jóhann Hinrik
Gunnarsson, f. 1953, Ingi-
björg Jóhanna Gunn-
laugsdóttir, f. 1956, fram-
kvstj. Sambands íslenskra
myndlistarmanna, og
Brynjólfur Jónsson, f.
1957, framkvstj. Skóg-
ræktarfélags Íslands.
Úlfar Freyr
Jóhannsson
www.gilbert.is
HANDSKREYTT ÍANDA ÍSLENSKRAÚTSKURÐARMEISTARAFYRRIALDA
EINSTAKT ÍSLENSKT ÚR
VIÐ KYNNUM