Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Íslenska krónan er uppruni sveiflna. Hún jafnar ekki sveiflur í hagkerfinu, heldur magnar þær upp. Í stað þess að vinna gegn sveiflum er hún sveiflumagnari. Þetta er ein meginnið- urstaðan í skýrslu Seðlabankans sem kom út í síðustu viku. Fjárfestar fælast sveiflur og óöryggi og þeir sækja í stöðugt umhverfi. Skortur á alþjóð- legum fjárfestingum á Íslandi er því hluti af gjaldmiðilsvanda Ís- lendinga. Um leið má segja, að skort á fjölbreytni í atvinnulífi og framboði á vel launuðum há- tæknistörfum fyrir ungt menntað fólk megi líka rekja til galla krón- unnar sem gjaldmiðils. Í skýrslu Seðlabankans kemur skýrt fram að valkostir Íslands eru tveir. Annars vegar að halda áfram með krónuna í betri búning, eða taka í fyllingu tímans upp evruna í bættum herklæðum. Báðir kost- irnir eru raunhæfir. Báðir fela þeir í sér að það er nauðsynlegt að skoða allar leiðir til að bæta krón- una sem gjaldmiðil, því jafnvel hörðustu evrusinnar verða að sætta sig við þá staðreynd, að þeir verða að búa við krónuna a.m.k. þangað til hægt er að taka upp evruna. Seðla- bankinn segir að það séu „allmörg ár“. Það er rétt, eins og sá veit, sem ferlinu stýrir. Jafnvel þótt allt gangi eins og í sögu varð- andi aðildarferlið verð- ur evran ekki upp tek- in fyrr en eftir „allmörg ár“. Það sem fælir marga frá tilhugs- uninni við að taka upp evruna er sú stað- reynd, að evrusvæðið er að ganga í gegnum mikla erfiðleika. Það hefur að vísu ekki bitið fast í þyngd evr- unnar sem gjaldmiðils, en hún stóð í lok ágúst sl. 6,5 % sterkari en sú trausta mynt, ameríski dollarinn. Nú eru hins vegar uppi sterkar vís- bendingar um að evran komist út úr núverandi vanda. Má þar ekki síst vísa til ummæla seðlabanka- stjóra Evrópu, Mario Draghi, um að bankinn muni gera allt sem þarf til að tryggja farsæld evrunnar. Jafnvel hörðustu krónusinnar geta því ekki útilokað þann mögu- leika að evran verði orðin að fýsi- legum kosti fyrir Ísland þegar liðin verða „allmörg ár“ og Íslendingar ættu hugsanlega kost á að gera hana að gjaldmiðli sínum. Við þurf- um þess vegna að hafa þann mögu- leika opinn, alveg eins og að velja krónuna sem gjaldmiðil framtíð- arinnar ef þjóðin telur það sinn besta kost í stöðunni. Ábyrg af- staða er að halda báðum kostum opnum. Styrkari umgjörð krónu veitir styrkari stoð fyrir upptöku evru í fyllingu tímans – eins og Seðlabankinn bendir á. Í því ljósi er það andstætt hags- munum Íslands að vilja stöðva að- ildarferlið. Það myndi loka sam- stundis á annan kostanna tveggja. Það væri ábyrgðarlaust glapræði. Þess vegna er það í þágu okkar allra að ferlið haldi áfram og við eigum beggja kosta völ. „Beggja kosta völ“ Eftir Össur Skarphéðinsson » Fjárfestar fælast sveiflur og óöryggi og þeir sækja í stöðugt umhverfi. Össur Skarphéðinsson Höfundur er utanríkisráðherra. Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálf- stæðisflokksins, ræð- ir skattbyrði við Morgunblaðið sl. miðvikudag. Þar fer hann með rangt mál og mikilvægt að koma leiðréttingum á framfæri hér og nú. Á árinu 2007 var tekjuskattsprósentan 35,72% og persónuafsláttur 385.800 kr. á árs- grunni. Mjög einfalt er að reikna skattbyrði t.d. á 200.000 kr. mán- aðartekjur (2.400.000 kr. árstekj- ur) og er útkoman 19,6%. En Bjarni heldur því samt sem áður fram að útkoman sé 12,1%! Þá niðurstöðu verður hann sjálfur að skýra út fyrir lesendum. Sama á við um alla aðra tekjuhópa sem Bjarni vitnar til, skattbyrði þeirra allra er ranglega reiknuð fyrir ár- ið 2007. Þessa röngu niðurstöðu ber Bjarni svo saman við skattbyrði eins og hún er á yfirstandandi ári og fær að vonum út að skattbyrði allra tekjuhópa hafi aukist í tíð núverandi ríkisstjórnar, en það er rangt. Hið rétta er að skattbyrði hefur minnkað á þá tekjulægri í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Þetta er því miður ekki í fyrsta skipti sem leiðrétta þarf skatta- útreikninga talsmanna Sjálfstæð- isflokksins í efnahagsmálum. Tryggvi Þór Herberts- son skrifaði grein í Fréttablaðið fyrr á þessu ári þar sem hann lagði skattpró- sentu efri þrepa á heildartekjur viðkom- andi tekjuhóps. Taka verður fram að Tryggvi Þór leiðrétti þessi mistök sín og er því maður að meiri. Þótt forystumenn Sjálfstæðisflokksins geri villur í útreikningi á skattbyrði má þó ekki gera ráð fyrir að það sé með vilja gert. Prósentureikning- ur Bjarna Benediktssonar Eftir Oddnýju G. Harðardóttur Oddný G. Harðardóttir » Þetta er því miður ekki í fyrsta skipti sem leiðrétta þarf skattaútreikninga tals- manna Sjálfstæð- isflokksins í efnahags- málum. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra. Tri ehf. Suðurlandsbraut 32 104 Reykjavík www.tri.is Verslunin er opin: Alla virka daga kl. 09:00-18:00 Laugardaga kl. 10:00-16:00 CUBE REACTION GTC PRO Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell.Fox Evolu- tion 32 Float RL 100mm. Shimano XT 30 gíra. Vökvadiskabremsur. Þyngd 11,1 kg. Listaverð: 399.990 kr. Tilboð: 299.990 kr. CARBON Listaverð: 455.990 kr. Tilboð: 341.990 kr. CARBON CUBE REACTION GTC RACE Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell. Rock shox Reba RL 100mm. Sram XO 30 gíra. Vökvadiskabremsur. Þyngd 10,4 kg. Listaverð: 525.990 kr. Tilboð: 394.990 kr. CARBON CUBE REACTION GTC SL Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell. Rock Shox SID RL 100mm. Shimano XT 30 gíra. Vökvadiskabremsur. Þyngd 10,3 kg. Fjallahjóladagar -25% Meðan birgðir endast. Tri áskilur sér rétt til allra breytinga á verði. Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands www.faerid.com Sölustaðir: N1, Pósturinn, Skeljungur, Nettó, Olís og Bónus. Lýstu upp garðinn. GARÐLÝSINGAR Bjóðum upp á einfalda lausn á lýsingum í garðinn. Kastara sem auðvelt er að koma fyrir hvar sem er á lóðinni. Hægt er að tengja einn eða fleiri kastara saman. Möguleikarnir eru endalausir. TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.