Kjarninn - 19.06.2014, Page 51
01/03 pistill
f
lestir sem ég þekki á mínum aldri eru á svipuðum
stað í lífinu – kláruðu námið fyrir nokkrum árum,
eru að taka fyrstu skrefin á vinnumarkaðnum
og búnir að stofna fjölskyldu, eða reyna það að
minnsta kosti mjög stíft.
Þetta líf útheimtir mikla orku; vinnan teygir sig oft upp í
10 tíma á dag, þar af 1-2 tíma á kvöldin, ásamt því að skutl til
og frá leikskóla, dagmömmu og í tómstundir tekur ekki und-
ir klukkutíma á dag. Svo þarf að versla í matinn og elda, setja
í uppþvottavél, svæfa og reyna að sinna einhverjum heimilis-
störfum, eins og að vinna á þvottafjallinu í sófanum, milli
þess sem reynt er að fylgjast með fréttum og vera current og
ferskur á samfélagsmiðlunum.
Þegar þetta er frá er allt hitt eftir. Allir hlutirnir sem
maður á að vera að sinna fyrir sjálfan sig, eins og að hreyfa
sig reglulega, hugsa vel um sig og stunda einhverjar ótrúlega
áhugaverðar tómstundir.
frábæra
fólkið
Árni Helgason skrifar um fegurðina í hversdagsleikanum og
frábæra fólkið sem virðist alls ekki búa í honum.
pistill
Árni Helgason
lögmaður
kjarninn 19. júní 2014