Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 227. tölublað 100. árgangur
AGNIR RAÐAST
SAMAN OG SPRINGA
AFTUR Í SUNDUR
ASÍ OG SA ÓSAMMÁLA
UM SKATTINN
HANDAVINNUHÚS,
SAUÐARLITIR OG
SKOTTHÚFUR
DEILT UM ÚTREIKNINGA 14 AUKABLAÐ UM HANNYRÐIRTÓNLISTIN NÝTUR SÍN Í DANSVERKI 42
Fréttaskýring eftir Baldur Arnarson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Atvinnuleysisbætur fólks í hluta-
starfi hafa verið skertar of mikið
vegna rangs útreiknings og fá um
2.000 einstaklingar endurgreiðslur
upp á 250 milljónir fljótlega upp úr
næstu mánaðamótum.
Skv. upplýsingum Vinnumála-
stofnunar þurfti að endurreikna at-
vinnuleysisbætur vegna hlutastarfa
eftir að skekkja í reikniforriti upp-
götvaðist. Í ljós kom að skerðing
bóta til þeirra sem höfðu hlutastörf
ásamt því að fá greiddar atvinnu-
leysistryggingar reyndist of mikil.
Nær aftur til 1. september 2010
Við nánari skoðun varð ljóst að um
rangan útreikning stofnunarinnar
var að ræða frá 1. september 2010 en
þá var fyrst greitt samkvæmt laga-
breytingu sem tók gildi það ár.
„Vinnumálastofnun mun […] end-
urgreiða þeim einstaklingum sem
hafa orðið fyrir skaða vegna þessa og
upphæðin sem greidd verður er um
250 milljónir króna, þar með talin
staðgreiðsla skatta og launatengd
gjöld.
Skekkjan nær til u.þ.b. 2.000 ein-
staklinga sem hafa stundað vinnu
ásamt því að fá greiddar atvinnu-
leysistryggingar á þessu tímabili,“
segir í samantekt stofnunarinnar.
Þeir sem rétt eiga á endurgreiðslu fá
sent bréf frá stofnuninni og greitt
verður 5. október nk.
250 milljónir til baka
Atvinnuleysisbætur vegna hlutastarfa voru skertar of mikið vegna rangra út-
reikninga 2.000 manns sem hafa orðið fyrir skaða fá endurgreiðslur 5. október
Meiri skerðing bóta
» Útreikningi atvinnuleysis-
trygginga var breytt 2010. Í
stað þess að reikna bætur út
frá dögum eru þær reiknaðar út
frá meðalmánuði.
» Við þessa breytingu var út-
reikningi á hlutabótum breytt
sem leiddi til meiri skerðingar.
„Það er ekki rétt sem komið hefur
fram í fréttum að Höskuldi hafi ekki
verið gert viðvart um þessa ákvörð-
un. Í fyrsta lagi mína, að ég væri
sem sagt að hverfa á braut, og að
formaður flokksins vildi efla Fram-
sóknarflokkinn í Norðaustur-
kjördæmi með því að bjóða fram
krafta sína þar. Þannig að það er í
raun og veru eitthvað sem hefði ekk-
ert átt að koma á óvart og sú um-
ræða er mér í raun og veru óskilj-
anleg,“ sagði Birkir Jón Jónsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
m.a. í spjallþættinum Svartar tung-
ur á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Í yfirlýsingu sinni hefur Hösk-
uldur Þórhallsson hafnað því að
hafa verið látinn vita fyrirfram af
ákvörðun Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar um að bjóða sig fram í 1.
sæti í Norðausturkjördæmi. Hösk-
uldur sækist einnig eftir 1. sæti. »12
Höskuldur vissi um
ákvörðun Birkis og
Sigmundar Davíðs
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Framsókn Birkir Jón Jónsson og Hösk-
uldur Þórhallsson saman á góðri stund.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, setti RIFF-kvikmyndahátíðina í
Hörpu í gærkvöldi, í gervi jedi-riddarans Obi-Wan Kenobi úr Stjörnustríðs-
myndunum. Þegar Jón hafði lokið ræðu sinni og lagt niður geislasverðið
hófst sýning á opnunarmynd hátíðarinnar, Drottningunni af Montreuil.
