Morgunblaðið - 25.08.2012, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Listasafn í Noregi hefur viðurkennt
að mynd eftir hollenska listamann-
inn Rembrandt hafi týnst í pósti.
Myndin er metin á um eina milljón
króna, að sögn fréttavefjar breska
ríkisútvarpsins. Listasafnið ákvað
að senda hana með póstinum til að
spara sendingarkostnað og trygg-
ingu.
Soli Brug Gallery í Greåker í
Noregi, sem er um 80 km suður af
Ósló, keypti verkið af breskum
listaverkasala. Listaverkið er frá
árinu 1658. Ole Derje, stjórnandi
hjá galleríinu, sagði í samtali við
BBC, að það væri dýrt að tryggja
svona verk og senda það með hrað-
þjónustu. Hann segist hafa fengið
tilkynningu frá póstinum um að
nálgast verkið á næsta pósthúsi.
Þegar hann hugðist ná í verkið
fannst það ekki og hefur ekki fund-
ist síðan.
Derje segir að pósturinn hafi
boðist til að greiða um 100 þúsund
krónur í bætur. Hilde Ebeltoft-
Skaugrud, talsmaður norska pósts-
ins, segir leitt að svona skyldi hafa
farið, en pósturinn hafi mælt með
því við viðskiptavini sína að nota
annars konar þjónustu þegar verið
væri að flytja dýra hluti milli landa.
Soli Brug Gallery á listaverk eft-
ir nokkra af þekktustu listamönn-
um í heimi, m.a. Rembrandt, Goya,
Munch og Dali.
Hollenski listmálarinn og svart-
listarmaðurinn Rembrandt Har-
menszoon van Rijn var uppi á ár-
unum 1606-69 og er álitinn einn af
höfuðsnillingum listasögunnar.
Hann bjó lengst af í Amsterdam á
blómaskeiði hollenska lýðveldisins.
Rembrandt-verk
týndist í pósti
Sent í pósti í sparnaðarskyni
Týnt Verkið heitir Lieven Willemsz
Van Coppenol, Writing-Master.
Ungir gestir á listahátíð í borginni Kassel í Þýskalandi
halda á myndum af kínverska listamanninum og and-
ófsmanninum Ai Weiwei fyrir framan vofustyttu eftir
taílenska listamanninn Apichatpong Weerasethakul.
Ungmennin vildu vekja athygli á baráttu Ai við kín-
versk yfirvöld sem hafa dæmt hann til að greiða jafn-
virði 290 milljóna kr. í sekt fyrir meint skattsvik. Ai
Weiwei segir dóminn af pólitískum rótum runninn.
AFP
Gerningur til stuðnings Ai Weiwei
Berlín. AFP. | Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, ræddi við gríska for-
sætisráðherrann Antonis Samaras í
Berlín í gær og lagði áherslu á að
Þjóðverjar vildu að Grikkland yrði
áfram á evrusvæðinu.
„Ég vil segja mjög skýrt að ég vil
að Grikkland verði hluti af evru-
svæðinu áfram. Þetta er haft að
leiðarljósi í öllum viðræðum okkar,“
sagði Merkel á blaðamannafundi
með Samaras. „Ég er sannfærð um
að nýja gríska ríkisstjórnin, undir
forystu Samaras forsætisráðherra,
gerir allt til að leysa vandamálin sem
Grikkland stendur frammi fyrir. Við
vitum að þetta krefst mikilla fórna
og við Þjóðverjar höfum alltaf sagt
að við munum styðja Grikki í þessu.“
Samaras lofaði að Grikkir myndu
standa við loforð sín við lánardrottn-
ana og sagði að gríska stjórnin væri
ekki að biðja um meiri peninga til að
afstýra greiðsluþroti gríska ríkisins.
„Ég er viss um að áætlun okkar fer
að bera árangur bráðlega. Við mun-
um ná markmiðum okkar.“
Samaras sagði ekkert um hvort
hann hefði óskað eftir því að skil-
málum neyðarlána yrði breytt þann-
ig að Grikkland fengi lengri frest til
að til að fullnægja skilyrðunum.
AFP
Krísufundur Merkel og Antonis
Samaras takast í hendur í Berlín.
Grikkir haldi evrunni
Merkel lofar Antonis Samaras stuðningi og segir að þýska
ríkisstjórnin vilji að Grikkland verði áfram á evrusvæðinu
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
www.s i ggaog t imo . i s
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922