Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Rússneski BASE-stökkvarinn Andrej Nefedov stekkur af þaki 420 metra hás turns í Kuala Lumpur í Malasíu á alþjóðlegri hátíð BASE-stökkvara í gær. Um 95 atvinnumenn í BASE-stökki frá átján löndum tóku þátt í stökkhátíðinni. BASE-stökkvarar kasta sér fram af háum byggingum, brúm, klettum og fleiri stöðum og nota fallhlífar til að minnka hraðann. AFP Stökk af 420 m háum turni Ofurhugar á hátíð í Kuala Lumpur Rajoy sagði í viðtali við Wall Street Journal fyrr í vikunni að stjórnin myndi örugglega sækja um aðstoð björgunarsjóðsins og Seðla- banka Evrópu ef lántökukostnaður Spánar lækkaði ekki. Stjórnin hyggst meðal annars hækka skatta um 15 milljarða á næsta ári og skerða framlögin til sjálfstjórnarhéraðanna um sjö millj- arða. Samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu á að hækka lífeyrisgreiðslur á næsta ári en skerða atvinnuleysis- bætur og aðra félagslega aðstoð. Nokkrir hagfræðingar höfðu sagt að stjórnin þyrfti að skerða lífeyris- greiðslurnar en Rajoy lofaði fyrir síðustu kosningar að gera það ekki. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ríkisstjórn Spánar kom saman í gær til að samþykkja frumvarp til fjárlaga næsta árs þar sem gert er ráð fyrir sparnaði, skattahækkunum og kerfisumbótum til að minnka fjárlagahallann um samtals 39 millj- arða evra. Gert er ráð fyrir því að niður- stöður álagsprófa á spænska banka verði birtar í dag og margir telja að þær geti orðið til þess að Spánn, fjórða stærsta hagkerfi evrusvæð- isins, óski eftir aðstoð varanlegs björgunarsjóðs evrusamstarfsins, ESM. Þegar hefur verið ákveðið að veita spænsku bönkunum aðstoð að andvirði 20 milljarða evra en næst- stærsti banki Spánar, BBVA, áætl- aði í vikunni sem leið að bankarnir þyrftu 60 milljarða evra til viðbótar. Hægristjórn Marianos Rajoys, forsætisráðherra Spánar, hefur þeg- ar óskað eftir láni að andvirði 100 milljarða evra úr björgunarsjóðnum til að endurfjármagna stærstu banka landsins. Hyggst hækka skatta og spara Margir hagfræðingar telja að með sparnaðaraðgerðunum og kerfis- umbótunum sé stjórnin að búa sig undir að sækja um aðstoð björg- unarsjóðsins til að minnka lántöku- kostnað spænska ríkisins. „Stjórnin vonar að með fjárlagafrumvarpinu geri hún nóg til að uppfylla skilyrði fyrir aðstoð ESM og Seðlabanka Evrópu ef þörf krefur,“ hefur frétta- veitan AFP eftir Holger Schmied- ing, sérfræðingi þýska bankans Berenberg. „Stjórn Rajoys er enn tilbúin að gera það sem þarf til að rétta efnahag landsins við en svo virðist sem hún vilja kynna allt það, sem Spánverjar þurfa að gera, sem ákvörðun þeirra sjálfra, ekki sem skilyrði sem aðrir neyða þá til að samþykkja.“ Telja Spán færast nær því að óska eftir aðstoð  Niðurstöður álagsprófa á banka gætu leitt til beiðni um aðstoð björgunarsjóðsins og Seðlabanka Evrópu Nýjar hagtölur þykja auka líkur á því að Spánn þurfi að óska eftir aðstoð Erfiðleikar framundan á Spáni Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn 10 -1,7 -6,3 -4,7 -3,6 -3,3 -2,6 -2,1 -1,2 0,9 1,6 1,7 1,7 24,9 89,6 24,7 24,3 23,3 22,1 20,5 94,3 96,6 97,3 97 96,3 2012 2013 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2014 2015 2016 2017 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Hagvöxtur* Opinberar skuldir* Atvinnuleysi Fjárlagahalli* Í % af vinnuafliÁætlaður á næstu árum * Hundraðshluti landsframleiðslu Duga aðgerðirnar? » Spánarstjórn hyggst minnka fjárlagahallann um 62 millj- arða evra í ár, 39 milljarða á næsta ári og 50 milljarða árið 2014. Margir hagfræðingar eru efins um að þetta dugi til að leysa efnahagsvandann. » Stjórnin áætlar að fjár- lagahallinn í ár verði 6,3% af landsframleiðslu en margir hagfræðingar spá því að hann verði a.m.k. 7%. Þýsk kona hefur játað að hafa drep- ið fimm barna sinna þegar þau voru nýfædd. Konan, sem er 28 ára göm- ul, hefur verið ákærð fyrir mann- dráp og er ákæran í fimm liðum. Lík tveggja barna fundust í pappírsendurvinnslu og á bílastæði í mars 2006 og mars 2007. Konan gaf sig fram við lögreglu síðar og við yfirheyrslur játaði hún að hafa myrt börnin fimm. Líkum þriggja hafði hún komið fyrir í kjallara hússins sem hún býr í. Lögregla hafði ekki vitneskju um lát barnanna þriggja fyrr en konan ját- aði að hafa drepið þau á sama tíma og hún játaði á sig að hafa drepið börnin tvö sem höfðu fundist fyrir nokkrum árum. Samkvæmt upp- lýsingum frá lög- reglunni er eng- inn grunaður um að hafa aðstoðað konuna við dráp- in. Enginn hafi vitað af þungun hennar né heldur af fæðingu barnanna. Kon- an, sem er gift, á tvö börn með eiginmanni sínum, átta og tíu ára gömul. Fram kom í máli saksókn- ara á blaðamannafundi í gær að eiginmaðurinn hefði ekki viljað eignast fleiri börn. ÞÝSKALAND Játaði að hafa myrt fimm barna sinna Eitt barnanna jarðsett. Hjón sem hjálpast að við húsverkin eru líklegri til að skilja en hjón sem haga heimilishaldinu þannig að konan annist húsverkin að mestu, ef marka má niðurstöður rann- sóknar sem birtar voru í Noregi í gær. Rannsóknin leiddi í ljós að hjónaskilnaðir eru um 50% algeng- ari meðal hjóna sem hjálpast að við húsverkin og skipta þeim jafnt á milli sín. „Því meira sem eigin- maðurinn gerir á heimilinu því meiri líkur eru á hjónaskilnaði,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Thom- as Hansen, meðhöfundi skýrslu um rannsóknina. Hansen sagði að rannsóknar- mennirnir hefðu ekki fundið neinar vísbendingar um að þátttaka eigin- manna í húsverkunum væri orsök hjónaskilnaða. Skýringin væri m.a. sú að „nútímaleg“ hjón hjálpuðust ekki aðeins að við húsverkin heldur væru þau einnig síður líkleg til að líta svo á að hjónabandið væri heil- agt. „Í þessum nútímalegu hjóna- böndum eru konurnar líka yfirleitt með meiri menntun og í vel laun- uðum störfum, þannig að þær eru ekki eins háðar mökum sínum fjár- hagslega. Þær spjara sig betur ef þær skilja,“ sagði Hansen. NOREGUR Hjón sem hjálpast að líklegri til að skilja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.