Riddari og drottning á opnunarhátíð RIFF
Morgunblaðið/Golli
Þeir sem eru með
mánaðartekjur
sem eru lægri en
247.500 krónur á
mánuði geta
fengið 25% afslátt
af sektum vegna
umferðarlaga-
brota, verði nýtt
frumvarp til um-
ferðarlaga að lögum. Leggja þarf
fram skattframtal síðasta árs til að
fá sektina lækkaða.
Í frumvarpinu kemur ekki fram
hvort afslátturinn bætist ofan á 25%
afsláttinn sem hægt er að fá með því
að greiða sektir innan 30 daga frá
því að þær eru gefnar út en líklegt
hlýtur að teljast að svo sé.
Undanfarið hefur verið bent á að í
Finnlandi hækka sektir eftir því sem
fjárhagur hinna brotlegu er sterk-
ari. Í frumvarpinu er ekki lagt til að
sú leið verði farin hér heldur verði
komið til móts við tekjulága með því
að veita afslátt, enda hafi sektir
meiri áhrif á fjárhag þeirra. Afslátt-
urinn miðast við hálf önnur lág-
markslaun skv. samningum Starfs-
greinasambandsins og SA. »22
Tekjulágir geta fengið
25% afslátt af sektum
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Stefán Einar Stefánsson, formaður
VR, ætlar að kalla eftir því á þingi ASÍ
sem haldið verður í næsta mánuði,
hvort forseti ASÍ eigi yfirhöfuð að tjá
sig um aðildarumsóknina að Evrópu-
sambandinu fyrir hönd ASÍ: „Enda er
ekki hægt að vitna eilíflega í gamlar
ályktanir frá löngu liðnum þingum.
Menn verða að endurnýja þá afstöðu
til þess að geta talað í umboði þessarar
stóru hreyfingar.“ ASÍ hefur um ára-
bil fylgt þeirri stefnu að Ísland eigi að
sækjast eftir aðild að ESB og taka upp
evruna. Ekkert er hins vegar fjallað
um Evrópumálin í umræðuskjölum
sem unnin hafa verið fyrir þingið og er
frestur til að leggja fram tillögur til af-
greiðslu á þinginu runninn út.
„Ég hélt trúnaðarráðsfund í VR í
síðustu viku og þar kom þetta til um-
ræðu og það stakk í augun að ekkert
væri fjallað um Evrópumálin í þessum
pakka,“ segir hann. Kveðst hann túlka
umræðuna á fundinum svo að menn
telji að ASÍ eigi ekkert að vera að tjá
sig um aðild að ESB og evruna. Allar
kannanir bendi til þess að meirihluti sé
andvígur aðild.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að menn hafi talið að ljúka ætti
viðræðunum svo þjóðin gæti tekið af-
stöðu til álitaefnanna. ASÍ hafi ekki
krafist aðildar að ESB óháð öllu öðru
heldur sett mjög sterka fyrirvara um
sjávarútvegsmál, byggðamál og land-
búnaðarmál. »6
ASÍ tjái sig ekki um ESB
„Ekki hægt að vitna eilíflega í gamlar ályktanir frá löngu
liðnum þingum,“ segir formaður VR um málflutning ASÍ
„Ef lögreglu-
menn þurfa að
velja eitt verkefni
umfram annað
mun það vænt-
anlega leiða til
stórslyss,“ segir
Snorri Magn-
ússon, formaður
Landssambands
lögreglumanna,
um áhrif niðurskurðar til löggæslu.
Hann kannast vel við það sem kom
fram í grein lögreglumanna í
Morgunblaðinu í gær, að lög-
reglumenn þurfi að velja á milli
slysa eftir alvarleika þeirra. »4
Löggan getur ekki
sinnt öllum slysum
Snorri Magnússon