Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Styrkir
Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/styrkir
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir
næsta ár. Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsókn-
um um styrki vegna starfsemi á árinu 2013.
Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og
efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og
einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjón-
ustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og
forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a.
veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningarmála
Á vefsíðunni www.reykjavik.is/styrkir er
hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um
umsóknarferli. Einnig er þar að finna reglur um
styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur
borgarinnar í einstökum málaflokkum.
Umsóknarfrestur er til 1. október nk. og eru
einungis teknar til greina umsóknir sem berast
innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem
reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á
umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um
styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar
vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni
eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir alla jafna
hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu
fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með
hliðsjón af eftirfarandi:
• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé
að þeim verði náð
• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
• hvort unnt sé að meta framvindu verksins
• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem
styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur
• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir
umrædda starfsemi
• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra
fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn
Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undir-
gangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um
styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og
ráða verði lokið í ársbyrjun 2013.
h
u
n
a
n
g
·s
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má
senda á netfangið styrkir@reykjavik.is
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is
Reykjavík City grants
Granty Miasta Reykjavík
Icelandair mun hefja áætlunarflug
til þriggja nýrra áfangastaða á
næsta ári. Um er að ræða borgirnar
Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í
Rússlandi og Zürich í Sviss. Að sögn
Icelandair er unnið að frágangi
heildaráætlunar flugfélagsins fyrir
árið 2013 og verður hún kynnt á
næstunni.
Nýta möguleika í leiðakerfi
Flogið verður til St.Pétursborgar
frá 1. júní, tvisvar í viku til 17. sept-
ember. „Við erum að opna okkur og
íslenskri ferðaþjónustu nýja leið inn
á Rússlandsmarkað, sem er afar stór
og vaxandi ferðamannamarkaður og
um leið að bjóða Íslendingum nýjan
og spennandi áfangastað í beinu
flugi,“ segir Birkir Hólm Guðnason
framkvæmdastjóri í tilkynningu frá
Icelandair.
Þar kemur fram að nú sé í fyrsta
skipti verið að bjóða upp á beint
áætlunarflug milli Íslands og Rúss-
lands. Með flugi til St. Pétursborgar
nýti Icelandair einnig þá möguleika
sem felast í leiðakerfi félagsins og
tengiflugi milli Rússlands og Banda-
ríkjanna, farþegar geti auðveldlega
náð beinu áframhaldandi morgun-
flugi Icelandair til New York og
Boston með aðeins um einnar
klukkustundar tengitíma í Leifsstöð.
Rússneskum ferðamönnum hefur
fjölgað bæði hér á landi sem og í öðr-
um Evrópulöndum á undanförnum
árum og í tilkynningu Icelandair
segir að það skapi grundvöll fyrir
beint flug.
„Við höfum séð fjölgun rússneskra
ferðamanna á Íslandi og bindum
töluverðar vonir við þeir nýti sér
flugið. Við þykjumst líka vissir um
það að Íslendingar muni sýna þess-
ari borg áhuga enda er hún einkar
heillandi og skemmtileg,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair.
Flug til Anchorage hefst 15. maí
og flogið verður til 15. september. Í
tilkynningu segir að töluverður
straumur farþega sé á milli Evrópu
og Alaska bæði vegna öflugs at-
vinnulífs og ferðaþjónustu. Með því
að millilenda á Íslandi í stað Banda-
ríkjanna geti farþegar stytt ferða-
tíma sinn um þrjár klukkustundir
eða meira.
Flogið verður til Zürich tvisvar í
viku frá 1. júní til 14. september.
Segir Icelandair að þetta flug muni
styrkja félagið á ferðamannamark-
aðinum í Mið-Evrópu og jafnframt
auka valkosti í fluginu milli Norður-
Ameríku og Evrópu. heimirs@mbl.is
Áætlunarflug til Rússlands
Sjá ný tækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu með komu rússneskra ferðamanna
Hefja flug til St. Pétursborgar, Anchorage og Zürich næsta sumar
Morgunblaðið/Eggert
Samgöngur Forsvarsmenn Icelandair sjá ýmsa möguleika fyrir íslenska
ferðaþjónustu með því að hefja áætlunarflug til St. Pétursborgar.
STUTT
Bærinn Krókur á Garðaholti í
Garðabæ hefur verið opinn á
sunnudögum í sumar. Á morgun
verður opið frá kl. 13-17 og er
það síðasta sunnudagsopnunin í
sumar. Krókur er lítill bárujárns-
klæddur burstabær sem var end-
urbyggður úr torfbæ árið 1923. Í
Króki eru varðveitt gömul hús-
gögn og munir sem voru í eigu
hjónanna Þorbjargar Stefaníu
Guðjónsdóttur og Vilmundar
Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók
vorið 1934 og bjó í Króki til árs-
ins 1985. Afkomendur þeirra
gáfu Garðabæ húsin í Króki með
því skilyrði að bærinn yrði endur-
byggður. Undanfarin ár hefur
verið opið að sumri til í Króki
fyrir almenning og skólahópar
jafnt sem aðrir hópar hafa heim-
sótt bæinn yfir vetrartímann. Í
Króki er einnig herbergi sem
hefur verið nýtt sem vinnu-
aðstaða fyrir listamenn.
