Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Ég mun eyða afmælisdeginum í faðmi fjölskyldunnar,“ segirYrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur sem í dag fagnar þrítugs-afmæli sínu en í gær hélt hún upp á afmælið með vinum og
skáluðu þau eftirminnilega fyrir deginum á miðnætti.
Í tilefni dagsins ætlar fjölskylda Yrsu Þallar að koma saman á
heimili móður hennar og snæða saman kvöldverð. Spurð hvort
eiginmaður hennar, Gunnar Theodór Eggertsson, muni gera eitt-
hvað sérstakt og óvænt með henni í tilefni afmælisins segir hún: „Ég
vænti þess að eiginmaður minn komi mér skemmtilega á óvart með
morgunmat í rúmið og fallegri gjöf.“
Yrsa Þöll og Gunnar Theodór eiga saman stúlkuna Þórhildi Elínu,
sem verður eins árs gömul í september næstkomandi. Í sumar hélt
fjölskyldan til Bandaríkjanna þar sem þau eyddu fimm vikum á
ferðalagi og segir hún ferðina hafa verið ævintýri líkasta. „Við
keyrðum um allt Nýja-England og var tíu mánaða dóttir okkar með
í för. Það var sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með henni en hún
var að upplifa ýmislegt framandi og forvitnilegt í fyrsta skipti,“ seg-
ir Yrsa Þöll.
Spurð hvort hún sé með nýja bók í bígerð kveður hún já við. „Ég
er að skrifa skáldsögu en veit þó ekki alveg hvenær hún kemur út en
vonandi ekki síðar en árið 2014.“ khj@mbl.is
Yrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur 30 ára
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundur Yrsa Þöll Gylfadóttir fagnar í dag 30 ára afmæli sínu en
um þessar mundir vinnur hún að nýrri skáldsögu.
Vonast eftir morg-
unverði í rúmið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Jón Kr. Bjarna-
son er níræður í
dag, 25. ágúst.
Hann fæddist í
Ísafirði við Skut-
ulsfjörð en bjó
meirihluta ævinn-
ar í Reykjavík þar
sem hann starf-
aði sem leigubíl-
stjóri. Eiginkona hans er Guðríður
Pálsdóttir og varð þeim fjögurra
barna auðið. Hann fagnar afmæli sínu
í faðmi fjölskyldunnar.
Árnað heilla
90 ára
Kópavogur Daníel Darri fæddist 1. júní kl. 11.09. Hann vó 3.375 g og var 50 cm
langur. Foreldrar hans eru Helena Rós Hafsteinsdóttir og Þorleifur Reynisson.
Nýr borgari
Á
sta fæddist í Reykjavík
og sleit barnsskónum á
Jörva við Suðurlands-
veg. Hún stundaði nám
við Paycr School of Art
í New Haven í Bandaríkjunum
1968-69, við Leiðsögumannaskólann
1972-73, lauk stúdentsprófi frá MT
1973, stundaði nám við L’Université
de Caen í frönsku, latínu og grísku
1973-74, lauk BA-prófi í frönsku og
sálfræði frá HÍ, stundaði viðbót-
arnám í námsráðgjöf við Háskólann
í Þrándheimi 1981 og fór námsferð
til Bandaríkjanna vegna uppbygg-
ingar námsráðgjafar við HÍ 1982.
Ásta var umsjónarmaður Stund-
arinnar okkar 1971-72, kennari
1976-77, tómstundafulltrúi í Fella-
helli og Árseli 1978-81, námsráðgjafi
við HÍ 1981-99, forstöðumaður þar
1991-99, kennari í námsráðgjöf við
HÍ 1988-89, var sjálfstætt starfandi
náms- og starfsráðgjafi frá 1999 og
hefur sinnt nýsköpunarverkefnum á
sviði náms- og starfsráðgjafar.
NemaCode og Nemanet
Segðu okkur svolítið nánar frá
þessu nýsköpunarstarfi, Ásta.
„Framlag mitt hefur einkum fal-
ist í tveimur verkefnum. Annað
þeirra felst í nýrri aðferð við túlkun
áhugasviðsgreininga og heitir
NemaCode. Verkefnið var unnið
með styrk Leonardo-áætlunarinnar
og í samstarfi við þrjú Evrópulönd.
Meistarinn að baki flestöllum
áhugasviðsgreiningum er John
Ásta K. Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri NemaForum – 60 ára
Hjónasæla Ásta og Valli völdu sér ekki starfsöryggi innan opinberra stofnanna. Starfsvettvangur þeirra hefur ver-
ið frjáls markaður hugmynda, kenninga, tónlistar og menningar. Samt alltaf jafn sæt, vinsamleg og skemmtileg.
Í kúltúr og kennismíði
Ásta og John L. Holland Farið yfir nýja túlkun á áhugasviðsgreiningu.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjónVERKFÆRIN FYRIR SKÓLANA
FÁST Í BRYNJU
Lykilverslun við Laugaveginn frá 1919
Áratuga þekking og reynsla
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is | opið virka daga frá 9-18 og lau frá 10-16
HEFILBEKKIR, HVERFISTEINAR, BRÝNI, TÁLGUHNÍFAR,
SMÁFRÆSARAR, ÚTSKURÐAR- OG RENNIJÁRN