Opið í Króki
Á morgun, sunnudag, verður haldið
upp á fimm ára afmæli Alcoa
Fjarðaáls við álverið á Reyðarfirði.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði
fyrir unga sem aldna. Boðið verður
upp á skoðunarferðir um álverið
milli klukkan 12 og 18. Klukkan 14
hefur Lúðrasveit Norðfjarðar upp
raust sína. Að því loknu syngur
Bergþór Pálsson nokkur lög með
karlakórnum Glað frá Eskifirði. Á
útisviði leikur Álbandið, rokk-
hljómsveit álversins, Slökkvilið
Fjarðabyggðar kemur og sýnir
tækjaflotann á meðan yngsta kyn-
slóðin leikur sér í hoppkastala og
gæðir sér á ís og sykurfrauð. Grín-
arar og töframenn verða á staðnum
og frá Þjóðleikhúsinu koma Lilli
klifurmús og Mikki refur. Einnig
kemur hljómsveitin Coney Island
og leikur lög af nýjum geisladiski.
Í matsal álversins verður boðið
upp á veitingar. Þar mun hin gam-
algróna hljómsveit HildirHans
leika ljúfa tóna auk þess sem sýndir
verða listmunir úr áli eftir íslenska
hönnuði. Á sunnudagskvöld verða
haldnir tónleikar í Tónlistar-
miðstöð Austurlands í tilefni af 120
ára fæðingarafmæli Inga T. Lár-
ussonar. Tónleikarnir eru í boði Al-
coa og er aðgangur ókeypis.
Morgunblaðið/ÞÖK
Haldið upp á fimm
ára afmæli Fjarðaáls
Íbúasamtök Grafarholts, Knattspyrnu-
félagið Fram, Þjónustumiðstöð Grafar-
holts og Ársel bjóða til fyrstu hverfis-
hátíðarinnar í Grafarholti í dag,
laugardaginn 25. ágúst. Hátíðin hefur
fengið heitið „Í Holtinu heima“ og kjör-
orð hennar eru samvera og samkennd.
Í tilefni hennar eru íbúar hvattir til að sýna náunganum hlýju, bjóða gestum og
gangandi í heimsókn eða taka sig saman og halda götugrill að kveldi dags, seg-
ir í tilkynningu. Dagskrá hefst kl. 11 með útimarkaði við Ingunnarskóla.
Klukkan 13 mætir meistaraflokkur Fram í kvennaknattspyrnu BÍ/Bolungar-
vík á Framvellinum í Úlfarsárdal. Eftir leikinn eða kl. 15 heldur Fram fótbolta-
mót milli gatna í hverfinu á vellinum í Úlfarsárdal.
Blásið hefur verið til ljósmyndakeppni í tilefni hátíðarinnar. Íbúar eru hvatt-
ir til að setja inn ljósmyndir sem vísa með einum eða öðrum hætti til orðsins
„heima“ á facebooksíðu Íbúasamtaka Grafarholts, Ég er íbúi í Grafarholti.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir bestu myndina og verða úrslit kynnt við varð-
eld í Leirdal kl. 21. Söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson skemmtir þar.
Fyrsta hverfishátíðin í Grafarholti
Vegna vinnu á Lambhagavegi milli
Mímisbrunns og hringtorgs við
Reynisvatnsveg verður veginum
lokað fyrir umferð og beint um hjá-
leiðir um Vesturlandsveg. Lokað
verður á mánudagsmorgun, 27.
ágúst, og er áætlað að verkið taki
fimm daga.
Endurgera þarf efra burðarlag
götunnar á 130 metra löngum
kafla, endurleggja malbik og kant-
steina. Verkið verður unnið af Fag-
verki og makbikunarstöðinni
Höfða.
Beðist er velvirðingar á töfum
sem af framkvæmdum stafa og veg-
farendur eru jafnframt beðnir að
sýna aðgát á hjáleiðum, segir í til-
kynningu frá Reykjavíkurborg.
Tímabundin lokun
Hin árlega uppskeruhátíð Grasa-
garðsins í Laugardal verður haldin
í dag, laugardaginn 25. ágúst kl. 13-
15.
Garðyrkjufræðingar og annað
starfsfólk garðsins munu kynna
ræktun, nýtingu og geymslu mat-
og kryddjurta. Einnig mun Einar
Logi Einarsson grasalæknir fræða
gesti um lækningajurtir og áhrif
þeirra en í nytjajurtagarði Grasa-
garðsins eru, auk grænmetis og
kryddjurta, ræktaðar lækninga-
plöntur.
Gestum verður boðið að bragða á
nýuppteknu grænmeti úr garð-
inum, grænmetissúpu og grasatei
úr lækningajurtum.
Allir eru velkomnir í Grasagarð-
inn í dag, segir í tilkynningu.
Uppskeruhátíð
í Laugardalnum